11.9.2009 | 23:50
Það er eitthvað skrítið við þessar myndir
Það er eitthvað við þessar ljósmyndir sem einhvernveginn passar ekki alveg. Hvað er með þennan krana?
Eða rauða bílinn með kerruna? Er kerran ekki einkennilega staðsett á akbraut?
Hér er greinilega Jesú með börnum. En er rofinn ekki staðsettur á sérkennilegum stað?
Jú, dömurnar taka sig vel út. En hvað er þetta með bílinn? Á hann að snúa svona?
Á tækinu stendur að það spóli DVD myndir á byrjunarreit. Mínar DVD myndir gera það sjálfkrafa án aðstoðar svona tækis. Engu að síður fylgir sögu að tækið mokseljist. Þegar horft hefur verið á DVD mynd til enda þarf aðeins að skella því í þetta tæki og ef menn vilja horfa á myndina aftur er diskurinn settur aftur í DVD spilarann og myndin hefst aftur á byrjun.
Til hvers er der á derhúfu?
Ég er fæddur og uppalinn í sveit í útjaðri Hóla í Hjaltadal. Ég kannast ekki við þennan höfuðbúnað.
Hvað var Einar Jónsson að pæla með þessu höggmyndarlistaverki? Karlinn virðist liggja nakinn á spena á kúnni. Ég kannast ekki við svona úr sveitinni.
Á skiltinu er varað við lágflugi.
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Menning og listir, Spil og leikir | Breytt 12.9.2009 kl. 21:27 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Leifur óheppni
- Anna frænka á Hesteyri hringdi á lögguna
- Erfiður starfsmaður
- 4 vísbendingar um að daman þín sé að halda framhjá
- Varð ekki um sel
- Gátan leyst
- Hrakfarir strandaglóps
- Breytti bíl í mótorhjól
- Togast á um utanlandsferðir og dagpeninga
- Vegg stolið
- Hvað þýða hljómsveitanöfnin?
- Staðgengill eiginkonunnar
- Að bjarga sér
- Neyðarlegt
- Anna á Hesteyri - undarlegt aksturslag
Nýjustu athugasemdir
- Leifur óheppni: Jóhann (#8), bílstjórinn á rauðabílnum reyndi að hrekja hinn b... jensgud 19.11.2024
- Leifur óheppni: Stefán (#7), takk fyrir upplýsingarnar. jensgud 19.11.2024
- Leifur óheppni: Ég fór að skoða myndina með blogginu og ég get ekki með nokkru ... johanneliasson 19.11.2024
- Leifur óheppni: Svona geðröskun flokkast undir þunglyndi. Stefán 19.11.2024
- Leifur óheppni: Jóhann, þetta er einhverskonar masókismi að velja sér að búa v... jensgud 19.11.2024
- Leifur óheppni: Mönnum sem eru svona neikvæðir hlýtur að líða frekar illa og þe... johanneliasson 19.11.2024
- Leifur óheppni: Stefán, svo var hann ákafur reggí-unnandi. jensgud 19.11.2024
- Leifur óheppni: Sigurður I B, þessi er góður! jensgud 19.11.2024
- Leifur óheppni: Ég hef oft lesið um tónlistarmenn sem hlusta mest á aðra tegund... Stefán 19.11.2024
- Leifur óheppni: Þetta minnir mig á! Vinur minn sem er mjög trúaður (hvað svo se... sigurdurig 19.11.2024
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 4
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 1026
- Frá upphafi: 4111587
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 861
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- sigurjonth
- asthildurcesil
- siggith
- hallarut
- reykur
- rannveigh
- skulablogg
- fiski
- gudruntora
- asgerdurjona
- zeriaph
- jevbmaack
- lehamzdr
- ffreykjavik
- fuf
- stormsker
- xfakureyri
- jonmagnusson
- palmig
- jonaa
- jakobsmagg
- ktomm
- th
- jenfo
- gurrihar
- kiddirokk
- hlynurh
- skessa
- prakkarinn
- maggadora
- skinkuorgel
- agustolafur
- einherji
- heidathord
- atlifannar
- konukind
- gudnim
- 730
- blekpenni
- heida
- annabjo
- vglilja
- sleggjan007
- markusth
- bergruniris
- aevark
- rannthor
- katrinsnaeholm
- birgitta
- jullibrjans
- fararstjorinn
- agny
- ippa
- hugrunj
- aring
- ikjarval
- gujo
- bjorgvinbjorgvinsson
- drhook
- runarsv
- sjos
- doriborg
- haukurn
- gammon
- millarnir
- robbitomm
- korntop
- killjoker
- vantru
- evathor
- partners
- heiddal
- meistarinn
- skrifa
- heidistrand
- iaprag
- semaspeaks
- svei
- jonthorolafsson
- sverrir
- bonham
- bjarnihardar
- sigurgeirorri
- ladyelin
- birnamjoll
- veraknuts
- fia
- plotubudin
- ringarinn
- nonninn
- larahanna
- juliusvalsson
- skari60
- ingvarvalgeirs
- lubbiklettaskald
- kolgrimur
- olinathorv
- hreinsi
- baddinn
- hrolfur
- jenni-1001
- handsprengja
- ahi
- perlaheim
- gudrunmagnea
- ommi
- hemba
- grumpa
- bergthora
- grafarholt
- mummigud
- athena
- sigaxel
- bjolli
- gummiarnar
- kerchner
- rustikus
- hordurj
- thegirl
- birna-dis
- siggivalur
- krizziuz
- fridaeyland
- evabenz
- quackmore
- andres08
- bleikaeldingin
- bardurorn
- snorris
- ver-mordingjar
- nexa
- thorasig
- lindalinnet
- gudni-is
- mordingjautvarpid
- arh
- sinfonian
- raggipalli
- mongoqueen
- lovelikeblood
- holi
- jakobk
- rannveigbj
- stebbifr
- credo
- ylfalind
- herdis
- steinnhaf
- halo
- gullilitli
- 810
- motta
- leifurl
- janus
- ljonid
- kerla
- solir
- nilli
- guru
- steinnbach
- skagstrendingur
- hemmi
- gunnar
- hannamar
- mosi
- geislinn
- hlekkur
- luther
- zumann
- jara
- hector
- malacai
- polly82
- hughrif
- einarlee
- loopman
- sign
- destiny
- gilsneggerz
- thuridurbjorg
- liljabolla
- saethorhelgi
- svatli
- siggiholmar
- folkerfifl
- sigurjonsigurdsson
- eythora
- kiddijoi
- kjartanis
- rosagreta
- gurkan
- killerjoe
- gthg
- gebbo
- laugatun
- tru
- presley
- siggileelewis
- helgamagg
- doddilitli
- kjarrip
- steinibriem
- huldumenn
- jobbisig
- id
- mp3
- blomid
- ketilas08
- lilly
- hjolaferd
- lostintime
- skordalsbrynja
- birtabeib
- karitryggva
- marzibil
- zunzilla
- fjola
- storibjor
- rannug
- glamor
- venus
- eurovision
- skjolid
- einarsigvalda
- minna
- austurlandaegill
- coke
- eyja-vala
- harpao
- ljosmyndarinn
- doriegils
- lordbastard
- neddi
- holmarinn
- vga
- bus
- dolli-dropi
- vefritid
- eirikurgudmundsson
- hallibjarna
- svetlana
- blues
- huxa
- judas
- asdisran
- omarpet
- skattborgari
- himmalingur
- neytendatalsmadur
- salkaforlag
- kje
- laufabraud
- vestskafttenor
- gunnarggg
- esb
- ingvarari
- gunnarpalsson
- hreinn23
- saltogpipar
- hergeirsson
- jea
- arniarna
- psychosurfer
- metal
- hreinsamviska
- godinn
- krissa1
- robertb
- perlaoghvolparnir
- brandurj
- madddy
- tibet
- minkurinn
- hallidori
- liso
- graceperla
- mrsblues
- gummiogragga
- sisvet
- vild
- holar
- presleifur
- helgadora
- xjonsig
- helgananna
- meyjan
- tungirtankar
- visindavaka
- borgarfjardarskotta
- mal214
- vilberg
- brandarar
- einarhardarson
- steffy
- adhdblogg
- litliper
- audunnh
- gotusmidjan
- saemi7
- dorje
- sterlends
- jgfreemaninternational
- aloevera
- lucas
- olibjossi
- bestfyrir
- helgigunnars
- gleymmerei
- leifur
- ace
- diesel
- methusalem
- astroblog
- lynx013
- brell
- kikka
- doddyjones
- sigurjon
- birnast
- gunnarbjorn
- disdis
- valdinn
- ragnar73
- helgatho
- cigar
- parker
- manisvans
- kerubi
- mis
- bmexpress
- drum
- gisgis
- finni
- tbs
- topplistinn
- rognvaldurthor
- pjeturstefans
- gullfoss
- lotta
- thjodarsalin
- freyrholm
- olii
- gattin
- bjornj
- olafiaherborg
- rallysport
- sur
- sigrunzanz
- rafng
- hrannsa
- draumur
- aslaugas
- aeon
- gumson
- glamur
- skinogskurir
- launafolk
- bjarnimax
- westurfari
- bookiceland
- braskarinn
- elfarlogi
- komediuleikhusid
- elismar
- emilhannes
- fingurbjorg
- frida-litlah
- gudjul
- gp
- gusg
- gubo
- vgblogg
- hafthorb
- morgunblogg
- sveinnelh
- rattati
- diva73
- itlajh
- minos
- kliddi
- daliaa
- axelma
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- fun
- jaisland
- jeremia
- johanneliasson
- eyfeld
- johannesthor
- stjornun
- josefsmari
- x-d
- kristjan9
- larusg
- lifsrettur
- lifsyn
- loftslag
- ludvikludviksson
- margretsverris
- mofi
- sumri
- skari
- raffi
- rso
- roslin
- runarf
- jardytan
- sigridursig
- joklamus
- siggifannar
- sigurdurig
- stjornlagathing
- stefanjul
- stommason
- steinki
- svanurg
- spurs
- sveinneh
- tryggvigunnarhansen
- myworld
- valdimarjohannesson
- valmundur
- vest1
- totibald
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.9.2009 kl. 00:43
Jóna Kolbrún, takk fyrir innlitið.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:08
Ég hef alltaf sagt að konur eigi ekki að vera með bílpróf og myndin af kellingunum hliðiná bílnum er gott dæmi af hverju þær eiga ekki að vera með bílpróf.
Hannes, 12.9.2009 kl. 01:11
Þú ert svo beeelaður
Dúa, 12.9.2009 kl. 01:12
Einar var líklega að pæla í goðafræðinni. Auðhumla að næra Ými, líkingar og minni sótt héðan og þaðan, aftan úr fornöld þessvegna.
Ýmir (fornnorræna: Ymir) eða Aurgelmir er jötunn í norrænni goðafræði. Hann er fyrsti jötunninn í heiminum og eru allir jötnar frá honum komnir. Ýmir varð til þegar frost niflheims blandaðist eldum múspelsheims í ginnungagapi. Einnig varð kýrin Auðhumla til þegar þetta gerðist. Auðhumla nærði Ými lengst af og runnu 4 mjólkurár úr spenum hennar. Eitt afkvæmi Ýmis eignaðist Bestlu Bölþórsdóttir. Hún eignaðist 3 afkvæmi með Bori, syni Búra, sonar Auðhumlu; Óðin, Vila og Vé. Óðinn, Vili og Vé ákváðu síðar að skapa heiminn. Tóku þeir þá Ými, drápu hann og gerðu úr honum heiminn þannig:
Solveig (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 01:15
Dúa, ég er beeelaður með 4 e.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:27
Sólveig, bestu þakkir fyrir þessa pælingu. Ég ætla að reyna að fatta hana þegar verður runnið af mér á morgun. Eða á sunnudag. Og klárlega ekki síðar en á mánudag.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:31
...í versta falli í þynnku á þriðjudag...
Dúa, 12.9.2009 kl. 01:33
Hannes, vitaskuld eiga konur ekki að fá bílpróf. Í S-Arabíu er þetta vandamál tekið föstum tökum með góðum árangri.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:34
Lifa til að drekka drekka til að lifa. Við ættum að taka þá í S-Arabíu okkur til fyrirmyndar í þessum málum.
Hannes, 12.9.2009 kl. 01:36
Dúa, þynnkan á þriðjudaginn mun banka upp jafn örugglega og dagur fylgir nótt. En ég kann öll ráð til að yfirfæra hana yfir á næstu helgi. Þaulvanur. Og jafnvel láta hana fjara út án þess að nokkur taki eftir - ef vel tekst til. Sem oftast tekst með lagni.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:39
Hannes, við erum risaeðlur á þessu sviði í samanburði við S-Araba.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:42
Við erum það svo sannarlega. Kannski ég geri færslu um það að konur ættu ekki að fá að hafa bílpróf við tækifæri.
Hannes, 12.9.2009 kl. 01:43
Hannes, komdu endilega með skýringu á þessu. Þetta er allt á ljúfu nótunum og ekki illa meint gagnvart konum sem eiga ekki að keyra bíl.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 01:50
Hún er mjög einföld. Konur eru bestar bak við eldavélina og barnauppeldi. Her má sjá myndband með nokkrum konum sem eiga ekki að vera á bíl. Það er af nógu að taka þegar kvennbílstjórar eru annars vegar.
Hannes, 12.9.2009 kl. 01:56
reindar eru bara 3 e í beeelaður Jens .
brahim, 12.9.2009 kl. 02:35
Mjög skemmtilegt blogg hjá þér
Kristján H. Kristjánsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 10:51
Flottur Jens eins og alltaf, en eru það bara mínar saurugu hugsanir sem telja beljuna hans Einars líka vera á spena? Kannski er þetta bara hringrás lífsins í hnotskurn.
Hannes konur og bílar eru eins og Whiskey og mjólk, ágætt hvort í sínu lagi en afleitt saman
Róbert Tómasson, 12.9.2009 kl. 11:41
Allar myndirnar teknar í Hafnarfirði
Ómar Ingi, 12.9.2009 kl. 13:33
Þessi með gataða stólinn með klósettsetunni yfir saurgatinu er þekkt. Hugsaðu þér, gamalt og gigtveikt fólk getur ekki setið á hækjum sínum yfir gatinu. Og takist þeim það, þá geta þau allavega ekki staðið upp!
Eygló, 12.9.2009 kl. 14:01
ég hef séð svona ömurlegan vask á mjög fínu hóteli - þetta er aaaafar fín hönnun (að sögn hótelstjórans) uppsetningin klúðraðist bara. BARA smá skandall. kv d
doddý, 12.9.2009 kl. 19:46
Ymir? er það ekki danska yfir súrmjólk?
sniðugar myndir, skil samt ekki þessa síðustu ... ?
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 20:47
Hannes - hugsa svolítið áður en þú tjáir þig.
Konur gera lítið gagn á bak við eldavélina, þær eiga að vera fyrir framan hana og hvað er það að vera á bak við barnauppeldi?
Bara að tjá þig um það sem þú veist 100% um, eins og ég
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 20:51
Mynd nr. 2. Hversu heimskt getur fólk verið????
Siggi Lee Lewis, 12.9.2009 kl. 21:05
Hannes, myndbandið er frábærlega fyndið.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 21:55
Brahim, þegar ég hugsa mig betur um er þetta sennilega rétt hjá þér.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 21:56
Myndbandið er fyndið en sá sem stti það saman er ekki sterkur í enskunni: Yes it is a women!!!
Kannski það hafi verið karlmaður sem setti myndbandið saman, talandi dæmi fyrir þá? Líklega
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:05
Kristján, takk fyrir oflofið.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:06
Robbi, það er einhver 69 stemmning í höggmyndinni. Hugsanlega var Einar að túlka einhverskonar hringrás. Kallinn var nett skrítinn og myndverk hans líka.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:09
Ómar Ingi, það er einhver hafnfirsk stemmning í þessu.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:10
Eygló, mér þykir broslegast að tjaldið nær ekki að þekja neðri hluta klósettsins.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:12
Doddý, ég hef líka séð svona hönnun á hóteli í útlöndum. Þegar ég gerði grín að því var mér sagt að hljóðið af rennandi vatni sem flæðir út yfir borðið væri rómantískara en hljóð frá vatni sem frussast beint ofan í baðkarið. Hótelþernan kveikti síðan á kertum sitthvoru megin við kranann máli sínu til sönnunar. Ég er ónæmur fyrir rómatík og þótti það bara asnalegt. Enda var ég bara einn á ferð.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:18
Angantýr, síðasta myndin er af járnbrautarteinum. Staurarnir á milli teinanna virðast ekki henta til að járnbrautarlest eigi auðvelt með að nota þessa járnbrautarteina.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:21
Angantýr, Hannes er að vitna til orða Guðna Ágústssonar sem sagði að staða konunnar væri á bakvið eldavélina. Síðar sagði Guðni að ef hann hafi sagt þetta (á fjölmennum fundi fyrir austan fjall) þá hafi hann mismælt sig.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:25
Nei þessvegna eru teinarnir allir á kafi í illgresi
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:25
Ó ok skil - vissi ekki um þessa pólitísku útgáfu af kvennakúgun - fyndið ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:26
Siggi Lee, ég hef reyndar séð svipað dæmi á Íslandi. Í það skipti lenti ég í vandræðum á bílaplani. Það er að segja að komast framhjá. Strákurinn sem lagði svona sagðist hafa gleymt því að hann var með kerru í efrtirdragi.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:28
Uppps ,Alltaf skemtilegt að kýkja á þína síðu.En kommentin hummmm.
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 12.9.2009 kl. 22:31
Angantýr, við getum gengið út frá því sem vísu að sá sem setti myndbandið saman var/er karlmaður. Þetta er allt á léttu nótunum. Vitaskuld eru margar konur góðir bílstjórar og margir karlar afleitir bílstjórar. Það er samt um að gera að sjá broslegu hliðina á því að margar konur eru óvanar að keyra og mér skilst að konur hafi - almennt en með undantekningum - ekki sömu tilfinningu og karlar fyrir því að leggja lipurlega í bílastæði.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:36
Talandi um enskukunnáttu - þetta myndband er líka fyndið: http://www.youtube.com/watch?v=aoRD1wmvwUc&feature=related
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:37
Sigurbjörg, settu þann fyrirvara að þetta sé meira grín en alvara.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:38
Ég tek þessu líka á léttu nótunum Jens - þessvegna var ég að gera grín að enskukunnáttunni. Mér fynst það fyndnast við þetta myndband að einhver er að gera grín að hæfileikum annarra á einhverju sviði en kemur svo svona feitt upp um sjálfan sig á einhverju öðru sviðið, talandi um að kasta steini úr glerhúsi
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:39
Angantýr, illgresið bendir til að járnbrautarteinarnir séu ekki í notkun. Enda koma staurarnir í veg fyrir það.
Þar fyrir utan: Kvennakúgun, ja, jú, kvennakúgun er pólitík. Ég er feministi og lesbía. En sniðgeng alla pólitíska rétthugsun þegar möguleiki gefst á að sjá skoplegu hlið hlutanna.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:43
Angantýr, myndbandið er fyndið. Það er líka gaman þegar steinum er kastað úr glerhúsi.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 22:48
Þetta er bara gaman Jens minn.
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 13.9.2009 kl. 01:12
Tók ekki einu sinni eftir því : ) Þetta gæti alveg eins verið dúkur til þerris eða það sem þau þurrka sér á (handklæði?) (ég er nefnilega svo sigld ; )
Eygló, 13.9.2009 kl. 02:17
Angantýr. Ekki er ég hissa á að mann greyið hafi lokað á þig. Konur eiga bara að elda og sjá um barnauppeldi enda er það þeirra hlutverk.
Róbert það er fyrir löngu vitað að konur og bílar eiga ekki saman.
Jens. Þetta er snilld og af nógu er að takaá You Tube þegar kemur að kvennkyns ökumönnum. Við getum bókað að karlmaður setti þetta saman.
Hannes, 13.9.2009 kl. 13:19
Sigurbjörg, þetta er mjög gaman.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 13:23
Eygló, ég treysti mér ekki til að ráða í hlutverk þessa tjalds. Ég hef aldrei út fyrir Evrópu og Norður-Ameríku komið og er að því leyti ósigldur.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 13:30
Hannes, youtube er gullnáma. Sjálfur reyni ég að halda í lágmarki heimsóknum á youtube. Manni hættir nefnilega til að gleyma sér þar af því að maður kemur alltaf auga á nýtt og nýtt forvitnilegt myndband.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 13:37
Jens You Tube er svo sannarlega gullnánma og af nógu skemmtilegu er þar að taka. Skemmtu þér vel yfir mynböndunum sem ég setti inn. Þau eru mjög ólík.
Hannes, 13.9.2009 kl. 13:50
Hvaða manngrey?
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 15:27
http://angantyr.blog.is/blog/angantyr/entry/946909/
Hannes, 13.9.2009 kl. 15:29
Já hann - ég hélt að þú meinti Guðna Ágústsson. Það tengist sko ekkert Guðna að þetta manngrey (vel orðað hjá þér Hannes) lokaði á mig. Hann fór bara hamförum í sálgreiningu semga þess að ég sagði að han hefði gaman af því að snuðra. Sumir eru viðkvæmir, þannig er það bara.
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 15:41
Hannes - nú er ég líka búinn að skrifa um þig ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 15:46
Hannes, takk fyrir "línkana". Það er hrikalega fyndið myndbandið af konunni sem reynir að yfirgefa bílastæðið.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 16:22
Hannes - myndbandið af "konunni" á bílastæðinu (það sést ekki hver keyrir í raun), er líka í myndbandinu þínu frá enskusnillingnum.
Ég er alveg með á hreinu að ykkur finnst þetta æðislegt, sérstakelga sumar myndirnar.
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 16:40
Angantýr. Skemmtileg grein sem þú skrifaðir um mig kommenta á hana á eftir. Þegar aðilar þola ekki að fá gagnrýnin svör þá kalla ég þá grey. Okei ég nennti ekki horfa á fyrra myndbandið til enda enda búinn að sjá öll þessi kvennamyndbönd áður enda gaman að horfa á lélega kvenökumenn. Skemmtilegar dýramyndir hjá þér.
Jens. Það er virkilega gaman að horfa á kellinguna reyna að komast út úr bílaplaninu.
Hannes, 13.9.2009 kl. 19:34
Já takk fyrir það Hannes, tók eftir því. Nú skil ég þessa manngreys líkingu þína við þennan Gunnlaug sem bannaði mig. Held að þú hafir nokkuð til þíns mál þar bara, eitthvað töst sem var í gangi ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 20:48
Angantýr, ég hafði virkilega gaman af dýramyndbandinu. Ég átta mig ekki á þeim sem ritskoða athugasemdakerfið hjá sér; banna suma þar og samþykkja ekki aðra en já-menn. Eitt það skemmtilega við athugasemdakerfið er einmitt þegar þar verður lífleg umræða og öll sjónarmið fá að njóta sín.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 21:22
Hannes, á fyrra myndbandinu var bútur úr seinna myndbandinu. Seinna myndbandið gefur betri sýn á atburðarrásina.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 21:24
Jens. Gott að þú hafðir gaman af því en horfðiru á hin 2?
Hannes, 13.9.2009 kl. 22:16
Hannes, ég hafði gaman af sprellinu þar sem dýr eru "döbbuð" með mannshöfuð. Hinsvegar deili ég ekki með þér smekk fyrir gríska söngvaranum Demis Roussos. Ég hef áður sagt þér að þú hefur undarlegan músíksmekk. Í léttuð sagt þá jaðrar músíksmekkur þinn við geðklofa. Hehehe!
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 22:33
Jens þetta var sniðug hugmynd og drep fyndið með mannshöfuðið og dýrin. Demis Roussos er gó'ur ef maður fílar hann. ég veit að ég er létt klikaður og veitti sennilega ekki af geðrannsókn.
Hannes, 13.9.2009 kl. 22:49
Hannes, það sem ég á við er að þú hlustar á Metallica, kór Rauða hersins, Bob Marley, Demis Roussos og léttpoppað kántrý. Þessi músíksmekkur gerir mig ringlaðan. Andstæðurnar eru svo miklar. Ég sagði í gríni að þetta jaðri við geðklofa. Ég þekki ekki önnur dæmi um svona svakalegar mótsagnir í músíksmekk. Ég "fíla" ekki Demis Roussos en vissulega hefur hann eitthvað "grip" eða "touch". Vinsældir hans hafa náð langt út fyrir gríska markaðinn. Hann fléttaðist saman við franska tölvupoppið (Vangelis) og enska progið (Yes). En þetta er ekki mín bjórdós. Ég er meira í pönkinu.
Jens Guð, 13.9.2009 kl. 23:50
Jens það er rétt að andstæðurnar jarði við geðklofa enda gæti það vel verið að ég sé geðklofi sem á bara eftir að greina.
Hannes, 14.9.2009 kl. 01:04
Hannes, af því að ég þekki þig þá veit ég að þú ert ert í góðu andlegu jafnvægi. Ef ég þekkti þig ekki nema af blogginu myndi ég hinsvegar halda að þú værir snargeðgbilaður.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 01:16
snargeðbilaður átti það að vera.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 01:17
Ja við höfum bara einu sinni hist undir áhrifum þannig að ég gæti vel verið snargeðbilaður en er það ekki sem betur fer ekki. hehehe Sem betur fer er ég í góðu jafnvægi mætti bara ganga betur í sambandi við pyntingarvélarnar.
Hannes, 14.9.2009 kl. 01:22
Átti að vera hist 2 en ekki einu sinni.
Hannes, 14.9.2009 kl. 01:24
AAAhhemmm - Jens... ???
Ég deili sama tónlistarsmekk og Hannes - var einmitt að hlusta heilmikið á Rauða herinn í gær eftir að hafa tekið létt tott á þessu: http://www.youtube.com/watch?v=peVdsTglebA Kór Rauða hersins á alltaf samt bestu útgáfuna af þessu lagi ;o)
Metallica? Fan síðan 1984, er harður þungarokkari to the bone.
Bob Marley er alltaf kúl. Eins tónlist frumbyggja Ameríku og skemmtilega spiluð pan-tónlist (ekki lyftutónlistarútgáfan). Svo hlusta ég heilmikið á effemm og flass þar sem mér líkar vel við dægurtónlist nútímans (Miley Cyrus, Kelly Clarkson, Lady GAGA, Haffi Haff og Palli) en dett svo oft í klassík og þess háttar. Það eina sem mér leiðist er íslensk tónlist - sérstaklega þessi sem kölluð er gullaldartónlist, þó einstaka lag sleppi.
Ég vil meina að menn eins og við Hannes höfum þroskaðan tónlistarsmekk!!!
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 14.9.2009 kl. 02:41
Þekki ekki þennan gríska en leist vel á hann ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 14.9.2009 kl. 02:43
Hannes, þetta er skemmtilega sýrt myndband.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 18:40
Angantýr, þetta er hressilegur flutningur á rússneska þjóðsöngnum. Hérlendis er bannað með lögum að flytja þjóðsönginn í öðrum en einhverjum tilteknum útsetningum.
Það má fella klassíska músík, kórasöng, Metallica, Bob Marley og orginal indíánamúsík undir þroskaðan tónlistarsmekk. Það sama á ekki við um músíkina sem er spiluð á Effemm957.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 19:18
Angantýr það eru til margar útfærslur af rússneska þjóðsöngnum og ég setti einu sinni 4-5 mismunandi á bloggið mitt. Við erum með þroskaðan smekk. Ég mæli með að þú kynnir þér Demis Roussos hann er góður og dálítið sérstakur.
Jens ég held að við ættum að fara að klæða okkur samkvæmt þessari tísku eins og var sýnd í myndbandinu.
Hannes, 14.9.2009 kl. 20:38
Hannes, ég er þegar eins og klipptur út úr þessu myndbandi. Meira að segja skeggið á sínum stað og gleraugun á ég líka.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 20:48
hahahaha nákvæmlega. Áttu raðmorðingjasendibíl líka?
Hannes, 14.9.2009 kl. 20:51
Hannes, ég á Volkswagen Caddy sendibíl. Hann er ekki alveg rétta týpan af sendibíl. Ég tók hann upp í skuld. Ég er meira fyrir raðmorðingjasendibílinn. Þegar Caddýinn kemur á tíma verður það raðmorðingjasendibíllinn sem tekur við og þá er þetta "perfect".
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 21:15
Það er ágætt að nota tilefnið og koma því á framfæri að Caddýinn er djöfulsins drusla. Það er alltaf eitthvað að bila í honum. Ekki bara vegna þess að ég sé svo illa þegar ég er ekki með gleraugun að ég keyri yfir allskonar steypta kanta og annað sem ég veit ekki hvað er (af því ég sé það ekki) heldur eru stöðugt að koma upp dæmi á borð við: Svissbotninn bræddi úr sér, tölvukubbur fyrir ljósin dó (nýr kubbur kostaði 80 þúsund með vinnu við að skipta um hann) og svo framvegis. Ég þori varla að kíkja ofan í húddið. Þar er allt laflaust og hangir saman á snærisspottum...
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 21:22
Hehe. Ég er sjálfur á Caddy í vinnuni en hann er mun nýrri og ég er ekki alltaf að keyra utan í eins og þú þannig að ég er ekki hissa á að þinn sé illa með farinn og margt að honum.
Ég er sjálfur hrifnari af stærri bílum enda meira rými þar og betre að flytja lík í þeim. Subaruinn minn er með 3 líka skot en tekur 6-7lík ef ég legg sætin niður. Cadyinn tekur 3-6 en mæli með að þú flytjir ekki lifandi mann eða konu aftan honum enda hætta á að þau sjáist.
Hannes, 14.9.2009 kl. 22:50
Hannes, ég keyri sjaldan utan í. Þetta er meira þannig að ég keyri yfir eitthvað sem lætur bílinn stökkva eins og kengúru yfir steypta kanta og steyptar súlur. Þetta geta stundum orðið all þokkaleg stökk vegna þess að ég sé ekki hindrunina og slæ hvergi af hraða. Þó keyri ég jafnan hægt og öðrum syni mínum þótti bráðfyndið þegar ég fékk eitt sinn sekt fyrir of mikinn hraða. Það passaði ekki við reynslu hans af mínu aksturslagi.
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 23:15
Jens það fer mjög illa með bíla að keyra hratt yfir kanta og stökkva yfir þá þannig að ég er ekki hissa á því að bílinn þinn sé í ólagi gamli.
Hannes, 14.9.2009 kl. 23:39
Hannes, ég verð alltaf hissa þegar bíllinn tekur stökkið. En þegar ég má vera að gefa mér tíma til að skoða aðstæður átta ég mig á hvað var í gangi. Sérstaklega er mér minnisstætt er ég ók Skútuvoginn á leið í Dugguvog. Þá tók bíllin svo gott stökk að ég missti niður kaffibolla sem ég fékk mér í Samsskipum og síminn sem ég var að tala í flaug út um opinn gluggann. Þegar ég kannaði málið hafði ég ekið yfir stóran steyptan kannt og rekist í leiðinni utan í kyrrstæðan bíl. Ég skildi eftir miða undir rúðuþurrku bílsins og borgaði síðar viðgerð á þeim bíl glaður í bragði (57 þúsund kall).
Jens Guð, 14.9.2009 kl. 23:53
Títiprjónatæknin hrekkur oft ansi langt ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 15.9.2009 kl. 01:21
En hvað þú varst heppin að stoppa bílinn og setja miða á rúðuna því að er þetta hefði verið minn bíl þá værir þú lamaður eða eitthvað þaðan að verra því að ef einhver skemmir mínar eigur og neitar að borga þá lít ég þannig á að ég hafi rétt til að drepa hann.
Það er gott að þú skulir vera það heiðarlegur að þú flýir ekki af vettvangi eins og aumingi heldur borgir tjónið glaður í bragði. Ég hefði frekar viljað eyða peningnum í mellu.
Ég mæli með að þú skilir bílprófinu inn enda greinilega ekki hæfur til að vera með það.
Hannes, 16.9.2009 kl. 00:04
Varstu líka að grilla þér samloku?
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 00:11
Nei ég fékk mér pítsu í dag.
Hannes, 16.9.2009 kl. 00:13
LMAO - ég var að tala við Jens!
Hann var bæði að drekka kaffi og tala í símann - minnir mig á þátt með Simpson þar sem hann var kominn með allar græjur í bílinn allt frá grilli til sjónvarps sem hann notaði á meðan hann var að keyra ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 00:18
hehe það er stórhættulegt að drekka kaffi á sama tíma og maður er að tala í símann undir stýri. hehe ég sá einu sinni 12v örbylgjuofn.
Hannes, 16.9.2009 kl. 00:22
immitt ;o)
Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 16.9.2009 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.