Veitingaumsögn

 - Réttur:  Beikon ostborgari

 - Staður:  TGI Fridays í Smáralind

 - Verð:  2895 kr.

 - Einkunn:  ****

  TGI Fridays er fjölþjóðleg matsölukeðja með bar.  Fyrsti staðurinn var opnaður í New York á sjötta áratugnum.  Staðirnir eru mjög bandarískir,  hvort heldur sem eru innréttingar, veggskreytingar, matseðill eða matreiðsla.   

  Beikon ostborgarinn (World Famous Bacon Cheeseburger) er matmikill hlunkur.  Sjálfur borgarinn er 175 gr nautakjöt.  Ofan á hann er hlaðið stökku beikoni,  hálfbráðnum bragðgóðum bandarískum osti,  tómatsneiðum,  rauðlauk og  salatblaði.  Á kantinum eru franskar (úr alvöru kartöflum) og hunangs-sinnepssósa.  Sú er sælgæti.  

  Bæði borgarinn og frönskurnar eru frekar bragðmild.  Það var ekkert vandamál.  Á borðinu voru staukar með salti og pipar.  Ég bað um kartöflukrydd sem var auðsótt mál.

  Ég er ekki mikill hamborgarakall en get með ánægju mælt með þessum. 

fridays


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ertu nú byrjaður að graðga í þig bandarískan ost í Kópavoginum, Jensinn minn?!

Ég á nú von á yfirlýsingu frá Bændasamtökum Mörlands og Umferðarmiðstöðinni út af þessu atriði. cool

Þorsteinn Briem, 25.4.2022 kl. 09:31

2 Smámynd: Jens Guð

  Þorsteinn,  tengdafaðir minn var bandarískur.  Ég var í fæði hjá honum í Bandaríkjunum heilu mánuðina til margra ára.  Það mótaði matarsmekk minn að hluta. 

Jens Guð, 25.4.2022 kl. 10:24

3 identicon

Þessi hamborgari lítur svakalega vel út á myndinni, en oftast er útlitið allt annað þegar matur á veitingahúsum er kominn á borðið. Minn uppáhalds hamborgara staður er Lebowsky Bar á Laugavegi 20. Gómsætur matur, góð þjónusta og alltaf góð og vel valin tónlist - líka fótbolti á skjám þegar eru beinar útsendingar. 

Stefán (IP-tala skráð) 25.4.2022 kl. 11:35

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  hamborgarinn stendur næstum því undir myndinni.  Ég þarf að tékka á Lebowsky Bar.  Kvikmyndin er góð. 

Jens Guð, 25.4.2022 kl. 11:47

5 identicon

Þykktin á þessum borgara gefur til kynna að neytandinn þurfi að vera einstaklega kjaftstór.

Bjarni4 (IP-tala skráð) 25.4.2022 kl. 14:38

6 Smámynd: Jens Guð

Bjarni4,  já og svangur.  Ég notaði hinsvegar hníf og gaffal og sneiddi borgarann niður eins og tertusneiðar. 

Jens Guð, 25.4.2022 kl. 14:44

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Girnilegt, en gamli vill frekar kótilttur í raspi. 

Sigurður I B Guðmundsson, 26.4.2022 kl. 16:04

8 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég tek undir það.  Kótelettur í raspi eru mitt uppáhalds kjötmeti.  Ég fæ mér þær stundum í Matstöðinni upp á Höfða á laugardögum.

Jens Guð, 26.4.2022 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.