Sjö tónlistarmenn á sjúkrahús eftir að hafa neitað að fara úr jökkunum

 

  Það er vandlifað í heimi tískunnar.  Konur stórskaða á sér fæturna þegar þær ganga í skóm með alltof háum hælum.  Fjöldi þarf að fara reglulega í aðgerð á sjúkrahúsi vegna þessa.  Samt lætur engin sér segjast.  Tískan kallar.  

  Í tónlistarheimi ríkja tískustraumar.  Leðurfatnaður hefur löngum fylgt rokkinu.  Strax á upphafsárum rokksins um miðjan sjötta áratuginn klæddist Elvis Presley leðurgalla á sviði.  Fyrirmyndina sótti hann í kvikmyndaleikarann Marlon Brando.

  Bítlarnir klæddust leðurgalla á fyrri hluta sjöunda áratugarins.  Á seinni hluta áratugarins klæddust hippar leðurfatnaði.  Til að mynda Jim Morrison forsprakki The Doors.  Á áttunda áratugnum fóru þungarokkarar í leðurgalla.  Þegar pönkið mætti til leiks á síðari hluta áratugarins varð leðurjakkinn einkennistákn.  Á hann var smellt fjölda járngadda ásamt því sem barmnælum var hlaðið á.

  Í heitari löndum er leðurgalli vandamál.  Hann hitnar og getur breyst í hraðsuðuketil.  Leðrið er svo þétt efni að það hleypir hvorki hita né svita út.  Þetta fengu liðsmenn bandarísku pönksveitarinnar AIDs Monkey að reyna á hljómleikum í Arizona.  

  Hljómleikarnir hófust síðdegis.  Hitastigið 47° á selsíus.  Hljómleikahaldaranum leist ekki á blikuna.  Hann vildi fresta hljómleikunum til klukkan hálf 10.  Þá væri farið að kólna.  Hljómsveitin tók það ekki í mál.  Né heldur að fara úr leðurjökkunum á sviði.

  Sem betur fer var aðsókn afar dræm.  Fólk hélt sig heima fyrir framan kæliviftur. Aðeins 15 borguðu sig inn.  

  Þegar tímasetningunni varð ekki haggað hvatti hljómleikahaldarinn viðstadda til að fara úr jökkunum.  Því var harðneitað.  Hljómsveitinni tókst að spila í 17 mínútur áður en hún leið útaf.  Fjórir liðsmenn voru í snarhasti fluttir rænulitlir á sjúkrahús ásamt 3 áhorfendum úr annarri hljómsveit.   

    


mbl.is Þessi jakki er að gera allt vitlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Tja, varstu búinn að sjá þetta?

https://www.youtube.com/watch?v=56G46wnMF1g

Vésteinn Valgarðsson, 28.10.2016 kl. 22:35

2 Smámynd: Jens Guð

Vésteinn,  ég var ekki búinn að sjá þetta.  Takk fyrir ábendinguna.  Ég hef í tvígang heyrt Þorvald skemmta með söng á Ásatrúarblótum.  Dúndur góður og raddmikill söngvari.

Jens Guð, 29.10.2016 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband