Ný ljóðabók og hljómplata

 Það hefur verið afskaplega ánægjulegt að fylgjast með Ólafi F. Magnússyni eftir að hann settist í helgan stein.  Reyndar líka áður.  Hann var besti borgarstjóri Reykjavíkur.  Eftir það tímabil tók við nýr - og kannski óvæntur - ferill. Frjó og farsæl sköpunargleði fór á flug.  Hann yrkir kjarnyrt kvæði á færibandi,  semur viðkunnanleg söngræn lög og vex stöðugt sem ágætur söngvari.

  Nú er komin út hans þriðja ljóðabók,  Ég vil bæta mitt land.  Eins og í fyrri bókum eru þetta ættjarðarljóð,  heilræðisvísur og allskonar.  Meðal annars um margt nafngreint fólk.  Eitt kvæðið heitir Eivör Pálsdóttir:

Holdtekju listar með hárið síða,

hátónagæði með fegurð prýða.

Sönglóan okkar færeyska fríða,

flögrar um eins og sumarblíða.

  Bókinni fylgir 13 laga hljómdiskur.  Þar af eru 9 áður óútgefin lög.  Hin eru sýnishorn af fyrri þremur diskum Ólafs.  

  Söngurinn er afgreiddur af Ólafi og Páli Rósinkrans,  svo og óperusöngvurunum Elmari Gilbertssyni,  Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur og Ingibjörgu Aldísi Ólafsdóttur.  Útsetningar og hljóðfæraleikur eru að mestu í höndum galdrakarlsins Vilhjálms Guðjónssonar.  Gunnar Þórðarson kemur líka við sögu. 

      

ÓFM


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Talað er um að setjast í helgan stein en ekki "á helgan stein". cool

Tvisvar verður hins vegar sá feginn sem á steininn sest, þar sem óþægilegt er að sitja lengi á steini.

Þorsteinn Briem, 13.11.2022 kl. 08:41

2 identicon

Þessi ágæti fyrrum læknir og borgarstjóri er mun trúverðugri en núverandi læknismentaði borgarstjóri. Sá hefði nú mátt eftirláta Einari borgarstjórastólinn fyrr en ætlað er.

Stefán (IP-tala skráð) 13.11.2022 kl. 09:37

3 Smámynd: Jens Guð

Þorsteinn,  takk fyrir ábendinguna.

Jens Guð, 13.11.2022 kl. 09:47

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  undir það má taka.

Jens Guð, 13.11.2022 kl. 09:48

5 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þessi diskur er kominn í 3. sætið á Sóltúni.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 13.11.2022 kl. 11:00

6 Smámynd: Jens Guð

Vilhjálmur,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 13.11.2022 kl. 11:27

7 identicon

Á meðan Ólafur F sendir frá sér enn eina snilldar ljóðabókina, þá er forsætisráðherra með glæpasögu og hefur reyndar nægan efnivið að moða úr í kringum sig í vinnuni, ekki satt ?  Hvað elskar sér líkt. 

Stefán (IP-tala skráð) 14.11.2022 kl. 18:29

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Óþægilegt að sitja lengi á steini, segir Steini. cool Þó ég hafi aldrei kosið Ólaf eða þá flokka sem hann hefur verið í, ofbýður mér hvernig komið var fram við hann á sínum tíma í pólitíkinni. Það var ljótur leikur. Gott að hann hafi fundið sér farveg á öðrum og óneitanlega meira uppbyggjandi vettvangi.

Theódór Norðkvist, 14.11.2022 kl. 23:35

9 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 7),  segðu!

Jens Guð, 15.11.2022 kl. 10:00

10 Smámynd: Jens Guð

Theódór, það var svakaleght að fylgjast með aðförinni.

Jens Guð, 15.11.2022 kl. 10:01

11 identicon

Nú hafa rússadjöflar ráðist á Natóriki og Vinstri græn eru alfarið á móti Nató. Með hverjum halda Vinstri græn ?

Stefán (IP-tala skráð) 15.11.2022 kl. 22:07

12 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 11), maður spyr sig.

Jens Guð, 16.11.2022 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband