Pamela Anderson lausgirt í Kaupmannahöfn

  Kanadísk-bandaríska leikkonan,  Pamela Anderson,  var sem kunnugt er í Færeyjum í síðustu viku.  Í þarlendum fréttamiðlum var hún oftar titluð sem klámdrottning eða klámleikkona.  Burt séð frá því þá gekk henni brösuglega að komast til og frá Færeyjum.  Þess vegna dvaldi hún lengur í Færeyjum en upphaflega var ætlað og sömuleiðis töluvert lengur í Kaupmannahöfn en áætlað var.  

  Í Kaupmannahöfn bjó hún á lúxushóteli með stórum svölum.  Það vakti athygli og undrun annarra hótelgesta hvað hún girti sig illa.  Margir gátu ekki setið strák sínum og smelltu mynd af klæðaburðinum.  Til að gæta velsæmis birti ég aðeins siðsömustu myndina.

  Í heimalandi Pamelu,  Bannríkjum Norður-Ameríku,  eru á sumum stöðum háar fjársektir og jafnvel fangelsun við því að vera illa girt.   

pamela anderson berrassa

 

------------------------------------------------------------------

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hvað ætli maðurinn sé að horfa á???

Sigurður I B Guðmundsson, 6.8.2014 kl. 22:43

2 identicon

Það dræpi þig nú varla að koma með linkinn á hinar myndirnar ;-)

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 7.8.2014 kl. 15:15

3 Smámynd: Jens Guð

Sigurður B., ætli þetta sé ekki lífvörður með vökul augu.

Jens Guð, 11.8.2014 kl. 22:58

4 Smámynd: Jens Guð

Bjarni, það væri til að æra óstöðuga.

Jens Guð, 11.8.2014 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband