11. sept

hörðurtorfa

  Í hugum margra er 11.  september ekki venjulegur dagur.   Þetta er dagur sem margir eru með hugann við og gleyma ekki.  Ástæðan er sú að 11.  september,  nánar tiltekið í kvöld,  heldur söngvaskáldið,  söngvarinn,  gítarleikarinn,  leikarinn og mannréttindafrömuðurinn Hörður Torfason sína árlegu hausttónleika í Borgarleikhúsinu.

  Svo brá við að um leið og miðasala hófst þá seldist upp á hljómleikana sem verða klukkan 20.00.  Vegna gífurlega mikillar eftirspurnar var brugðið á það ráð að bjóða upp á aukahljómleika klukkan 22.15.  Einhverjir örfáir miðar eru enn til á þá.  Miðana er hægt að kaupa á www.midi.is og einnig í Borgarleikhúsinu.

  Í næsta mánuði kemur út ævisaga Harðar.  Þar mun margt forvitnilegt koma fram og líklegt að bókin muni keppa við bókina um Önnu á Hesteyri um áhugaverðustu bækur ársins.  

  www.hordurtorfa.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Hann er HARÐUR

Ómar Ingi, 11.9.2008 kl. 13:03

2 Smámynd: inqo

Frekar ósmekklegt hjá þér Jens.

inqo, 11.9.2008 kl. 13:03

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ósmekklegt? Hvernig þá?

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 11.9.2008 kl. 13:09

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Aldrei verið hrifin af Herði...ekkert persónulegt!

Rúna Guðfinnsdóttir, 11.9.2008 kl. 17:52

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Það er já góð spurning hjá J Einari hvað sé ósmekklegt við að Jens skuli svona svipað og mbl. segja frá og þannig gefa Herði auglýsingu á tónleikana hans!?

Auðvitað ekki neitt.

Hörður á bara gott skilið og vonandi tekur þjóðin vel á móti bókinni hans, rétt eins og bókinni um Önnu!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2008 kl. 17:56

6 Smámynd: inqo

"Í hugum margra er 11. september ekki venjulegur dagur. Þetta er dagur sem margir eru með hugann við og gleyma ekki. Ástæðan er sú að 11. september"

Tja hvað er merkilegt við ellefta september.

inqo, 11.9.2008 kl. 21:48

7 identicon

Það er ekki neitt merkilegt við 11. september nema að maður eigi afmæli þann dag. Að öðru leyti er 11. september eins og hver annar dagur, kemur á hverju ári.

En eins og Jens bendir á, þá er 11. september 2008 merkilegur fyrir þær sakir að "söngvaskáldið,  söngvarinn,  gítarleikarinn,  leikarinn og mannréttindafrömuðurinn Hörður Torfason sína árlegu hausttónleika í Borgarleikhúsinu

Á hverjum degi gerast atburðir um allan heim sem gera hvern dag merkilegan. Ef heimurinn hætti að snúast fyrir hvern þann atburð sem kemur okkur ekki beint við, þá getum við alveg eins hætt að anda.

- grettir (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 22:51

8 Smámynd: inqo

Grettir.. það er ekkert merkilegt við þennann dag en samt er hann merkilegur og ekki merkilegur.... puu

inqo, 11.9.2008 kl. 23:03

9 Smámynd: Jens Guð

  Ingólfur,  11.  sept. er og mun verða mörgum aðdáendum Harðar Torfasonar minnisstæður.  Þennan dag,  fyrir 35 árum,  steypti bandaríska leyniþjónustan,  CIA,  líka lýðræðislega kjörinni stjórn í Chile og leiddi til valda fasistastjórn Pinochets í blóðugri byltingu.  Sú fasistastjórn varð alræmd fyrir að beita pyntingum sem valdatæki.  Um 4000 manns voru drepnir og töluvert fleiri örkumla fyrir lífstíð.  Yfirböðullinn,  Pinochet,  varð átrúnaðargoð Margrétar Thatcher og Hannesar Hólmsteins.  Hannes hefur sennilega flaggað í tilefni dagsins en grenjudúkkan Thatcher er líkast til of rugluð til að muna eftir deginum.  Öfugt við fórnarlömb fasistaböðlanna í Chile. 

Jens Guð, 11.9.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband