Eivör og Björk

 Ţegar Eivör sendi frá sér á dögunum plötuna  Larva  varđ ég var viđ ađ sumir töldu hana vera ađ feta sig í átt tónlist Bjarkar. Larva  er besta plata ársins (enn sem komiđ er).  Ţađ er önnur saga. 
  Eftir tvenna frábćra hljómleika Eivarar á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri heyrđi ég fólk viđra sömu skođun:  Ađ Eivör vćri ađ stćla tónlist Bjarkar.
  Ţessi skođun er ađ sumu leyti skiljanleg.  Lengst af ţekkja Íslendingar Eivöru syngja sín fallegu lög viđ eigin kassagítarundirleik.  Inn í ţá mynd vantar ađ sem barn og unglingur var Eivör í rokkhljómsveitunum Reverb og súpergrúppunni Clickhaze.
.
  Í heimaţorpi Eivarar,  Götu í Fćreyjum,  hefur starfađ stórkostleg hljómsveit sem heitir Orka.  Ţađ er nýskapandi og rafmögnuđ hljómsveit sem spilar eitthvađ er hljómar eins og tölvupopp en hljóđfćrin eru ekki hefđbundin heldur allskonar verkfćri sem sótt eru í nálćgan sveitabć.
  Söngvari Orku var Kári Sverrisson,  vinsćll söngvari og tónlistarmađur í Fćreyjum.  Hann hefur međal annars skipst á viđ Eivöru ađ syngja í ţjóđlagakenndri djasshljómsveit Kristians Blak,  Yggdrasil.
  Ađrir liđsmenn Orku hafa flestir spilađ međ Eivöru í gegnum tíđina.  Međal annars í Clickhaze.  Ţađ var eđlilegt framhald ađ Eivör leysti Kára af viđ hljóđnemann í Orku.  Ennţá eđlilegra framhald var ađ Eivör nyti liđsinnis hljóđfćraleikara Orku til ađ vinna međ sér plötuna Larva.  Platan ber ţví samstarfi glöggt vitni og er rökrétt framhald á ţví sem Eivör var ađ gera međ Orku.
.
  Eivör er ađdáandi Bjarkar og ber mikla virđingu fyrir Björk.  En Eivör hefur ALDREI  veriđ í ţví hlutverki ađ herma eftir Björk.  Né öđrum.  Ef undan er skiliđ hlutverk Eivarar sem Marilyn Monroe í óperu í Kanada á dögunum.
 
  Eivör er metnađarfullur listamađur.  Hún semur músík á eigin forsendum.  Og er aldrei fyrirsjáanleg í nćstu skrefum.  Oft plötuútgefendum til undrunar.  Einnig áheyrendum á hljómleikum.  Til ađ mynda var gríđarlega flott ađ upplifa hljómleika hennar á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri.  Ţar fór hún á flug í hávađasömum og pönkuđum metalrokksköflum međ rífandi gítarrokki.  Unun var á ađ hlýđa og sumir hrukku viđ sem reiknuđu međ ţjóđlagakenndu kassagítarprógrammi
.
  Hér er Orka međ Kára Sverrissyni:
.
  Hér er Eivör međ Orku:
  Og svo Eivör sóló:

"Endurkoma" Ţeys

  Svokölluđ "endurkoma" Ţeys var öđruvísi.  Ég vissi svo sem ađ hún yrđi öđruvísi.  En hún varđ allt öđruvísi en ég var búinn ađ hlera ađ hún yrđi.  Ađ mér lćđist sá grunur ađ hugmyndin um ţađ hvernig nákvćmlega yrđi stađiđ ađ "endurkomunni" hafi veriđ ađ breytast og ţróast fram á síđasta dag.

  Ţegar ég mćtti í Norrćna húsiđ um klukkan 21.00 var trođiđ út úr dyrum.  Ţá var tilkynnt ađ vegna fjöldans yrđi dagskrá Ţeys endurtekin um leiđ og hinum auglýstu hljómleikum lyki.  Ţađ voru góđar fréttir.  Líka ţćr ađ barinn var opinn.

  Gestir voru á ýmsum aldri og af ýmsu tagi.  Unglingar í bland viđ fólk ađ detta í ellilífeyri.  Alţingismenn,  biskupinn,  forsetinn,  Gunnar Ţórđarson... Eđa var biskupinn kannski í sjónvarpinu?  Ţetta rennur örlítiđ saman.

  Dagskráin hófst á heimildarmynd um Ţey,  ŢEYR THE MOVIE - 1981-2011.  Hún er ekki fullkláruđ en lofar góđu.  Skemmtileg mynd sem kemur húmor Ţeys vel til skila.  Ţví nćst var lagiđ  Poéme  af plötunni  As Above  spilađ á selló.  Eftir ţađ lék Hörđur Bragason á píanó lagiđ  Blood sem er á myndbandinu hér fyrir ofan.  Lokalagiđ var sungiđ af tveimur dömum viđ píanóundileik Halldórs Á. Björnssonar sem hefur veriđ ađ spila međ Krumma (í Mínus) í dúettinum Legend. 

  Allt voru ţetta hinar áhugaverđustu nýjar og framandi hliđar á ţekktum Ţeys lögum.  Punkturinn yfir i-iđ voru síđan bráđfyndnar kynningar Guđlaugs Kristins Óttarssonar á milli atriđa,  eina liđsmann Ţeys sem var sjáanlegur á stađnum.   


Lagalistinn í Sunnudagshugvekjunni

 

  Sunnudagshugvekjan  á Nálinni fm 101,5 tókst hiđ besta í flesta stađi í kvöld.  Hún var svo gott sem á milli klukkan 19.00 til 21.00.  Bćđi ţeir sem hlusta á  Sunnudagshugvekjuna  og ekki síđur ţeir sem misstu af henni eru friđlausir ađ sjá lagalistann hjá okkur Sigvalda Búa Ţórarinssyni.  Ţess vegna er mér ljúft ađ birta listann.  Svona var hann í dag:

1  Kynningarlagiđ:  The Clash:  Time is Tight
Motorhead:  Ace of Spades 
Nazareth:  Razamanaz
David Bowie:  Jean Genie
Ram Jam:  Black Betty
6  Led Zeppelin:  Rock and Roll
Emmylou Harris:  May This be Love
Little Richard:  Lucille
9  Reggae-gullmolinn:  Bob Marley:  Rastaman Chant
10 Soul-lag dagsins:  The Music Exploision:  Little Bit o´ Soul
11 Pönk-klassíkin:  The Damned:  New Rose
12 Skrítna lagiđ:  Guđjón Rúdólf:  Minimanía
13 Serge Gainsbourg frá Frakklandi:  Marilou Reggae
14 Ţeyr:  Rúdólf
15 Shonen Knife frá Japan:  Ah, Singapore
16 Mánar:  Söngur Satans
17 Miriam Makeba frá Suđur-Afríku:  Mbube
18 Frćbbblarnir:  Bjór
19 Björk & Björgvin Gíslason:  Afi
20 Kári P. frá Fćreyjum:  Talađ viđ gluggan
21 Sigga Beinteins:  Ţakklćti 
.
  Ţetta er ekki amalegur lagalisti.  Ţess er vandlega gćtt ađ íslensk tónlist fái notiđ sín ásamt heimspoppi frá löndum utan engilsaxneska málsvćđisins.  Engu ađ síđur er ţađ klassíska rokkiđ sem viđ gerum út á. Góđu fréttirnar eru ţćr ađ Sunnudagshugvekjan er endurflutt á föstudaginn á milli klukkan 19.00 og 21.00. 
  Ţađ er alltaf gaman ađ heyra viđbrögđ viđ  Sunnudagshugvekjunni.  Líka beiđni um óskalag eđa óskalög sem ţiđ teljiđ ađ eigi erindi.  Er ţátturinn of-eitthvađ? Of pönkađur? Of "soft"? Of poppađur?  Er lagiđ međ Emmylou Harris,  May This be Love,  ekki magnađ? Jú,  og ţađ er eftir Jimi Hendrix.  Sama lag má heyra í flutningi Jimi Hendrix sjálfs í nćstu bloggfćrslu hér fyrir neđan. 
  Lagalistar fyrri ţátta:
.

http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1085626/

  Hćgt er ađ hlusta á Nálina á netinu međ ţví ađ smella á http://media.vortex.is/nalinfm 

  Takiđ svo ţátt í skođanakönnun hér ofarlega á síđunni til vinstri.

  Lagiđ á myndbandinu hér fyrir neđan er  May This be Love  međ Emmylou Harris ţó ţađ sé myndskreytt međ höfundinum,  Jimi Hendrix,  og skráđ á upptökustjórann,  Daniel Lanois.  Sá kanadíski upptökusnillingur er kannski ţekktastur fyrir vinnu sína fyrir U2 og Bob Dylan.


Ađdáunarvert hugrekki Guđrúnar Ebbu - skráiđ ykkur á stuđningssíđu hennar!

  Ţegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakađi Ólaf Skúlason um nauđgunartilraun kom ţađ ekki öllum á óvart.  Stúlkur sem stunduđu nám í Réttarholtsskóla er Ólafur var ţar kennari vissu ađ ţćr mćttu aldrei vera einar hjá honum.  Stelpurnar brýndu ţetta hver fyrir annarri og pössuđu upp á hver ađra gagnvart Ólafi.  Ţađ var á allra vitorđi í skólanum ađ hann vćri perri sem sćtti lagi viđ ađ áreita stelpur kynferđislega.

  Sigrún Pálína mćtti hinsvegar lokuđum dyrum hjá kirkjunnar mönnum og var hvött til ađ hafa hljótt um atburđinn.  Skref Sigrúnar varđ öđrum fórnarlömbum Ólafs hvatning til ađ stíga einnig fram.  Eitt ţeirra uppskar ţau viđbrögđ ađ fjölskylda hennar skrifađi Ólafi bréf.  Ţar lýsti fjölskyldan yfir stuđningi viđ Ólaf og sagđi fórnarlamb hans vera ímyndunarveikt.

  Eftir ţví sem ţeim fjölgađi,  fórnarlömbum Ólafs, er komu fram međ ásakanir á hendur honum fjölgađi stuđningsmönnum Ólafs einnig.  Fólk sendi honum blómvendi og stuđningsyfirlýsingar út og suđur.  Enn í dag má sjá stuđning viđ Ólaf á fésbók og bloggi. 

  Tímarnir eru ţó breyttir.  Í dag eru fleiri tilbúnir ađ hlusta á fórnarlömb kynferđisofbeldis.  Viljinn til ađ sópa ţeirra málum undir teppi er minni en var.  Samt tók ţađ biskup og kirkjuráđ HÁLFT ANNAĐ ÁR ađ verđa viđ beiđni Guđrúnar Ebbu Ólafsdóttur um ađ fá áheyrn.  Á sama tíma stakk biskupinn undir stól bréfi frá organista Ólafs Skúlasonar.  Ţar vottađi organistinn ađ Ólafur hafi veriđ haldinn kynferđislegu óeđli. 

  Biskupinn beit síđan - glottandi - höfuđiđ af skömminni međ ţví ađ vćna Guđrúnu Ebbu um ósannindi.  Ţetta eru skilabođin frá ćđsta og hćst launađasta embćttismanni ríkiskirkjunnar til fórnarlamba barnaníđs og annars kynferđisofbeldis af hálfu ríkispresta.

  Framganga Guđrúnar Ebbu er klárlega mikill styrkur fyrir fórnarlömb Ólafs og önnur fórnarlömb barnaníđs og kynferđisofbeldis.  Vottum Guđrúnu Ebbu virđingu fyrir hugrekki sitt og framgöngu.  Ţađ er hćgt ađ gera međ skráningu á fésbókarsíđu til stuđnings henni:  http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=110308905690499&ref=ts 

  Á síđunni er einnig vísađ á áhugaverđar greinar um sitthvađ ţessu tengt.

www.aflidak.is

www.stigamot.is

Ólafur Skúlason


mbl.is Lýsti alvarlegum brotum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bestu bassaleikarar rokksins

  Ég rakst á netsíđu sem birtir lista yfir bestu bassaleikara rokksins.  Ég veit ekkert um ţessa síđu né heldur hvernig stađiđ er ađ valinu á listann.  En ţađ er gaman ađ velta vöngum yfir listanum.  Í fljótu bragđi virđist hann vera nokkuđ sannfćrandi.  Ţarna eru margir minna ţekktir bassaleikarar međ á listanum.  Ótrúlega margir miđađ viđ svona lista.  Netsíđan er međ slóđina:   http://www.scaruffi.com/music/bass.html.  Gaman vćri ađ hlera viđhorf ykkar til listans.

1   Les Claypool (Primus)

2   Jack Bruce (Cream)
3   Jah Wooble (Björk,  Public Image Ltd.)
4   Tony Levin (King Crimson)
5   Melvin Gibbs (Rollins Band,  Arto Lindsay)
6   Flea (Red Hot Chili Peppers)
7   Tony Maimone (Pere Ubu)  Til gamans má geta ađ ég hef lítillega kynnst Chris Thomas,  söngvara Pere Ubu.  Hann er Vottur Jehova,  bindindismađur á áfengi og tóbak en mikill sćlkeri á mat.  Ţađ er ekki hamborgari heldur margir hamborgarar ţegar Chris er í stuđi.  Og hann er alltaf í stuđi.  Stuđbolti. Chris hefur nokkrum sinnum haldiđ hljómleika á íslandi,  bćđi sóló og međ Pere Ubu.  Mikill húmoristi,  upptekinn af trúmálum og hefur sent frá sér nokkrar plötur međ vinum mínum,  breska óbóleikaranum Lindsay Cooper (sem er í dag illa haldin af MS sjúkdómi) og bandaríska trommusnillingnum Chris Cutler (Pere Ubu, Henry Cow,  Art Bears,  News from Babel).    
8   Bill Laswell (Material,  Fred Frith)
9   Fred Chalenor (Caveman Shoestore,  Tony Dogs)
10  Colin Hodgkinson (Back Door)
11  Larry Grayham (Sly & The Family Stone)
12  James Jamerson (allt Tamla Motown dćmiđ)
13  Bernand Edwards (Chic)
14  Mark Sandman (Morphine)
15  Billy Sheehan (Mr. Big)
16  Chris Hillman (The Byrds)
17  Dave Pajo (Slint,  For Carnation,  Tortoise,  Aerial M)
18  Andrew Weiss (Gone)
19  Juliana Hatfield (Blake Babies)
20  Ethan Buckler (Slint)
21  Johnny Temple (Girls Against Boys)
22  Fred Erskine (June of 44)
23  Doug McCombs (Eleventh Dream Day,  Tortoise)
24  Mike Watt (Minutemen)
25  Doug Wimbish (Tackhead)
26  Reggie "Fieldy" Arvizu (Korn)
27  Sasha Frere-Jones (U1)
 
  Listinn nćr ekki nema yfir 27 efstu sćtin.  Ţađ er óvenjulegt.  Engin skýring ţar á.  Hinsvegar er gefiđ upp hverjir krauma ţarna nćstir.  Ţar stikla ég á stóru og vísa í netsíđuna á ţau nöfn sem ég hleyp yfir:
Muzz Skillings (Living Colour)
John Entwistle (Who)
Tina Weymouth (Talking Heads)
Kim Gordon (Sonic Youth)
Jeff Ament (Pearl Jam)
Phil Lesh (Grateful Dead)
Jack Casady (Jefferson Airplane)
Peter Steele (Type O Negative)
Brian Richie (Violent Femmes)
Cliff Burton (Metallica)
Sting
Chris Novoselic (Nirvana)
Dave Allen (Gang of Four)
Roger Waters (Pink Floyd)
Steve Harris (Iron Maiden)
Chris Squire (Yes)
Joe Lally (Fugazi)
Justin Chancellor (Tool)
Matt Freeman (Rancid)
Jennifer Finch (L7)
Geddy Lee (Rush)
Lemmy (Motorhead)
Mike Mills (REM)
John Paul Jones (Led Zeppelin)
Paul McCartney (Bítlarnir)

Besti útvarpsţátturinn á dagskrá í kvöld

 

  Ţátturinn  Fram og til baka og allt í kring  er á dagskrá Nálarinnar fm 101,5 í kvöld á milli klukkan 19.00 og 21.00.  Gunni "Byrds" (Gunnar Gunnarsson,  Gunni í Faco) stýrir ţćttinum af stakri snilld.  Ţó ađeins tveir ţćttir séu ađ baki hefur  Fram og til baka og allt í kring  stimplađ sig inn sem besti tónlistarţáttur í íslensku útvarpi.

  Til ađ endurtaka mig ekki um of vísa ég á umsögn um fyrsta ţáttinn:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083398/

  Upptaka á síđasta ţćtti misheppnađist á ţann hátt ađ ekki var hćgt ađ endurflytja ţáttinn.  Ég vona ađ Gunni endurspili í kvöld eitthvađ af lögunum úr ţeim ţćtti í stađinn.  Ţar voru á međal sjaldheyrđar upptökur međ Everly Brothers og fleirum. 

  Höskuldur Höskuldsson,  harđlínu ađdáandi The Rolling Stones og Pretty Things,  verđur gestur Gunnars í kvöld.  Ţátturinn verđur síđan endurfluttur á laugardaginn á milli klukkan 11.00 og 13.00.  Hćgt er ađ hlusta á Nálina á netinu međ ţví ađ smella á ţennan hlekk:  http://media.vortex.is/nalinfm,


Dúndurflott hljómsveit

skálmöld 

  Ég var ađ uppgötva assgoti ljúfa hljómsveit sem kallast Skálmöld.  Af ţeim örfáu lögum sem ég hef heyrt međ ţessari hljómsveit virđist hún spila notalegt víkingarokk.  Ţađ sem er ennţá betra er ađ ţessi hljómsveit semur og syngur ágćta texta á sínu eigin móđurmáli,  íslensku.  Hér má heyra tvö lög međ Skálmöld:  http://www.myspace.com/skalmold

  Ég veit fátt sem ekkert um ţessa yndćlu hljómsveit.  Gaman vćri ađ heyra frá einhverjum sem veit allt um hana.


Skagfirskri söngkonu vel tekiđ í Fćreyjum

  Ein af stćrstu árlegu tónlistarhátíđum í Fćreyjum heitir Summarfestivalurin(n).  Fćreyingar skrifa ekki ákveđinn greini međ tveimur ennum.  Summarfestivalurin(n) er haldinn í Klaksvík á Borđey,  höfuđborg Norđureyjanna.  Klaksvík er Akureyri ţeirra Fćreyinga.  Summarfestivalurin(n) er meiri popphátíđ en G!Festivaliđ í Götu sem er rokkhátíđ.  Gestir á Sumarfestivalinu fyrir viku voru um 10 ţúsund.  Ţađ er góđ tala ţegar tekiđ er međ í reikninginn ađ Fćreyingar eru 49 ţúsund.  Og meira ađ segja góđ tala ţó ţađ sé ekki tekiđ međ í reikninginn.

  Íslenskir fjölmiđlar töluđu um metfjölda á ţjóđhátíđ í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina.  Ţar voru gestir um 16 ţúsund.  Miđađ viđ höfđatölu hefđu ţeir ţurft ađ vera 45 ţúsund til ađ jafna metađsóknina á Summarfestivalinu í Klaksvík í ár. Samt var ţetta ćvintýralega góđ ađsókn á ţjóđhátíđ í Eyjum.

  Um ţrjátíu hljómsveitir komu fram á Summarfestivalinum ađ ţessu sinni.  Ţar á međal voru Westlife (heimsfrćgt strákaband),  The Dreams (heimsfrćgasta fćreyska hljómsveitin),  Brandur Enni og hljómsveit,  Maríus (rokkhljómsveit sem spilar á Airwaves í október) og rokksveitin Páll Finnur Páll (nafniđ er samsett úr fornöfnum liđsmanna).

  Ein af hljómsveitunum kallađist Ingunn & Herborg.  Ţar var um ađ rćđa skagfirsku söngkonuna Ingunni Kristjánsdóttur,  fćreyska gítarleikarann og söngvahöfundinn Herborgu Hansen og fćreyska trommu- og gítarleikarann Pćtur Gerđaliđ.

  Ingunn og Herborg hófu samstarf á tónlistarsviđinu ţegar ţćr voru skólasystur í Rauđa kross skóla úti í Noregi 2008.  Síđan hafa ţćr haft atvinnu af tónlistinni.  Í bland viđ frumsamda söngva flytur tríóiđ útlenda slagara međ íslenskum textum.  Ţetta eru lög á borđ viđ  Blue Suede Shoes  eftir Carl Perkins og  Alone úr smiđju Heart.  Í myndbandinu hér fyrir ofan syngur Ingunn lag eftir Herborgu. Ţetta er ekki mitt pönkrokk en lćt ţađ liggja á milli hleina.

  Ingunn & Herborg fengu afskaplega lofsamlega dóma í fćreyskum fjölmiđlum fyrir frammistöđuna á Summarfestivalinu.  Ţess er getiđ ađ Fćreyingar séu sérlega ánćgđir međ ađ Ingunn syngi á íslensku.  Ţađ gefi músík tríósins heillandi ţokka (sjarma).

summarfestivalurin 

  10 ţúsund Fćreyingar gerđu góđan róm ađ íslensku söngkonunni Ingunni Kristjánsdóttur. 

  Af fćreysku pönksveitinni The Dreams er ţađ ađ frétta ađ lag hennar Revolt  hefur trónađ ađ undanförnu í efstu sćtum ţýsku MTV sjónvarpsrásarinnar og fleiri ţýskra vinsćldalista.  Áđur hefur The Dreams fariđ mikinn á dönskum vinsćldalistum.  Telst vera í hópi alvinsćlustu hljómsveita í Danmörku.  Bandarískur umbođsmađur Linkin´ Park og ţar áđur Pantera hefur í sumar gengiđ međ grasiđ í skónum á eftir The Dreams.  Bođiđ ţeim Draumliđum gull og grćna skóga og er ólmur í ađ stimpla ţá inn á bandaríska markađinn.  Drengirnir hafa ekki fariđ sér ađ neinu óđslega.  Enda heilmikiđ mál ađ fylgja eftir óvćntum vinsćldum í Ţýskalandi,  fjölmennasta ríki Evrópu,  90 milljón manna ţjóđ.  Og ţýski markađurinn nćr ađ auki yfir til Austuríkis,  Swiss og víđar.  Ţar fyrir utan er bandarískur umbođssamningur flókinn og ţarfnast yfirlesturs snjallra lögfrćđinga.  Samningurinn er á stćrđ viđ ţykka bók.  Samningsstađa The Dreams er ađ auki gjörbreytt eftir ađ hljómsveitin hefur slegiđ í gegn í Ţýskalandi og stefnir í ađ verđa ófurvinsćl á ţeim vettvangi.  The Dreams er ţegar orđin heimsfrćgasta fćreyska hljómsveitin.    


Pilla sem kemur í veg fyrir ađ stúlkur verđi samkynheigđar

  Ţeim dettur margt í hug í útlöndum.  Stundum er eins og ţeir hafi ekki annađ ađ gera en láta sér detta eitthvađ í hug.  Nú hafa einhverjir í útlöndum fundiđ út ađ ef ţungađar konur ganga međ kvenfóstur ţá geta ţćr,  međ ţví ađ taka inn pillu,  komiđ í veg fyrir ađ ţađ verđi samkynhneigt. 

  Pillan er upphaflega á markađi til ađ takast á viđ erfđasjúkdóm sem ég veit ekki hvađ heitir á íslensku.  Enska heitiđ er "Congenital Adrenal Hyperplasia". 

  Taliđ er ađ vitneskjan um ţessa pillu muni í framtíđinni draga verulega úr fćđingu samkynhneigđra stúlkna í Bandaríkjunum og kannski víđar.  Ţá má spyrja:  Til hvers? 

  Hvađ segja Madonna og Britney Spears um ţetta?

madonna_britney


mbl.is Lyfjasala dregst saman
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Lagalistinn í Sunnudagshugvekjunni í dag

   
.
  Sunnudagshugvekjan á Nálinni fm 101,5 var í loftinu á milli klukkan 19.00 til 21.00 í kvöld viđ dúndurgóđar undirtektir áheyrenda.  Ţađ er ekki einleikiđ hvađ ţessi ţáttur leggst vel í hlustendur.  Ţeir kumra af ánćgju undir honum.  Sigvaldi Búi Ţórarinsson sá um hugvekjuna á móti mér.  Ţannig verđur ţađ í framtíđinni.  Viđ vissum ekkert af lagavali hvors annars fyrir útsendingu.  Ţađ fléttađist ljúflega saman.  Ţessi lög voru afgreidd í ţćttinum:  
.
1   Kynningarlag ţáttarins:  The Clash:  Time is Tight 
2   Led Zeppelin:  Living Loving Maid (She´s Just A Woman)
3   Jimi Hendrix:  Crosstown Traffic
4   Hindu Love Gods: Battleship Chaines
5   The Byrds:  Mr. Tambourine Man
6   Flying Burrito Brothers:  Lazy Days 
The Beach Boys:  Sloop John B
101ers:  Lets a get a bit a rockin´
9   Soul-lag dagsins:  Percy Sledge:  Try A Little Tenderness
10  Pönk-klassíkin:  The Skids:  Into The Valley
11  Neil Young:  Harvest Moon 
12  Reggí-lag ţáttarins:  Johnny Clarke: Freedom Blues
13  Eric Clapton:  Layla 
14  Óđmenn:  Ţađ kallast ađ koma sér áfram
15  Dikta:  Warnings
16  Eddy Mitchell frá Frakklandi:  C´est un rocker
17  Bubbi:  Jón pönkari  
18  Áge Aleksandersen frá Noregi:  Levva Livet
19  Bjartmar og Bergrisarnir:  Sagan
20  Gildran:  Nútímakonan
21  Dikta:  Let´s Go
22  Das Kapital:  Lili Marlene
23  Megas:  Ég á mig sjálf
24  Högni Lisberg frá Fćreyjum:  Learn to Ride on Waves 
.
  Ţátturinn er endurfluttur nćsta föstudag klukkan 19.00 á Nálinni fm 101,5.  Einnig á netinu:   http://media.vortex.is/nalinfm 
.
  Lagalisti ţáttarins fyrir viku er hér:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083677/
.
  Gaman vćri ađ heyra frá ykkur "komment" á ţáttinn;  ábendingar um ţađ sem betur má fara,  kvitt fyrir ţađ sem vel hefur tekist,  uppástungur um lög eđa annađ sem ykkur dettur í hug.  Uppástungur um lög ţurfa helst ađ falla ađ ţeim ramma sem ţćttinum er settur:  Klassískt rokk frá sjöunda og áttunda áratugnum (60´s og 70´s),  íslenskt rokk og heimspopp (helst sungiđ á móđurmáli flytjandans).
.

Hverjir eru flottustu gítarleikarar rokksins?

  Ađ undanförnu hefur breska poppblađiđ New Musical Express notiđ liđsinnis lesenda sinna viđ leit ađ flottustu gítarleikurum rokksögunnar.  Leitin hefur gengiđ alveg ţokkalega vel.  Ţannig lítur listinn út yfir gítarleikarana í 20 efstu sćtunum (innan svartra sviga er stađa sömu gítarleikara á lista bandaríska poppblađsins Rolling Stone.  Innan blárra sviga er stađa sömu gítarleikara í könnun sem breska útvarpiđ,  BBC 6 Music, stóđ fyrir í apríl sl.):

(3) Matt Bellamy (Muse)
 
2  (9) Jimmy Page (LZ)
Robert Smith (The Cure)
Joshua Hayward (The Horrors)
 
5  (1) Jimi Hendrix
(2) Slash (Velvet Revolver)
7  (39) Bryan May (Queen)  
8  (96) Angus Young (AC/DC)
9  (18) (1) John Frusciante (Red Hot Chili Peppers)
10  (4) Eric Clapton
.
11  (21) George Harrison (Bítlarnir)
.
12 (26) (5) Tom Morello (Rage Against the Machine,  Audioslave)
13 (50) Pete Townshend (The Who) 
14 Albert Hammond Jr. (The Strokes)  
15 (17) (9) Jack White (The White Stripe)
.
16 (10) Keith Richards
17 (59) (7) Jonny Greenwood (Radiohead)
18 John Lennon (Bítlarnir)
19 Graham Coxon (Blur)
20 Syd Barrett (Pink Floyd)
.
  Listinn ber ţess merki ađ vera breskur.  Listinn í Rolling Stone ber ţess merki ađ vera bandarískur.  Ţessir voru í eftirfarandi sćtum á lista Rolling Stone án ţess ađ hljóta náđ fyrir eyrum lesenda New Musical Express:
2  Duane Allman
3  BB King
5  Robert Johnson
6  Chuck Berry
7  Stevie Ray Vaughan
8  Ry Cooder
  Ţessir voru á lista BBC án ţess ađ ná inn á lista New Musical Express:
4  Johnny Marr (The Smiths)
6  Kirk Hammett (Metallica)
8  Prince
10 Peter Buck (R.E.M.)
  Gaman vćri ađ heyra viđhorf ykkar til bestu gítarleikaranna.

Fćreyskur rokkari á heimsmarkađ

  Ég veit í raun ekkert um hvađ ég er ađ skrifa.  Fyrirbćriđ heitir NBA 2K11.  Mér skilst ađ ţađ sé tölvuleikur um körfubolta.  Ţessi tölvuleikur verđur settur á heimsmarkađ 5. október.  Forsíđa spilsins skartar mynd af bandarískum náunga sem heitir Michael Jordan og er sagđur vera heimsins frćgasti körfuboltakappi.  Ég kannast meira ađ segja viđ nafniđ ţó ég viti ekkert um körfubolta.

  Fyrirtćkiđ sem gefur út ţennan tölvuleik heitir 2K sports og hreykir sér af ađ bjóđa í ţessum leik upp á besta músíkskor sem um getur í svona spili.  Ţar á međal er músík međ Snoop Doggy Dogg,  Outkast og Högna Lisberg.  Lagiđ međ Högna heitir "Bow Down (to no man)". 

  Reiknađ er međ ađ spiliđ seljist í tug milljóna eintökum um heim allan.

  Högni hefur átt lög á íslenska vinsćldalistanum.  Ţar á međal "Morning Dew" og "Learn to ride on Waves". 

 

  Högni var trommuleikari fćreysku súpergrúppunnar Clickhaze.  Hann hefur einnig veriđ ađ spila á trommur međ Eivöru.  Međal annars á bestu plötu ársins 2010,  "Larva".

  Högni hefur tvívegis spilađ á Iceland Airwaves.  Hann hélt einnig frábćra hljómleika á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri um verslunarmannahelgina.  Ţar fyrir utan spilađi hann hérlendis međ Clickhaze 2002.

  Frábćr tónlistarmađur og mikiđ fagnađarefni ađ tónlist hans skuli nú vera kynnt út um allan heim í ofangreindum tölvuleik.  Högni er ţegar međ ágćtan markađ í Danmörku,  Swiss og hérlendis.  Íslensku stelpum ţykir Högni vera rosalega sćtur.


Rómantíski hálftíminn

Jóhann-kristjánsson-útv.

  Í kvöld,  nánar tiltekiđ klukkan 22.00,  fer í loftiđ ţátturinn  Rómantíski hálftíminn.  Ţađ er ţáttur međ búfrćđingnum Jóhanni Kristjánssyni á Nálinni fm 101,5.  Ţrátt fyrir nafniđ á ţćttinum,  Rómantíski hálftíminn,  verđur hann í loftinu til klukkan 1.00 eftir miđnćtti.  Í ţađ minnsta. 

  Mánađarlega verđur Jóhann međ gest í ţćttinum,  frćga rokkstjörnu,  sem kemur međ uppáhaldslögin sín undir hendinni og leyfir hlustendum Nálarinnar ađ heyra.  Ađ öđru leyti hef ég ekki hugmynd um hvađ annađ verđur undir nálinni hjá Jóhanni. 

  Svo ég skjóti blint út í loftiđ ţá giska ég á eitthvađ ljúft međ Iron Maiden,  Black Sabbath og / eđa The Prodigy.  Hćgt er ađ hlusta á ţáttinn á netinu:   http://media.vortex.is/nalinfm 


Svakalegt fjör á Sauđárkróki

Gćran 

  Ţađ er allt ađ komast í fluggírinn á Sauđárkróki.  Búiđ er ađ fjarlćgja ţađan hrć af ógangfćrum Range Rover sem stađiđ hefur óhreyfđur og óskráđur í 4 ár.  Ţar međ er ekki neitt ađ vanbúnađi til ađ landsmenn geti fjölmennt á tónlistarhátíđina Gćruna á Sauđárkróki.  Ţetta er í fyrsta skiptiđ sem ţessi tónlistarhátíđ er haldin og ţví um sögulegan viđburđ ađ rćđa.  Hátíđin mun vinda upp á sig nćstu ár og verđa hápunktur í árlegu skemmtihaldi Íslendinga og nágrannaţjóđa.  Ţá verđur mönnum taliđ til helstu mannkosta ađ hafa veriđ á fyrstu Gćrunni.

  Á ţriđja tug hljómsveita halda úti ţéttri dagskrá á Gćrunni 13. - 14. ágúst í húsnćđi Lođskinns á Sauđárkróki.  Á međal ţeirra sem sjá um fjöriđ má nefna:

 - Siggi Bahama og Beatur

 - Bróđir Svartúlfs

.
 - Erpur/Sesar A

.
 - Geirmundur Valtýsson

 - Bermuda

.
 - Nóra

.
 - Hoffmann
.

 - Múgsefjun
.
 - Myrká

.
 - Bárujárn

 - Davíđ Jóns

.
 - Svavar Knútur

.
 - Biggi Bix

.
 - Gillon

.
 - The Vintage

.
 - Morning after Youth

.
 - Hćlsćri

.
 - Fúsaleg Helgi

.
 - Binni Rögg

.
 - Best fyrir
.

 - Sing for me Sandra 

.
 - Jona Byron


  Miđaverđ fyrir báđa dagana er ađeins 4000 krónur á midi.is (http://midi.is/tonleikar/1/6021. Fimmari viđ hurđ).  Innifaliđ í ţví er - auk allra hljómleikanna -ađgangur á ţrjár heimildarmyndir um íslenska tónlist og frítt í sund.  Kvikmyndirnar eru hver annarri meira spennandi:


 - Handan Viđ Sjóinn (2009)
Heimildarmynd um íslenska tónlist

 - The Stars May Be Falling...but the stars look good on you (2009)
Heimildarmynd um tónlistarmanninn Ólaf Arnalds

 - Where´s the snow
Glćný heimildarmynd um Airwaves hátíđinna.
Ekki er um eiginlega forsýningu ađ rćđa heldur svokallađa prufusýningu (screening).

 - http://gaeran.almidill.vefir.net/

 - http://www.facebook.com/pages/Saudarkrokur-Iceland/TONLISTARHATIDIN-GAERAN-2010/109182002449012?ref=ts&__a=24&

 - http://www.facebook.com/#!/event.php?eid=121364547910799&ref=ts

  Fjölmiđlafólk getur náđ á ađstandendum Gćrunnar í síma:  Ragnar 8975642, Sigurlaug 6604681 og Stefán 8685021.


mbl.is Dularfullur bílţjófnađur á Króknum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Lagalistinn í Sunnudagshugvekjunni á Nálinni

  Gríđarleg stemmning var fyrir Sunnudagshugvekjunni á Nálinni 101,5 í gćr (á milli klukkan 19.00 og 21.00).  Eftir ţáttinn rigndi yfir mig úr öllum áttum spurningum um flytjendur hinna ýmsu laga.  Til ađ einfalda málin og gera mönnum tilveruna auđveldari birti ég hér heildarlista yfir lögin sem voru kynnt og spiluđ í ţćttinum.  Eins og sést á lagalistanum var ţátturinn tvískiptur:  Í fyrri hlutanum voru spiluđ ţekkt lög úr klassísku rokkdeildinni.  Í seinni hlutanum voru spiluđ lög frá flytjendum utan engilsaxneska málsvćđisins.  Rík áhersla var lögđ á ađ ţeir flytjendur syngi á móđurmáli sínu,  hvort sem ţeir eru íslenskir eđa tyrkneskir.  Óvíst er ađ sú regla standi til frambúđar fremur en margt annađ varđandi ţáttinn. 

  Ţannig var lagalistinn:

1   Kynningarlag ţáttarins:  The Clash:  Time is Tight
2   Gerogia Satallites:  Hippy Hippy Shake
3   Uriah Heep:  Easy Livin´
4   Deep Purple:  Black Night
5   John Lennon:  Peggy Sue
6   Paul McCartney:  Run Devil Run 
7   The Byrds:  Fido 
8   Spencer Davis Group:  Keep on Running
9   Richard & Linda Thompson:  I Want To See The Bright Light Tonight
10  Dave Edmunds:  I Hear you Knocking
11  The Animals:  Bring it on Home to Me
12  Pönk-klassíkin:  Buzzcocks:  What Do I Get
13  Reggílag dagsins: U-Roy:  Rivers of Babylon
14  Trúbrot:  Ţú skalt mig fá
15  Týr frá Fćreyjum:  Ormurinn langi
16  Utangarđsmenn:  Sigurđur var sjómađur
17  Iris frá Portúgal:  Oh Máe!
18  Ţursaflokkurinn:  Jón var krćfur karl og hraustur
19  Kim Larsen frá Danmörku:  Jakob den glade
20  Megas:  Klörukviđa
21  Mariina frá Grćnlandi:  Issumaangaa
22 Flowers:  Slappađu af
23  Nina Hagen frá Ţýskalandi:  My Way
24  Kamarorghestar:  Samviskubit
25  Pentagram frá Tyrklandi:  oo
26  Maggi Mix:  Snabby í Krókódílalandi
27  Afkynningarlag ţáttarins:  The Clash:  Time is Tight

 

  Ţátturinn lagđist vel í ţá sem hafa tjáđ sig um hann viđ mig.  Örfáir hnökrar voru á honum.  Eins og gengur.  Viđ ţáttastjórnendurnir,  ég og Sigvaldi Búi Ţórarinsson,  hittumst í fyrsta skipti 2 mínútum fyrir útsendingu.  Viđ lćrđum nöfn hvors annars í beinni útsendingu og gekk ţađ misvel.  Sigvaldi er vanur tćknimađur af Ađalstöđinni en var ađ sjá tćkjabúnađinn á Nálinni í fyrsta skipti.  Hann tók ađ sér tćknimálin.  Tćkniborđ á svona útvarpsstöđ er hlađiđ tugum takka,  sleđa og allskonar.  Ţađ var mesta furđa hvađ fátt var um mistök.  Engin stórvćgileg.  Ađeins örfá smáatriđi sem fćstir hafa tekiđ eftir.

  Lagavaliđ í ţessum fyrsta ţćtti var í mínum höndum.  Í nćstu ţáttum velur Sigvaldi helming laga á móti mér.  Af föstum liđum sé ég áfram um pönk-klassíkina og reggílag dagsins.  Sigvaldi mun sjá um nýjan fastan liđ;  soul-lag ţáttarins. 

  Mér heyrist á Sigvalda ađ hann sé meira fyrir rólegri og mýkri músík en ég.  Reyndar sćki ég heima hjá mér yfirleitt í ţyngri og harđari rokkmúsík en ţá sem er á lagalistanum.  Ég verđ dáldiđ ađ gćta mín á ađ vera ekki međ of brútal músík í ţćttinum.  Sigvaldi kemur til međ ađ veita mér ađhald varđandi ţađ og "ballansera" ţetta međ mér.  Ţegar ég var á Radíó Reykjavík í gamla daga var slegiđ á puttana á mér ţegar ég missti mig í Amon Amarth.  Á Nálinni er viđmiđiđ í svona almennri dagskrá ađ ganga ekki mikiđ lengra í hörđu rokki en Black Sabbath.  Sem er fínt.  Nálin er flott útvarpsstöđ og hefur fariđ glćsilega af stađ.  

  Mér varđ á ađ segja í kynningu á  Hippy Hippy Shake  međ Georgie Satallites ađ Dave Clark Five hafi gert lagiđ frćgt.  Hiđ rétta er ađ ţađ voru Swinging Blue Jeans.  Smá fljótfćrnisvilla sem ég fattađi um leiđ og ég ók af stađ frá Nálinni eftir ţáttinn.  Ţessar hljómsveitir voru á líku róli og spiluđu sum sömu lög.  En rétt skal vera rétt.

  Hćgt er ađ hlusta á Nálina hvar í heimi sem er á netinu: http://media.vortex.is/nalinfm 

  Ég veit ţegar af hlustendum í Bandaríkjunum og Fćreyjum.  Svo bćtast Bretland og meginland Evrópu viđ.  Ţví nćst Asía, Afríka og Grímsey.  Og svo framvegis.  Fjöriđ er rétt ađ byrja.

  Gaman vćri ađ fá viđbrögđ hér viđ ţćttinum og ábendingar,  bćđi um lagaval og ţađ sem betur má fara.  Og klapp á bakiđ fyrir ţađ sem vel tekst til.  Já,  eiginlega ađallega ţađ.


Sunnudagshugvekjan

 

  Nýja útvarpsstöđin,  Nálin fm 101,5,  hefur slegiđ rćkilega í gegn.  Ţó er stöđin ekki vikugömul.  Ţar er spilađ klassískt rokk (classic rock) eins og enginn sé morgundagurinn.  Eđa ţannig.  Jú...eđa...sko...annađ kvöld er Sunnudagshugvekja.  Nánar tiltekiđ á milli klukkan 19.00 og 21.00.  Ţađ er tvískiptur ţáttur.  Fyrri klukkutímann spila ég valin rómantísk og vćmin vel ţekkt klassísk rokklög.  Ţađ kemur ekki til greina ađ lögin verđi óvalin.  Ég á eftir ađ taka ţau til.  Mér ţykir líklegt ađ ţađ verđi eitthvađ á línunni Led Zeppelin-Deep Purple-Black Sabbath.  Ekki endilega međ ţessum hljómsveitum.  En eitthvađ í svipuđum stíl.  Ég reyni ađ spila lög sem ég hef ekki ţegar heyrđ spiluđ á Nálinni.  Ég reyni. 

  Í seinni hluta ţáttarins spila ég íslensk lög í bland viđ "heimspopp".  Ég hallast frekar ađ íslenskum lögum sungnum á íslensku.  Ţađ er asnalegt ađ heyra Íslendinga syngja á útlensku fyrir Íslendinga.  Á ţessu augnabliki veit ég ekki hvort lögin verđa međ Trúbroti,  Mánum,  Óđmönnum eđa öđrum úr ţeirri deild.
  "Heimspoppiđ" verđur ekki bundiđ viđ ţađ sem kallast "World Music".  Ţađ verđa öllu frekar lög međ alţjóđlegu yfirbragđi en sungin á móđurmáli flytjandans.  Ţetta geta veriđ lög sungin á tyrknesku,  japönsku,  frönsku,  portúgölsku,  grćnlensku,  pólsku eđa hvađa tungumáli sem er.  Flott lög.  Ţađ er máliđ á Nálinni fm 101,5.
  Kannski getur veriđ gaman ađ vera međ fasta liđi í hverjum ţćtti.  Til ađ mynda pönkklassík vikunnar,  reggílag ţáttarins og skrítna lagiđ.  Pönkklassíkin er ţá sótt í smiđju ţekktustu laga pönkbyltingar áttunda áratugarins.  Reggílagiđ er ţá ekta jamaískt (ekki Eric Clapton eđa UB40 ađ spila Bob Marley né annađ enskt reggí-popp).  Skrítna lagiđ getur veriđ eitthvađ ţar sem flytjandinn tekur músíkina öđrum tökum en venja er međ hefđbundin popplög.  Ţađ rćđst af viđbrögđum hlustenda hversu langlífir ţessir föstu dagskrárliđir verđa.  Ţar fyrir utan verđ ég ekki einn međ ţáttinn í framtíđinni.  Sigvaldi heitir mađur sem deilir ţćttinum međ mér eftir ţennan fyrsta ţátt.  Ég veit ekki hverjar hans pćlingar eru međ ţáttinn.  
 
  Hćgt er ađ hlusta á Nálina á netinu:  .http://media.vortex.is/nalinfm
.
       

Ćđislega flottur útvarpsţáttur

  Gunni "Byrds" fór á kostum í útvarpsţćttinum  Fram og til baka og allt í kring  á Nálinni fm 101,5 á milli klukkan 11.00 til 13.00 í dag (sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1082979/) .  Lagavaliđ var fjölbreytt og spennandi.  Í bland voru lög sem hafa sjaldan eđa aldrei heyrst í útvarpi og önnur sem langt er síđan ómuđu í útvarpinu.  Ţátturinn verđur endurspilađur, ja,  vonandi sem oftast.  Ég er ekki klár á hvenćr.  Sennilega í kvölddagskrá nćstu daga.

  Gunni byrjađi bratt á hörđum blúslögum međ Eric Clapton og John Mayall.  Síđan tóku viđ kántrý-skotin lög međ Gram Parsons og fleirum.  Blondie og Jethro Tull fylgdu í kjölfariđ;  Tom Petty,  Bob Dylan,  Gene Clarke,  Elvis Costello og Manfred Mann.  Áhugaverđur samanburđur var gerđur á flutningi The Byrds og senegalska tónlistarmanninum Yousso N´Dour á lagi Bobs Dylans  Chimes of Freedom.  Gullmolinn var fyrsta The Clash lagiđ,  Rock and Roll Time  af meistaraverkinu  Cardiff Rose  međ Roger McGuinn.   Ţetta magnađa rokklag sömdu ţeir Roger og Kris Kristofferson saman.  Ţví miđur er lagiđ ekki ađ finna á ţútúpunni. 

  Í kynningum á milli laga fylgdu ýmsir fróđleiksmolar.  Ţađ verđur spennandi ađ fylgjast međ nćstu ţáttum Gunna "Byrds" á milli klukkan 11.00 og 13.00 á laugardögum á Nálinni fm 101,5.  Eftir ţáttinn brugđum viđ Gunni okkur á Bar 46 á Hverfisgötu.  Ţá brá svo viđ ađ ýmsir gestir stađarins höfđu hlustađ á ţáttinn.  Nálin virđist ţví vera strax međ ágćta hlustun.

  Einn gestur,  Ólafur Haukur (ekki Símonarson en Dylan-fan og skólagenginn í Varmahlíđ í Skagafirđi),  sagđist hafa náđ Nálinni illa á útvarpstćki sitt.  Hann skellti sér ţá á netiđ,  http://media.vortex.is/nalinfm,  og hlustađi á hreina og tćra útsendingu ţar. 

 


Íslenskur lífvörđur Eivarar

sigurđur ívarsson

  Fyrir nokkru upplýsti ég á bloggi mínu um Íslending sem stendur í ţeirri trú ađ ţau fćreyska álfadrottningin Eivör séu par eđa hjón.  Ţetta vakti mikla athygli.  Enda sérkennilegt mál.  Eivör reyndi - án árangurs - ađ fá sett á hann nálgunarbann.  Međal annars vegna ţess ađ hann hefur:  Tjaldađ í garđinum hennar í Götu í Fćreyjum;  kveikt einskonar "áramótabrennu" á ströndinni fyrir neđan húsiđ hennar;  hótađ umbođskonu hennar ađ kveikja í húsi henni og svo framvegis.  Hann stendur í ţeirri trú ađ umbođskonan standi í vegi fyrir hjónabandi hans og Eivarar.  Hann hefur skrifađ Eivöru allt upp í 10 bréf á dag og tjáđ sig um ţau á fćreyskri spjallrás (ţeim skeytum var eytt af rásinni).  Ađ auki dúkkar hann upp á hljómleikum Eivarar í Fćreyjum,  Danmörku og Íslandi. 

  Ţessi mađur er ţađ sem á ensku kallast "stalker" og hefur veriđ ţýtt á íslensku sem eltihrellir.  Margir,  bćđi í Fćreyjum og hérlendis,  hafa RANGLEGA,  ruglađ umrćddum manni saman viđ annan Íslending.  Sá hefur tekiđ ađ sér ţađ hlutverk ađ vera lífvörđur Eivarar,  án hennar beiđni.  Sjálfbođaliđi og öllu vanur.  Hann hefur tekiđ í hnakkadrambiđ á eltihrellinum í Fćreyjum og hótađ honum.

  Á Fćreyskum fjölskyldudögum passađi umrćddur upp á Eivöru eins og sjáaldur auga síns.  Hann var hvarvetna á varđbergi gagnvart ţví ađ eltihrellirinn myndi skjóta upp kolli ţar;  kannađi allar mögulegar útgönguleiđir ţar sem Eivör var stödd,  skannađi stöđugt gestafjöldann í leit ađ varhugaverđum eltihrellum og annađ í ţeim dúr.

  Lífvörđurinn er duglegur viđ ađ setja yfirlýsingar á fésbókina;  ýmist eru ţađ skilabođ til Eivarar eđa Björgólfsfeđga.  Ég skil ţau ekki öll alveg.  Enda fattlaus.  Í einum skilabođunum upplýsti hann Eivöru um ađ hann vćri búinn ađ upplýsa lögregluna í Svíţjóđ um íslenska eltihrellinn.  Ég skildi ţessa tilkynningu.  Og sumar ađrar.  Í yfirlýsingunni sagđi einnig ađ sćnska lögreglan myndi gćta Eivarar eftir ađ hafa fengiđ ţessar upplýsingar.  Í kjölfar rosalega flottra hljómleika á Stokkseyri fór Eivör beint í hljómleikahald í Svíţjóđ. 

  Hér eru nokkrar yfirlýsingar af fésbók lífvarđarins: 

  "EIVOR PÁLSDÓTTIR THE BEST IN THE WORLD"

  "Gud blessi tig tu hefur líferdi í sviđtjód tad er orderad eđa klart eg hef gert tad klart svo tú ert örugg eivor palsdóttir.kvedja.svanur ivarsson.syngdu med hjartanu.gud veri hja ter"

"BJORGÓLFUR THOR BJORGÓLFSSON
$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$...ÁFRAMM MED ŢIG...$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$..."

.
  "GUĐ BLESSI ŢIG" (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "ŢÚ ERT GULLMOLI TÓNLEIKAR ŢÍNIR VORU GJÖRSAMLEGA Á HEIMSMĆLIKVARĐA"
 
  "HAFDU TAD GOTT GULLMOLI FĆREYJAR EG VAR AD TALA VIL LOGREGLUNA I THORSHAVN BAD HANA AD HAFA SAMBAND VID LOGREGLUNA I SVITJOD SVO TU ATT EKKI AD TURFA AD OTTAST NEITT"
.
  "(ÓSKABARN ÍSLANDS)%%%%%%%%%%( BJORGÓLFUR THOR BJORGÓLFSSON )%%%%%%%%%%%%%"
.
  "BEST BEST BEST BEST BEST IN THE WORLD"  (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "(BJÖRGÓLFUR)(THOR)(BJÖRGÓLFSSON)  EKKI BORGA EINA KRÓNU TIL ÍSLANDS EKKI EINA KRÓNU."
.
  "LANDSBANKINN SKAL OPNA Á STOKKSEYRI"  (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "HEILL OG SĆLL BJÖRGÓLFUR THOR MIG LANGAR TIL AĐ SETJA TIL ŢÍN ÁBENDINGU UM AĐ ALLAR RENNUR LANDSBANKANS ERU STÍLFLAĐAR ŢAĐ ER EKKI AĐ VIRKA FINNBJÖRN OG ÉG ERUM AĐ FARA AD KAUPA VINNULYFTU FRÁ VINNULYFTUM GARĐABĆ"
.
  "VEGNA VANŢAKKLĆTIS SKAL BJÖRGÓLFUR (THOR) BJÖRGÓLFSSON (EKKERT) (BORGA) AF (SÍNUM SKULDUM)"

    


Nálin komin á flug

Gunni-Byrds

  Splunkuný útvarpsstöđ fór í loftiđ um helgina.  Stöđin heitir Nálin og er í eigu Útvarps Sögu.  Útvarpsstjóri Nálarinnar er Einar Karl,  sonur Arnţrúđar Karlsdóttur útvarpsstjóra Útvarps Sögu.  Nafniđ Nálin er tilvísun í algengt orđatiltćki ţeirra sem spiluđu (og spila ennţá) vinylplötur.  Sagt er ađ ţessi eđa hin platan sé undir nálinni.  Nafniđ Nálin vísar ţannig til daga vinylplötunnar áđur en geisladiskurinn kom til sögunnar.  Músíklína Nálarinnar spannar einmitt klassíska rokkiđ frá gullaldarárum Lp-vinylplötunnar. 

  Hugtakiđ "klassískt rokk" er notađ yfir rokk hippaáranna (´67-´72) og skylda músík.  Eldri rokklög á borđ viđ  You Really Got Me  međ The Kinks (1965),  Like a Rolling Stone  međ Bob Dylan (1965) og  Wild Thing  međ The Troggs (1966) eru dćmigerđ "klassík rokk" lög. 

  Ţungarokk hljómsveita eins og Deep Purple og Black Sabbath er "klassík rokk".  Einnig fyrstu vinsćlu pönkslagararnir (Sex Pistols,  The Clash...).  Harđara og ţyngra rokk (death metal,  svartmálmur,  harđkjarni,  speed-metal,  ţrass-metall) telst aftur á móti ekki til "klassík rokks".  Heldur ekki grugg (grunge) tíunda áratugarins.  Né heldur gamla rokk og ról sjötta áratugarins.  Nema ţegar gömlu rokk og ról lögin eru krákuđ (cover) af yngri rokkurum međ "fössuđum" gítarhljóm og ţess háttar.

  Ţađ sem ég hef heyrt á Nálinni lofar afskaplega góđu.  Ţar á bć eru engir talibanar sem rígbinda lagavaliđ viđ Hendrix,  Joplin og Doors.  Lagavaliđ er kryddađ međ gömlum blús,  afrískri sveiflu og ýmsu öđru áhugaverđu.

  Á morgun,  laugardag,  á milli klukkan 11.00 og 13.00 verđur spennandi ţáttur á Nálinni.  Hann er í umsjón snillingsins Gunna "Byrds" (Gunnar Gunnarsson).  Gunni var lengi kenndur viđ verslunina Faco.  Ţar var hann verslunarstjóri hljómplötu- og hljómtćkjadeildar.  Hann vann líka í Japis og fleiri slíkum búđum. 

  Gunni er hafsjór af fróđleik um músík og segir lifandi og skemmtilega frá.  Hann sá í gamla daga um músíkskrif í Tímanum og síđar í Dagskrá vikunnar.  Ţađ sem gerir ţáttinn hans á Nálinni einnig forvitnilegan er ađ kappinn á risastórt plötusafn sem hefur ađ geyma fjölda sjaldgćfra platna.  Nćsta víst er ađ hlustendur eiga eftir ađ heyra hjá honum ýmsar perlur sem ţeir hafa aldrei heyrt áđur.  Lög međ ţekktum flytjendum í öđruvísi útsetningu en mađur á ađ venjast;  allskonar "rare" og "out takes" og "alternative versions"...

  Mig minnir ađ ţátturinn hans Gunna heiti  Fram og til baka.  Eđa eitthvađ svoleiđis,  sem gefur til kynna ađ hann fari um víđan völl.  Ég ćtla ađ kíkja inn í ţáttinn og spjalla um annan ţátt á Nálinni.  Sá er á dagskrá á sunnudagskvöldum á milli klukkan 19.00 og 21.00.

   Nálin sendir út á fm 101.5.

 gunni--byrds   


Góđur nágranni

húsamálun - mistök

  Nćsta hús viđ hliđina á mér er skemmtilega afgirt međ steyptum vegg.  Ofan á honum er trérimlagirđing.  Í gćr og fyrradag stóđ eldri kona í ströngu viđ ađ sparsla upp í vegginn,  mála hann og trérimlagirđinguna.  Konan á heima í húsinu.  Steypta vegginn málađi hún hvítan en trérimlagirđinguna brúna.  Ţarnćsta hús er afgirt međ samskonar vegg og trérimlagirđingu.  Í morgun brá svo viđ ađ konan var kófsveitt viđ ađ sparsla upp í vegg nágrannans.  Er ég gekk framhjá spurđi ég konuna hvort hún ćtlađi ađ fara ađ mála fyrir nágrannana.

  Jú,  hún sagđist ćtla ađ gera ţađ.  

  "Ţegar ég var búin ađ mála hjá mér átti ég eftir nóg af málningu,"  útskýrđi hún.  "Ég bankađi upp hjá nágrönnunum og spurđi hvort ég mćtti ekki mála hjá ţeim líka.  Ţađ er skemmtilegt ađ hafa báđar girđingarnar málađar í sömu litum.  Nágrannarnir tóku vel í ţetta.  Enda ekki vanţörf á ađ flikka upp á ţetta hjá ţeim."

  "Ţađ er kraftur í ţér,"  varđ mér ađ orđi.

  "Mig munar ekkert um ţetta,"  svarađi konan.  "Veđriđ er svo gott og mér ţykir ţetta ekkert leiđinlegt." 

  Ljósmyndirnar sem fylgja ţessari fćrslu eru útlenskar.  Ef vel er ađ gáđ sýnir efri myndin mann detta ásamt málningarfötu og annar á jörđu niđri flýja.  Hann virđist ekki vilja fá málningarfötuna yfir sig.  Ég veit ekki af hverju.  Ţađ er hressandi ađ fá málningarfötu yfir sig.

húsamálun


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.