Einföld ókeypis leið til bæta heilsuna svo um munar

  Hvað er að hrjá þig?  Streita?  Lungnasjúkdómar?  Bronkitis?  Lungnaþemba?  Ég man ekki hvað það heitir þegar fólk er andstutt.  Þegar það nær ekki því sem kallast djúpöndun.  Kannski andnauð?  Það er til einföld,  auðveld og ókeypis aðferð til að ráða léttilega niðurlögum allra þessara vandamála.

  Það eina sem þarf að gera er að syngja.  Syngja oft á dag og mikið.  Ræfilslegt humm og raul hjálpar.  Einkum til að losa um spennu/streitu.  En að þenja sig og syngja kröftuglega gerir gæfumun.  Hóflegur söngur hjálpar hóflega.  Gróflegur söngur hjálpar gróflega.  Honum fylgir öflug súrefnisinntaka.  Þegar best tekst til tæmast lungun og fyllast aftur af súrefni sem nærir frumur líkamans.  Frumur sem fá góðan skammt af súrefni eiga auðveldar með að verjast krabbameini.  Bara svo að eitt dæmi af mörgum sé nefnt.  Eftir góðan söngsprett andar söngvarinn dýpra í töluverðan tíma.  Lungun herðast og nýta súrefnið betur.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Dugar ekki að syngja með "öfugum enda"???

Samaber vísan: Baunir voru borðaðar

börn þó ekki sprungu

yngismeyjar orðaðar

með öfugum enda sungu.!!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.4.2014 kl. 07:39

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I.B., ég efast um að það hjálpi lungunum. Hinsvegar getur það dregið úr uppþembu. Vísan er skemmtileg!

Jens Guð, 2.4.2014 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband