Forsetaframbjóðandi hrekktur

  Einn af þeim fjölmörgu sem sækjast eftir því að verða frambjóðandi repúblikana til embættis forseta Bandaríkja Norður-Ameríku sætir grófu einelti.  Ekki einungis af hálfu Íslendinga heldur einnig Breta.  Já, og jafnvel landa sinna.  Þetta er ljótt.

  Fórnarlambið,  Donald Trump,  ber sig engu að síður vel.  Enda nýtur hann vaxandi vinsælda innan flokksins.  Einkum meðal kvenna.  

  Eitt af því sem grínast er með er að sjóndeildarhringur Trumps nái ekki út fyrir túnfótinn.  Hann viti ekkert hvað gerist í öðrum löndum.  Nema í Kína.

  Það sér hvergi fyrir enda á eineltinu.

  Trump er duglegastur allra að hlaða á sig hrósi af öllu tagi.  Til að mynda hefur hann hrósað sér af því að ekki sé hægt að plata sig.  Hann sé svo næmur að hann greini á örskotsstund ef hrekkur eða gabb eru í uppsiglingu.  

  Breskur hrekkjalómur sannreyndi þetta á dögunum.  Eða þannig.  Hann sendi Trump stuðningsyfirlýsingu fyrir hönd föður síns.  Sagði kallinn ætla í fyrsta skipti á ævinni að kjósa og það Trump.  Með lét hann fylgja ljósmynd af formanni breska Verkamannaflokksins.  Sá verður mögulega breski forsætisráðherrann sem forseti Bandaríkjanna mun hafa samskipti við á næsta kjörtímabili.

  Trump féll í gildruna.  Hann hoppaði hæð sína í loft upp af ánægju með að fá atkvæði frá Bretlandi.  Heimsþekkt andlitið á formanni Verkamannaflokksins þekkti hann ekki.  Þess í stað hampaði hann á twitter stuðningsyfirlýsingunni.

 

tíst trumps   


mbl.is Trump selur Ungfrú Bandaríkin strax aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.9.2015 kl. 15:36

2 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 16.9.2015 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.