Færeyjar 14 : Ísland 1

 kvennabolti

   Ég horfi aldrei á fótbolta.  Þess vegna missti ég af leiknum Færeyjar-Ísland í gær.  Mér var hinsvegar sagt frá leiknum ásamt þeim tíðindum að Færeyingar væru að bursta Íslendinga.  Þá fór ég á stúfana að kanna málið.  Þetta er mjög merkilegt mál og ekki allt sem sýnist.

  Færeyingar vorkenna Íslendingum svo gífurlega vegna efnahagshrunsins að þeir sendu hingað lið með amatörum að uppistöðu til.  Menn sem fundust á rölti uppi í færeyskum brekkum og höfðu aldrei spilað alvöru fótboltaleik áður.  Þetta átti að tryggja að Íslendingar fengju að vinna leikinn.

  Í einhverjum galsa og kæruleysi skoruðu Færeyingar fyrsta mark leiksins.  Næst skoruðu Íslendingar,  eins og ráð var fyrir gert.  Nema Íslendingar skoruðu sjálfsmark.  Þá var staðan 2:0 fyrir Færeyjar.  Færeyingar urðu miður sín.  Þeim þótti sem þeir væru orðnir ógeðslega ókurteisir við gestgjafa sína og bræður er eiga um sárt að binda vegna frjálshyggjukreppunnar.

  Færeyingar brugðu á það ráð í seinni hálfleik að standa allir mun aftar á leikvellinum til að leyfa Íslendingum að leika sér með boltann nálægt færeyska markinu.  Áður en yfir lauk tókst Íslendingum loks með erfiðismunum að pota einum bolta í færeyska markið.  Færeyingum var gífurlega létt og réðu sér varla fyrir kæti.  Þeir hefðu aldrei fyrirgefið sér að sigra Ísland 2:0.  Það hefði verið meiri ruddaskapur en Færeyingar geta afborið að sýna Íslendingum.

  Þar fyrir utan þýða þessi úrslit í raun 14:1 þegar tekið er mið af höfðatölu.  Færeyingar kunna ekki við að segja það upphátt.


mbl.is „Möguleikarnir fyrir hendi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Hvaða Hvaða það verður að leufa greyunum að vinna einhvertíma

Ómar Ingi, 23.3.2009 kl. 16:44

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahahaha, húrra fyrir bræðrum vorum FÆREYINGUM!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.3.2009 kl. 16:54

3 Smámynd: Sverrir Einarsson

Já Íslendingar skora tvö mörk í þriggja marka leik en tapa samt, gerist ekki kurteisara af hálfu gestanna.

Sverrir Einarsson, 23.3.2009 kl. 19:49

4 Smámynd: Brattur

... það hefur aldrei verið eins ljúft að tapa nokkrum leik... til hamingju Ísland! 

Brattur, 23.3.2009 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband