Grófasta lygin

  Ég laug ekki beinlínis heldur sagði ekki allan sannleikann.  Eitthvað á þessa leið orðaði þingmaður það er hann reyndi að ljúga sig út úr áburði um að hafa stolið þakdúki, kantsteinum, fánum, kúlupenna og ýmsu öðru smálegu.  Í aðdraganda kosninga sækir margur í þetta farið.  Kannski ekki að stela kantsteinum heldur að segja ekki allan sannleikann.  Við erum vitni að því ítrekað þessa dagana.

  Grófasta lygin kemur úr annarri átt.  Nefnilega Kópavogi.  Í Hjallabrekku hefur löngum verið rekin matvöruverslun.  Í glugga verslunarinnar blasir við merkingin "10-11 alltaf opin".  Hið rétta er að búðin hefur verið harðlæst undanfarna daga.  Þegar rýnt er inn um glugga - framhjá merkingunni "10-11 alltaf opin" - blasa við galtómar hillur.

 

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hun er opin milli tíu og ellefu á kvöldin. Er hættir í matvörunni og sérhæfa sig nú í hillum.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.10.2017 kl. 07:26

2 Smámynd: Jens Guð

Jón Steinar,  hlaut að vera!

Jens Guð, 11.10.2017 kl. 09:00

3 identicon

Bíddu nú við, Jón Steinar ... hvað er lygi, og hvað er sannleikur ...

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 11.10.2017 kl. 10:27

4 identicon

Held reyndar að það sé ekki lygi að flestar 10-11 búðir séu oft alveg án viðskiptavina í einhvern tíma á hverjum degi og sjaldan margir viðskiptavinir inni í einu, nema í túristaversluninni í Austurstræti.

Stefán (IP-tala skráð) 11.10.2017 kl. 10:47

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

10-11 er sennilega póstmódernísk verslunarkeðja sem afbyggir hið phallogosentríska sannleikshugtak vestrænnar hugsunar.

Wilhelm Emilsson, 11.10.2017 kl. 12:52

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég ætlaði einu sinni að opna sjoppu sem átti að heita OPIÐ. Hún yrði þó ekki opin nema á helgum milli 9 og 12. :)

Jón Steinar Ragnarsson, 11.10.2017 kl. 13:52

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Ég lýg bara þegar það hentar mér, nei annars ég lýg því!!

Sigurður I B Guðmundsson, 11.10.2017 kl. 16:55

8 Smámynd: Jens Guð

Bjarne Örn,  við skulum ekki efast um orð mannsins sem hannaði spliff, donk og gengju.

https://www.youtube.com/watch?v=7duzHiZK9r0

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 07:02

9 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég fékk í gær upphringingu með þeim tíðindum að verið sé að loka verslun 10-11 í Hafnarfirði.  Ég gleymdi strax staðsetningunni.  

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 07:07

10 Smámynd: Jens Guð

Wilhelm,  þetta er sennilega rétt hjá þér.

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 07:07

11 Smámynd: Jens Guð

Jón Steinar (# 6),  hugmyndin er svo góð að það er synd að hún hafi ekki orðið að veruleika!

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 07:10

12 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  er það ekki lýgi?

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 07:11

13 identicon

Fyrir utan sumar 10-11 búðir standa svo bensíndælur, fáir eða engir bílar og hálfsofandi útimaður.

Stefán (IP-tala skráð) 12.10.2017 kl. 11:56

14 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  það voru fréttir af því að Skeljungur væri búinn að kaupa 10-11.  Verð hlutabréfa ruku upp.  Lífeyrissjóðir hömstruðu hlutabréfin á meðan þeir sem seldu hlógu alla leið í bankann.  Svo bara keypti Skeljungur ekki 10-11.  

Jens Guð, 12.10.2017 kl. 17:25

15 identicon

Það er hægt að búa til allan fjárann til að líta vel út.

Stefán (IP-tala skráð) 12.10.2017 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.