3.6.2013 | 21:45
Anna á Hesteyri og bíllinn hennar
Anna frænka á Hesteyri var orðin nokkuð fullorðin þegar hún tók bílpróf og áskotnaðist Skoda bifreið. Mig minnir að frændi okkar, útgerðarmaður, hafi gefið Önnu bílinn og bílprófið. Eða alla vega verið henni innanhandar með hvorutveggja. Bíllinn reyndist Önnu mikið ævintýri. Hún skrifaði mömmu bréf og lýsti bílnum eins og um undur væri að ræða sem fáir hefðu séð með eigin augum.
Bílinn skoðaði Anna í bak og fyrir. Meðal annars vegna þess að hún þurfti að vita hvar einhver takki var í bílnum. Ég man ekki hvort að það var takki til að opna bensínlok, húdd eða skottlok. Anna og vinnukarl hennar skiptu liði og leituðu skipulega að takkanum. Karlinn leitaði inni í bílnum. Anna leitaði utan á bílnum. Þar á meðal skreið Anna undir bílinn. Það var afrek út af fyrir sig. Anna var það mikil um sig. Hún sagði þannig frá: "Það var aldeilis heppni að ég skyldi leita undir bílnum. Þar fann ég nefnilega varadekk. Ef ég hefði ekki leitað undir bílnum hefði mér aldrei dottið í hug að þar væri varadekk."
Bíllinn entist Önnu í mörg ár. Þó þjösnaðist hún á honum eins og um sterkbyggða dráttarvél væri að ræða. Á móti kom að bíllinn var aldrei mikið ekinn í kílómetrum talið. Að því kom að bíllinn gafst upp. Þá var Anna að keyra á honum yfir á með stórgrýttum botni. Anna hringdi miður sín í mömmu mína og sagði ótíðindin. Mamma spurði hvort bíllinn hafi lent á stórum steini sem hefði skemmt eitthvað undir bílnum. Anna andvarpaði, dæsti og svaraði döpur: "Nei, það er afar ólíklegt. Ég hef oft keyrt yfir stærri steina sem hafa bankað miklu fastar undir bílinn án þess að hann hafi drepið á sér. Það er einhver önnur ástæða fyrir því að bíllinn stoppaði."
Fleiri frásagnir af Önnu frænku: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1290123/
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Ferðalög, Samgöngur, Vinir og fjölskylda | Breytt 11.6.2013 kl. 23:40 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Sér heiminn í gegnum tönn
- Dularfulla kexið
- Ókeypis utanlandsferð
- Hlálegt
- Undarlegar nágrannaerjur
- Rökfastur krakki
- Ástarsvik eða?
- Grillsvindlið mikla
- Einn að misskilja!
- Ógeðfelld grilluppskrift
- Þessi vitneskja getur bjargað lífi
- Sparnaðarráð sem munar um!
- Smásaga um hlýjan mann
- Sparnaðarráð
- Smásaga um týnda sæng
Nýjustu athugasemdir
- Sér heiminn í gegnum tönn: Sigurður I B, nú hló ég hátt! jensgud 15.8.2025
- Sér heiminn í gegnum tönn: Við skulum vona að hún fái ekki tannpínu!! sigurdurig 15.8.2025
- Sér heiminn í gegnum tönn: Jóhann, það er frábært að þetta sé hægt! jensgud 15.8.2025
- Sér heiminn í gegnum tönn: "Horfðu á björtu hliðarnar" söng Sverrir Stormsker hérna um ári... johanneliasson 15.8.2025
- Sér heiminn í gegnum tönn: Stefán, heimurinn er orðinn ansi snúinn! jensgud 15.8.2025
- Sér heiminn í gegnum tönn: ,, Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn ,,... Stefán 15.8.2025
- Dularfulla kexið: Axel Þór, heldur betur! jensgud 9.8.2025
- Dularfulla kexið: "Af hverju ertu að gera mér þetta? Af því að þú leyfir mér það"... axeltor 8.8.2025
- Dularfulla kexið: Ein helsta arfleyfð Katrínar, eða hvað annað ? Stefán 8.8.2025
- Dularfulla kexið: Stefán, ég held að kexrugluðu glæpagengin séu fleiri. jensgud 8.8.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.8.): 6
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 797
- Frá upphafi: 4154314
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 634
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
sigurjonth
-
asthildurcesil
-
siggith
-
hallarut
-
reykur
-
rannveigh
-
skulablogg
-
fiski
-
gudruntora
-
asgerdurjona
-
zeriaph
-
jevbmaack
-
lehamzdr
-
ffreykjavik
-
fuf
-
stormsker
-
xfakureyri
-
jonmagnusson
-
palmig
-
jonaa
-
jakobsmagg
-
ktomm
-
th
-
jenfo
-
gurrihar
-
kiddirokk
-
hlynurh
-
skessa
-
prakkarinn
-
maggadora
-
skinkuorgel
-
agustolafur
-
einherji
-
heidathord
-
atlifannar
-
konukind
-
gudnim
-
730
-
blekpenni
-
heida
-
annabjo
-
vglilja
-
sleggjan007
-
markusth
-
bergruniris
-
aevark
-
rannthor
-
katrinsnaeholm
-
birgitta
-
jullibrjans
-
fararstjorinn
-
agny
-
ippa
-
hugrunj
-
aring
-
ikjarval
-
gujo
-
bjorgvinbjorgvinsson
-
drhook
-
runarsv
-
sjos
-
doriborg
-
haukurn
-
gammon
-
millarnir
-
robbitomm
-
korntop
-
killjoker
-
vantru
-
evathor
-
partners
-
heiddal
-
meistarinn
-
skrifa
-
heidistrand
-
iaprag
-
semaspeaks
-
svei
-
jonthorolafsson
-
sverrir
-
bonham
-
bjarnihardar
-
sigurgeirorri
-
ladyelin
-
birnamjoll
-
veraknuts
-
fia
-
plotubudin
-
ringarinn
-
nonninn
-
larahanna
-
juliusvalsson
-
skari60
-
ingvarvalgeirs
-
lubbiklettaskald
-
kolgrimur
-
olinathorv
-
hreinsi
-
baddinn
-
hrolfur
-
jenni-1001
-
handsprengja
-
ahi
-
perlaheim
-
gudrunmagnea
-
ommi
-
hemba
-
grumpa
-
bergthora
-
grafarholt
-
mummigud
-
athena
-
sigaxel
-
bjolli
-
gummiarnar
-
kerchner
-
rustikus
-
hordurj
-
thegirl
-
birna-dis
-
siggivalur
-
krizziuz
-
fridaeyland
-
evabenz
-
quackmore
-
andres08
-
bleikaeldingin
-
bardurorn
-
snorris
-
ver-mordingjar
-
nexa
-
thorasig
-
lindalinnet
-
gudni-is
-
mordingjautvarpid
-
arh
-
sinfonian
-
raggipalli
-
mongoqueen
-
lovelikeblood
-
holi
-
jakobk
-
rannveigbj
-
stebbifr
-
credo
-
ylfalind
-
herdis
-
steinnhaf
-
halo
-
gullilitli
-
810
-
motta
-
leifurl
-
janus
-
ljonid
-
kerla
-
solir
-
nilli
-
guru
-
steinnbach
-
skagstrendingur
-
hemmi
-
gunnar
-
hannamar
-
mosi
-
geislinn
-
hlekkur
-
luther
-
zumann
-
jara
-
hector
-
malacai
-
polly82
-
hughrif
-
einarlee
-
loopman
-
sign
-
destiny
-
gilsneggerz
-
thuridurbjorg
-
liljabolla
-
saethorhelgi
-
svatli
-
siggiholmar
-
folkerfifl
-
sigurjonsigurdsson
-
eythora
-
kiddijoi
-
kjartanis
-
rosagreta
-
gurkan
-
killerjoe
-
gthg
-
gebbo
-
laugatun
-
tru
-
presley
-
siggileelewis
-
helgamagg
-
doddilitli
-
kjarrip
-
steinibriem
-
huldumenn
-
jobbisig
-
id
-
mp3
-
blomid
-
ketilas08
-
lilly
-
hjolaferd
-
lostintime
-
skordalsbrynja
-
birtabeib
-
karitryggva
-
marzibil
-
zunzilla
-
fjola
-
storibjor
-
rannug
-
glamor
-
venus
-
eurovision
-
skjolid
-
einarsigvalda
-
minna
-
austurlandaegill
-
coke
-
eyja-vala
-
harpao
-
ljosmyndarinn
-
doriegils
-
lordbastard
-
neddi
-
holmarinn
-
vga
-
bus
-
dolli-dropi
-
vefritid
-
eirikurgudmundsson
-
hallibjarna
-
svetlana
-
blues
-
huxa
-
judas
-
asdisran
-
omarpet
-
skattborgari
-
himmalingur
-
neytendatalsmadur
-
salkaforlag
-
kje
-
laufabraud
-
vestskafttenor
-
gunnarggg
-
esb
-
ingvarari
-
gunnarpalsson
-
hreinn23
-
saltogpipar
-
hergeirsson
-
jea
-
arniarna
-
psychosurfer
-
metal
-
hreinsamviska
-
godinn
-
krissa1
-
robertb
-
perlaoghvolparnir
-
brandurj
-
madddy
-
tibet
-
minkurinn
-
hallidori
-
liso
-
graceperla
-
mrsblues
-
gummiogragga
-
sisvet
-
vild
-
holar
-
presleifur
-
helgadora
-
xjonsig
-
helgananna
-
meyjan
-
tungirtankar
-
visindavaka
-
borgarfjardarskotta
-
mal214
-
vilberg
-
brandarar
-
einarhardarson
-
steffy
-
adhdblogg
-
litliper
-
audunnh
-
gotusmidjan
-
saemi7
-
dorje
-
sterlends
-
jgfreemaninternational
-
aloevera
-
lucas
-
olibjossi
-
bestfyrir
-
helgigunnars
-
gleymmerei
-
leifur
-
ace
-
diesel
-
methusalem
-
astroblog
-
lynx013
-
brell
-
kikka
-
doddyjones
-
sigurjon
-
birnast
-
gunnarbjorn
-
disdis
-
valdinn
-
ragnar73
-
helgatho
-
cigar
-
parker
-
manisvans
-
kerubi
-
mis
-
bmexpress
-
drum
-
gisgis
-
finni
-
tbs
-
topplistinn
-
rognvaldurthor
-
pjeturstefans
-
gullfoss
-
lotta
-
thjodarsalin
-
freyrholm
-
olii
-
gattin
-
bjornj
-
olafiaherborg
-
rallysport
-
sur
-
sigrunzanz
-
rafng
-
hrannsa
-
draumur
-
aslaugas
-
aeon
-
gumson
-
axeltor
-
glamur
-
skinogskurir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
westurfari
-
bookiceland
-
braskarinn
-
komediuleikhusid
-
elfarlogi
-
elismar
-
emilhannes
-
fingurbjorg
-
frida-litlah
-
gudjul
-
gp
-
gusg
-
gubo
-
vgblogg
-
hafthorb
-
morgunblogg
-
sveinnelh
-
rattati
-
diva73
-
itlajh
-
minos
-
kliddi
-
daliaa
-
axelma
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
fun
-
jaisland
-
jeremia
-
johanneliasson
-
eyfeld
-
johannesthor
-
stjornun
-
josefsmari
-
x-d
-
kristjan9
-
larusg
-
lifsrettur
-
lifsyn
-
loftslag
-
ludvikludviksson
-
margretsverris
-
mofi
-
sumri
-
skari
-
raffi
-
rso
-
roslin
-
runarf
-
jardytan
-
sigridursig
-
joklamus
-
siggifannar
-
sigurdurig
-
stjornlagathing
-
stefanjul
-
stommason
-
steinki
-
svanurg
-
spurs
-
sveinneh
-
tryggvigunnarhansen
-
myworld
-
valdimarjohannesson
-
valmundur
-
vest1
-
totibald
Athugasemdir
Nú hló ég :)
Guðmundur Brynjólfsson, 3.6.2013 kl. 23:26
Jens minn. Greinilega kjarnakona góð, hún Anna frænka þín.
Þær eru fleiri Önnurnar, sem kunna ekki mikið meir um bíla, heldur en að þekkja litinn á fjórhjólinu yfirbyggða.
Ég er ein af þeim fáfróðu Önnum, sem kunna lítið á þessar yfirbyggðu fjórhjóla-mótordrifnu sjálfrennireiðir, eins og vitur maður kallaði svona vegaþjón.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.6.2013 kl. 23:27
Hesteyri í Ísafjarðardjúpi, eða alla vega á kjálkanum,?'
Helga Kristjánsdóttir, 4.6.2013 kl. 02:02
Guðmundur, Anna Marta er óendanleg uppspretta góðs hláturs.
Jens Guð, 4.6.2013 kl. 10:52
Anna Sigríður, almennt kann fólk lítið á sjálfrennireiðarnar. Einkum nú til dags þegar þær eru orðnar meira og minna tölvustýrðar.
Jens Guð, 4.6.2013 kl. 10:54
Helga, þetta er Hesteyri í Mjóafirði á Austurlandi.
Jens Guð, 4.6.2013 kl. 10:54
Jens. Það sem mér finnst merkilegast við Önnu frænku þína, var að hún tók í einhvern stuttan tíma að sér samfélags-útskúfaðan, unglingsára-baklands-lausan, fátækan og lesblindan dreng, sem hét Sævar Siselski (afsakið að ég kann ekki að skrifa eftirnafnið rétt).
Það er stóri plúsinn í kladdann, sem hún Anna frá Hesteyri í Mjóafirði á austurlandi, fær frá mér. Hún hefur verið sannkölluð hverdagshetja, sem ekki hefur fengið réttmætar þakkir fyrir sín fordómalausu góðverk.
Það þykir víst ekki mjög arðvænlegt né fínt, að hjálpa minni máttar, lesblindum, fordæmdum og Kerfis/samfélags-útskúfuðum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.6.2013 kl. 17:22
Anna Sigríður, það er rétt hjá þér að Sævar dvaldi um tíma á Hesteyri hjá Önnu. Þeim kom afskaplega vel saman. Sævar spilaði á gítar og þau sungu saman heilu og hálfu kvöldin. Önnu þótti vænt um Sævar. Ég er viss um að það var gagnkvæmt.
Jens Guð, 4.6.2013 kl. 19:38
Jens minn. Já, sannar og góðar sálir finna alltaf ó-falska samkenndar-tóna.
Þau Anna og Sævar áttu það eflaust sameiginlegt, að vera háð ákvörðunum háu herranna, í öllu sem þau upplifðu og tókust á við í þessu jarðlífi.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.6.2013 kl. 21:46
Anna Sigríður, svo rétt hjá þér.
Jens Guð, 4.6.2013 kl. 23:06
Heyrðu, heyrðu, heyrðu. Það gleymdist að segja okkur hvaða tegund bíllinn var


Guðni Karl Harðarson, 5.6.2013 kl. 12:42
Hún var stórkostleg persóna hún Anna á Hesteyri
Villa Ölvers (IP-tala skráð) 5.6.2013 kl. 13:00
Guðni, þetta var Skodi.
Jens Guð, 5.6.2013 kl. 19:08
Villa, svo sannarlega.
Jens Guð, 5.6.2013 kl. 19:08
Skemmtileg frásögn Jens.
hilmar jónsson, 5.6.2013 kl. 19:40
Skodi árgerð? og gerð
Guðni Karl Harðarson, 5.6.2013 kl. 19:53
Hilmar, takk fyrir það. Sögurnar af Önnu Mörtu skrifa sig eiginlega sjálfar.
Jens Guð, 5.6.2013 kl. 21:15
Guðni, ég er ekki með þær upplýsingar á hreinu.
Jens Guð, 5.6.2013 kl. 21:17
hehehehe ;) alltaf gott að droppa her inn og skella uppúr ;)
sæunn (IP-tala skráð) 12.6.2013 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.