7.8.2022 | 04:13
Buxnalaus
Fyrir nokkrum árum bjó ég í Ármúla 5. Það var góð staðsetning. Múlakaffi á neðstu hæð og hverfispöbbinn í Ármúla 7. Hann hét því einkennilega nafni Wall Street. Skýringin var sú að í götunni voru mörg fjármálafyrirtæki. Fyrir daga bankahrunsins, vel að merkja. Áður hét staðurinn Jensen. Síðar var hann kenndur við rússneska kafbátaskýlið Pentagon. Það var ennþá undarlegra nafn.
Þetta var vinalegur staður. Ekki síst vegna frábærra eigenda og starfsfólks. En líka vegna þess að staðurinn var lítill og flestir þekktust. Ekki endilega í fyrsta skipti sem þeir mættu á barinn. Hinsvegar sátu allir við borð hjá öllum og voru fljótir að kynnast.
Eitt kvöldið brá svo við að inn gekk ókunnugur maður. Það var sláttur á honum. Hann var flottari en flestir; klæddur glæsilegum jakka, hvítri skyrtu með gullslegnum ermahnöppum, rauðu hálsbindi og gylltri bindisnælu. Hann var í dýrum gljáburstuðum spariskóm.
Undrun vakti að hann var á brókinni, skjannahvítri og því áberandi. Hann bað eigandann um krít. Hann gæti sett giftingarhring í pant. Sem var samþykkt en athugasemd gerð við buxnaleysið. Útskýringin var þessi: Honum hafði sinnast við eiginkonu sína. Hún sparkaði honum út. Þá tók hann leigubíl í Ármúlann. Á leiðarenda uppgötvaðist að hann var án peninga og korts. Úr varð að leigubílstjórinn tók buxur hans í pant.
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Lífstíll, Matur og drykkur, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:24 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Passar hún?
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit heims
- Framhald á frásögn af undarlegum hundi
- Furðulegur hundur
- Undarleg gáta leyst
- Lífseig jólagjöf
- Spennandi sjávarréttur - ódýr og einfaldur
- Til minningar um gleðigjafa
- Þegar Jón Þorleifs kaus óvænt
- Heilsu- og megrunarkúr sem slær í gegn
- Leifur óheppni
- Anna frænka á Hesteyri hringdi á lögguna
- Erfiður starfsmaður
- 4 vísbendingar um að daman þín sé að halda framhjá
- Varð ekki um sel
Nýjustu athugasemdir
- Passar hún?: Sigurður I B, góð saga! jensgud 22.1.2025
- Passar hún?: Bjarki, svo sannarlega! jensgud 22.1.2025
- Passar hún?: Þetta minnir mig á... Manninn sem keypt sér rándýrt ilmvatn (ef... sigurdurig 22.1.2025
- Passar hún?: Ömmurnar eru með þetta, takk fyrir mig Jens bjarkitryggva 22.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: Brjánn, takk fyrir þetta. jensgud 19.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: áhugaverður samanburður. https://www.youtube.com/watch?v=1651r_... Brjánn Guðjónsson 18.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: Guðjón, ef þú kannt ekki að meta meistaraverkin eftir Mozart, þ... Stefán 15.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: Guðjón, þú ert með skemmtilegan flöt á dæminu! jensgud 15.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: Ingólfur, bestu þakkir fyrir góðar pælingar. jensgud 15.1.2025
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit h...: Stefán, takk fyrir fróðleikinn. jensgud 15.1.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 121
- Sl. sólarhring: 156
- Sl. viku: 1276
- Frá upphafi: 4121095
Annað
- Innlit í dag: 94
- Innlit sl. viku: 1123
- Gestir í dag: 93
- IP-tölur í dag: 93
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- sigurjonth
- asthildurcesil
- siggith
- hallarut
- reykur
- rannveigh
- skulablogg
- fiski
- gudruntora
- asgerdurjona
- zeriaph
- jevbmaack
- lehamzdr
- ffreykjavik
- fuf
- stormsker
- xfakureyri
- jonmagnusson
- palmig
- jonaa
- jakobsmagg
- ktomm
- th
- jenfo
- gurrihar
- kiddirokk
- hlynurh
- skessa
- prakkarinn
- maggadora
- skinkuorgel
- agustolafur
- einherji
- heidathord
- atlifannar
- konukind
- gudnim
- 730
- blekpenni
- heida
- annabjo
- vglilja
- sleggjan007
- markusth
- bergruniris
- aevark
- rannthor
- katrinsnaeholm
- birgitta
- jullibrjans
- fararstjorinn
- agny
- ippa
- hugrunj
- aring
- ikjarval
- gujo
- bjorgvinbjorgvinsson
- drhook
- runarsv
- sjos
- doriborg
- haukurn
- gammon
- millarnir
- robbitomm
- korntop
- killjoker
- vantru
- evathor
- partners
- heiddal
- meistarinn
- skrifa
- heidistrand
- iaprag
- semaspeaks
- svei
- jonthorolafsson
- sverrir
- bonham
- bjarnihardar
- sigurgeirorri
- ladyelin
- birnamjoll
- veraknuts
- fia
- plotubudin
- ringarinn
- nonninn
- larahanna
- juliusvalsson
- skari60
- ingvarvalgeirs
- lubbiklettaskald
- kolgrimur
- olinathorv
- hreinsi
- baddinn
- hrolfur
- jenni-1001
- handsprengja
- ahi
- perlaheim
- gudrunmagnea
- ommi
- hemba
- grumpa
- bergthora
- grafarholt
- mummigud
- athena
- sigaxel
- bjolli
- gummiarnar
- kerchner
- rustikus
- hordurj
- thegirl
- birna-dis
- siggivalur
- krizziuz
- fridaeyland
- evabenz
- quackmore
- andres08
- bleikaeldingin
- bardurorn
- snorris
- ver-mordingjar
- nexa
- thorasig
- lindalinnet
- gudni-is
- mordingjautvarpid
- arh
- sinfonian
- raggipalli
- mongoqueen
- lovelikeblood
- holi
- jakobk
- rannveigbj
- stebbifr
- credo
- ylfalind
- herdis
- steinnhaf
- halo
- gullilitli
- 810
- motta
- leifurl
- janus
- ljonid
- kerla
- solir
- nilli
- guru
- steinnbach
- skagstrendingur
- hemmi
- gunnar
- hannamar
- mosi
- geislinn
- hlekkur
- luther
- zumann
- jara
- hector
- malacai
- polly82
- hughrif
- einarlee
- loopman
- sign
- destiny
- gilsneggerz
- thuridurbjorg
- liljabolla
- saethorhelgi
- svatli
- siggiholmar
- folkerfifl
- sigurjonsigurdsson
- eythora
- kiddijoi
- kjartanis
- rosagreta
- gurkan
- killerjoe
- gthg
- gebbo
- laugatun
- tru
- presley
- siggileelewis
- helgamagg
- doddilitli
- kjarrip
- steinibriem
- huldumenn
- jobbisig
- id
- mp3
- blomid
- ketilas08
- lilly
- hjolaferd
- lostintime
- skordalsbrynja
- birtabeib
- karitryggva
- marzibil
- zunzilla
- fjola
- storibjor
- rannug
- glamor
- venus
- eurovision
- skjolid
- einarsigvalda
- minna
- austurlandaegill
- coke
- eyja-vala
- harpao
- ljosmyndarinn
- doriegils
- lordbastard
- neddi
- holmarinn
- vga
- bus
- dolli-dropi
- vefritid
- eirikurgudmundsson
- hallibjarna
- svetlana
- blues
- huxa
- judas
- asdisran
- omarpet
- skattborgari
- himmalingur
- neytendatalsmadur
- salkaforlag
- kje
- laufabraud
- vestskafttenor
- gunnarggg
- esb
- ingvarari
- gunnarpalsson
- hreinn23
- saltogpipar
- hergeirsson
- jea
- arniarna
- psychosurfer
- metal
- hreinsamviska
- godinn
- krissa1
- robertb
- perlaoghvolparnir
- brandurj
- madddy
- tibet
- minkurinn
- hallidori
- liso
- graceperla
- mrsblues
- gummiogragga
- sisvet
- vild
- holar
- presleifur
- helgadora
- xjonsig
- helgananna
- meyjan
- tungirtankar
- visindavaka
- borgarfjardarskotta
- mal214
- vilberg
- brandarar
- einarhardarson
- steffy
- adhdblogg
- litliper
- audunnh
- gotusmidjan
- saemi7
- dorje
- sterlends
- jgfreemaninternational
- aloevera
- lucas
- olibjossi
- bestfyrir
- helgigunnars
- gleymmerei
- leifur
- ace
- diesel
- methusalem
- astroblog
- lynx013
- brell
- kikka
- doddyjones
- sigurjon
- birnast
- gunnarbjorn
- disdis
- valdinn
- ragnar73
- helgatho
- cigar
- parker
- manisvans
- kerubi
- mis
- bmexpress
- drum
- gisgis
- finni
- tbs
- topplistinn
- rognvaldurthor
- pjeturstefans
- gullfoss
- lotta
- thjodarsalin
- freyrholm
- olii
- gattin
- bjornj
- olafiaherborg
- rallysport
- sur
- sigrunzanz
- rafng
- hrannsa
- draumur
- aslaugas
- aeon
- gumson
- glamur
- skinogskurir
- launafolk
- bjarnimax
- westurfari
- bookiceland
- braskarinn
- elfarlogi
- komediuleikhusid
- elismar
- emilhannes
- fingurbjorg
- frida-litlah
- gudjul
- gp
- gusg
- gubo
- vgblogg
- hafthorb
- morgunblogg
- sveinnelh
- rattati
- diva73
- itlajh
- minos
- kliddi
- daliaa
- axelma
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- fun
- jaisland
- jeremia
- johanneliasson
- eyfeld
- johannesthor
- stjornun
- josefsmari
- x-d
- kristjan9
- larusg
- lifsrettur
- lifsyn
- loftslag
- ludvikludviksson
- margretsverris
- mofi
- sumri
- skari
- raffi
- rso
- roslin
- runarf
- jardytan
- sigridursig
- joklamus
- siggifannar
- sigurdurig
- stjornlagathing
- stefanjul
- stommason
- steinki
- svanurg
- spurs
- sveinneh
- tryggvigunnarhansen
- myworld
- valdimarjohannesson
- valmundur
- vest1
- totibald
Athugasemdir
Hver hefur ekki lent í þessu?
Bjarni (IP-tala skráð) 7.8.2022 kl. 09:02
Sem sagt buxnalaus buxnaskjóni.
Er til íslenskt orð fyrir "töffari"? - Vísindavefurinn
Þorsteinn Briem, 7.8.2022 kl. 11:15
Bjarni, maður spyr sig!
Jens Guð, 7.8.2022 kl. 13:37
Þorsteinn, takk fyrir fróðleikinn.
Jens Guð, 7.8.2022 kl. 13:38
En íslenskir stjórnarmenn eru með buxurnar niður um sig!!
Sigurður I B Guðmundsson, 7.8.2022 kl. 14:01
Sigurður I B, algjörlega!
Jens Guð, 7.8.2022 kl. 14:18
Það eru margir með allt niður um sig, þó það glitti kannski í buxur. Katrín er með allt niður um sig varðandi endalausar og óskiljanlegar skerðingar á ellilífeyri aldraðra á meðan Svandís stendur vörð um óskertan ofurhagnað stórútgerða. Arnar Þór er með allt niður um sig varðandi arfaslakt gengi íslenska karlalandsliðins í fótbolta og það sama má segja um Eið Smára með Fimleikafélag Hafnarfjarðar. Og hver / hverjir eru svo með allt niður um sig varðandi rannsóknir á meintum fjármála glæpum, nefni sem dæmi Skeljungsfléttu og Samherjamál ?
Stefán (IP-tala skráð) 7.8.2022 kl. 19:23
Stefán, góðir punktar - þó ég viti ekkert um boltaleiki.
Jens Guð, 7.8.2022 kl. 20:40
Skemmtileg saga, en hvað er rússneska kafbátaskýlið Pentagon? Ég hélt að Pentagon væri í Bandaríkjunum og hefði eitthvað með bandaríska herinn að gera.
Theódór Norðkvist, 8.8.2022 kl. 10:59
Theódór, pentagon þýðir fimmhyrnd bygging.
Jens Guð, 8.8.2022 kl. 13:19
Ég þóttist vita það, en þú notaðir þetta sem nafn á einhverju rússnesku kafbátaskýli. Þess vegna var ég forvitinn, þar sem Pentagon (sem nafn) er þekktast sem höfuðstöðvar hers BNA.
Ef það er til rússneskt kafbátaskýli að nafni Pentagon, væri gaman að vita það. Fyrir utan ákveðna Moggabloggara, veit ég ekki um nein slík og ekki Wikipedia heldur.
https://en.wikipedia.org/wiki/Pentagon_(disambiguation)
Theódór Norðkvist, 8.8.2022 kl. 14:04
Theódór, ég veit ekkert um þetta - nema að fastakúnnar á hverfispöbbnum kölluðu hann rússneska kafbátaskýlið. Kannski var það grín.
Jens Guð, 8.8.2022 kl. 14:32
Takk, hafði hvarflað að mér að þetta væri eitthvað grínuppnefni. Eða að þú værir svona fróður um rússneska kafbáta (líka grín!)
Theódór Norðkvist, 8.8.2022 kl. 15:55
Það á kannski ekki heima hér í þessari buxnaleysisumræðu að minnast hins frábæra útvarpsmanns Eiríks Guðmundssonar, sem gladdi mig svo oft með frábærum útvarpsþáttum og bókum, en mig langar þó að benda á fallega og faglega minningarumfjöllun Eiríks um David Bowie sem birtist á visir.is þann 11 Janúar 2016 undir fyrirsögninni ,, Rothögg að spyrja bana Bowies ,,. Eiríkur tók dauða David Bowie nærri sér rétt eins og ég og nú tek ég dauða Eiríks Guðmundssonar nærri mér og hlusta á þætti hans á ruv.is.
Stefán (IP-tala skráð) 9.8.2022 kl. 18:57
Stefán, þetta eru falleg eftirmæli.
Jens Guð, 10.8.2022 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.