Smásaga um rannsóknir á álfum

álfur

 

  Ţađ er mikiđ um ađ vera hjá Álfarannsóknarstofunni.  Jói Jóns hefur hvergi undan.  Hann er eini starfsmađur fyrirtćkisins.  Hann ţarf ađ gera allt:  Svara í símann,  hella upp á kaffi,  taka á móti gestum og gangandi,  vaska upp,  sinna rannsóknum á álfum og halda ađ öđru leyti utan um starfsemina eins og hún leggur sig.  Sem betur fer er Jói Jóns vinnusamur og samviskusamur.  Sem betur fer hringir heldur enginn og aldrei koma neinir gestir.  Ţađ veit enginn af tilvist Álfarannsóknarstofunnar.  Ţađ gefur Jóa svigrúm til ađ einbeita sér enn betur ađ rannsóknum en annars.

  .Jói hefur aldrei séđ álf.  Ţađ gerir rannsóknir erfiđari.  Hann veit ekki hvađ álfarnir á rannsóknarstofunni eru margir.  Ţađ sem hann gerđi var ađ ná tveimur álfasteinum úr sitthvorum landshlutanum:  Öđrum á Austjörđum og hinum á Vesturlandi.  Hann byrjađi á ţví ađ pakka steinunum inn í heyrúlluplast áđur en ţeir voru fluttir í rannsóknarstofuna.  Ţannig kom hann í veg fyrir ađ álfarnir slyppu á hlaupum.  Steinarnir eru enn í plastinu.  Jói hefur sett á ţá mörg lítil göt til ađ álfarnir fái nóg súrefni.  Einnig úđar hann vatni yfir plastiđ.  Eitthvađ af vatninu fer inn um götin og álfarnir hafa ráđ til ađ sćkja sér vatniđ utan á plastinu.  Plastiđ er ćtíđ ţurrt daginn eftir.  Allt svona skráir Jói Jóns samviskusamlega niđur.  Út á ţađ gengur rannsóknin.  Svo heppilega vildi til ađ fyrsta daginn sem steinarnir voru á Álfarannsóknarstofunni kom Jói auga á könguló á öđrum plastađa steininum.  Daginn eftir var hún horfin.  Ţannig komst Jói strax ađ ţví ađ álfar eru skordýraćtur.  Eftir ţađ veiđir hann daglega skordýr í skordýragildrur og sleppir ţeim lausum á plastiđ.  Dýrin eru alltaf horfin daginn eftir.  Álfarnir eru gráđugir í skordýr.  Jói heldur nákvćma skrá yfir ţađ.
.
  Nú hefur fćrst fjör í leikinn.  Heldur betur.  Ţađ er kominn nýr álfur í Álfarannsóknarstofuna.  Hann keypti Jói af Nígeríusvindlara.  Álfurinn er nígerískur.  Hann kostađi 100 ţúsund kall.  Ýmis aukakostnađur hlóđst utan á.  Ţađ ţurfti ađ greiđa fyrir allskonar pappíra,  stimpla,  tryggingar og annađ.  Ţegar álfurinn var kominn í Álfarannsóknarstofuna hafđi Jói borgađ 15 milljónir fyrir umstangiđ í kringum álfinn.  Og sífellt bćtast viđ kostnađarliđir ţó álfurinn sé kominn í hús.  Ţađ er allt í lagi.  Jói skildi viđ konuna sína og seldi húsiđ ţeirra.  Ţar međ losnađi um peninga. Jói er svo samviskusamur ađ hann stađgreiđir umyrđalaust alla reikninga sem honum berast frá Nígeríusvindlaranum. 
.
  Nígeríuálfurinn er í glerkassa. Álfurinn er tćplega háfur metri á hćđ (ađ skotthúfu međtalinni) og nettur.  Hann lifir á ósýnilegu fćđi sem Jói Jóns kaupir reglulega frá Nígeríu.  Ţađ kemur í úttrođnum litlum plastpokum.  Pokinn kostar ekki nema 50 ţúsund kall og endist í heilan mánuđ. 
  Jóa langar virkilega mikiđ til ađ sjá álfinn.  Nígeríusvindlarinn kann ráđ viđ ţví.  Hann er búinn ađ selja Jóa teiknimynd af álfinum.  Hún kostađi 25 ţúsund kall.  Til viđbótar hefur Nígeríusvindlarinn haft milligöngu um ađ kaupa, á hóflegu verđi, fyrir Jóa Jóns uppskrift ađ ţví hverning álfurinn getur orđiđ Jóa sýnilegur.  Ţađ eina sem ţarf er ađ Jói borđi tiltekinn skammt af eitruđum sveppum og skoli ţeim niđur međ hálfum lítra af hreinum 96% spíra.  Og taki inn töfraduft sem Nígeríusvindlarinn seldi Jóa.
.
  Ţetta er spennandi.  Jói bíđur ekki bođanna.  Fljótlega finnur hann hvernig sveppirnir,  spírinn og töfraduftiđ byrja ađ hrífa.  Hann fellur í einskonar mók.  Litirnir í umhverfinu breytast og allt annađ í umhverfinu breytist.  Áhrifin eru svo öflug ađ Jói getur varla haldiđ augum opnum   Samt nćr hann ađ skynja umhverfiđ.  Skyndilega sér hann móta fyrir álfinum.  Ţetta eru töfrar.  Í sama mund birtast 3 vitfirringar.  Ţeir fćra álfinum gjafir:  Gull,  reykelsi og myrru.  Svo hverfa ţeir út í buskann.
  Ţetta er ćvintýri líkast.  Jói nćr óljósu augnsambandi viđ álfinn.  Eyrun á álfinum eru löng og uppmjó.  Jói losar međ stjörnuskrúfjárni lokiđ af glerkassanum, grípur um annađ eyrađ á álfinum og snýr hranalega upp á ţađ.  Álfurinn ćpir af sársauka.  Jói skráir ţegar í stađ í bókina sína:  "Nígerískur álfur er međ viđkvćm eyru.  Hann kveinkar sér ţegar tekiđ er á ţeim."  Vegna móksins sem Jói er í tekur hann ekki eftir ţví ađ hann skrifar textann út fyrir bókina og á borđiđ.  Stafirnir eru stórir og klunnalegir.  Borđplatan dugir ekki til svo Jói skrifar niđurlag setningarinnar undir borđplötuna.  Ţađ er drungi yfir Jóa.  Honum tekst ekki ađ sitja í keng undir borđinu til ađ ljúka ađ fullu viđ setninguna.  Hann fellur á gólfiđ.  Ţar skríđur hann um í smástund áđur en hann reynir ađ koma sér á fćtur á ný.  Á gólfinu verđur á vegi hans stjörnuskrúfjárniđ.  Jói nćr međ erfiđismunum taki á skrúfjárninu.  Svo reisir hann sig upp til hálfs.  Međ snöggri hreyfingi kippir hann undrandi álfinum upp úr glerkassanum.  Ţví nćst stingur Jói stjörnuskrúfjárninu af öllum kröftum á kaf í álfinn í hjartastađ.  Álfurinn öskrar af sársauka og tekur nokkra kippi.  Síđan lippast hann líflaus á gólfiđ.  Hann er dáinn.  Ţađ fer ekki á milli mála.  Jói klórar sér ringlađur í hausnum.  Ţetta er allt svo skrýtiđ.  Jói fálmar eftir bókinni sinni ofan á borđinu og dregur hana til sín.  Rétt áđur en Jói lognast steinsofnađur út af nćr hann ađ skrifar í bókina:  "Nígeríuálfur er međ bráđaofnćmi fyrir stjörnuskrúfjárni."
.
álfaskór
----------------------------------------------------------------------------
Fleiri smásögur og leikrit:
.
- Bóndi og hestur
.
.
 - Gömul hjón
http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1098829/
.
 - Hnefaleikakeppni aldarinnar:
.
 - Peysuklúbburinn
.
 - Vinalegur náungi:
.
 - Gamall einbúi
.
- Saga af systrum
.
 - Jólasaga
.
- Á rjúpnaveiđum:
.
- Ólétta nunnan:
.
- Gullfiskur:
.
- Flugvélamódel:
.
- Miđaldra mađur:
.
- Leyndarmál stráks:
.

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli minn

Er ţetta sönn saga?

Óli minn, 18.5.2011 kl. 16:02

2 identicon

Mig minnir ađ ţetta hafi komiđ fram í kompási á sínum tíma

Gunnar (IP-tala skráđ) 18.5.2011 kl. 16:56

3 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Alltaf gaman ţegar einhver spyr hvort sagan sé sönn ţegar fyrirsögning sagđi ađ hún vćri byggđ á raunverulegum atburđum. Ţađ er svona eins og éta eitrađa köku sem mađur vissi ađ vćri eitruđ, en gleymdi ţví strax og stökk á hana!

Siggi Lee Lewis, 18.5.2011 kl. 22:15

4 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 19.5.2011 kl. 20:23

5 Smámynd: Jens Guđ

  Óli minn,  sagan í heild er ekki sönn.  Hinsvegar byggja einstakir atburđir í henni á raunverulegum fyrirmyndum.

Jens Guđ, 19.5.2011 kl. 22:09

6 Smámynd: Jens Guđ

  Gunnar,  ţađ stóđ til ađ ţetta kćmi fram í Kompási en hátt settir ađilar náđu ađ stöđva ţađ.

Jens Guđ, 19.5.2011 kl. 22:11

7 Smámynd: Jens Guđ

  Ziggy Lee,  alltaf gaman.

Jens Guđ, 19.5.2011 kl. 22:13

8 Smámynd: Jens Guđ

  Ómar Ingi,  takk fyrir innlitiđ.

Jens Guđ, 19.5.2011 kl. 22:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband