Eivör breytir mannanafnalögum

  Í huga Íslendinga er færeyska álfadísin Eivör eiginlega íslensk.  Það er staðfest með því að hinar ýmsu akademíur hafa ítrekað verðlaunað og eða nefnt Eivöru og tónlist hennar til íslenskra verðlauna af margvíslegu tagi;  allt frá "Besta íslenska söngkonan" til "Besta íslenska leikverkstónlistin" Jafnframt hefur Eivör verið hluti af Íslensku dívunum.

 Í huga Íslendinga er Eivör líka færeyska drottningin.  Eða færeyska álfadrottningin.  

  Vinsældir Eivarar eru það miklar og langvarandi að nafn hennar er orðið íslenskt.  Mannanafnanefnd hefur nú formlega kveðið upp úrskurð þar um.  Ekki seinna vænna.  Íslenskir foreldrar vilja gefa dætrum sínum nafnið Eivör.

  Í aldir hefur einstaka íslensk kona borið nafnið Eyvör.  Það þýðir heill Vör!  Vör er vitur og spurul gyðja í ásatrú.

  Nafnið Eivör hefur aðra merkingu.  Það þýðir ávallt verndandi.  Í Færeyjum er nafnið borið fram sem Ævör.  Þannig höfum við einnig vanist því á Íslandi.

9778-gata-austurey-faereyjar-eivor-og-faereysk-tonlist-innb (1)

  

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er náttlega ofsagt að Ævör breyti mannanafnalögum.  Nafn hennar var kannski fært á mannanafnaskrá, eins og fjölmörg önnur þar á undan.  Ekkert þeirra nafnbera breytti lögunum, fremur en hún.

Nafnið er hinsvegar fallegt, rétt eins og færeyskar konur.  Það má ég bera um því ég á eina svoleiðis.

Tobbi (IP-tala skráð) 1.3.2015 kl. 07:18

2 Smámynd: Jens Guð

  Tobbi,  það er vissulega seilst langt með fullyrðingu um að Eivör haf breytt mannanafnalögum.  Og þó.  Án vinsælda hennar á Íslandi er næsta víst að ekki væri látið á reyna nafn Eivarar.  Að minnsta kosti reyndi ekki á það fyrir vinsældir Eivarar hérlendis.    

Jens Guð, 2.3.2015 kl. 00:48

3 Smámynd: Jens Guð

hafi

Jens Guð, 2.3.2015 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband