Bestu plötur ársins 2013

  Nokkrir fjölmiðlar hafa þjófstartað og birt áramótauppgjör,  lista yfir bestu plötur ársins 2013.  Það er gaman að skoða niðurstöðuna.  Málið er að taka þetta ekki of hátíðlega.  Þetta er aðeins léttur og saklaus samkvæmisleikur.  Hér er niðurstaða nokkurra miðla.  Fyrst er það listi netmiðilsins Pitchfork. 

  Fremsti sviginn sýnir niðurstöðu breska vikublaðsins NME.  Næsti svigi er útkoman hjá bresku netsíðunni Aoty.  Þriðji sviginn er sóttur í smiðju netsíðunnar Best ever albums.  Fjórði sviginn er listi bandaríska tímaritsins Spin.  Aftasti sviginn er niðurstaðan hjá Rolling Stone. 

kanye west-yeezus

1  (6) (6) (6) (1) (2) Kanye West - Yeezus
 

 
2  (-) (18) (3) (3) (1) Vampire Weekend - Modern Vampires of the City
3  (-) (-) (1) (37) (5) Arcade Fire - Reflektor
4  (-) (-) (-) (5) (13) Disclosure - Settle
5  (-) (3) (8) (39) (23) My Bloody Valentine - m b v
6  (-) (-) (-) (-) (-) Darkside - Psychic
7  (-) (1) (-) (22) (-) Deafheaven - Sunbather
8  (2) (-) (4) (19) (3) Daft Punk - Random Access Memories
9  (-) (-) (-) (-) (-) Phosphorescent - Muchacho
10 (-) (8) (-) (-) (17) Danny Brown - OLD
 
  Í 1. sæti hjá NME er AM með hljómsveitinni Arctic Monkeys

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi tónlistarlisti virkar nú við fyrstu sýn vera álíka óspennandi og Gunnar Bragi utanríkisráðherra, sem frægastur er í dag fyrir harðorðar SMS sendigar út og suður til forystumanna Framsóknarflokksins. Þessi skagfirski skaphundur virðist m.a. vera í mikilli nöp við landssamband Framsóknarkvenna sem greinilega mega ekki tjá sig innan flokksins. Maður spyr sig hvernig þær nenna að standa í þessu svona kúgaðar, en maður þarf varla ekki að spyrja sig af hverju Sigmundur Davíð þorði ekki annað en að gera Gunnar Braga að utanríkisráðherra. Væntanlega til þess að losna við hann sem mest úr landi á kjörtímabilinu.   

Stefán (IP-tala skráð) 3.12.2013 kl. 08:39

2 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Hvað kemur Gunnar Bragi þessu við, í hvaða bandi er hann?

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 3.12.2013 kl. 13:54

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Stefán minn, er ekki rétt að fara að skipta yfir í koffeinlaust? Þessi plata sem þú spilar hér á kommentakerfinu kemur efni bloggana ekki rassgat við. Áttar þú þig á því? Ef þú ert svona uppfullur gremju og reiði út í þessa ríkisstjórn, þá endilega opnaðu eigið blogg og helltu drullunni þinni inn á það.

En fyrst og fremst...farðu að drekka koffeinlaust, skottastu í göngutur og fáðu þér ferskt loft til að ná þráhyggjuþokunni úr hausnum á þér.

Ef þér er mikið mál að hægja þér þá finndu blogg sem eru að ræða stjórnmál líðandi stundar, sestu á þínar tjáningarhækjur og láttu gossa þar.

Við hin yrðum ofsalega þakklát.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.12.2013 kl. 14:22

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Með tilvísun í fyrra blogg er eðlilegt að spyrja hvort þetta sé tímabært, hafa allar plötur ársins komið út?. Annars á tómlistamaðurin Gunnar Bragi erindi í þessa umræðu, hann keppir í flokknum "rispaðar plötur".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.12.2013 kl. 14:40

5 identicon

Ha, ha, ha, Góður Axel Jóhann ! 

Stefán (IP-tala skráð) 3.12.2013 kl. 15:18

6 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  það er gaman að skoða þessa lista og bera saman hversu samstíga gagnrýnendur eru um sumar plötur og ósamstíga um aðrar.  Rapparinn Kanye West kemur þarna sterkur til leiks. 

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 20:30

7 Smámynd: Jens Guð

  Guðmundur Rafnkell,  hann er ekki í Sú Ellen.  Ég myndi vita af því. 

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 20:31

8 Smámynd: Jens Guð

  Jón Steinar,  það er í góðu lagi að hver sem er tjái sig um hvað sem er á þessum vettvangi.  Bara um að gera. 

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 20:35

9 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er ekki Gunnar Bragi í LÍÚ bandinu???

Sigurður I B Guðmundsson, 3.12.2013 kl. 21:04

10 Smámynd: Jens Guð

  Axel Jóhann,  þetta er alveg rétt athugað hjá þér.  Þess vegna byrja ég pistilinn á því að ásaka viðkomandi fjölmiðla um að þjófstarta.  Engu að síður - vegna þess að ég er með músíkdelluna á háu stigi - þá þykir mér gaman að skoða þessa lista og velta mér upp úr þeim. 

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 21:15

11 Smámynd: Jens Guð

  Stefán (#5),  ég tek undir það!

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 21:15

12 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður I.B.,  alltaf góður!

Jens Guð, 3.12.2013 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband