Rekinn og blómstraði sem aldrei fyrr

  Rokksagan geymir mörg dæmi þess að liðsmaður hljómsveitar hafi verið rekinn; í kjölfarið fundið sína fjöl og skinið skærar en hljómsveitin.  Nei,  ég er ekki að tala um trommuleikarann Pete Best sem var rekinn úr Bítlunum.  Hans ferill varð klúður á klúður ofan.

  Eitt frægasta dæmið í íslenskri rokksögu er þegar söngvarinn Pétur Kristjánsson var rekinn úr Pelican.  Þetta var um miðjan áttunda áratuginn.  Pelican var vinsælasta hljómsveit landsins.  Pétur brá við snöggt;  hafði samband við fjölmiðla sem slógu upp fyrirsögnum um brottreksturinn.  Samtímis stofnaði Pétur eldsnöggur nýja og ferska rokksveit,  Paradís,  með ungum hljóðfæraleikurum.  Það var kýlt á spilirí út og suður og hent í plötu.  Sá sem stýrði fjölmiðlaumræðunni var góðvinur okkar,  Smári Valgeirsson.  Sá hinn sami og á sínum tíma tók sögufrægt viðtal við Hörð Torfason.  Smári spilaði á fjölmiðla eins og á fiðlu.  Ég kom smá ponsu við sögu;  teiknaði myndir af Pétri í auglýsingar, málaði nafn hljómsveitarinnar á bassatrommuna og eitthvað svoleiðis. 

  Pétur fékk samúðarbylgju.  Rosa öfluga samúðarbylgju.  Pelican var allt í einu runnin út á tíma.

  Af erlendum dæmum má nefna Jimi Hendrix.  Hann var gítarleikari bandarískrar hljómsveitar, The Isle Brothers,  undirleikara Little Richard um miðjan sjöunda áratuginn.  Rikki var ofurstjarna áratug áður en mátti á þessum árum muna sinn fífil fegri.  Hendrix rakst illa í hljómsveit.  Hann var afar óstundvís og notaði vímuefni.  Rikki rak hann.  Ári síðar sló Hendrix í gegn með "Hey Joe" og varð í kjölfar stærsta gítarhetja rokksögunnar.

  Í fljótu bragði man ég líka eftir Lemmy.  Hann var söngvari og bassaleikari ensku hljómsveitarinnar Hawkwind á fyrri hluta áttunda áratugarins.  Allt gekk vel.  Nema dópneysla Lemmy þótti um of.  Hann var rekinn.  Stofnaði þá tríóið Motörhead.  Spilaði þar á gítar og hljómsveitin sló rækilega í gegn.

  Einnig má nefna enska söngvarann Ozzy Osbourne.  Dópneysla hans gekk fram af félögum hans í Black Sabbath.  Seint og síðar meir gáfust þeir upp og spörkuðu honum.  Með dyggri aðstoð konu sinnar snéri hann vörn í sókn og náði að trompa Black Sabbath á mörgum sviðum.

  Hér fyrir neðan má heyra Hendrix og Rikka litla spila lag frænda þess fyrrnefnda,  Woody Guthrie,  "Belle Star".   

     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hreinasta afbragð minnir á táningana mína.

Helga Kristjánsdóttir, 24.7.2022 kl. 15:18

2 identicon

Munum það lika i leiðinni að það var enski bassaleikarinn Chas Chandler sem tók Jimi Hendrix að sér. Fór með hann til London, gerði hann út þaðan sem gerði hann heimsfrægan. Bryan Ferry rak  Brian Eno úr Roxy Music og Eno fór að gera frábærar sóloplötur og starfaði með David Bowie, Robert Fripp, Talking Heads og U2. 

Stefán (IP-tala skráð) 24.7.2022 kl. 16:02

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Brian Jones er samt undantekning á þessari reglu. Jagger og félagar neyddust til að reka hann, út af sukkvandamálum hans og miðað við sögu flestra Stonesmeðlimanna í þeim efnum, þá hlýtur sukk Brians að hafa verið mjög slæmt.cool Eins og frægt er, þá dó hann ekki löngu eftir það, aðeins 27 ára.

Mældist með greindarvísitölu 133 er sagt og að einungis 2% jarðarbúa séu í þeim flokk gáfumenna. Sennilega eitt skýrasta dæmi sem til er um sóun á hæfileikum, hef lesið að hann hefði haft gríðarlega mikla hæfileika. Hvert er þitt take á Brian Jones, Jens?

Theódór Norðkvist, 24.7.2022 kl. 16:42

4 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  takk fyrir það.

Jens Guð, 24.7.2022 kl. 16:56

5 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  góðir punktar. 

Jens Guð, 24.7.2022 kl. 16:57

6 Smámynd: Jens Guð

Theódór,  ég man ekki hvort að það var Keith eða einhver annar (Stónsari?) sem sagði að Brian hafi farið létt með að spila á hvaða hljóðfæri sem var.  Skipti ekki máli hvort var um að ræða blásturshljóðfæri,  strengi eða önnur.  Hinsvegar hafi hann ekki verið flinkur á neitt hljóðfæri.  

  Rétt mun vera að hann hafi mælst með ofurgreind.  Óviðráðanleg vímuefnafíkn varð honum að falli.  Að auki var félagsfærni hans takmörkuð.  Hann þótti ekki skemmtilegur djammari.  

  Til gamans má geta að John Lennon fór tvívegis í greindarvísitölupróf.  Annarsvegar er hann lauk grunnskóla.  Hinsvegar er hann hóf nám í Myndlistaskóla Liverpool.  Í öðru tilfellinu mældist hann með greind 160.  Í hitt skiptið 165.   

Jens Guð, 24.7.2022 kl. 17:14

7 identicon

Brian Jones var flinkur slide gítarleikari og blúsari fram í fingurgóma. Hafði líka verið saxofónleikari fyrir Stones tímann. Þessi stofnandi Rolling Stones missti fljótt leiðtogastöðuna til Keith og  Mick sem höfðu umfram hann tónsmíðahæfileika.

Stefán (IP-tala skráð) 24.7.2022 kl. 17:33

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 7),  Brian spilaði líka á sax með Bítlunum í furðulega laginu You Know My Name.   https://youtu.be/iZndVv-jl-U

Jens Guð, 24.7.2022 kl. 17:53

9 identicon

Já, Ozzy karlinn var svo sannarlega rekinn úr hljómsveitinni Black Sabbath. Fyrir það hafði hann reyndar yfirgefið Sabbath sjálfur og þeir þá byrjaðir að vinna plötu með öðrum söngvara, en þá mætti Ozzy aftur eins og ekkert hefði í skorist og hinn söngvarinn missti starfið nánast í fæðingu. Seinna átti Ozzy hinsvega eftir að sameinast gömlu félögunum í Sabbath nokkrum sinnum. Það minnir á það þegar Roger Waters rak hljómborðsleikarinn Richard heitinn Wright úr Pink Floyd, en nokkru eftir að Waters hafði sjálfur yfirgefið Pink Floyd, þá mætti Wright aftur til starfa í Pink Floyd sem þá starfaði undir stjórn David Gilmore. Dave Mustaine var aðal gítarleikari Metallica fyrstu árin 81-83, en þé var hann rekinn og stofnaði hljómsveitina Megadeth, sem mér persónulega finnst skemmtilegri en Metallica. Megadeth náði vissulega aldrei sömu hæðum og Metallica vinsældarlega séð. 

Stefán (IP-tala skráð) 25.7.2022 kl. 19:00

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef ég man rétt, nýtur Brimkló þess vafasama heiðurs að vera EINA hljómsveitin sem rak Björgvin Halldórsson, e Bjögga hefur vegnað mun betur en Brimkló, eftir að leiðir skyldu.......

Jóhann Elíasson, 25.7.2022 kl. 22:33

11 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 9),  takk fyrir fróðleikinn.

Jens Guð, 26.7.2022 kl. 08:10

12 Smámynd: Jens Guð

 Jóhann,  já,  hann var rekinn úr Brimkló,  gekk í Hljóma (og Lonlí Blú bojs) og snéri síðan aftur í Brimkló.  Þá sló hljómsveitin í gegn sem aldrei fyrr.

Jens Guð, 26.7.2022 kl. 08:19

13 identicon

Bubbi Morthens var líka eitthvað rekinn úr Utangarðsmönnum. Steinar Berg hefur sagt að hann hafi verið viðstaddur þann gjörning.

Stefán (IP-tala skráð) 26.7.2022 kl. 08:44

14 Smámynd: Jens Guð

Stefán (#13),  mig rámar í þetta.  Líkast til kemur þetta fram í einhverri af ævisögum hans.

Jens Guð, 26.7.2022 kl. 09:23

15 identicon

Ha, ha, hversu áreiðanlegar eru þær ævisögur ? Reyndar verður að krydda ævisögur til að gera þær skemmtilegri.

Stefán (IP-tala skráð) 26.7.2022 kl. 11:27

16 identicon

Ha, ha, hversu áreiðanlegar eru þær ævisögur ? Reyndar verður að krydda ævisögur til að gera þær skemmtilegri.

Stefán (IP-tala skráð) 26.7.2022 kl. 13:04

17 identicon

Menn eru ekki bara reknir úr hljómsveitum, standi þeir sig ekki eða dópa of mikið. Þjálfarar keppnisliða í íþróttum eru umsvifalaust reknir ef ætlaður árangur næst ekki. Hér á landi eru knattspyrnuþjálfarar í efstu deild karla reknir vinstri, hægri nema hjá KR þar sem menn eru greinilega búnir að sætta sig við að vinna ekki heimaleiki. Metnaðurinn er nú ekki meiri þar á bæ. 

Stefán (IP-tala skráð) 26.7.2022 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband