Íslensk hljómsveit í 55. sæti

  Ég rakst á vandaðan og vel rökstuddan lista á Myspace yfir bestu goth-hljómsveitir rokksögunnar.  Tilefnið er að 22. maí er alþjóðlegi goth-dagurinn (greinin er frá 22. maí í fyrra).  Fyrirsögnin er "Frá Bauhause til Nick Cave,  heimsreisa með 80 böndum".  Í 55. sæti listans er íslenska hljómsveitin Q4U. 

  Þetta er enn ein staðfestingin á því hve Q4U er vel kynnt erlendis.   Meira má finna um það með því að smella á þessa slóð:   http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1345886/   

  Heildarlistann yfir bestu goth-hljómsveitirnar sérð þú með því að smella á þessa slóð:  https://myspace.com/discover/editorial/2013/5/22/its-a-celebration-from-bauhaus-to-nick-cave-around-the-world-in-80-goth-bands

 

ICELAND

55. Q4U

Years active: 1980–1983
Q4U, from Reykjavik, may have been influenced by U.K. punk, and a big part of the Icelandic punk scene, but they created a sound that leaned more towards post-punk. Hear their unpronounceable but fantastic track, above.


Íslenska Bítlahreiðrið

Bítlarnir
  Þetta eru fjórir guttar í barnaskóla í enskri hafnarborg á sjötta áratugnum.  Sá sem er lengst til vinstri á myndinni var með annan fótinn á sjúkrahúsi.  Alltaf veikur og ekki hugað langlífi.  Hann er þó ennþá lifandi og sprækur meira en hátt í sjö áratugum síðar.  Hann hefur margoft komið til Íslands.  Fyrst til að spila með Stuðmönnum.  Síðan til að syngja með Plastic Ono Band í Háskólabíói.  Þess á milli og í framhjáhlaupi til að taka þátt í því þegar kveikt er árlega á Friðarsúlunni,  kenndri við John Lennon,  í Viðey.  Guttinn heitir Richard Starkey en er þekktur sem bítillinn Ringo Starr.
 
 
 
  Sá sem er næst lengst til hægri er John Lennon.  Eiginkona hans,  Yoko Ono,  reisti í Viðey Friðarsúluna Imagine Peace Tower.   John átti sér ósk um svona friðarsúlu.  Ljósasúlu sem myndi lýsa óendanlega langt upp í himinn og vera tileinkuð friði.  Friðarsúla Lennons í Viðey er fræg um víða veröld.  Þegar "Imagine Peace Tower" er gúglað koma upp milljón síður.  Utan enska málsvæðisins heitir súlan öðrum nöfnum,  svo sem á Íslandi þar sem hún heitir Friðarsúlan.  
 
  
 
  Í hvert sinn sem kveikt er á Friðarsúlu Lennons í Viðey kemur fjöldi erlendra tónlistarmanna til Íslands.  Fyrir utan Yoko Ono,  Sean son þeirra Lennons,  Ringo;  ekkju George Harrisons og son þeirra Harrisons hafa komið liðsmenn hljómsveita á borð við Wilco.
 
   Hinn sonur Johns,  Julian,  kom í leyniferð til Íslands fyrir tuttugu árum eða svo.  Dvaldi þá á Selfossi yfir helgi.  Það fór hljótt.
 
 
 
  Sá sem er lengst til hægri á myndinni,  George Harrison,  varð tengdafaðir íslenskrar konu,  Sólveigar Káradóttur (Stefánssonar).  Einkasonurinn,  Dhani Harrison, er tónlistarmaður og er með annan fótinn á Íslandi.  Hann hefur unnið með íslensku tónlistarmönnum.  Til að mynda Þórunni Agneu Magnúsdóttur.  Hann var í slagtogi með Jacobi Dylan (syni Bobs Dylan) um tíma.  Þeir kráka (cover song) lag Johns Lennon  Gimme Some Truth á plötunni Instant Karma - The Amnesty Internationa Campaign To Save Sudan.  
 
  Næst lengst til vinstri á myndinni er Paul McCartney.  Hann kom í skemmtiferð til Íslands með þáverandi eiginkonu sinni fyrir nokkrum árum.  
 
 
 
  Guttarnir á myndinni í hafnarborginni Liverpool í Englandi uxu úr grasi.  Þeir stofnuðu hljómsveit sem varð stærsta hljómsveit heims.  Hljómsveit sem toppaði allt sem hægt var að toppa.  Mótaði hugsunarhátt ungmenna sjöunda áratugarins um allan heim og fram eftir áttunda áratugnum.   Hljómsveitin hlaut nafnið The Beatles en er alltaf á Íslandi kölluð Bítlarnir.  Bítlarnir voru bylting.  Ekki aðeins í músík.  Líka í klæðaburði,  hárgreiðslu og eiginlega öllu.  Allsráðandi fyrirmynd heimsbyggðarinnar.  Svo bara allt í einu er Ísland Bítlahreiður,  margfléttað saman við Bítlana og þeirra arfleifð.  Litla og fámenna Ísland sem hýsir aðeins 325 þúsund íbúa.  Jafn marga og fámenn þorp í öðrum löndum.    
 
   

Kvikmyndarumsögn

 - Titill:  Vonarstræti

 - Handrit:  Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson

vonarstræti

 

 - Leikstjóri:  Baldvin Z

 - Leikarar:  Þorvaldur Davíð Kristjánsson,  Hera Hilmarsdóttir,  Þorsteinn Bachman,  Sveinn Ólafur Gunnarsson,  Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,  Theódór Júlíusson...

 - Einkunn: ****1/2   

  Myndin segir frá lífi þriggja persóna.  Til að byrja með er hún hæg og sumt óljóst.  Þegar fram vindur skýrast hlutir.  Þá áttar maður sig á því hversu vel heppnaður fyrsti hlutinn er.  Þar eru persónurnar kynntar,  ein á eftir annarri.  Síðan fléttast líf þeirra saman.  Þá verður jafnt og þétt ris í framvindunni.   Spennan magnast.  Myndin nær sterkari og sterkari tökum á áhorfandanum.  Heldur honum að lokum í heljargreipum.

  Þrátt fyrir óljósan grun um það hvernig hin og þessi sena muni þróast þá næst að hlaða upp stemmningu þar sem maður vonast til að hafa rangt fyrir sér.  Að bíói loknu sitja persónur og aðstæður þeirra eftir í höfði manns eins og gamlir kunningjar.  Að því leyti virkar myndin pínulítið eins og heimildarmynd.  Líka vegna þess að hún vísar í marga raunverulega atburði sem við könnumst við í aðdraganda bankahrunsins.  Það er gengið svo langt að lúxussnekkja í Florida,  í eigu íslenskra bankstera,  er látin heita Víking í myndinni.  Þar er boðið upp á "geðveikt partý", áfengi, kókaín og vændiskonur.    

  Ýmsar þekktar og raunverulegar íslenskar persónur smellpassa við persónur í myndinni.    

  Persónurnar þrjár sem sagan snýst um eru Sölvi,  Eik og Móri.  Sölvi er fyrrverandi knattspyrnustjarna sem gerist bankster.  Eik er leikskólakennari á daginn og vændiskona þess fyrir utan.  Móri er frægur rithöfundur og alki.   Hann fær að segja fyndnustu setningarnar.  Er orðheppinn og djúpur.  Megas kom oft upp í huga undir meitluðum tilsvörum Móra.   

  Þau sem leika Sölva (Þorvaldur Davíð Kristjánsson),  Eik (Hera Hilmarsdóttir) og Móra (Þorsteinn Bachman) vinna hvert um sig stórkostlegan leiksigur.  Þau eru frábærlega trúverðug.  Myndin er trúverðug.  Samtöl eru eðlileg,  ólíkt því sem hrjáir margar íslenskar kvikmyndir.

  Myndin öll,  hvort sem er leikur, handrit, taka eða annað,  er afskaplega vel heppnuð í alla staði.  Ég hvet fólk til að drífa sig í bíó og ná góðri kvöldskemmtun.

  Auglýsingin sem sýnir hliðarmynd af Eik er veikur hlekkur.  Hún segir ekkert.  Gerir ekkert fyrir myndina.   

    


Brýnt að afgreiða Geirfinns og Guðmundarmálið fyrir fullt og allt

  Flestum sem kynnt hafa sér svokallað Geirfinns- og Guðmundarmál er ljóst að það er ljótur blettur á réttarfarssögu Íslendinga.  Í því máli voru framin dómsmorð.  Ungt fólk var saklaust dæmt til margra ára fangelsunar eftir glæpsamlega langa einangrunarvist og pyntingar.     

  Öll afgreiðsla á GG-málinu var rugl og della frá A-Ö.  

  - Geirfinnur hvarf.  Margir Íslendingar hafa horfið.  Í mörgum tilfellum hefur seint og síðar meir komið í ljós að þeir hurfu af slysförum.  Í öðrum tilfellum er líklegast að um slys hafi verið að ræða.  

  - Dæmi er um að horfinn Íslendingur,  formlega skráður dáinn,  hafi birst mörgum árum síðar á Íslandi eftir langa dvöl erlendis.  

  - EKKERT bendir til þess að Geirfinnur hafi verið myrtur.  Hinsvegar eru vísbendingar um að hann hafi farið í sjóinn.  Hundur rakti spor hans að klettasnös við sjóinn.  

  - EKKERT bendir til þess að Guðmundur hafi verið myrtur.  Hann sást síðast óstöðugur og verulega ölvaður í miðbæ Hafnarfjarðar.  Hugsanlega féll hann í sjóinn.  Hugsanlega gekk hann út fyrir Hafnarfjörð og varð úti.  Hraunið er felulandslag.  Það var einmitt ein dellukenningin um meint morð á Geirfinni að líkið hafi verið falið um aldur og ævi í hrauninu.     

  - Frumrannsókn á hvarfi Geirfinns var della frá A - Ö.  Eitt dæmið er að hringt var í hann frá Hafnarsjoppu í Keflavík.  Afgreiðsludömur þar voru ekkert hafðar með í ráðum með framvindu rannsóknar á hvarfinu.  Ekki einu sinni þegar gerð var leirstytta af hugsanlegum þeim sem hringdi í Geirfinn.  Þess í stað var teiknara sýnd ljósmynd af Magnúsi Leopoldssyni.  Hann var beðinn um að teikna mynd af Magnúsi og styttan var gerð eftir teikningunni.    

  - Afgreiðsludömurnar sáu ekki að sá sem hringdi væri líkur neinum sem síðar voru dæmdir morðingjar Geirfinns.   

  - Unglingarnir sem dæmdir voru morðingjar GG þekktu hvorugan og engar vísbendingar eru um þ-að þeir hafi þekkt neitt til þeirra.

  - Unglingarnir sem dæmdir voru morðingjar GG máttu sæta gríðarlegu harðræði í glæpsamlega löngu gæsluvarðhaldi og einangrun.   Þar á meðal var pyntingum beitt,  óhóflegri lyfjagjöf og svo framvegis.  Jafnvel nauðgun.  

  - Nákvæmlega EKKERT bendir til þess að unglingarnir sem dæmdir voru morðingjar hafi átt nein samskipti við GG.  

  Það er nauðsynlegt og áríðandi að GG-málið verði afgreitt á þann hátt að sakborningar verði opinberlega sýknaðir.  Jafnframt að greint og skilgreint verði hvernig staðið var að allri þeirri dellu sem skilaði dómsmorðum.  Ekki endilega til þess að sækja til saka þá sem frömdu dómsmorð.  Miklu frekar til þess að læra af mistökum fortíðar.  Fyrst og fremst til þess að koma skikkan á að rétt sé rétt og ranglæti verði upplýst og leiðrétt.  Samt má alveg halda til haga ógeðfelldum viðhorfum

  Ég man ekki hvaða drullusokkur,  dómari sem hafnaði upptöku á GG-málinu,  rökstuddi í sínum hroka afstöðuna með þeim orðum að Sævar og félagar væru ekki neinir kórdrengir sem hefðu verið sóttir í fermingarveislu. 

http://mal214.blog.is/blog/mal214/

 

 


mbl.is „Ég viðurkenndi að hafa drepið Geirfinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áttavilltur lögregluþjónn

 

  Í kvikmyndinni sívinsælu,  Sódóma Reykjavík,  gengur einn af mörgum vel heppnuðum bröndurum út á það að ein persónan þekkir ekki mun á hægri og vinstri.  Þetta er smákrimmi sem Helgi Björnsson leikur af snilld.  Reyndar er það svo að mörgum,  einkum ungum börnum,  gengur illa að muna hvað er hægri og hvað er vinstri.  Flestir eru búnir að læra það þegar þeir eru komnir töluvert á fullorðinsár.

