Hlálegur misskilningur

  Miðaldra íslensk kona var búsett erlendis.  Einn góðan veðurdag ákvað hún að fljúga til Íslands til að heimsækja vini og ættingja.  Það hafði hún vanrækt í alltof langan tíma.  Aldraður faðir hennar skutlaðist út á flugvöll til að sækja hana.  Hún var varla fyrr komin í gegnum toll og heilsa honum er hún áttaði sig á klaufaskap.

  "Bölvað vesen,"  kallaði hún upp yfir sig.  "Ég gleymdi tollinum!"

  "Hvað var það?" spurði pabbinn. 

  "Sígarettur og Jack Daniels," upplýsti hún.

  "Ég næ í það,"  svaraði hann,  snérist á hæl og stormaði valdmannslegur á móti straumi komufarþega og framhjá tollvörðum.  Hann var áberandi,  næstum tveir metrar á hæð,  íklæddur stífpressuðum jakkafötum,  með bindi og gyllta bindisnælu. 

  Nokkru síðar stikaði hann sömu leið til baka.  Í annarri hendi hélt hann á sígarettukartoni.  Í hinni bar hann Jack Daniels.

  Er feðginin héldu af stað til Reykjavíkur sagði konan:  "Ég skipti gjaldeyri á morgun og borga þér tollinn."

  "Borga mér?" spurði öldungurinn alveg ringlaður.

  Í ljós kom misskilningur.  Hann hélt að dóttir sín hefði keypt tollvarninginn en gleymt að taka hann með sér.  Gamli var svo viss um þetta að hann borgaði ekkert. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo var það kringlótta gatið í gömlu flugstöðinni þar sem fólk var að troða peningum (seðlum) til ættinga svo viðkomandi gæti keypt eitthvað í fríhöfninni.

Sigurður I B Guðmundsson, 1.3.2022 kl. 16:50

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég hef heyrt um þetta gat.  Það var einhver svona smuga fyrst eftir að nýja flugstöðin var tekin í gagnið. 

Jens Guð, 1.3.2022 kl. 17:08

3 identicon

Asnaðist einu sinni inn á líkvöku á útibar í Víetnam, hélt það væri partý og pantaði bjór.  Það var svo ungur maður sem kurteislega benti mér á að þeta væri líkvaka, amma hans hefði andast um dagin. Ég þráfaldlega baðs afsökunar og pillaði mig burt, þurfti þó að skjáskjóta mér framhjá líkkistu gömlu konunna.  Skil ekki ennþá hver ig mér gat yfirsést þessi líkkisa á miðjum ganginum, en svona getur gerst þegar menn fá sér of marga bjóra og er orðnir blindir á örðu, með hálfa sjón á hinu og dómgreindin horfin.

Gerði það eina rétta í stöðunni og fór á næsta bar og fékk mér bjór, 33,

Bjarni (IP-tala skráð) 2.3.2022 kl. 19:02

4 Smámynd: Jens Guð

Bjarni,  takk fyrir skemmtilega sögu.

Jens Guð, 3.3.2022 kl. 08:24

5 identicon

Hlálegur misskilningur er margskonar. Einn er t.d. pínlegur og tengist 10 % stjórnmálaflokki sem virðist sjá sig sem a.m.k. 30 % flokk, en er í raun svo afturhalds og íhaldssamur að líklegt er að hann muni einangrast í framtíðinni vegna þröngsýni og áhættuhegðunar. Þröngsýnin felst m.a. í því að þessi litli flokkur gengur einn gegn straumnum í afstöðu sinni gegn NATÓ. Áhættuhegðunin felst m.a. í því að þessi litli flokkur getur eingöngu starfað með helstu andstöðuflokkum sínum, sem eru svo mikið stærri að þeir hafa þann litla í raun í vösum sínum. Helsti styrkur litla flokksins er einskonar puntdúkka sem er þeim eiginleikum gædd að geta brosað breiðast framan í helstu andstæðinga sína m.a. hjá NATÓ og ESB. Fulltrúar litla flokksins virðast einfaldlega þrífast best meðal andstæðinga sinna hvar sem er. Kannski til að sýnast stærri ?

Stefán (IP-tala skráð) 4.3.2022 kl. 09:39

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  það er margt til í þessu hjá þér. 

Jens Guð, 4.3.2022 kl. 10:08

7 identicon

Jens, mig langar til að spyrja þig um allt annað, því þú veist margt um Færeyjar.  Snemma á þessari öld var gefin út á íslensku bók e. færeyskan höfund, konu minnir mig. Svo fann ég aðra bók eftir sama höf. í bókasafninu hér, á dönsku. Þessar sögur gerðust á stríðs- og eftirstríðsárunum og sögðu frá miklu trúarofstæki, t.d. var stúlku meinað að fara á jólaball á vegum kirkjunnar, af því að foreldrar hennar fóru svo sjaldan í kirkju. Svo fylgdust allir mjög vel með framhjáhöldum nágranna. Veist þú nafnið á höfundinum? Ég hef leitað í bókasafnsskránni (leitir.is) en ekki fundið það. Þú mátt gjarnan svara mér í netfangið: ingai@simnet.is.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 6.3.2022 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband