Kynferðisofbeldi í boltaleikjum

  Ég man ekki hvað það kallast í kynferðisleikjum þegar menn sækja í að flengja hvern annan.  Það er einhver skammstöfun sem varð þekkt í máli Guðmundar,  kenndum við Byrgið.  Ég þori ekki að fara með hvort það heitir eitthvað eins og BSLM eða eitthvað álíka.  Það gengur út á kynferðislega skemmtun við að flengja og vera flengdur. 

  Í boltaleikjum fá menn útrás fyrir þessar kynferðislegu kenndir:  Að flengja og vera flengdir.  Samt hafa fæstir áhuga á þessum perraskap.  Þeir sem fá kynferðislegt "kick" út úr þessu ráða aftur á móti ferð.  Það er siður í boltaleikjum á Íslandi að menn atist í rassinum á nýliðum.  Iðulega með þeim afleiðingum að fórnarlambið liggur sárt eftir.  Þetta er ekki erótík heldur kynferðislegt ofbeldi.   

boltabullurboltabullur Aboltabullur Bboltabullur C


mbl.is Bjarki: Þakka Guði fyrir að Sigfús skuli vera hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað var Marilyn Monroe með margar tær?

6 táa MM6 táa Marilyn Monroesix_toesmarilyn monr.

  Norma Jeane hét fögur dökkhærð bandarísk söng- og leikkona.  Hún gegndi sviðsnafninu Marilyn Monroe og litaði hárið ljóst.  Hugsanlega er hún þekktust í dag fyrir að hafa átt í ástarsambandi við Kennedy-bræður.  Þeir gegndu um tíma hátt settum stöðum á borð við forsetaembætti,  dómsmálaráðherraembætti,  sátu á Bandaríkjaþingi og eitthvað svoleiðis.  Sögusagnir eru um að þeir hafi látið drepa stelpuna.  Pabbi þeirra var sprúttsali.

   Áratugum saman hafa menn og konur deilt heiftúðlega um fjölda af tám á Marilyn.  Sumir fullyrða að hún hafi verið með 11 tær.  Aðrir telja að þær hafi slagað í 12.  Sjálf vissi Marilyn það aldrei.  Hún kunni aðeins að telja upp að 10.


Annar áhugaverður útvarpsþáttur

  Það eru margir skemmtilegir og fróðlegir þættir á Útvarpi Sögu.  Útvarp Saga er þjóðarútvarp.  Þjóðin fær að tjá sig þar í símatímum og þjóðin hlustar.  Einn af mörgum fróðlegum og áhugaverðum þáttum á Útvarpi Sögu heitir  Fegurð og heilsa.  Þar fara þeir Torfi Geirmundsson,  hárskeri,  og Ljóða-Valdi á kostum.  Í síðasta þætti var Bjartmar Guðlaugsson gestur.  Ég slæddist með.  Bjartmar er gullmoli og hvarvetna skemmtilegur viðmælandi.  Þáttinn má heyra á:  http://utvarpsaga.is/index.php?option=com_content&view=article&id=755&Itemid=60


Ekki henda gamla bílnum!

  Íslensk veðrátta er þannig að bílar koma jafnan illa undan vetri.  Sérstaklega ef þeir eru komnir til ára sinna.  Viðbrögð margra eru að henda bílnum á haugana, eins og hverju öðru ónýtu rusli.  Kaupa sér síðan nýjan bíl.  Af því að það er komið sumar og sól þá kaupa menn rándýrt grill í leiðinni.  Fátt er betra en grillaður humar, steikjandi sól og kaldur bjór.   

  Það er hræðileg sóun á dýrmætum gjaldeyri að henda bíl á haugana og kaupa grill.  Flestir bílar eru hannaðir þannig að upplagt er að nýta þá sem úrvals grill.  Meira að segja grill með ljósum.  Og stefnuljósum.  Hver hefur ekki heyrt talað um grillið á bílnum - án þess að átta sig á um hvað er rætt?

grill-bíllcar-bbqbarbecue-car

Það er notalegt að hlýja sér á maganum á volgu grilli eftir að borðhaldi er lokið,  búið að vaska upp og ganga frá. 

hita magann á bbq


Skemmtilegur og fróðlegur útvarpsþáttur

London-calling 

  Ég veit ekki hvers vegna það er að dagskrá rásar 1 fer meira og minna framhjá mér.  Kannski er ástæðan sú að dagskráin er ólík frá degi til dags.  Á rás 2,  X-inu og Útvarpi Sögu er dagskráin í fastari skorðum.  Maður kann hana utan að og gengur að áhugaverðum föstum þáttum þar sem vísum. 

  Fyrir tilviljun datt ég í dag inn á skemmtilegan og fróðlegan þátt á rás 1.  Hann kallast  Albúmið  og er í umsjá Jóns Ólafssonar og Kristjáns Freys Halldórssonar.   Í þættinum tóku þeir fyrir plötuna  London Calling  með bresku hljómsveitinni The Clash.  Spiluðu öll 19 lög plötunnar og fjölluðu um þau hvert fyrir sig. 

  London Calling  er iðulega á listum yfir 10 bestu plötur rokksögunnar.  Mikla athygli vakti þegar söluhæsta poppblað heims,  bandaríska Rolling Stone,  útnefndi þetta bestu plötu níunda áratugarins.  Útnefningin var ekki umdeild nema fyrir þær sakir að platan kom út á áttunda áratugnum (1979).  Kaninn hefur aldrei stressað sig á nákvæmum ártölum þegar músík er til umfjöllunar.  Ótal spaugileg dæmi um það má finna í sögu Grammy verðlauna. 

  Fyrir þá sem misstu af þættinum á rás 1 í dag þá má hlusta á hann með því að smella á þessa slóð:  http://www.ruv.is/sarpurinn/albumid/09062012

  Ég er töluvert eldri en Jón og Kristján Freyr.  Fylgdist þess vegna sem rígfullorðinn maður náið með pönkbyltingunni 1976/77 á rauntíma á meðan Jón og Kristján Freyr sóttu fermingarfræðslu.  Fyrir bragðið var góð skemmtun að hlusta á vangaveltur tvímenninganna um það hvernig pönkarar tóku  London Calling.  Platan kom pönkurum í opna skjöldu.  Hún var það stórt skref frá frumpönkinu en samt nógu sterk til að menn heilluðust.  En margir þurftu að velta vöngum tvístígandi á meðan þeir voru að melta þetta uppátæki.  Nokkru munaði um að platan byrjaði bratt á öflugu titillaginu.  Lagi sem í dag tilheyrir "klassísku rokki".  Er spilað á Bylgjunni jafnt sem X-inu og Brúsi frændi syngur á hljómleikum.


Allir eru að fá sér

 

  Það er stundum sagt að á Alþingi sitji þingmenn sem spegli þverskurð af íslensku þjóðinni.  Eða eigi að vera þverskurður af íslensku þjóðinni.  Eðlilega taka þeir mið af sínu næsta umhverfi.  Til að mynda Kaffi Austurstræti.  Fjöldi þingmanna,  bæði fyrr og nú, hefur tapað ökuréttindum vegna ölvunaraksturs.  Eins og gengur. 

  Einhverra hluta vegna eru ölvaðir stjórnmálamenn meira í fréttum þessa dagana en stundum áður.  Kannski hefur það eitthvað að gera með gegnsæi;  allt skuli vera uppi á borðum frekar en undir borðum. 

  Á örfáum mínútum rakst ég núna á eftirfarandi fyrirsagnir:

  "Þingmaður Framsóknar missti bílprófið vegna ölvunaraksturs"

  "Sakaði þingmann um að vera ölvaðan á þingfundi"

  "Taldi runnið af mér"

  "Sitja heima og blogga um drykkju"

  "Íslenskur þingmaður missir bílpróf eftir ölvunarakstur"

  "Ölvaðir stungu af frá reikningi og réðust á starfsfólk"

  "Ég man ekki hvað rauðvínsglösin voru mörg"

    Hver nennir að telja rauðvínsglös?  10,  15?  Skiptir ekki máli.  Það eina sem skiptir máli er að glösin séu stór.  Það nennir enginn að staupa sig á rauðvíni úr smáglösum. 

  Fyrir utan Alþingishúsið,  á Austurvelli,  gekk einnig sitthvað á í gær:

  "Fengu áfengi fyrir að mótmæla"

  "Ölvaðir sjómenn öskruðu og ögruðu öðrum mótmælendum"

  "Drukkinn sjómaður týndi skipi sínu"

  "Margir ósjálfbjarga sökum ölvunar"

  Minna hefur borið á fréttaflutningi af dópneyslu ríkisstarfsmanna,  meðal annars á Landspítalanum og í Seðlabankanum.  Enda meira til að henda gaman að.  Þar fyrir utan er fréttaflutningur iðulega ónákvæmur.  Skemmtilegt er að rifja upp er Morgunblaðið sló upp frétt fyrir örfáum árum um að mótmælendur á Austurvelli hefðu veist með grófu ofbeldi að tveimur bræðrum.  Þeir töldu sig hafa verið í bráðri lífshættu vegna heiftarlegra ofbeldistilburða óléttrar stúlku og áttu fótum sínum fjör að launa.  Síðar kom fram myndband (frá og með mín 1.37) sem sýndi glöggt þann lífsháska sem bræðurnir lentu í er kolbrjálaður skríllinn gekk í skrokk á þeim.  Þeir eru ekki ennþá búnir að ná jafnvægi eftir þessar hremmingar fremur en fyrir þær.   

 


mbl.is Höskuldur: Taldi runnið af mér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hötuðustu poppstjörnurnar

  Í bandaríska poppmúsíkblaðinu Spin hefur verið tekinn saman og birtur listi yfir þær poppstjörnur og hljómsveitir sem almennt þykja ómerkilegastar.  Eða réttara sagt eru vinsælustu boxpúðarnir.  Það er ekki átt við Justin Bieber eða Britney Spears heldur þá sem gefa sig út fyrir að vera eitthvað merkilegra en þeir eru.  Listinn er studdur ágætum og sannfærandi rökum.  Hvað finnst þér?  Þannig er listinn:

  1  Milli Vanilli

  Aularnir í þessum dúett komu ekki nálægt sínum eigin plötum!  Þeir sömdu ekkert, spiluðu ekkert og sungu ekkert.  Á hljómleikum hreyfðu þeir varirnar en sungu ekki.  Það voru aðrir sem sungu og söngurinn var spilaður af bandi.  Áður en þetta varð á allra vitorði útnefndi bandaríska poppmúsíkblaðið Rolling Stone dúettinn "Verstu hljómsveit ársins 1989".

  2  Limp Bizkit

  Í lok síðustu aldar náði hljómsveitin Limp Bizkit upp á sitt einsdæmi að slátra trúverðugleika tilfinninganæms framsækins þungs rokks sem Nirvana og Nine Inch Nails höfðu innleitt.  Courtney Love (ekkja Curts Kobains í Nirvana) sagði Fred Dust (forsprakka Limp Bizkit) hafa fært okkur verstu ár í sögu rokksins.   

  3  Kenny G

  Hefur látið lyftur virðast öruggan stöð síðan 1982.  Hefur á 20 plötum afgreitt öll jólalög og kvikmyndaballöður sem þú getur nefnt.  Hefur að auki spilað ofan á gamlar upptökur með Louis heitnum Armstrong og kallað það samstarfsverkefni.  Gítarleikarinn Pat Methany sakar Kenny um að spila falskt rugl.

  4 Creed

  Útvatnað grugg (grunge).  Nickelback áður en Nickelback kom til sögunnar.  Vikublaðið Philadelphia Weekly birti forsíðugrein um Creed 2002.  Þar var hljómsveitin Creed kölluð krabbmein í rokkinu.

  5  Insane Clown Posse

  Liðsmenn ICP hafa sjálfir kallað sig "Hötuðustu hljómsveit heims".  Breska dagblaðið The Gardian hefur sagt ICP vera "segul á útskúfun".


Láttu fullan bensíntank endast lengur

  Er bensínkostnaðurinn að íþyngja þér?  Það þarf ekki að vera svo.  Með einfaldri aðgerð - sem allir geta framkvæmt - má láta fullan bensíntank endast ótrúlega lengi.  Það eina sem þarf er gott límband.  Helst svart einangrunarteip.  Þegar bensíntankurinn hefur verið fylltur þarf að losa hlífðarplastið af bensínmælinum, líma nálina og þvinga þannig bílinn til að keyra á fullum tanki.

fullur bensíntankur 


Gamla kjaftfora og ruddalega fólkið

  Þegar ég var barn og unglingur var gamalt fólk afskaplega kurteist og orðvart.  Nema afi minn.  Annað gamalt fólk var svo vandað til orðs og æðis að ef upp kom alvarlegt ágreiningsefni sagði það í mesta lagi:  "Má ég vinsamlegast biðja yður,  frú Ingibjörg, um að loka á yður trantinum."  Ingibjörg svaraði:  "Ef þér gerið það líka,  herra Haraldur,  þá er mér að reiðulausu."  Þar með snéri gamla fólkið sér eitthvert annað.  Bauð krökkum brjóstsykur eða kandísmola og fór að lesa Íslendingasögurnar.

  Núna er ég sjálfur kominn í hóp eldra fólks.  Það er orðin breyting á.  Eldra fólk er ruddalegra en áður.  Jón heitinn Reiðufé (Johnny Cash) var brosmildur og hláturgjarn ungur maður.

johnny_cash-1959

  Er árin færðust yfir sýndi hann af sér árásagjarnari hegðun.

Johnny-Cash-sýnir puttann

  Hárgreiðslan varð villtari, sem og augnráðið.

JohnnyCash-angry

  Hann sýndi látbragð af minnsta tilefni eins og hann vildi kirkja nærstadda.  Annað eldra fólk er farið að gefa ögrandi skilaboð með áletrun á fatnaði.

Hatar allaporn starvínarpylsa

  Þessi varar við vínarpylsunni sinni.

 


Hvernig er athyglisgáfan?

  Þetta er skemmtilegt og einfalt próf.  Eftir því sem þú ert sneggri að finna það sem spurt er um þeim mun betri er athyglisgáfa þín.  Innan við mínútu er afburðar góð eftirtekt.  Um tvær mínútur er meðalgóður árangur.  3 mínútur er vondur árangur.  Ef það tekur þig lengri tíma eða að þér tekst ekki að finna neitt af því sem spurt er um er ástæða til að panta tíma hjá lækni.  Þá ert þú líklega með alsæmir á byrjunarstigi.  Skrifaðu niður á blað hvenær þú færð tíma hjá lækninum.  Annars gleymir þú því.

  1.  Finndu eitt C innan um þessi O.  Prófið er því aðeins gilt að engin hjálpartæki séu notuð (hvorki bendill né annað).  Aðeins horft á myndina.

OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOCOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO

  2.  Finndu eitt 6 innan um þessar 9-ur.  Þetta er heldur erfiðara en fyrsta dæmið. 

99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999

99999999999999999999999999999999999999999999999
69999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999
99999999999999999999999999999999999999999999999

 3. Nú þarft þú að finna N innan um M-in.  Þetta dæmi er ennþá þyngra.

MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMNMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM

  4. Síðasta dæmið er dálítið öðru vísi.  Þar þarft þú að finna 44. (núverandi) forseta Bandaríkja Norður-Ameríku.

forsetar

  Tókst þér að finna hann?  Þá ertu ekki litblind/ur.


Ruslfæði dýrkað

ruslfæði-húðflúrHamburger-Tattoosmcdonalds-tattoo-resized 

  Sumir dýrka ruslfæði og umgangast það eins og trúarbrögð.  Sanka að sér allskonar vörum merktum matsölustöðum sem bjóða fyrst og síðast upp á ruslfæði:  Skyrtubolum,  derhúfum,  glösum,  pennum og svo framvegis.  Þeir sem lengst ganga láta húðflúra á líkama sinn vörumerki þekktra ruslfæðisstaða.  Og eru rígmontnir. 

ruslfæði


mbl.is Hætt í ruslfæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissir þú...?

  

   ...að Tína Turner er sköllótt.  Það var snemma á sjöunda áratugnum að hún var að lita á sér hárið;  eitthvað fór úrskeiðis og hárið brann af henni.  Síðan er aðeins einhverjar smávægilegar lufsur á höfði hennar.  Þess vegna er hún með hárkollu.

  ...að Dolly Parton er snoðklippt.  Það er aðeins þegar hún kemur fram opinberlega sem hún setur upp þessa líka ljómandi fínu hárkollu.  Hún er með eitthvað plast drasl eða gel í brjóstunum.  Þau eru ekki svona stór frá náttúrunnar hendi.  Vegna þessara ónáttúrulegu og þungu brjósta þjáist hún af stöðugum bakverkjum.  En metur dæmið þannig að stóru brjóstin og hárkollan séu vörumerki og hafi sem slík öflugt auglýsingagildi fyrir sig.  Áreiðanlega var það þannig.  Í dag gæti hún aftur á móti slakað á án þess að það kæmi niður á vinsældum hennar.

  ...að Axl Rose (Guns N´ Roses) er hálf sköllóttur.  Hann hefur látið flétta í sitt litla hár allskonar hárlengjum og "dread" lokkum.

   ...að Axl er tannlaus ef frá er talið að hann er með gervitanngóma.

   ...að Paul McCartney og Mick Jagger eru í raun hvíthærðir.  Þeir láta hins vegar reglulega lita hárið á sér brúnt. 

  Pjatt.


Andartaki áður en árabáturinn lagðist á hliðina

andartaki áður en litli báturinn lagðist á hliðina

 


Íslenskur myndbandshöfundur í Danmörku

  Einn af virtustu og vinsælustu tónlistarmyndbandshöfundum í veldi Margrétar Danadrottningar er íslenskur kvikmyndagerðarmaður,  Guðmundur Örn Ísfeld.  Hans eftirsóttu höfundareinkenni eru einfaldleiki og lagni við að leyfa sjálfri tónlistinni að njóta sín.  Oftar en ekki eru myndbönd hans svart-hvít.   

  Vandamálið er að ég er ekki vel að mér um danska rokkmúsík.  Samt rakst ég á þetta myndband hans.  Söngvarinn heitir Rasmus Frost.  Það er frekar kuldalegt nafn.  Eða eins og unga fólkið segir:  Cool!

  Ég veit ekki hvernig ég get fundið fleiri myndbönd eftir Guðmund Örn Ísfeld.  Ég ætla að reyna að finna einhver önnur.  Ég hef séð þau.  Man bara ekki nöfn flytjenda.


Bestu lög tíunda áratugarins

  Breska popptónlistartímaritið New Musical Express hefur birt lista yfir bestu lög tíunda áratugarins.  Ég veit ekki hvernig staðið var að vali á þessum lögum á listann.  Listinn er ekki fráleitur.  En áreiðanlega ekki samkvæmt nákvæmri uppskrift neins.  Þannig er það alltaf.  Reyndar virðast lesendur blaðsins vera nokkuð sáttir.  Sumir kvarta yfir að fleiri Oasis lög vanti á listann.  Bretar eru svo hrifnir af Oasis.

  Það er Brit-popp slagsíða á listanum.  Eins og oft hjá NME.  Að öðru leyti er þokkaleg breidd í þessu.  Annars er þetta bara birt hér til gamans.  Það er ljúft að rifja þessi lög upp. 

1


Töffaðasta gigtin - verið samt á varðbergi! Hún er lúmsk

  Ég man ekki hvort ég hafði heyrt orðið þvagsýrugigt áður en það kom upp í spjalli við lækna á Borgarspítalanum fyrir nokkrum dögum (sjá síðustu bloggfærslu).  Þetta er hin áhugaverðasta gigt. 

  Þvagsýra (gout) er í blóði okkar allra.  Lífsnauðsynleg.  Hún er efnasamband sem myndast í líkamanum við niðurbrot púrins. Púrin er í miklu magni í kjöti.  Einnig í innmat, kjötsósum, fuglum, fiskum og ýmsu öðru.  Hækkað hlutfall þvagsýru getur myndað nálarlaga kristalla í liðamótum.  Það er ekki gott.  Algengast er að kristallarnir valdi leiðindum í stórutá.  Hún verður aum og vandræðaleg.  Annars er allur háttur á.

   Margir eru með þvagsýrugigt án þess að vita af því.  Geta jafnvel fengið þvagsýrugigtarköst án þess að veita því eftirtekt.  Halda að þeir hafi rekið sig í eða eitthvað þess háttar.  Kastið líður hjá og menn gleyma þessu.
  Ef ekkert er að gert getur þetta meðal annars leitt til liðagigtar, nýrnaskemmda og steinamyndunar í þvagfærum (nýrnasteinar og svoleiðis).
  Áverki á liðamót, þreyta og slappleiki geta hrundið af stað þvagsýrugigtarkasti.
  Ef liður bólgnar eftir smávægilega áverka er ástæða til að leita til læknis og kanna hvort um þvagsýrugigt sé að ræða.  Það er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. 
  Þvagsýrugigt er eina gigtin sem hægt er að halda algjörlega niðri með lyfjum.  Þess vegna er þvagsýrugigtin töffaðasta gigtin.  Aðrar gigtar eru hallærislegar.
.
gout_footþvagsýrugigt Aþvagsyrugigtþvagsýrugigtgoutfigure
Þvagsýrugigt: Vísifingur 
.
gout-langatöng
Leiðindi í löngutöng

Slys í Nóatúni

  Í síðustu viku skrapp ég í Nóatún.  Mig langaði í Malt.  Ég var á hraðferð.  Skokkaði léttfættur um ganga Nóatúns.  Skyndilega þvældist fyrir mér gamall maður.  Hann hafði keypt sér heitan mat í frauðplastsbakka.  Það á að halda á þannig bakka láréttum.  Kallinn hélt hins vegar á bakkanum lóðréttum niður með lærinu á sér.  Úr bakkanum lak heit brúnsósa.  Þegar ég ætlaði að skokka fram úr gamla manninum steig ég í sósuslóðina á gólfinu.  Ég flaug í loft upp.  Láréttur í loftinu var ég eins og stjórnlaus Concorde þota á flugi eftir Miklagljúfri.  Það varð harður árekstur er ég skall á vörurekka.  Brotlending.  Höggið var slíkt að ég varð blóðrisa á öðrum fæti frá hné og niður eftir.  Yfir mig hrundu sinnepsflöskur,  tómatsósa og gott úrval af öðrum vörum sem henta vel á pylsur.  Illa dasaður brölti ég draghaltur á fætur, skrönglaðist út úr Nóatúni og inn í bíl.  Ég fór á Slysó,  sannfærður um að vera annað hvort fótbrotinn eða illa brákaður.  Skoðun og myndataka þar leiddu í ljós að ég var með ökklatognun.  Fram til þessa hélt ég að ökklatognun væri eitthvað sem aðeins fótboltamenn fengju,  eins og gult og rautt spjald.  Dómarinn:  "Rangstæður!  Ég verð að toga í ökklann á þér!"

  Læknirinn sem skoðaði mig var gagnrýninn á hvað bólgan á fætinum náði langt fram.  "Þetta á ekki að vera svona,"  sagði hann.  Svo náði hann í sprautunál og bætti við:  "Ég sting á þetta.  Ef aðeins blóð kemur í sprautuna er það vegna þess að þarna er mar.  Þá er þetta eins og það á að vera."  Það kom ekkert blóð í sprautuna.  Bara glær ljósgrænn vökvi.
  Læknirinn fór með vökvann.  Kom aftur að vörmu spori og tilkynnti:  "Mikið af hvítum blóðkornum sýna að þetta er sýking.  Kristallar benda til að þetta sé gigt."
  Þar með var ég lagður inn á Borgarspítala til frekari skoðunar og settur á fúkkalyf í æð.  Blóðsýni voru tekin og sitthvað annað kannað.  Fleiri læknar bættust í hópinn sem skoðuðu málið.
  Ég var á spítalanum í nokkra daga.  Niðurstaðan var sú að vandamálið væri þvagsýrugigt.  "Þú ert dæmigerður," sagði gigtarlæknir.  "Miðaldra kall með ístru,  hreyfir þig lítið og gerir vel við þig í mat og drykk.  Þetta er velmegunargigt.  Á öldum áður fengu aðeins kóngar og höfðingjar svona gigt."
  Í nokkra daga var ég í góðu yfirlæti á spítalanum á lyfjakúr og eitthvað svoleiðis.  Svo var ég útskrifaður af spítalanum en er áfram á lyfjum og verð alla ævi.  Gigtin er varanleg en haldið niðri með daglegum lyfjaskammti.  Það er bara gaman.  Lyfjainntaka staðfestir að maður er á lífi.
  Það var lán að gigtin uppgötvaðist í tæka tíð.  Næsta skref hefði verið varanleg nýrnaskemmd.  Nothæf ný nýru fást ekki í Hagkaup.
  Verra var að vegna veikindanna missti ég af afmælishófi 30 ára Rokks í Reykjavík.  Eins og ég hafði hlakkað mikið til.  Samt er betra að hafa nýru í lagi.  Held ég.
      
       vörurekkaslys A

Íslenskt lag í sænskum diskótekum

Íris Kjærnested & Mike Shiver

  Lagið Song For Dotér (When You Let Go)  fer nú eins og stormsveipur um sænsk diskótek.  Þetta lag kom á markað fyrir 10 mánuðum.  Þá í gjörólíkum búningi.  Látlausum, hægum og fallegum.  Fyrr í þessum mánuði kom það út í hröðum og hörðum danstakti.  Það er sú útgáfa sem spiluð er á diskótekunum.

  Höfundur lags og texta er ung íslensk kona,  Íris Kjærnested.  Hún syngur jafnframt lagið.  Mike Shiver sér um undirspil og útsetningar.  Hann er stórt nafn í skandinavísku dansmúsíksenunni:  Upptökustjóri,  plötusnúður,  plötuútgefandi og útvarpsmaður 

   Íris Kjærnested er lærður tónsmiður.  Hún hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar.  Allir þekkja auglýsingastefið hennar "Veldu gæði, veldu Kjarnafæði". 

   Hér fyrir ofan er dansútgáfa lagsins.  Fyrir neðan er upphaflega útgáfan:

  Hér er samantekt og kynning á helstu nýju danslögum á alþjóðamarkaði,  Solaris International.  Solarstone er skráð fyrir þessari kynningu.  Solarstone er breskt plötufyrirtæki sem sérhæfir sig í dansmúsík.  Í inngangi nefnir kynnirinn 3 nöfn af þeim 14 sem eiga lag í þessari samantekt.  Eitt þessara 3ja nafna er Mike Shiver.  Ég sé að þetta er skráð inn á Þútúpuna 24. apríl en lagið  Song For Dotér  í dansútgáfunni kom ekki út fyrr en 8 maí.  Það heyrist á mínútu 40.50.

  Að gamni sló ég inn "Song For Doter" á google.  Það skilaði 35.500 síðum.  Ég skoðaði ekki allar síðurnar.  Af þeim fyrstu í röðinni eru það aðallega sölusíður á borð við Amazon, iTune og slíkar. 

  Nánari upplýsingar um Írisi:

http://www.imdb.com/name/nm3572798

http://www.iriskjaernested.com/


Sumir geta fengið sér kríu hvar sem er

kría

...Þú ert númer nítján í röðinni...


Magnað myndband: Japönsk kona gengur í gegnum draug!

  Eins og glöggt sést á myndbandinu gengur japönsk kona þarna af miklu öryggi í gegnum kínverskan draug.  Hún vissi ekki af þessu sjálf en hóf að rannsaka málið í kjölfar þess að hún skildi skyndilega kínversku eins og ekkert væri og fór að tala kínversku upp úr svefni.  Hún leitaði skýringar með því að skoða upptökur úr öryggismyndavélum.  Þá fann hún þetta.

  Konan er jafnframt óvænt orðin ólétt án þess að hafa verið við karlmann kennd.  Hún óttast mjög að barnið verði kínverskt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.