  Fyrir tveimur árum varð lögregluþjónn á Manhattan-eyju í Bandaríkjum Norður-Ameríku fyrir því að ungur reiður maður kýldi hann með olnboga af öllu afli í annað augað.  Á dögunum var málið dómtekið.

  Sækjandi og verjandi þráspurðu lögregluþjóninn um atvikið og eftirmála þess.  Í ljós kom að hann gerði engan greinarmun á vinstri og hægri.  Ítrekað benti hann á vinstra auga þegar hann nefndi hægra auga og öfugt.  

  Þetta olli miklum vandræðum.  Einkum setti þetta dómsritara í klípu og klúðraði að stórum hluta skráningu hans.  Hún fylgdi framsögn lögregluþjónsins að uppistöðu til en þurfti jafnframt að geta bendinga hans.  Þar stangaðist allt á.

  Önnur vandræði fylgdu því að lögregluþjónninn hafði í upphafi réttarhalda gengist undir eið,  svarið við gamlar þjóðsögur gyðinga í Arabíu,  að segja sannleikann og ekkert nema sannleikann.  Maður sem fer rangt með hægri og vinstri undir eið er í raun að rjúfa eiðinn og eyðileggja réttarhöldin.  Strangt til tekið.  

  Vegna þessara vandræða neyddist dómarinn í lok réttarhaldanna til að fá úr því skorið hvort að lögregluþjónninn vissi hvað væri hægri og hvað vinstri.  Hann skaut sér lipurlega undan því að svara já eða nei heldur sagði að í þessu tilfelli skipti það engu máli.  Til væru ljósmyndir og áverkavottorð sem sýndu hvort augað var slasað.  

 


Íslenskir tónlistarmenn geta auðveldlega náð heimsyfirráðum

  Ef þú getur komið á framfæri öflugu lagi á sex sek. er möguleiki á að verða heimsfræg poppstjarna.  Dæmin sanna það.  Snjallsímaappið Vine er málið.  Vine er einskonar þútúpa.  Munurinn liggur í því að öll myndbönd á Vine eru aðeins 6 sek.  Þetta knappa form virðist henta hröðum heimi unga fólksins í dag.  

  Sala á lagi með bandaríska rapparanum Glasses Malone,  That Good,  óx um 700% þegar notandinn SheLovesMeechie setti inn á Vine myndband af sér dansa við þetta lag.  Skyndilega hafði það verið spilað yfir milljón sinnum á þútúpunni.  Þetta er bara eitt dæmi af mörgum.  Fjöldi áður óþekktra og ósamningsbundinna tónlistarmanna hefur náð heimsfrægð og risasölu á sinni músík í gegnum Vine.

 

    Lagið Burn með Ellie Goulding & Jason Derulo er annað dæmi.  Myndbrot á Vine hefur skilað því lagi yfir 200 milljón spilunum á þútúpunni.  Verst hvað þessi lög eru djöfull leiðinleg.  En þá er bara málið að setja á Vine 6 sek myndband með skemmtilegu íslensku lagi.  Þetta er trixið í dag fyrir ósamningsbundna og óþekkta íslenska tónlistarmenn til að ná inn á heimsmarkaðinn og leggja hann undir sig án mikils tilkostnaðar.

  


Kettir

  Kettir eru eina húsdýrið sem valdi sjálft að verða húsdýr.  Kettir eru eiginhagsmunaseggir út í eitt.  Hjá köttum er ekkert til sem heitir trygglyndi.  Allt er á þeirra eigin forsendum út frá þeirra hagsmunum.

köttur auglýst eftir

  Auglýst eftir týndum ketti.   

köttur á priki

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur á priki.

köttur fer í inniskó

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur laumast í inniskó. 

köttur horfir yfir snjóruðning

 

 

 

 

 

 

 

 

 Köttur horfir yfir snjóruðning.

 Köttur með gorm á höfði.

köttur með gorm á hausnum köttur þykist ætla að kyrkja annan köttköttur skríður upp um lampaskermköttur skríður um fataskápköttur situr í tröppu

Lögreglan skoðar mál

  Héraðsdómur dæmir mann í nálgunarbann.  Samkvæmt dómnum má hann ekki undir neinum kringumstæðum hafa samband við konuna sem hann hafði ofsótt og beitt grófu ofbeldi.  Hann má ekki nálgast heimili hennar né hafa samband við hana í síma eða senda henni skilaboð í sms,  tölvupósti eða eftir öðrum leiðum.

  Dómurinn virðist vera skýr og auðskilinn.  Samt vefst hann fyrir lögreglunni.  Á hálfu ári hefur maðurinn brotið nálgunarbannið á margvíslegan hátt um það bil þúsund sinnum.  Þar á meðal með opinskáum morðhótunum.  Hann heldur heilu bæjarfélagi í heljargreipum.

  Lögreglan gerir ekkert.  Hún er að skoða fyrri ofbeldismál mannsins.  Á meðan er ekkert gert.  

  Er það í lagi? 

www.aflidak.is

www.stigamot.is 

www.solstafir.is 


mbl.is „Hann ætlar að láta mig borga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kattakaffi

 
  Nei,  það er ekki byrjað að framleiða kaffi úr köttum.  Hinsvegar eru sérstök kaffihús fyrir ketti og kattaeigendur farin að ryðja sér til rúms víða um heim.  Eftir því sem ég kemst næst voru Japanir frumkvöðlar á þessu sviði.  Þar mætir viðskiptavinurinn með köttinn sinn (eða annarra) og borgar um 1400 kall (ísl. kr.) fyrir eins og hálfs klukkutíma dvöl í kaffihúsinu.  Annar kostur er að borga 2800 kall fyrir ótakmarkaða dvöl.
 
  Þetta er bara fyrir viðveruna á staðnum.  Þar fyrir utan er hægt að kaupa allskonar snakk fyrir köttinn og flóaða rjómamjólk fyrir hann að lepja.  Kattareigandinn getur sömuleiðis keypt sér tebolla og sætabrauð að maula.   
 
  Kettirnir hlaupa frjálsir um húsakynni.  Þar er ýmislegt spennandi fyrir þá að sjá og skoða og leika sér að.  Reyndar þykir köttunum skemmtilegast að hitta aðra ketti.  Það eru aldrei slagsmál eða leiðindi þeirra á milli.  
 
  Um síðustu mánaðarmót var opnað fyrsta kattakaffihúsið í New York í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Nánar tiltekið í Brooklyn.  Síðar á árinu verður opnað kattakaffihús í San Francisco í Bandarískjunum.  Því er spáð að innan skamms verði kattakaffihús í öllum fjölmennari borgum Bandaríkjanna.
 
  Spurning er hvort að þetta sé eitthvað fyrir Íslendinga.   
 
 
   

Óheppileg nöfn

obal 

  Ég er ekki með söguna á hreinu.  Á Norðurlöndunum heita íslensku Ópaltöflurnar OBAL.  Ein sagan segir að Ópal þýði eitthvað dónalegt.  Önnur saga segir að Ópal sé skrásett vörumerki en ónotað á Norðurlöndunum.  Þriðja sagan segir að Ópal sé bæði dónalegt orð og líka skrásett og frátekið vörumerki.  Hvað sem rétt er þá eru til mörg dæmi um að nöfn á sælgæti og öðru matarkyns hljómi illa þegar það er sett á markað í öðrum löndum en upprunalandi.  Einkum á það við um asískar vörur sem eru merktar á ensku.  Hér eru nokkur dæmi:

óheppilegt nafn The Jew´s ear Juice

  Þessi asíski drykkur heitir á ensku Gyðingaeyrnasafi.  Eða kannski Gyðingaeyrnamergur?

óheppilegt nafn Tastes like grandma

  Hér er rifsberjasulta.  Sennilega er átt við að hún bragðist eins og heimagerð sulta ömmu.  En yfirskriftin er "Bragðast eins og amma".   

óheppilegt nafn Soup for sluts

  Ég veit ekki hver merkingin hefur átt að vera en þessi núðlusúpa heitir "Súpa fyrir druslur".

óheppilegt nafn Only Puke

  "Aðeins æla" er nafnið á snakkinu. 

 óheppilegt nafn roasted monkey nuts

  "Ristaðar apahreðjar"

 óheppilegt nafn Pee Cola

   "Piss kóla"

 óheppilegt nafn Child Shredded Meat

  "Rifið barnakjöt"

 óheppilegt nafn Extra dick!

  "Extra typpi"

óheppilegt nafn Göteborgs Rape 

  "Gautaborgar nauðgun"

 


Lögregluþjónar í vondum málum

  Fönix - eða réttara sagt Phoenix - er höfuðborg Arizona ríkis í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Þetta er jafnframt fjölmennasta borg Arizona.  Nú eru tveir lögreglumenn þar í borg í vondum málum.  Þeir voru á vakt þar sem þeir áttu að sitja inni í lögreglubíl,  drekka kaffi og maula kleinuhringi,  og vera tilbúnir að sinna útkalli.  

  Innra eftirlit lögreglunnar stóð lögreglumennina að því glóðvolga að spila Olsen, Olsen á vaktinni.  Vissulega drukku lögreglumennirnir samviskusamlega sitt kaffi og mauluðu kleinuhringi með glassúr.  En þeir biðu ekki nógu einbeittir og vakandi eftir útkalli á meðan þeir spiluðu Olsen, Olsen.  Þeir hafa verið leystir frá störfum í lögreglunni tímabundið á meðan lögregluyfirvöld í Fönix ráða sínum ráðum og ákveða hvað skal með löggur sem spila Olsen, Olsen.  Lögregluþjónar um gervöll Bandaríki Norður-Ameríku fylgjast spenntir með framvindu mála - á milli vonar og ótta.  Niðurstaðan mun setja fordæmi.  

   

   


Húðflúraklúður

okkara

   Ég var að fá mér húðflúr.  Sem er ekki í frásögu færandi.  Það er merki færeyska OKKARA bjórsins.  Húðflúrarinn sagði mér frá manni sem kom til hans í vandræðum.  Maðurinn hélt upp á 10 ára edrúafmæli með því að láta húðflúra á sig Æðruleysisbænina.  Sá sem framkvæmdi verkið var ekki í góðu formi.  Fyrir bragðið var orðið breytt í tvígang skrifað með einföldu i.  Í öðru tilfellinu vantaði að auki e.  Edrúmaðurinn var og er í öngum sínum yfir þessu.  Það er ekki hægt að laga klúðrið nema með því að gera það ennþá kjánalegra.       

  Flestir umgangast húðflúr af varfærni.  Húðflúr er eitthvað sem fólk fær sér eftir vandlega yfirlegu.  Húðflúr er svo gott sem varanlegt skraut á líkamann.  Flestir sem á annað borð fá sér húðflúr fá sér aðeins eitt húðflúr.  Tiltölulega fáir fá sér mörg húðflúr.  Lengst af var húðflúr Íslendinga bundið við sjómenn.  Enda engir starfandi húðflúrarar á Íslandi.

  Erlendis,  til að mynda í Bandaríkjum Norður-Ameríku og í Bretlandi,  var húðflúr lengi vel einskorðað við þá sem sátu í fangelsi.

  Í dag er auðvelt að fá sér húðflúr hvar sem er.  Engu að síður vanda flestir val á húðflúri.  Nema í Suðurríkjum Bandaríkja Norður-Ameríku.  Þar gildir að menn redda sér.  Málið er að kýla á hlutina og gera þá sjálfir fremur en að hafa hæfileika til að útkoman verði fagmannleg.  Menn redda sér.  Húðflúrin eru mörg hver ansi fjarri því að vera flott.   Ótrúlega hallærislega ljót svo að ekki sé meira sagt.      

húðflúr-klúður ahúðflúr klúður bhúðflúr klúður d

 

 

 

 

 

 

 

 

  Rangeygur hundur.  Ofteiknaðar augabrúnir.  Laufblöð í stað augabrúna.  

 

 

 

 

 

 

 

 

  "Dauði fremur en vanvirðing" er ágætt slagorð.  En virkar ekki trúverðug eða ógnandi þegar leturgerðin er svona illa handteiknuð.    

 

 

 

 

 

 

 

 "Fjölskylda" er algeng yfirlýsing þeirra sem telja sig tilheyra gengi og eða mafíu.  En það er engum til framdráttar að húðflúrið sé svona svakalega ljótt.   

húðflúr klúður e

   Húðflúr af dökkhærðri konu sýnir eiginlega vanskapaða ófreskju.  

  

húðflúr klúður h

 

   

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ég veit ekki hvaða trúður þetta á að vera.  Illa teiknað klúður.

 

 Þarna er eitt frægasta og ljótasta húðflúr sögunnar.  Ekkill fékk sér húðflúr,  mynd af barnsmóðir þeirra 3ja barna.  Hún fórst í eldsvoða.  Húðflúrarinn klúðraði myndinni all svakalega,  eins og gengur suður frá.  Alvöru húðflúrari tók sig til og endurgerði myndina með glæsilegum árangri.  

húðflúr klúður lagað

 

 

 

 

 

 

 

 ---------------------------------

  Flugur sækja í athygli.  Best er að þykjast ekki sjá þær.

 


Stóra rafrettusvindlið

rr chesterfields
  Framleiðsla og sala á sígarettum hefur lengst af verið góður bissness.  Sígarettuframleiðendur eru öflugur þrýstihópur í Bandaríkjum Norður-Ameríku og víðar.  Hann hefur farið sínu fram með því að "kaupa" rétta fólkið inn í stjórnsýslunni.
 
  Hægt og bítandi hefur samt þrengt að sígarettuframleiðendum.  Og um leið að reykingafólki.  Forræðishyggjufólk hefur komist upp með að banna reykingar hér og þar.  Það má ekki reykja í flugvélum.  Ekki inni á veitingastöðum.  Ekki hér og ekki þar.  Samt hefur ekki tekist að sýna fram á að reykingar séu verulega skaðlegar.  Að minnsta kosti ekki nógu skaðlegar til að banna þær alfarið.  Þær eru meira eins og óhollusta sykurs,  hvíts hveitis og McDonalds.  Meira óhollar en hollar.
 
  Sem dæmi um hvað sígarettuframleiðendur eru sterkur þrýstihópur í Bandaríkjum Norður-Ameríku má nefna að eftir árásirnar á tvíburaturnana í New York voru settar strangar reglur um hvað má og hvað má ekki hafa með sér í flugvél.  Til að mynda má ekki hafa með sér drykki,  sjampó eða handsprengjur.  Fyrst mátti ekki hafa með sér kveikjara.  Því banni var fljótlega aflétt.  Þökk sé sígarettuframleiðendum.
 
  Á síðustu árum hefur verið illa þrengt að sígarettuframleiðendum á auglýsingamarkaði.  Hérlendis má ekki auglýsa sígarettur.  Í Bandaríkjum Norður-Ameríku má ekki auglýsa sígarettur hvar sem er.  Til að mynda ekki í ljósvakamiðlum.
 
  Þá dúkkuðu skyndilega upp svokallaðar rafrettur.  Þær líta út eins og venjulegar sígarettur.  Þær má reykja hvar sem er.  Þær má auglýsa hvar sem er.  Þær eru markaðssettar sem tæki til að reykja án þess að reykja alvöru sígarettur.  Þær má auglýsta hvar sem er.   Fallegt fólk er sýnt í auglýsingum reykja rafrettur.  Það er töff að reykja rafrettur.   Því er slegið upp sem "frelsi" að reykja hvar sem er (rafrettur).     
 
  Í fljótu bragði virðist sem áróður fyrir rafrettum sé átak gegn því að reykja venjulegar sígarettur.  Þegar betur er að gáð þá eru það sígarettuframleiðendur sem standa á bak við rafretturnar.  Þetta er klók markaðsaðferð sígarettuframleiðenda til að viðhalda ímynd um að það sé töff að reykja.  Til lengri tíma hættir enginn að reykja þó að hann skipti tímabundið yfir í rafrettur.  Þetta er plat.  Vel heppnað markaðstrix sígarettuframleiðenda.      
   
rafrettur freedom
 Nú eru auglýsingatímar sjónvarpsstöðva uppfullir af myndarlegu fólki með sígarettu í munnviki.  Það eru engin aldursmörk á kaupum á rafrettum.  10 - 12 ára krakkar kaupa sér rafrettur.  Og þykir töff að totta þær.  Það er aftur komið í tísku að reykja sígarettur.
 
  
 
   

Lulla frænka og karlamál

  Lulla frænka bjó alla tíð ein.  Þess á milli dvaldi hún á geðdeildum ýmissa stofnana.  Hún nefndi oft hversu fögur hún væri.  Sagðist vera svo lík ítölsku leikkonunni Sophiu Loren að fólk þekkti þær ekki í sundur.  Lulla nefndi oft að hún hefði verið með fallegasta hár allra í Skagafirði.  Sítt,  svart og þykkt hár sem allir dáðust að.

  Ég geri mér ekki grein fyrir því en ég held að Lulla hafi alveg verið nokkuð myndaleg.  Eitt sinn spurði ég hana að því hvort að hún hafi aldrei átt kærasta.  "Jú, ég átti kærasta sem hét Óli," svaraði Lulla.

  "Hvað varð um hann?"  spurði ég:  "Hann var vitleysingur," svaraði Lulla og gaf ekkert frekar út á það. 

  Ég:  "Af því að þú varst svona falleg þá hljóta karlmenn að hafa verið stöðugt að reyna við þig."

  Lulla:  "Já.  Þá gaf ég þeim svoleiðis á kjaftinn að þeir reyndu það ekki aftur."

-------------

Fleir sögur af Lullu frænku:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1374813/


Nasistaklúður

 

  Í Suðurríkjum Bandaríkja Norður-Ameríku hafa í á annað hundrað ár starfað kristin samtök kynþáttahátara.  Þau kallast Ku Klux Klan.  Oftast kölluð KKK.  Félagar í KKK hatast við gyðinga og alla kynþætti aðra en aría.  Þeirra saga er blóði drifin.  Þeir hafa myrt fjölda blökkumanna og annarra.  Jafnan refsilaust.   Billie Holiday orti um þá frægt lag,  Strange Fruit.  Þar syngur hún um blökkumenn sem KKK hengdu upp á sport í Suðurríkjunum.  

   

  Heldur hefur fjarað undan ójafnaðarmönnum KKK síðustu áratugina.  Þó sprikla þeir enn og ofsækja fólk.  Inn á milli reyna þeir að bæta ímynd sína.  Það gengur ekkert vel.  Þetta eru nasistar og óþverrar.  

  Í páskavikunni reyndi einn af KKK forsprökkunum í Kansas að blása glæður í starfsemi KKK.  Hann hóf skotárás á hóp fólks fyrir utan bænahús gyðinga.  Myrti þrjá og særði fleiri.  Fyrstu fréttir af morðárásinni vöktu fögnuð meðal KKK og blés þeim kapp í kinn.  Glansinn fór snögglega af hryðjuverkinu þegar í ljós kom að öll fórnarlömbin voru kristin.  14 ára unglingur,  amma hans og læknir hennar.  

g millerKKK1 

 

  Morðinginn,  Glenn Miller,  hrópaði "Heil Hitler!" þegar hann var handtekinn.  

  Í stað þess að verða hetja innan KKK nasistasamfélagsins er Glenn Miller nú fordæmdur af kristnum KKK félögum sínum.  Það er hin versta smán fyrir nasistana að fulltrúi þeirra hafi myrt hvíta kristna bræður og systur.   

  Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hinn grunnhyggni Glenn Miller klúðrar málum.  Eins og félagar hans í KKK er hann hommahatari.  Fyrir nokkrum árum var hann gripinn glóðvolgur í almenningsgarði í áköfum kynmökum með svörtum karlmanni.  Glenn afsakaði sig þá með því að hann hafi leitt samkynhneigða blökkumanninn í gildru til að lemja hann til óbóta.  Áður en af því ætlunarverki varð hafi fyrir klaufaskap leikar þróast yfir í kynlíf.  Laganna verðir hafi verið of fljótir á sér að grípa inn í áður en hann lamdi svarta hommann.   Röðin hafi eiginlega alveg verið komin að því.

  


Páskar í Vesturheimi - IV

   

  Um páskana var kvikmynd Baltasar Kormáks,  Contraband,  sýnd í bandarísku sjónvarpi.  Hún var margspiluð á hverjum einasta degi.  Það var gaman að sitja í setustofu fullri af ferðamönnum frá ýmsum löndum og fylgjast með þeim horfa á þessa ágætu mynd.   Allir virtust kunna vel við myndina.  Engin óskaði eftir því að skipta um sjónvarpsrás.  Fólk sem rambaði inn í salinn eftir að myndin byrjaði beið í lok spennt eftir byrjuninni til að horfa á frá upphafi.

  Fátt er um almennilegt drykkjarvatn í Bandaríkjunum.  Í búðum er hægt að kaupa vatn.  Ein tegundin ber af,  Icelandic Glacial.  Það er besta og ferskasta vatnið.  Að auki í töff hannaðri flösku.  Eins og nafnið gefur til kynna er vatnið rammíslenskt.  Það er gaman að sjá Icelandic Glacial í bandarískum matvöruverslunum.

ícelandic glacial

 

 

 

  Ég reikna með að unglingar á kassa í bandarískum stórmörkuðum á borð við Walmart séu lágt launaðir.  Svo gott sem allir eru hörundsdökkar stelpur þó að blökkumenn séu lágt hlutfall af íbúafjölda,  í þessu tilfelli Washington DC.  Stelpurnar eru kurteisar og kunna sína rullu.  

  Á hverjum degi keypti ég mínar Budweiser-kippur.  Afgreiðsludaman tók fram þunnan gegnsæjan plastpoka og spurði:  "Má bjóða þér annan poka?"  Á því var ætíð þörf.  Pokarnir eru það haldlitlir að þeir bera ekki þunga.   Eitt kvöldið hljóp óvænt í mig galsi.  Í stað þess að jánka öðrum poka spurði ég:  "Hvað í ósköpunum ætti ég að gera við annan poka?"

  Afgreiðsludaman svaraði um hæl:  "Ég veit það ekki,  herra.  Verslunarstjórinn segir að ég eigi alltaf að spyrja að þessu."

  Í annað skipti var afgreiðsludaman greinilega á sínum fyrsta vinnudegi.  Margt vafðist fyrir henni þegar hún afgreiddi þá sem voru á undan mér í röð.  Þegar röð kom að mér bað daman um persónuskilríki.  Ég hváði.  Daman útskýrði:  "Þú ert að kaupa áfengan bjór.  Ég þarf að ganga úr skugga um að þú hafir aldur til þess."

  Ég (næstum sextugur):  "Ókey.  Er ég dálítið barnalegur í útliti?"

  Hún:  "Þetta er bara regla.  Allir sem kaupa áfengan drykk verða að sýna fram á að þeir hafi aldur til þess."

  Ég rétti dömunni vegabréfið mitt.  Hún fletti upp í því og las ábúðafull upphátt:  "08-05-1956.  Já, þetta er í lagi."     

 


Páskar í Vesturheimi - III

easter-chocolate-bunnies
 
 
 
 
  Mig grunar að fáar þjóðir geri eins mikið úr frjósemishátíðinni,  páskunum,  og Íslendingar.  Mörgum vikum fyrir páskana er ekki þverfótað í íslenskum matvöruverslunum fyrir páskaeggjum í ýmsum stærðum.  Um svipað leyti hellist blessaður páskabjórinn yfir land og þjóð.
 
  Í Washington DC fór lítið fyrir páskunum.  Í matvöruverslunum mátti sjá nett úrval af litlum súkkulaðikanínum og súkkulaðieggjum.  Súkkulaðieggin eru í sömu stærð og hænuegg.  Þau eru pökkuð inn í skrautlegan álpappír.  
  Ég veit ekki hvort að þau eru fyllt með nammi,  eins og íslensku eggin.  En ósköp eru þau ræfilsleg í samanburði við íslensku risaeggin.
 
  Súkkulaðikanínurnar eru í hóflegri stærð.  Það er meira úrval af þeim.  Fleiri útfærslur en eggjunum.  Hver kanína er einn til tveir munnbitar.  
 
  Á páskadag heilsaðist fólk í WDC með kveðjunni:  "Gleðilega páska!"  Allar verslanir og allir veitingastaðir voru opnir eins og á venjulegum sunnudegi.  Engin páska-tilboð eða páska-gylliboð.  
 
  Miðað við hvað Kaninn gerir almennt mikið úr tyllidögum og er duglegur að selja allskonar glingur stingur í stúf hvað frjósemishátíðin er lágstemmd í WDC.  
 
  Til samanburðar var á laugardaginn Plötubúðadagurinn.  Næstu daga á undan,  sama dag og næstu daga á eftir voru fjölmiðlar í WDC undirlagðir umfjöllun um Plötubúðadaginn.  Með þeim árangri að á laugardeginum þurfti að hleypa fólki inn í hollum í plötubúðirnar.  Það voru langar raðir,  margra metra langar,  fyrir utan hverja einustu plötubúð í WDC.  Ég nennti ekki að hanga í þannig röð.  En rölti framhjá.  Flestar helstu plötubúðirnar í WDC eru við sömu götu.  Það er verslunargata,  18. stræti,  í nokkurri fjarlægð frá miðbænum.  
 
  Í umfjöllun um Plötubúðadaginn kom fram að sala á vinylplötum vex bratt í Bandaríkjunum.  Geisladiskurinn víkur hratt fyrir niðurhali.  Einn viðmælandi benti réttilega á að sálfræðiþátturinn sé vinylplötunni í hag:  Það að vera með 12" flykki í fanginu,  stóra mynd á framhlið,  stórt letur á bakhlið,  nærhald og textablað,  setja hlunkinn á spilarann,  ræsa tækið,  koma klunnalegum hausnum með nálinni á sinn stað,  sjá ferlíkið snúast...  Þetta er athöfn sem gerir svo mikið úr upplifuninni að hlusta á plötu - áður en platan fer að hljóma.  Fyrir músíkdellufólk er þetta eins og helgiathöfn.    
 
  Geislaspilarann eða músík í tölvunni vantar allt sem gerir "athöfn".   Það er alveg eins hægt að setja útvarpið í gang.  
 
  Í móttökunni á gistiheimilinu sem ég dvaldi á var að jafnaði spiluð leiðinleg R & B músík.  Inn á milli spilaði ung dama heila plötu með Of Monster and Men.  Dag eftir dag.  Það var dásemd.  Aðspurð vissi hún ekki hvers lensk OMAM er.  Hún sagðist elska þessa plötu.  Varð mjög hissa þegar ég upplýsti hana um að OMAM væri íslensk hljómsveit.  Það örlaði jafnframt á efasemdum því að hún spurði:  "Hvernig veistu?"
 
 
 

Páskar í Vesturheimi - II

wdc a
  Í Washington DC vekur athygli gríðarlega hátt hlutfall af skrifstofubyggingum.  Þegar málið er skoðað nánar þá á það sér eðlilegar skýringar.  WDC er stjórnsetur alríkisstjórnar Bandaríkja Norður-Ameríku.  Þarna er stjórnsýslan eins og hún leggur sig:  Alþingi,  ráðuneyti  forsetaembættið og það allt.  
 
  Bandaríkjamenn eru 1000 sinnum fjölmennari en Íslendingar.  Lauslega áætlað má gera ráð fyrir að embættismenn bandaríska alríkisins séu um það bil 1000 sinnum fleiri en skrifstofu- og embættismenn íslenska ríkisins.   Það þarf margar skrifstofur undir þann fjölmenna hóp sem nagar blýanta í nafni bandaríska alríkisins.  
 
  Víða eru bílastæðisplön.  Þau eru römmuð inn með hænsnaneti.  Það er togað og teygt.  Ber þess merki að óprúttnir stytti sér leið með því að klöngrast yfir það.  Plönin sjálf eru ekki með sléttu yfirborði.  Þau eru öll í hólum og lautum,  holum og hæðum.  Undirlagið er olíuborin möl.  Ég giska á að plönin séu rekin af einkaaðilum.  Inni á miðju plani er pínulítill skúr.  Þar hafast við 3 starfsmenn. Í öllum tilfellum hörundsdökkir ungir menn.  Þeir rukka 15 dollara (um 1700 kall) fyrir daginn.   
 
  Gönguljós við gangbrautir eru skemmtileg.  Þegar gangandi vegfarandi fær grænt ljós þá hefst niðurtalning á ljósaskilti í sek.  Það er mismunandi eftir gatnamótum hvort að gangandi fái 60 eða 80 sek.  Þegar 18 sek. eru eftir má enginn halda út á gangbraut.  Þeir sem lagðir eru af stað fá 18 sek. til að koma sér yfir.
 
  Það er ekki bundið við WDC heldur viðgengst um öll ríki BNA að alkahólprósenta er ekki gefin upp á bjórumbúðum.  Það er vandamál fyrir ókunnuga.  Sumir vilja kaupa léttan 3% bjór.  Aðrir sækja í 6% bjór.  Starfsfólk verslana er verra en ekkert.  það þykist vita og giskar á.  Jafnan með óþægilegum skekkjumörkum.  
 
  Ég hef ekki staðfestingu á en mér er sagt að þetta hafi allt með það að gera að ekkert samræmi sé með áfengislögum hinna ýmsu ríkja Bandaríkjanna.  Leyfður hámarksstyrkleiki bjórs sé mismunandi.  Bjórframleiðendur fríi sig vandræðum með því að gefa ekki upp styrkleika bjórsins.    
 
  Í WDC er mikið af áhugaverðum söfnum.  Það er frítt inn á þau.  Hæst ber kannski Smithsonian listasafnið.  
 
 
 
  Þar getur að líta bandaríska myndlist af ýmsu tagi.  Allt frá mörg hundruð ára gömlum málverkum til nútíma vídíóverka.  Þarna er fræga myndin hans Andys Warhols af mannréttindabaráttukonunni og anti-rasistanum Marilyn Monroe.  
 
mm
 
  Þarna eru málverk af Muhammeth Ali og fleiri hnefaleikaköppum;  ýmsum öðrum íþróttahetjum,  forsetum og fleirum.  Mér skilst að uppskriftin af ókeypis aðgangi að söfnum í WDC sé sú að það laði ferðamenn til WDC.  Mig minnir að árlega komi 6 milljónir ferðamanna til WDC.  Þeir troðist í ókeypis söfn og skilji eftir sig góðan pening í formi hótelgistingar og matar og drykkjar.  
 
  Þegar ég var staddur við inngang Smithsonian safnsins blossaði upp í mér íslenskur Geysiskall.  Mig langaði virkilega til að hefja umsvifalaust þarna við innganginn rukkun á aðgengi.  Hundruð túrista streymdi að.  Hvað hefði þá munað um að borga mér eins og 500 kall? 

Páskar í Vesturheimi

wdc
  Ég brá mér vestur um haf til að fagna stórhátíðinni kenndri við frjósemisgyðjuna Oester,  páskana (eða easter).  Nánar tiltekið var stefnan sett á Washington DC,  höfuðborg Bandaríkja Norður-Ameríku.  Hún er einnig kölluð morðhöfuðborgin.  Mannslífið er til fárra fiska metið þarna um slóðir.
 
  Glæpir í WDC eru ekki bundnir við morð.  Það er öll flóran.  Kynferðisofbeldi,  vopnuð rán,  innbrot og annað slíkt er daglegt brauð.  Ég varð ekki var við það á annan hátt en þannig að dag og nótt ómuðu sírenur lögreglubíla og bláu blikkljósin lýstu upp hverfið.  Einn daginn rölti ég mér til gamans um nokkur íbúðahverfi.  Við mörg hús og í görðum eru auglýsingaspjöld með upplýsingum um að þar séu öryggismyndavélar, skynjarar og annað slíkt í notkun.  
 
  Það er ekki hægt að villast í WDC.  Svo auðvelt er að rata að það er vandræðalegt.  Götukerfið er svipað og í New York.  Þar heita götur 1. stræti, 2. stræti, 3ja stræti og svo framvegis.  Götur í hina áttina heita 1. Ave,  2. Ave,  3ja Ave og svo framvegis.  Í WDC heita götur einnig 1. stræti, 2. stræti og 3ja stræti.  Götur í hina áttina bera bókstafi:  A-stræti, B-stræti og C-stræti.  Mjög snjallt.  Undarlegt að þessi uppskrift sé ekki ráðandi í borgum heimsins.  
 
  Ráðamenn í Reykjavík og á Akureyri þurfa að huga að þessu.  Það auðveldar ferðamanninum heldur betur að rata.  
   
  Umferð í WDC er róleg og afslöppuð (ólíkt brjálæðinu í New York).  Ég fékk mér gistingu í miðbænum,  í útjaðri Kínahverfisins.  Einhverra hluta vegna er gistiheimilið ómerkt.  
 
wdc cvh
   
  Ég varð var við að fleiri gistiheimili eru algjörlega ómerkt.  Miðað við hvað Kaninn er almennt harður í auglýsingamennsku þá er þetta einkennilegt.  Ástæðan hlýtur að vera einhver praktísk.  Hugsanlega tengd hárri glæpatíðni.   
 
  Í Kínahverfinu er ógrynni af fjölbreyttum veitingastöðum:  Japönskum, indverskum, thailenskum,  vietnömskum,  kínverskum...  Ég hélt mig við þá sem buðu upp á hlaðborð.  Þá er hægt að bragða á einu og öðru framandi án þess að sitja uppi með fullan disk af einhverju ekki góðu.  Annars fannst mér allur matur góður.  
 
wdc kínamatur
 
  Það er ekki beinlínis galli en mér gekk illa að muna eftir því að öll verð eru gefin upp án virðisaukaskatts.  Hann er á bilinu 10 - 14,5%.  Þegar greitt er fyrir mat eða leigubíl eða eitthvað þá þarf að auki að bæta 15% þjórfé ofan á upphæðina.  
 
  Það er í góðu lagi.  Hlaðborð með öllu er á 2500 kall.  
 
  Á nóttunni er mannlífið fjörlegt sem aldrei fyrr í Kínahverfinu.  Fullorðna fólkið er heima að sofa og unglingarnir leika lausum hala.  Þarna má sjá ungan hraustan dreng slá sér upp á því að hlaupa með blaðsölustand undan Washington Post og henda honum á gangstéttina skammt frá.  Þvílíkur töffari!  Og ekki eldri en þetta.  
  
 

Færeyska kántrý-veislan

  Færeyska kántrý-veislan nær hámarki í kvöld.  Hún hófst mánudaginn 21. apríl í Café Rosenberg.  Síðan hefur hún borist út um víðan völl.  Má þar nefna Gamla Gaukinn og tónlistarhátíðina HEIMA í Hafnarfirði.  Lokahnykkurinn er í Gúttó (Góðtemplarahúsinu) í Hafnarfirði í kvöld.  Dagskráin hefst klukkan 20.00.  Fyrir fríðum og fjölmennum hópi færeyskra kántrý-listamanna fara söngvararnir Hallur Joensen,  Evi og Kristina,  ásamt gítarleikaranum Bedda. 

  Hallur er vel kynntur innan og utan kántrý-senunnar á heimsmarkaði.  Hann hefur sungið inn á plötur með stórstjörnum á borð við Kris Kristofferson,  Bellamy Brothers,  Charley Pryde,  Vince Gill,  Bobby Bare o.fl.  Í Færeyjum er Hallur jafnan titlaður Kántrý-kóngurinn.  Þar hefur hann notið ýmiss heiðurs,  m.a. var hann verðlaunaður sem "besti karlsöngvarinn 2013" á Færeysku tónlistarverðlaununum.   Eftir Hall liggja fjórar hljómplötur með frumsömdu efni.  Hver annarri betri.

 

  Evi kom bratt inn á markaðinn með sinni einu plötu,  Wishing Well,  2011.  Lög hennar hafa skorað hátt á kántrý-vinsældalistum þvers og kruss um Evrópu.  Þar á meðal náð toppsætinu á Írlandi,  í Hollandi og Svíþjóð.  Hún hefur verið nefnd til allskonar tónlistarverðlauna og landaði verðlaunum sem "Besti alþjóðlegi kántrý-listamaðurinn 2013" í Írsku tónlistarverðlaununum.  Bara svo fátt eitt sé nefnt. 

 

  Kristina Skoubo Bærendsen er dóttir goðsagnar í færeysku kántrýi,  Alex Bærendsen.  Eftir hann hafa komið út á plötum hátt í hundrað öflugir kántrý-söngvar.  Allt frá kántrý-jólasöngvum til kántrý-gospel.  Alex hitaði upp í Laugardalshöllinni fyrir Krist Kristofferson fyrr á þessari öld.

  Kristina sendi frá sér plötu 2012 með frumsömdu efni á færeysku.  Plötunni hefur verið vel tekið; hróður Kristinar borist víða um heim og skilað henni í hljómleikaferðir til annarra landa.  Þar á meðal til Þýskalands og nú til Íslands.

 

  Íslendingar láta sitt ekki eftir liggja í færeysku kántrý-veislunni.  Nýjasta íslenska kántrý-söngkonan,  Yohanna,  mætir á svæðið og tekur lagið.  Hún á fortíð í færeyskri tónlist.  Söng m.a. inn á færeyska plötu með færeysku barnastjörnunni Brandi Enni.

 

  Færeysku kántrý-hetjunum og Yohönnu til stuðnings er hljómsveitin Götustrákarnir.  Hana skipa m.a. Beggi Morthens (Egó, GCD),  Tómas M. Tómasson (Stuðmenn,  Þursaflokkurinn),  Eisteinn Eisteinsson og Ingimar Óskarsson.  Sérlegur heiðursgestur er Magnús Kjartansson.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband