Kvikmyndarumsögn

maybeIshouldhave

 - Titill:  Maybe I Should Have

 - Höfundur og leikstjóri:  Gunnar Sigurðsson

 - Einkunn:  ***1/2 (af 5)

  Þetta er önnur heimildarmyndin um íslenska bankahrunið.  efnahagskreppuna,  búsáhaldabyltinguna og það allt.  Sú fyrri var  Guð blessi Ísland.  Óneitanlega svipar myndunum saman hvað örfá atriði varðar.  Eitthvað er um líkar eða sömu klippur úr sjónvarpsfréttum,  frá borgarafundum,  mótmælafundum og svo framvegis.

  Maybe I Should Have  segir sögu Gunnars Sigurðssonar,  leikstjóra.  Það fer vel á því.  Hann var í góðum málum fyrir bankahrunið.  Var með leiksýningu í útrás.  Lífið gekk sinn vanagang.  En efnahagskreppan,  hrun krónunnar og uppskrúfun vaxta keyrði hann í gjaldþrot.

  Hann sat ekki með hendur í skauti heldur blés til borgarafunda og tók þátt í stofnun nýs stjórnmálaflokks,  Borgarahreyfingarinnar.  

  Í myndinni reynir Gunnar að finna út hvað varð um peningana sem soguðust út úr bönkunum.  Sögulegra skýringa er leitað í spillingunni á Íslandi,  helmingaskiptareglunni og því öllu.  Síðan er farið til Englands,  Lúxemborgar og Tortóla.  Einnig er stofnunin í Þýskalandi heimsótt sem vottað hefur árum saman að Ísland sé eitt af minnst spilltu löndum heims. 

  Allt er þetta hið fróðlegasta.  Það er létt yfir myndinni.  Mörgu spaugilegu er velt upp.  Meðal annars með skreytingum úr gömlum kvikmyndum.  Það er grátbroslegt að rifja upp afneitun stjórnvalda í aðdraganda bankahrunsins og vandræðagangi.  Ingibjörg Sólrún veruleikafirrt,  Geir Haarde ráðalaus og hræddur,  kúlulánadrottningin Þorgerður Katrín kotrösk er hún blæs á varnarorð útlends hagfræðings með þeim orðum að hann þurfi í endurhæfingu.

  Ég sakna þess að ekki sé þjarmað að kókaín-sniffandi guttunum sem fóru fremstir í útrásinni.  Björgólfur yngri gerir þó sitt besta til að útskýra stöðuna.  Ja,  kannski ekki alveg sitt besta.  Og þó.  Jú,  kannski hans besta.  Í  Guð blessi Ísland  sagði hann að gamla hagfræðin um að peningar skipti um hendur sé úrelt.  Þess í stað visni þeir eins og blóm og hverfi.  

  Í  Maybe I Should Have  segir hann peningana fara til "peningahimna".  Þegar hann er spurður hverju hann vilji svara þeim sem kalla hann glæpamann segist hann ekki vilja svara þeim.  Svo sprettur hann á fætur,  rífur af sér hljóðnemann og segist þurfa að hlaupa burt með hraði. 

  Tónlistin í  Maybe I Should Have  er eðal:  Magnús Þór og Fjallabræður;  KK,  Hjálmar,  Dikta...

  Ég hvet fólk eindregið til að skella sér á  Maybe I Should Have.  Þetta er fróðleg mynd,  "skemmtileg",  góð upprifjun á atburðum og vekur til umhugsunar.                


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að nefna kókaínsniffið, gera það alltof fáir. Ef ég segði "Kannastu við kókaínhausinn, son andlega föllnu fyllibyttunnar og siðblinda þjófsins? þann sem keypti sér einkaþotu fyrir stolið fé?" Þá værirðu engu nær um hvorn tveggja vesalinga ég væri að meina.

... og þetta er 300 þúsund manna þjóð, magnað.

Elvar (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 21:27

2 Smámynd: Jens Guð

  Elvar,  það hefur verið feimnismál að nefna kókaínið í þessu samhengi.  Þó er það jafn samfléttað atburðarássinni og hassið er samfléttað jamaíska reggíinu.

Jens Guð, 5.2.2010 kl. 21:49

3 Smámynd: Jens Guð

...atburðarásinni,  átti það að vera...

Jens Guð, 5.2.2010 kl. 21:49

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir þetta af einhverjum ástæðum fórst þetta fyrir en nú læt ég verða af því

Sigurður Þórðarson, 5.2.2010 kl. 22:34

5 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Eru peningarnir ekki í bankanum sem lá svo á að selja í Luxemburg?

Sá þessa mynd á forsýningunni, fín mynd, og alveg þess virði að sjá hana.

Björgólfur Tor er eins og fábjáni í þessarri mynd, alveg eins og kúlulánadrottningin sem rignir niður í nefið á.

Sveinn Elías Hansson, 5.2.2010 kl. 22:36

6 Smámynd: Jens Guð

  Siggi,  þú verður að kíkja á þess mynd.

Jens Guð, 5.2.2010 kl. 22:41

7 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Lokaatriði myndarinnar er stórkostlegt.

Sveinn Elías Hansson, 5.2.2010 kl. 22:42

8 Smámynd: Jens Guð

  Sveinn Elías,  Björgúlfur hefur engar forsendur fyrir að koma öðru vísi út.  Þó má virða honum til tekna að gefa kost á viðtali eftir að hafa "tekið línu".  Það er meira en segja má um þá sem opna ekki einu sinni upp augu til að fela dollaramerkin í augunum.  Hvað þá að gefa færi á viðtali.  Þannig fær Björgúlfur einn plús á móti 10 mínusum á meðan hinir kóka í kyrrþey.

Jens Guð, 5.2.2010 kl. 22:49

9 Smámynd: Jens Guð

  Ég tek undir að lokasenan er virkilega flott.  Það er reisn yfir henni,  lag Fjallabræðra virkilega flott,  landslagið glæsilegt.  Augna- og eyrnakonfekt. 

Jens Guð, 5.2.2010 kl. 22:51

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er nú bara svona drengir mínir að ef við ættum ekki djarfhuga menn sem setja sér það markmið að græða á daginn og grilla á kvöldin þá yrðu engar Framfarir í þessu guðsvolaða landi.

Hinsvegar "kortsluttaði" eitthvert öryggi og systemið brjálaðist um stund.

Þá kom í ljós að gæjarnir höfðu grillað heila þjóð og barasta yfir hádaginn maður!

Elvar. Þú átt ekki að tala um þjófa, það er ljótt orðbragð. Við kurteisa fólkið tölum um að "liggi grunur um ámlisverða viðskiptahætti" og svo er talað um að næstum "rökstuddur grunur leiki á því að 1000 milljörðunum sem hurfu af völdum nafngreindrar persónu hafi verið komið í skjól á ónafngreindri eyju sem ekki finnist á korti." Ekki sé unnt að ákæra manninn þar sem engin sönnun liggi fyrir.

Nú dreymir mig um skuldlausa þjóð sem byrjar upp á nýtt og frá grunni. Þá er mikið í húfi að fjallagrösin dafni og ári vel til tínslunnar.

Mér finnst ég vera öfundsverður að eiga eftir að sjá þessa mynd. En ekki ætla ég nú samt að missa af henni.

Árni Gunnarsson, 5.2.2010 kl. 23:11

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Halló! Opna ekki einu sinni upp augu.Hvernig getur Sigurður Einarsson gert það? Ég sá ekki "guð blessi Ísland",hef meiri áhuga á þessari,kanski var hin of snemma á ferðinni eftir hrun,fyrir minn smekk.

Helga Kristjánsdóttir, 5.2.2010 kl. 23:15

12 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Er Björgólfur jafn mikið fyrir línurnar eins og gamli fyrir dropann

Sveinn Elías Hansson, 5.2.2010 kl. 23:24

13 Smámynd: Jens Guð

  Árni,  við grandvarir Skagfirðingar þekkjum ekki almennilega til þessara kókaín-sniffandi gutta.  Í okkar umhverfi voru bara edrú Framsóknarmenn og íhald.  Við þekktum ekki einu sinni upphæðir sem töldu milljarða.  Á mínum uppvaxtarárum í Skagafirði voru pabbi og aðrir íhaldsmenn af gamla skólanum.  Hötuðust út í Framsóknarmenn (eins og ég geri enn) en voru heiðarlegir fram í fingurgóma.  Lengi vel hafði ég jafnvel trúa á Villa Egils vinnufélaga mínum í Sláturhúsi pabba.  Nú er öldin önnur er Sveinbjörn stökk á stöng. 

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 00:33

14 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  Sigurður opnar ekki augu meira en svo að láta ekki glitta í dololaramerkin.

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 00:34

15 Smámynd: Jens Guð

...dollaramerki átti það að vera...

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 00:35

16 Smámynd: Jens Guð

  Sveinn Elías,  gamli Björgúlfur ber engin einkenni kókaínneyslu.

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 00:36

17 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

nei,en notaði fljótandi efni.

Sveinn Elías Hansson, 6.2.2010 kl. 00:44

18 Smámynd: Jens Guð

  Sveinn,  það er í föstu formi.  Mjölkennt og fínmalað,  Duft sem fer vel í nös.   

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 01:12

19 Smámynd: Jens Guð

  Flestir vita af þessum kókaín-fíklum en fáir tala um það opinberlega.  Einkennin eru augljós.  Nú bíð ég bara eftir að umsjónarmenn mbl.is hnippi í mig.  Þá fer ég aftur í kurteisisgírinn.  Ekki vil ég valda neinum leiðindum. 

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 01:20

20 identicon

http://www.jonas.is:

03.02.2010
„Bjarni segir ekki af sér
DV hefur upplýst í mörgum fréttum, að formaður hrunflokksins er viðriðinn milljarðabrask með Sjóvá. Gaf sjálfum sér umboð í BNT til að veðsetja hlutabréf í Vafningi, sem tengist Tortola. Blaðið birtir í dag myndir af skjölum, sem sýna, að Bjarni Benediktsson hefur logið um afskiptaleysi sitt. Málið er hluti af stóra svindlinu, þegar bótasjóði Sjóvá var stolið. Ríkið hljóp undir bagga með milljörðum frá skattgreiðendum. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki tekið á þessu. Nema Eyjan.is. Sýnir eymd fjölmiðlunar hér. Í öðrum vestrænum löndum væri Bjarni búinn að láta af formennsku og þingmennsku.“

X – D einhver?

Krummi (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 02:31

21 Smámynd: Rannveig H

Ég er sammála þér með myndina Jens! Alveg ótrúlegt hvað þetta fólk sem vann þessa mynd nótt sem nýtan dag með litla peninga og að mikilli fórnfýsi tóks vel upp. Það eru sko engin borgarstjóra laun sem fólkið var á  

Rannveig H, 6.2.2010 kl. 14:34

22 Smámynd: Jens Guð

  Krummi,  það var eðlilegt að Bjarna væfist ekki tunga um höfuð við að veita sjálfum sér umboð til að veðsetja hlutabréf í Tortóla-Vafningi.  Hann þekkir sjálfan sig manna best og treystir engum betur en sjálfum sér til að fara með þetta umboð.  Það að hann kannaðist lengi vel ekki við aðkomu sína að málinu getur stafað af tímabundnu gáleysi eða minnisleysi eða misskilningi eða mismæli.  Af nógu er að taka.  Árni Johnsen getur gefið honum góð ráð varðandi útskýringar á þessu.

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 15:02

23 Smámynd: Jens Guð

  Rannveig,  ég þekki ekki fjármál aðstandenda myndarinnar.  Þeir/þau kunna hinsvegar með fjármuni að fara því ekkert ber á óþörfu bruðli af þeirra hálfu í myndinni.  En allt kemst vel til skila.

Jens Guð, 6.2.2010 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.