Bankasýslu ríkisins lokað og öllum sagt upp!

  Ég átti erindi um Borgartún síðdegis.  Eins og svo oft áður.  Nema hvað.  Í þetta skipti var eitthvað undarlegt í gangi við húsnæði Bankasýslu ríkisins í Borgartúni 3.  Það var búið að girða húsið af með gulum borða eða límbandi,  svona eins og lögreglan gerir þegar hún afmarkar svæði vegna rannsóknar mála.  Á borðanum sem Bankasýsla ríkisins var afgirt með stóð "Lokað vegna spillingar!",  "Öll þátttaka í spillingu er óheimil!" og eitthvað svoleiðis.

  Það var eitthvað fólk þarna fyrir utan.  Svo kom kona út úr byggingunni og tilkynnti að húsinu verði lokað og læsti útidyrunum.  Maður einn á vettvangi sagði mér að starfsfólk Bankasýslu ríkisins væri búið að fá uppsagnarbréf.  Því væri sagt upp vegna spillingar. 

  Þetta var allt mjög áberandi, akandi jafnt sem gangandi og hjólandi vegfarendum.  Lögreglan hringsólaði umhverfis húsið án þess að aðhafast annað en gefa þessu gætur.  Mig undrar að sjá hvorki né heyra neitt um þetta í fréttum helstu fjölmiðla.  

bankasýslan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2011 kl. 12:28

2 Smámynd: Dexter Morgan

Þessum andskota, sem heitir SPILLING, verður ekki útrýmt svo auðveldlega úr íslensku þjóðfélagi. Sérstaklega þar sem orðið "spilling" er ekki til í orðabókum alþingismanna, fjármálamanna, sveitastjórnarmanna og annara sem koma að sjórn þessa lands.

Dexter Morgan, 18.10.2011 kl. 18:08

3 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það var myndatökumaður frá Stöð 2 að voka þarna á svæðinu, en þótti ekki mikið koma til þessa gjörnings sem þarna var framinn og lét sig hverfa. Dæmigerð ekki-frétt, if you ask me!

Flosi Kristjánsson, 18.10.2011 kl. 20:02

4 identicon

Til stjórnar Bankasýslu Ríkisins,

Reykjavík 17 október, 2011

Efni; Uppsögn stjórnar.

Varðandi ráðningu Páls Magnússonar sem hefur valdið miklu umróti í samfélaginu verður ekki annað ráðið en að stjórn Bankasýslu ríkisins hafi ekki sinnt starfi sínu samkvæmt kröfum þar um og rýrt traust stofnunarinnar. Ætla má að slíkt skaði starfsemi og álit stofnunarinnar útávið, gagnvart þeim aðilum sem stofnuninni ber að eiga samskipti við.

Að auki eru tengsl einstakra stjórnarmanna við orsakavalda hrunsins það sterk að vafasamt mætti telja að slíkir starfsmenn eigi erindi í íslenska stjórnsýslu. Einnig má ætla að í engu sé brugðist við þeirri gagnrýni sem finna má í Rannsóknarskýrslu Alþingis, þvert á móti virðist haldið áfram á þeirri braut sem ollu hruninu.

Vinnubrögð þau sem stjórn Bankasýslu ríkisins hefur sýnt af sér eru sérlega ámælisverð í ljósi þess að verið er að endurbyggja íslenskt samfélag um þessar mundir. Fjöldi fjölskyldna eru að flytja úr landi, alvarlegur niðurskurður á sér stað í heilbrigðiskerfinu og svo má lengi telja. Því gengur ekki að að stjórnarmenn með sterk tengsl inní það samfélag sem ollu hvað mestu í hruninu, skuli halda áfram á sömu braut og stunda mannaráðningar án tillits til faglegra sjónarmiða. Stjórn Bankasýslunnar skal ætíð hafa það hugfast að henni ber að starfa fyrir alþýðu þessa lands, ekki gegn henni.

Þar sem svo gróflega hefur verið brotið gegn þeim vinnureglum sem yður er ætlað að starfa eftir og um leið gegn siðferðisvitund almennings - og ekki síst vegna þess hve gróflega er gengið gegn tillögum um siðferðislegar umbætur í samfélaginu samkvæmt Rannsóknarskýrslu Alþingis, sjáum við okkur ekki annað fært en að víkja yður úr starfi vegna brota á vinnureglum, siðferðisvitund þjóðarinnar og brota gegn skýrum tillögum í Rannsóknaskýrslu Alþingis.

Er óskað að þér víkið strax úr starfi og yfirgefi starfsvettvang hér með. 

Vegna alvarleika brota yðar, verða engar bætur né starfslokasamningar gerðir.

 

Virðingarfyllst,

Fyrir hönd fjölmargra fjölskyldna á Íslandi,

Ólafur Sigurðsson                                            Alma Jenný Guðmundsdóttir

Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.10.2011 kl. 00:02

5 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 19.10.2011 kl. 01:13

6 Smámynd: Jens Guð

  Dexter Morgan,  spilling 4-flokksins virðist seint upprætt.  Það er okkur að kenna.  Við látum allt yfir okkur ganga.

Jens Guð, 19.10.2011 kl. 01:15

7 Smámynd: Jens Guð

  Flosi,  það er aðeins frábært að einhverjir séu vakandi og virkir í að vekja á þennan hátt athygli á spillingu.  Ekki gerum við neitt. 

Jens Guð, 19.10.2011 kl. 01:17

8 Smámynd: Jens Guð

  Óli,  bestu þakkir fyrir þetta.

Jens Guð, 19.10.2011 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband