Fjölskylduvænt framhjáhald

  Frönsk kona,  tveggja barna móðir,  vann lengst af sem einkaspæjari.  Meðal algengra og vinsælla verkefna var að njósna um fólk sem lá undir grun um að halda framhjá maka sínum.  Í vinnunni lærði hún hægt og bítandi hver eru helstu mistök fólks sem heldur framhjá og hvers vegna upp um það kemst.

  Hún tók æ oftar nærri sér hverjar urðu afleiðingar starfsins.  Iðulega kom til harðvítugs uppgjörs,  hjónaskilnaðar, upplausnar fjölskyldu og heimilis.  Sárast þótti henni að horfa upp á grátandi niðurbrotin börn í áfallastreituröskun. 

  Að því kom að hún þoldi þetta ekki.  Hún ákvað að snúa við blaðinu.  Hún lokaði á njósnir og stofnaði fyrirtæki sem býður upp á sérhæfða framhjáhaldsþjónustu.  Það skipuleggur framhjáhaldskvöld,  nætur eða helgarpakka.  Hún afgreiðir platsímtöl,  plat-sms,  útbýr og sendir út platboðskort eða fundarboð,  sviðsetur hverskonar atburði,  falsar hótelreikninga,  kvittanir frá veitingastöðum,  leigubílum; falsar ljósmyndir og önnur "sönnunargögn".

  Starfsemin gengur vel.  Nú leggst hún til svefns án samviskubits.  Ekki hefur komist upp um framhjáhald svo mikið sem eins kúnna.  Þetta eru fjölskylduvæn framhjáhöld.   

framhjáhald        


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

"IF YOU CAN'T BEAT THEM JOIN THEM".  Hún hlýtur að hafa gert sér grein fyrir afleiðingunum, sem fyrra starfið GAT haft...

Jóhann Elíasson, 24.9.2023 kl. 14:21

2 identicon

Við hér á landi þekkjum vel til forsætisráðherra sem heldur grimmt framhjá kjósendum sínum og það er alls ekki fjölskylduvænt. 

Stefán (IP-tala skráð) 24.9.2023 kl. 14:29

3 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  eflaust hefur hana grunað eitthvað í þá veruna.  Eða kannski ekki velt því fyrir sér framan af ferli.

Jens Guð, 24.9.2023 kl. 15:20

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  svo sannarlega er það ekki fjölskylduvænt!

Jens Guð, 24.9.2023 kl. 15:21

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er þetta fyrirtækið: Allt í plati rassagati?

Sigurður I B Guðmundsson, 24.9.2023 kl. 18:54

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þú hittir naglann á höfuðið!

Jens Guð, 25.9.2023 kl. 08:49

7 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Útgeislun framhjáldara er ávallt ódulin og ekki hægt að fela.

Guðjón E. Hreinberg, 26.9.2023 kl. 09:45

8 Smámynd: Jens Guð

Guðjón,  það eru bara svo fáir sem kunna að lesa í það.

Jens Guð, 26.9.2023 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband