Af hverju má ekki vera skemmtilegt?

súpa

 Súpuvagnar hafa sett skemmtilegan svip á bæjarlífið á síðustu árum.  Ekki síst kjötsúpuvagnarnir á Skólavörðuholti og í Lækjargötu.  Einnig humarsúpuvagninn í Hafnarstræti.

  Styttan af Leifi Eiríkssyni á Skólavörðuholti hefur gríðarlega sterkt aðdráttarafl á erlenda ferðamenn.  Einkum Bandaríkjamenn.  Það var Kaninn sem gaf Íslendingum styttuna í þakklætisskini fyrir að Lucky Luke fann Ameríku og týndi henni aftur.

  Margir skemmta sér konunglega við að góna á furðubygginguna Hallgrímskirkju.  Á nöprum sumardegi þykir túristum á Skólavörðuholti fátt notalegra en að bragða á heitri íslenskri kjötsúpu úr Warm Farmers Soup.  

  Súpubílnum hefur ekki fylgt neinn ókostur.  Enginn.  Aðeins kostir.  En nú skal bílnum bolað út.  Breytingar hafa verið gerðar á samþykkt Reykjavíkurborgar þar um.  Súpuvagn sem á einhverjum tímapunkti hefur verið með mótor má ekki lengur standa í stæði.  Það er leiðinlegt.  Það þykir kostur.  Það má ekki vera skemmtilegt og þægilegt.

kjotsupudiskur 


mbl.is Missir stæðið og selur vagninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kapítalisti á einkabíl í miðbænum?  Það gengur ekki.  Kúnnarnir geta fengið sér kaffi hjá Gísla Marteini í vesturbænum.  Málið dautt.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 10:54

2 identicon

Skil þetta reyndar ekki með súpubílinn og þröngar reglugerðir sem líklega má helst finna í Norður Kóreu. En mikið rétt Elín, kaffihúsið sem  Gísli Marteinn, Pétur Marteins og Einar Örn reka á Hofsvallagötunni malar þeim klárlega gull.

Stefán (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 11:10

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það gæti hugsanlega gengið að vera með súpuhjól. Það mengar ekki tekur minna pláss og fellr vel inn í kaffi latti liðið í 101!!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.4.2015 kl. 11:52

4 identicon

Hvar á að draga línuna? Ef ekki eru sett takmörk, og takmörk svekkja og útiloka ætíð einhverja, þá væru e.t.v. gámabílar upp og niður Laugaveg og allt um kring sem byðu veitingar og gistingu. Við vitum öll hvernig fer þegar gullgrafaraæðið rennur á Íslendinga og engin takmörk eru sett.

Hannes (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 12:42

5 identicon

Eru gámarnir og gullgrafararnir ekki skýrt afmarkaðir úti á Granda?

http://www.visir.is/sjokkerandi-myndir/article/2014140709023

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 13:52

6 identicon

Ja Elín, Fjarðalax sem vissulega tengist umræddu kaffihúsi er allavega úti á Granda.

Stefán (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 14:19

7 identicon

Góð athugasemd hjá þér Jens eins og jafnan.

En núverandi meirihluti i borgarstjórn,

finnst ekkert skemmtileg, ef það er skemmtileg.

Ef ske kynni að borgarar Reykjavíkur þætti

eitthvað skemmtilegt, þá skal með öllum ráðum

hafa það ekki skemmtilegt.

Skemmtilegast fyrir þá, til að hafa skemmtun af,

er þá að reyna að gera allt til þess að það

sem gæti verið skemmtilegt, helst ekki skemmtilegt.

Skemmtilegheit eru ekki fyrir alla skemmtileg.

Skemmtilegast er það þó, að í öllum þessum

skemmtilegheitum, er skemmtilegast að sjá

hvernig þessi borgarstjórn reynir að skemmta

sér í þessum ömurlegu skemmtilegu heitum.

Mjög skemmtilegt...:)wink

Sigurður Hjaltested (IP-tala skráð) 30.4.2015 kl. 20:14

8 Smámynd: Jens Guð

  Elín,  er ekki fulllangt fyrir túristann að rölta í sumarnepjunni frá Skólvörðuholti og vestur á Hofsvallagötu?  Og þó.  Kaffihúsið á Hofsvallagötu er til fyrirmyndar í alla staði.  En sjálf gatan er dálítið einkennileg með fuglahúsum,  fánum og kubböldum.     

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:24

9 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  það er vandséð hvaða þörf var á breyttri reglugerð og hvers vegna ekki má veita undanþágu.  

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:26

10 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður I B,  góður eins og alltaf!

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:27

11 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  línuna má draga við það að taka ekki skref aftur á bak.  Leyfa því að standa sem glætt hefur bæjarlífið.

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:30

12 Smámynd: Jens Guð

  Elín (#5),  þetta er svakalegt.  

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:37

13 Smámynd: Jens Guð

  Stefán (#6),  það er svo gaman við fámenna Ísland hvernig allir hlutir fléttast saman þvers og kruss.

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:38

14 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður,  takk fyrir kommentið og skemmtilegar pælingar um skemmtilegheit.  

Jens Guð, 30.4.2015 kl. 21:46

15 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Það er fátt betra á köldum íslensku sumardegi en heit kjötsúpa. Sérstaklega ef hún er 1-2 daga gömul.

Siggi Lee Lewis, 1.5.2015 kl. 11:54

16 Smámynd: Jens Guð

Ziggy,  ég tek undir það.  Hún batnar með hverjum degi.  Vikugömul er hún hreinasta sælgæti.

Jens Guð, 1.5.2015 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband