Raunverulegt skrímsli

  Víða um heim er að finna fræg vatnaskrímsli.  Reyndar er erfitt að finna þau.  Ennþá erfiðara er að ná af þeim trúverðugum ljósmyndum eða myndböndum.  Sama hvort um er að ræða Lagarfljótsorminn eða Loch Ness skrímslið í Skotlandi.  Svo er það Kleppsskrímslið í Rogalandi í Noregi.  Í aldir hafa sögusagnir varað fólk við því að busla í Kleppsvatninu.  Þar búi langur og þykkur ormur með hringlaga munn alsettan oddhvössum tönnum. 

  Margir afskrifa sögurnar sem óáreiðanlegar þjóðsögur.  En ekki lengur.  Á dögunum voru tvær ungar vinkonur á rölti um Boresströndina.  Þær voru að viðra hund.  Hann fann skrímslið dautt;  meterslangan hryggleysingja,  5 punda.  Samkvæmt prófessor í sjávarlíffræði er þetta sníkjudýr.  Það sýgur sig fast á önnur dýr,  sýgur úr þeim blóð og hold.  Óhugnanlegt skrímsli.  Eins gott að hundurinn var ekki að busla í vatninu.

  Ef smellt er á myndina sést kvikindið betur.  

suga  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvur fjárinn!! Skrímslið lítur út eins og framsóknarmaður!

Helgi Bjarnason (IP-tala skráð) 17.7.2022 kl. 10:41

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

En á Íslandi erum við með skrímsli á þurri landi og þau heita: Sægreifaskrímsli. 

Sigurður I B Guðmundsson, 17.7.2022 kl. 10:46

3 Smámynd: Jens Guð

Helgi, góður!

Jens Guð, 17.7.2022 kl. 11:30

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þú hittir naglann á höfuðið!

Jens Guð, 17.7.2022 kl. 11:30

5 identicon

Sigurður I B er með þetta: Sægreifaskrímsli og þau eru því og miður alfriðuð udir stjórn Katrínar Jakobsdóttur, enda er þröngsýnn örflokkur hennar að breytast í skrímslaflokk.

Stefán (IP-tala skráð) 17.7.2022 kl. 11:50

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  eins og þú orðar þetta,  já. 

Jens Guð, 17.7.2022 kl. 13:29

7 identicon

Merkilegt! Ekki allar gamlar þjóðsögur vitleysa, þarf bara að rannsaka málið. Þetta er nú rétt við hafið, sé ég. Kvikindið hefur kannski borist með hafstraumum og fjölgar sér svo þarna.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 17.7.2022 kl. 14:02

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Móðurafi minn bjó á Heiðarhöfn á Langanesi og það eru skjalfestar frásagnir til af því að hann skaut og særði, sennilega til ólífis, sjóskrímsli þarna (það er til rituð frásögn af þessum atburði, þetta hefur verið eftir 1955, því Bandaríski herinn blandaðist eitthvað í þetta mál).  Nokkrum dögum eftir þetta rak dauða torkennilega skepnu á land en því miður var ekkert aðhafst í þessu máli meira og er þetta enn óupplýst.  Það voru teknar myndir af þessari skepnu en þetta var látið liggja í fjörunni og hvarf svo smám saman og nú er bara sagan eftir..............

Jóhann Elíasson, 17.7.2022 kl. 22:20

9 Smámynd: Jens Guð

Ingibjörg,  stundum er fótur fyrir þjóðsögunum. 

Jens Guð, 18.7.2022 kl. 08:32

10 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  takk fyrir áhugaverða sögu. 

Jens Guð, 18.7.2022 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband