Útilokað að olía finnist í íslenskri lögsögu

Ég fylgist reglulega með leit Færeyinga að olíu í færeyskri lögsögu.  Líkur á að olía finnist í færeyskri lögsögu eru komnar niður í 10%.  Sem er svo sem ekkert lágt hlutfall.  Enn er von. Sumir Færeyinqar eru andvígir þessu olíubrölti vegna margvíslegra neikvæðra hliðarverkana.   

  Forstjóri færeyska olíkuleitarfélagsins Faroe Petrolum,  Nils Sörensen,  hefur kveðið upp úr með það að fullreynt sé að olía finnist á íslenskum grunni.  Líkur á olíufundi í íslenskri lögsögu séu 0%.

  Niðurstaðan er ekki verri en svo að á síðustu tveimur árum er  ferðamannatraffíl til Íslands að skila íslensku samfélagi meiri gjaldeyri en sjávarútvegur (kvótakónganna).  Íslendingar eru um 300.ooo. Túristar eru 1,100 milljón.  Og hvergi sér fyrir enda á.  Við höfum ekkert með olíu að gera.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það er gersamlega þýðingarlaust að halda neinu öðru fram en því að skammt sé þangað til Íslendingar verði ein af helstu olíuþjóð á norðurhveli jarðar og taki síðar við af olíuríkjunum við Persaflóa þegar olían klárast þar. 

Enn standa orð forsetans um "heimshöfn" við Finnafjörð og stórbrotnir uppdrættir eru dýrkaðir af stórhöfnum á norðausturlandi, svo sem risahöfn í Loðmundarfirði með jarðgöngum og hraðbrautum þaðan þvert yfir hálendið til Reykjavíkur. 

Ómar Ragnarsson, 30.1.2015 kl. 12:25

2 Smámynd: Jens Guð

  Vonandi er þetta rétt hjá þér.  

Jens Guð, 31.1.2015 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband