Taktu laugardagskvöldið frá

plakat-sólstafir

  Það verður heldur betur líf og fjör og skemmtilegt næstkomandi laugardagskvöld.  Það er betra og öruggara að taka laugardagskvöldið frá í tæka tíð.  Þetta gefur fólki úti á landsbyggðinni gott tækifæri til að bregða sér í borgarferð og þeim sem eru staddir erlendis ástæðu til að skjótast upp á Klakann og velta sér upp úr ónýtri krónu.

  Eins og sést á myndinni hér fyrir ofan eru það risarnir tveir í íslensku þungarokki,  Sólstafir og XIII,  sem munu troða upp í Sódómu Reykjavík á laugardaginn,  klukkan 22.00.  Um Sólstafi vísa ég til http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/919886/.  Þetta verða síðustu hljómleikar Sólstafa á Íslandi í bili.  Hljómsveitin er þétt bókuð erlendis næstu vikur og gott ef hljómsveitin er ekki búsett í Bretlandi.

  XIII verður með "classic line up" af meistaraverkinu  Salt  sem kom út 1993.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Er nógu mikið öskur og slím í þessu fyrir þig ?

Ómar Ingi, 8.9.2009 kl. 19:03

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Seint færi ég á svona tónleika en ef þú byðir mér uppá Status Quo þá yrði ég fyrst á staðinn

Ásdís Sigurðardóttir, 8.9.2009 kl. 19:40

3 Smámynd: Hannes

Held að ég bjóði mig frekar fram sem tilraunadýr til að prufa hvernig ebóluveira drepur fólk en að mæta þarna á laugardaginn.

Hannes, 8.9.2009 kl. 19:49

4 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  það er nógu mikið af öskrunum.  En vonandi ekki neinu slími.

Jens Guð, 8.9.2009 kl. 23:11

5 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  ég hafði grun um að þetta væri of þungt og hart rokk fyrir þinn smekk.  Status Quo eru hinsvegar of léttpoppaðir og mjúkir fyrir minn smekk.  Þú verður að láta Kalla Bretaprins bjóða þér á Status Quo hljómleika.  Status Quo er uppáhaldshljómsveitin hans.

Jens Guð, 8.9.2009 kl. 23:28

6 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  það er einmitt verið að leita að sjálfboðaliða til að vera tilraunadýr í rannsókn á því hvernig ebóluveiran drepur fólk. 

Jens Guð, 8.9.2009 kl. 23:34

7 Smámynd: Hannes

Jens við skulum þá drífa í því að skrá okkur. Veistu hversu vel þetta er borgað? Langar nefnilega til að stækka íbúðina.

Hannes, 8.9.2009 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband