Kona spilar á trommu

  Konur tromma.  Þær elska að spila á trommur.  Ekki allar, vel að merkja.  En margar.  Ein er brazilískur krakki.  Aðeins sjö ára stelpuskott, Eduarda Henklein.  Hún var varla byrjuð að skríða þegar trommuástríðan braust út.  Hún trommaði á allt sem hönd á festi.  Foreldrarnir gáfu henni litið leikfangatrommusett.  Hún skildi það ekki við sig.  Lúbarði það allan daginn.    

  Þegar hún var fjögurra ára bættu foreldrarnir um betur;  gáfu henni alvöru trommusett.  Hún hefur nánast ekki staðið upp af trommustólnum síðan.  Ekki nema til að setja þungarokksplötur á fóninn.  Henni drepleiðist létt og einföld tónlist.  Hún sækir í rokklög sem eru keyrð upp af afgerandi trommuleik þar sem allt rommusettið fær að njóta sín.  Hún elskar taktskiptingar og "breik".  Litlu fæturnar hamast af sama ákafa og hendurnar.     

  Uppáhalds hljómsveitir hennar eru System of a Down og Led Zeppelin.  Hún kann líka vel við Metallica, AC-DC,  Slipknot og Guns N Roses.  

  Það er gaman að horfa á hana spila.  Út úr andlitinu skín gleði og svipur sem gefur til kynna að trommuleikurinn sé án fyrirhafnar.  Hér spilar hún - sennilega 5 ára - syrpu úr smiðju Ac-Dc, Bítlanna og System of a Down.    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er kominn tími á að setja Frosta tímabundið í frost. Hann telur sig alltaf vita allt best. Stundum er hann vissulegaa flottur, en stundum líka of öfgafullur í skoðunum og fullyrðingum.

Stefán (IP-tala skráð) 13.3.2017 kl. 12:49

2 Smámynd: Jens Guð

Ég held að ummæli Frosta hafi verið oftúlkuð.  Eða jafnvel rangtúlkuð.  Það er að segja um trommuleikara.  Kannski krítískara það sem hann sagði um tónlistarverðlaun Hildar Stefánsdóttur.  

Jens Guð, 13.3.2017 kl. 20:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fór á leiksýningu um daginn, sýningin Vælukjói hjá M.Í. Menntaskólanum á Ísafirði, ekki í frásögu færandi, en þar var hljómsveit og í þessari hljómsveit var trommarinn stúlka og hún var ljómandi góður trommari. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2017 kl. 22:06

4 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  ég man líka eftir þessari ágætu kvennahljómsveit frá Ísafirði,  Sokkabandinu. https://www.youtube.com/watch?v=SuPb0QKmcpE 

Jens Guð, 14.3.2017 kl. 10:56

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já í þeirri hljómsveit voru amk tveir trommarar, auk þess sem einn gítarleikarinn greip í trommurnar ef þess þurfti.  smile

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2017 kl. 11:23

6 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  takk fyrir þessa skemmtilegu fróðleiksmola.

Jens Guð, 16.3.2017 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband