3.8.2010 | 10:51
Ríkisstjórnin sprungin!
Í síđustu viku birti sunnlenska fréttablađiđ Dagskráin viđtal viđ frćgasta sjáanda landsins, Láru Ólafsdóttur á Selfossi. Viđtaliđ er gríđarlega merkilegt. Enda er Lára gríđarlega merkileg. Ţó viđtaliđ sé stutt er ţađ hlađiđ stórum bombum. Sú stćrsta er fullyrđing Láru um ađ ríkisstjórnin springi í ţessari viku vegna Magma málsins. Á morgun er miđvikudagur. Ţannig ađ ríkisstjórnin er sprungin varla síđar en á föstudag. Hvađ tekur ţá viđ? Nú reynir á nćstu sýn eđa skynjun Láru.
Til viđbótar er Lára búin ađ finna olíu á hafsbotni á Vestfjörđum, viđ Grímsey og í Vestmannaeyjum á sömu slóđ og Guđlaugur Friđţjófsson synti á sínum tíma. Sérstakt fagnađarefni er ađ olían skuli vera á hafsbotni á Vestfjörđum. Ef hún vćri ofar hafsbotni eru fiskimiđin fyrir vestan ónýt.
Ekki nóg međ ţađ. Til fjölda ára hefur Lára veriđ á fullu í ađ finna Madeleine McCann, litlu stelpuna sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal voriđ 2007. Lára hefur fundiđ út ađ Madeleine sé á lífi. Lára á bara eftir ađ stađsetja hvar stelpan er stödd. Hugsanlega er stelpan á meiri hreyfingu en svo ađ hćgt sé ađ stađsetja hana.
Lára varđ heimsfrćg um allt Ísland ţegar hún spáđi fyrir um rosalegan Krísavíkurskjálfta sem átti ađ skella á klukkan korter yfir ellefu 27. júlí sama ár. Spáin var pínulítiđ ónákvćm. Ţađ eina sem gerđist var ađ heimskasta fólkiđ á Suđurlandi skalf úr hrćđslu og flúđi til annarra landshluta. Ađrir á meintu skjálftasvćđi skulfu líka af áhyggjum og keyptu skjálftaheld hús. Svo heppilega vildi til ađ fyrir tilviljun átti Lára nokkur slík á lager.
Spádómsgáfa Láru er ekki alveg á hreinu. Stundum er Lára skráđ sjáandi. Í öđrum tilfellum segist hún ekki sjá sýnir heldur skynji hún ýmsa hluti. Ţá bregđur hún viđ skjótt og skráir skynjanirnar samviskusamlega í stílabók sem hún hefur merkt "Draumar mínir og skynjanir".
Einhverra hluta vegna hefur Lára ekki tekiđ bođi James Randi sem var staddur hérlendis á dögunum. Hann býđst til ađ greiđa Láru 12 og hálfa milljón krónur ef hćfileikar hennar verđa sannreyndir međ einföldu prófi.
Hér er létt og hressandi útvarpsspjall viđ sjáandann sprćka um hinn rosalega öfluga meinta Krísavíkurskjálfta: http://blogg.visir.is/frostiloga/2009/07/29/loddari-afhjupa%C3%B0ur-i-beinni/
![]() |
Björk: Magma vinnur međ AGS |
Tenging viđ ţessa frétt hefur veriđ rofin vegna kvartana. |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (41)
2.8.2010 | 18:42
Mikilvćgt ađ leiđrétta
Í gćr bloggađi ég um glađvćra og ofur hamingjusama gesti á hinum frábćrlega skemmtilegu Fćreysku fjölskyldudögum á Stokkseyri (sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1081699/ ). Ţar hélt ég eftirfarandi fram: "Ţađ hefur ekki einu sinni komiđ upp sú stađa ađ menn séu ósammála um eitt né neitt"
Vegna trúverđugleika ţessarar bloggsíđu sé ég mig knúinn til ađ leiđrétta ţetta. Í gćr hitti ég nefnilega Fćreying sem hafđi ađra sögu ađ segja. Hann var í fótboltaliđi Fćreyinga sem keppti viđ Íslendinga á laugardaginn á íţróttavelli Stokkseyrar. Ţessi mađur fullyrti ađ Íslendingar hafi veriđ rangstćđir allan leikinn. Ađrir voru ósammála honum.
Hér eru nokkur eftirminnanleg atriđi úr leiknum:
Íţróttir | Breytt 3.8.2010 kl. 01:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
1.8.2010 | 17:02
Hvađ ţá međ Fćreyska fjölskyldudaga? Hápunkturinn er í kvöld!
Gríđarlega undrun vekur hvađ gestir ţjóđhátíđar í Vestmannaeyjum eru prúđir og stilltir. Ţađ hafa ekki komiđ til kasta lögreglu nema 32 fíkniefnamál. Kćrđar líkamsárásir eru nokkuđ fćrri. Fjölmiđlar standa á öndinni yfir ţessari friđsćld í Eyjum. Hvernig er ţá hćgt ađ lýsa stemmningunni á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri? Ţar hafa ekki komiđ upp nein mál: Ekkert dóp, engin slagsmál. Ţađ hefur ekki einu sinni komiđ upp sú stađa ađ menn séu ósammála um eitt né neitt. Ţvert á móti. 500 gestir Fćreyskra fjölskyldudaga eru algjörlega samstíga í ađ skemmta sér saman í glađvćrđ undir hverju frábćra tónlistaratriđinu á fćtur öđru.
Í kvöld er hápunktur Fćreyskra fjölskyldudaga. Hann hefst á hljómleikum Högna og hljómsveitar. Högni sló rćkilega í gegn hérlendis fyrir fjórum árum međ laginu Morning Dew. Ţađ var vinsćlasta lagiđ á Íslandi vikum saman. Vinsćldunum fylgdi Högni eftir međ fleiri lögum og hljómleikum á Íslandi. Síđar spilađi hann tvívegis á Airwaves.
Högni nýtur velgengni í Danmörku, Sviss og víđar. Í heimalandinu, Fćreyjum, er hann stórstjarna. Ţar var platan Morning Dew valin plata ársins. Högni hefur a.m.k. tvígeis spilađ á Hróarskeldu. Og alltaf hlotiđ afbragđs góđa dóma fyrir frammistöđuna. Ţrátt fyrir ađ plötur Högna séu góđar ţá er hann ennţá betri á sviđi. Spilagleđin er svo mikil ađ međspilarar og áheyrendur fara á flug.
Hljómleikar Högna hefjast klukkan 9. Eftir ađ ţeim lýkur tekur viđ ţjóđlagadanshljómsveitin Kvonn. Ţetta er mögnuđ hljómsveit undir forystu 26 ára fiđlusnillingsins Angeliku Nielsen (nafniđ Angelika ţýđir kvönn).
Svo er komiđ ađ hljómleikum Eivarar og hljómsveitar. Ţau voru einnig međ hljómleika í gćr. Meiriháttar frábćra hljómleika. Ég hef sennilega veriđ á hátt í 30 hljómleikum međ Eivöru. Hún hefur aldrei veriđ betri og hljómsveitin hennar er stórkostleg. Ţau fóru á ţvílíkum kostum ađ salurinn stóđ ítrekađ á öndinni hvort sem var undir ofurfallegum köflum eđa ţrusufössuđu gítarrokki ţar sem rokkgírinn var settur í fluggír. Er hljómleikunum lauk í gćr mátti heyra marga segjast vera strax byrjađa ađ hlakka til hljómleikanna í kvöld.
Dagskrá Fćreyskra fjölskyldudaga lýkur međ svokölluđum "All Star" dansleik. Ţar munu 16 fćreyskir tónlistarmenn halda uppi ţrumustuđi fram á nótt. Ţeirra á međal verđa Eivör, Högni, Jens Lisberg, Hilmar Joensen, Kristian Blak og Árni Andreasen. Ţetta verđur einstakt tćkifćri til ađ sjá Eivöru og Högna syngja allt öđru vísi stuđmúsík en fólk á ađ venjast međ ţeim.
![]() |
Óvenju ţćgir ţjóđhátíđargestir |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
31.7.2010 | 12:15
Stuđ og fjör á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri
Fćreyskir fjölskyldudagar á Stokkseyri fóru vel af stađ í gćrkvöldi. Um 200 manns skemmtu sér heldur betur vel á dagskrá sem samanstóđ af mögnuđum hljómleikum hljómsveitarinnar Kvonn, kennslu í fćreyskum dönsum og dansleik fram á nótt.
Hljómsveitin Kvonn spilar dansvćna ţjóđlagamúsík án söngs (instrumental). Fćrni hljóđfćraleikaranna og spilagleđi naut sín til hins ýtrasta. Gestir klöppuđu vel og lengi eftir flutning hvers lags. Einnig klöppuđu gestir óumbeđnir taktinn međ í flutningi fjörmestu laganna. Í lokin var Kvonn klöppuđ upp.
Kvöldiđ einkenndist af glađvćrđ og skemmtilegheitum.
Í dag og á morgun eru ađal dagar Fćreysku fjölskyldudaganna. Hápunkturinn eru hljómleikar Eivarar og hljómsveitar í kvöld og annađ kvöld.
Klukkan hálf 2 eftir hádegi keppa Fćreyingar og íslenskir víkingar í fótbolta á íţróttavelli Stokkseyrar. Klukkan 4 eru stórtónleikar međ Yggdrasil. Ţađ er áratuga gömul hljómsveit sem spilar blöndu af djassi og ţjóđlagakenndri músík. Eftir Yggdrasil liggja margar plötur og hljómsveitin hefur spilađ á djass- og ţjóđlagahátíđum víđa um heim.
Eftir hljómleika Yggdrasil tekur viđ kennsla í fćreyskum dönsum.
Kvölddagskrá hefst klukkan 9 međ hljómleikum Benjamins Petersen. Međ honum spilar bassasnillingurinn Mikael Blak. Ţví nćst stígur hljómsveitin Kvonn á stokk. Svo eru ţađ Eivör og hljómsveit. Mikill spenningur ríkir fyrir ţeim hljómleikum.
Síđan verđur dansađ fram á rauđa nótt viđ undirleik og söng stuđboltans Jens Lisbergs og hljómsveitar. Ţvílíkt fjör.
Ţađ er einmuna veđurblíđa á Stokkseyri. Sólin skín, blankalogn og ţurrt. Gestum fjölgar jafnt og ţétt. Allir eru glađir.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
Ţó dagskrá Fćreyskra fjölskyldudaga á Stokkseyri hefjist ekki fyrr en klukkan 20.00 í kvöld er fólk fariđ ađ streyma til Stokkseyrar. Ţegar hafa á annađ hundrađ manns komiđ sér fyrir á góđu tjaldstćđi stađarins og bćtist stöđugt viđ. Enda veđur einstaklega gott á Stokkseyri. Sól, logn og ţurrt.
Sjálfur er ég og minn kunningjahópur svo spenntur fyrir fćreysku dagskránni ađ okkur halda engin bönd. Ţrátt fyrir annir í bćnum verđur ţví slegiđ upp í kćruleysi og brunađ til Stokkseyrar á nćstum ţví löglegum hrađa.
Um dagskrána í kvöld má lesa hér: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1081185/ .
Dagskráin í heild er hér: http://www.stokkseyri.is/web/news.php?nid=4934&view=one .
Tónlist | Breytt 31.7.2010 kl. 11:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
29.7.2010 | 23:22
Fjöriđ er ađ hefjast!
Ţađ er dálítiđ misjafnt eftir hvernig fjöri fólk sćkist um verslunarmannahelgina. Í Vestmannaeyjum er Ţjóđhátíđin alveg ađ detta inn. Ţar flýtur allt í dópi og lögreglan hefur ţegar ţurft ađ taka á sex fíkniefnamálum (ađ kvöldi fimmtudags) og nóg eftir. Slagsmálin eru einnig hafin. Ţegar hafa fjórar líkamsárásir veriđ kćrđar. Ofurölvun og drykkjulćti eru allsráđandi. Ţessi stemmning á viđ marga. Ađrir sćkja í annarskonar fjör. Allt annarskonar fjör.
Dagskrá fćreyskra fjölskyldudaga hefst klukkan 20.00 annađ kvöld á Stokkseyri. Ţetta er annađ áriđ sem Fćreyskir fjölskyldudagar eru haldnir á Stokkseyri. Ţađ er samdóma álit allra ađ afskaplega vel hafi til tekist í fyrra. Ekki eitt einasta mál kom upp. Engin fíkniefni. Engin slagsmál. Ekki einu sinni deilur. Bara rosalegt fjör alla helgina. Allir kátir og glađir og samstíga í ađ skemmta sér.
Annađ kvöld hefst fjöriđ í Menningarverstöđinni á Stokkseyri međ fćreyskri tónlist. Ţar á međal verđa hljómleikar međ hljómsveit Angeliku Nielsen, Kvonn.
Angelika er 26 ára gömul. Hún var og er undrabarn á fiđlu. Hún hefur spilađ međ mörgum helstu tónlistarmönnum Fćreyja. Hún er jafnvíg á djass, rokk, ţjóđlagamúsík, klassík og hvađ sem er. Hún hefur spilađ međ hljómsveitum út um allt. Međal annars í Asíu og Ameríku. Hún hefur til ađ mynda veriđ í sérstakri hljómsveit afburđahljóđfćraleikara frá öllum heimshornum. Ţar ađ auki er hún flinkur skrautskrifari. Ţađ veit alltaf á gott. Ţegar hún var 12 eđa 13 ára mćtti hún á skrautskriftarnámskeiđ hjá mér. 3ja daga námskeiđ. Hún missti af fyrsta deginum. En strax á öđrum degi var hún komin fram úr öllum samnemendum. Ţađ ţurfti varla ađ kenna henni. Hún greip alla leiđsögn í fyrstu atrennu og réđ fullkomlega viđ skrautskriftina. Ţađ kom engum sem til ţekkti á óvart. Hún var og er vön ađ dúxa í hverju sem er. Meira ađ segja frönsku.
Kvonn spilar "instrumental" ţjóđlagakennda dansmúsík (http://www.tutl.com/webshop/index.php?productID=288). Viđ af Kvonn tekur 6 manna hljómsveit Árna Andreasen. Í kjölfariđ kenna Hilmar Joensen og Gunnvör fćreyska dansa. Ţví nćst spilar 5 manna hljómsveit harmónikkusnillingsins Hilmars fyrir dansi (http://www.youtube.com/watch?v=gLEnKKtHxZc. Afsakiđ ömurleg tóngćđi myndbandsins). Hún flytur fjörmikla og kántrý-kennda stuđmúsík fram á rauđa nótt. Ţađ verđur gríđarmikiđ fjör.
Á laugardag og sunnudag bćtast viđ hljómleikar og dansleikir međ Eivöru, Högna, Yggdrasil, Jens Lisberg (sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1080345/) og fjölda annarra. Meira um ţađ síđar.
Tónlist | Breytt 30.7.2010 kl. 13:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
28.7.2010 | 00:14
Raunir mínar og sendibílstjóra
Ég á töluverđ samskipti viđ sendibílstjóra. Ţannig háttar til ađ ég fć međ óreglulegu millibili nokkur vörubretti af góđum vörum frá útlöndum. Ég ţarf ađstođ sendibíls međ lyftu og tjakktrillu til ađ sćkja vörubrettin á Vöruhóteliđ og koma ţeim á lagerinn til mín. Lagerhúsnćđiđ er ţannig stađsett ađ hann er í kjallara. Niđur ađ dyrunum er 15 - 20 metra langur hallandi rampur. Ég er ekki klár í ađ átta mig á halla. Ég giska á ađ hallinn sé um ţađ bil 20%. Mér finnst hann ekki vera brattur. Ég er vanur ađ bakka niđur rampinn á litla sendibílnum mínum til ađ sćkja vörur. Rampurinn er hinsvegar of mjór fyrir stóru sendibílana sem koma međ brettin. Ţeim bílum er lagt á jafnsléttu og bílstjórinn röltir međ brettin á trillu niđur rampinn.
Í dag var ţetta dálítiđ öđru vísi. Ţegar ég leiđbeindi bílstjóranum ađ ég ţurfi ađ fá vörubrettin niđur rampinn áttum viđ samtal á ţessa leiđ:
- Ég fer ekki niđur rampinn međ brettin, mótmćlti bílstjórinn.
- Nú?
- Já, ef ég fer niđur rampinn međ bretti ţá dett ég.
- Ţađ hefur aldrei veriđ neitt vandamál ađ fara međ bretti niđur rampinn. Ekki einu sinni í hálku á vetrum.
- Ungir strákar geta fariđ niđur rampinn án ţess ađ detta. Ég get hringt fyrir ţig í einhvern bílstjóra sem treystir sér til ţess. En ég dett í rampinum. Ţađ er alveg pottţétt.
- Ţađ dettur enginn í rampinum. Hann er ekki ţađ brattur.
- Jú, ég ţekki mig og ég hef fariđ niđur ramp. Ég datt. Ég ćtla ekki ađ detta aftur. Ég set brettin hér á planiđ og ţú getur ţá hringt í annan bílstjóra sem treystir sér niđur rampinn. Ţađ gćti orđiđ dýrt fyrir ţig ef ég fer niđur rampinn og dett.
Mikiđ lengra varđ samtaliđ ekki. Viđ ţetta sat. Bílstjórinn setti brettin út á plan. Nćstu klukkutíma dundađi ég mér viđ ađ selflytja vörurnar (á ţriđja tonn) af brettunum niđur rampinn og inn á lager međ ţví ađ hlađa ţeim á litla einskonar innkaupakerru sem ég á. Ţađ var hressandi líkamsrćkt. Ég sparađi mér ađ borga slysabćtur fyrir bílstjóra sem hefđi dottiđ í rampinum.
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
27.7.2010 | 07:49
Íslenskt lag á fćreyskri plötu
Fyrir nokkrum dögum kom út platan Syng ein góđan međ fćreyska stuđboltanum Jens Lisberg. Ţar flytur hann lagiđ Litli tónlistarmađurinn eftir Freymóđ Jóhannesson. Ţađ er ţekktast í flutningi Bjarkar Guđmundsdóttur á plötunni Gling gló. Í flutningi Jens Lisbergs heitir lagiđ Mamma. Jens Lisberg er í hópi vinsćlustu tónlistarmanna Fćreyja. Hann hefur sent frá sér á annan tug platna. Fjöldi laga hans hafa skorađ hátt á fćreyskum vinsćldalistum.
Sex manna hljómsveit Jens Lisbergs leikur fyrir dansi á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri núna um verslunarmannahelgina. Ţađ verđur mikiđ hopp og hí. Fjörlegir dansleikir eru sérsviđ Jens Lisbergs og félaga. Í bland viđ frumsamin lög og önnur vinsćl fćreysk lög flytur Jens Lisberg ţekkt bandarísk kántrý-stuđlög á borđ viđ Hello Mary Lou og Diggi, Liggy, Lo. Ţau syngur Jens viđ fćreyska texta eftir Karl Eli. Ţađ verđur heldur betur líf og fjör á dansgólfinu á Stokkseyri um helgina.
Hér má heyra sýnishorn af lögunum á plötunni Syng ein góđan. Lagiđ Mamma er nr. 10:
http://www.tonlist.is/Music/Album/536897/jens_lisberg/syng_ein_godan/
Hér má lesa meira um plötuna:
http://www.tutl.com/webshop/index.php?productID=477&PHPSESSID=2472besnacl4d2kc81g2n0itv3
Hér er hćgt ađ heyra fjögur lög sem Jens Lisberg syngur á ensku fyrir alţjóđamarkađ:
http://www.myspace.com/jenslisberg
Meira um Fćreyska fjölskyldudaga á Stokkseyri:
http://www.stokkseyri.is/web/news.php?nid=4934&view=one
Tónlist | Breytt s.d. kl. 08:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
25.7.2010 | 19:57
Furđulegur siđur Seltirninga
Stundum á ég leiđ um verslunarmiđstöđina á Eiđistorgi. Ég held ađ hún heiti ekki neitt en sé kölluđ Eiđistorg. Ţar er Hagkaup, banki, apótek, pósthús, pöbb, vínbúđ, ritfangaverslun og ýmislegt annađ. Ţarna er líka sjoppa. Fyrir framan sjoppuna, á gangi verslunarmiđstöđvarinnar, eru 3 borđ og nokkrir stólar. Eitt borđiđ er stćrra en önnur. Sennilega ćtlađ til ađ fólk standi viđ ţađ. Ađ minnsta kosti eru engir stólar viđ ţađ.
Svo gott sem daglega eru á ţessu stóra borđi nokkrir vettlingar og húfur. Bćđi vettlingapör og stakir vettlingar. Ég fatta ekki hvers vegna í ósköpunum Seltirningar geyma vetlinga sína og húfur á ţessu borđi, stundum dögum saman.
25.7.2010 | 15:57
Sjáđu fjöriđ á G!Festivali í Götu í Fćreyjum
Um síđustu helgi fór fram stćrsta árlega tónlistarhátíđin í Fćreyjum, G!Festivaliđ í Götu. Fulltrúar danska poppblađsins Gaffa létu sig ekki vanta á svćđiđ. Sjónvarpsdeild vefmiđilsins gerir grein fyrir G!Festivalinu í máli og myndum. Ţađ er gaman ađ skođa. Sjá:
Stuđ, stuđ, stuđ! Og fjöriđ verđur jafnvel ennţá meira á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri um nćstu helgi. Ţar verđa Eivör, Högni, Kristian Blak, Jens Lisberg, Angelika Nielsen og samtals hátt í tveir tugir fćreyskra tónlistarmanna.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
25.7.2010 | 04:48
Missiđ ekki af Rokklandi!
Rokkland á rás 2 er ţáttur sem helst má ekki missa af. Síst af öllu í dag. Ţó ţetta sé jafnan eđalflottur ţáttur undir styrkri stjórn snillingsins Óla Palla ţá verđur ţátturinn í dag extra eđalflottur og toppar flesta eđa jafnvel alla fyrri ţćtti Rokklands. Ţađ er nćsta víst. Um síđustu helgi var Óli Palli nefnilega - ásamt fjölda annarra Íslendinga - staddur á G!Festivali í Götu í Fćreyjum. Ţátturinn ber ţess sterk merki. Ljósmyndin í "haus" ţessa bloggs er frá G!Festivali fyrir örfáum árum.
Međal viđmćlenda Óla Palla í Rokklandi í dag verđa: Jón Tyril, forsprakki G!Festivals og gítarleikari Clickhaze; Eivör; hljómsveitin Páll Finnur Páll (sjá myndband hér fyrir neđan); Sigvör Laksá, umbođsmađur Eivarar; Kristian Blak, hljómborđsleikari og ađalsprauta fćreysks tónlistarlífs (sjá myndband hér fyrir neđan); íslensku hljómsveitirnar FM Belfast og Bárujárn; fćreyska ţungarokkssveitin Heljareyga sem er hliđarverkefni Hera, söngvara og gítarleikara Týs (sjá myndband neđsta myndbandiđ); hljómsveitin Áfenginn; Synarchy, danska hljómsveitin Nephew (sjá myndband hér efst) og margt fleira spennandi. Ţvílíkt fjör.
Rokkland er á dagskrá rásar 2 á milli klukkan 16.00 og 18.00. Eivör og Kristian Blak fara síđan á kostum á Fćreyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri um nćstu helgi - ásamt hátt í tveimur tugum annarra fćreyskra tónlistarmanna. Ţađ verđur meiriháttar gaman.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 05:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
24.7.2010 | 17:06
Gleđifrétt um samtakamátt fólks og skuldlausan Ómar
Fréttin um skuldlausan Ómar er gleđileg um margt. Í fyrsta lagi vegna ţess ađ Ómar er orđinn skuldlaus. Í öđru lagi sýnir hún ađ Íslendingar kunna ađ ţakka fyrir sig; hvort sem er fyrir framlag Ómars sem skemmtikrafts í hálfa öld eđa sem hugsjónarmanns er stendur međ náttúrunni; náttúru landsins. Ţetta geta Íslendingar ţegar á reynir. Magnađ.
![]() |
Ómar orđinn skuldlaus |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
23.7.2010 | 23:41
Var ég Baugspenni?
Síđustu daga hef ég ítrekađ veriđ spurđur ađ ţví hvort ég hafi veriđ Baugspenni. Til ađ byrja međ vissi ég ekki hvađan á mig stóđ veđriđ í veđurblíđunni. Viđ nánari eftirgrennslan kom í ljós ađ á vef sem kallast amx.is er eins og látiđ ađ ţví liggja ađ ég hafi yfirgefiđ klappliđ Baugsfeđga.
Ţar segir (http://www.amx.is/fuglahvisl/15316/) í inngangi:
"Bloggarar snúa nú hver á fćtur öđrum baki viđ Baugsfjölskyldunni og eru skrif eins ţeirra til marks um breytinguna. Jens Kristján Guđmundsson sem lengi vel var mest lesni bloggari vefsins blog.is skrifar nú um Jón Ásgeir:"
Inngangnum fylgir létt og skemmtileg bloggfćrsla sem ég skrifađi á dögunum: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1078288/
Viđ bloggfćrsluna hnýta smáfuglarnir á amx.is eftirfarandi:
"Smáfuglarnir taka ekki undir allt ţađ sem Jens segir í fćrslu sinni. En ţeir velta ţó fyrir sér hvort skrifin séu til marks um ađ nú styđji engir gamla Baugsveldiđ nema Ólafur Arnarsson, Ţorvaldur Gylfason og Ólafur Stephensen?"
Af ţessum orđum á amx.is má ráđa ađ ég hafi veriđ Baugspenni. Ég kannast ekki viđ neitt í ţá áttina. En ţađ er ekkert ađ marka. Ég kannast ekki viđ allt. Minniđ er stopult.
Í bloggfćrslu minni lagđi ég út af frétt RÚV um ađ Jón Ásgeir og systir hans deildu um undirskrift. Viđ ţađ er ţví ađ bćta ađ JÁJ sendi frá sér yfirlýsingu á Pressunni ţar sem hann vísar frétt RÚV á bug sem stađlausum stöfum. Segir ađ ţau systkini greini ekki á um neitt nema eignarrétt á nafninu Bónus.
Fréttastofa RÚV hefur ekki dregiđ frétt sína til baka og vitnar í greinargerđ lögmanns JÁJ ţar sem ţessu međ undirskriftina er víst haldiđ fram. jÁJ verđur klárlega ađ kćra lögmann sinn og fréttastofu RÚV til ađ hreinsa sig og systur sína af ásökunum um alvarlega glćpi.
Fjölmiđlar | Breytt 24.7.2010 kl. 00:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (17)
22.7.2010 | 22:28
Skúbb! Merkasta endurkoma hljómsveitar í rokksögu Íslands
Nei, ég er ekki ađ tala um Trúbrot. Endurkoma Trúbrots er jafn óraunhćf og endurkoma Bítlanna. Hljómborđssnillingurinn Karl Sighvatsson, trommusnillingurinn Gunnar Jökull og bassaleikarinn og söngvarinn Rúnar Júlíusson eru fallnir frá. Ég er ekki heldur ađ tala um Steina spil eđa Frostmark. Ég er ađ tala um hljómsveitina sem ađ margra mati var í bland "besta og merkasta" hljómsveit "Rokk í Reykjavík" senunnar, ŢEYR. Ég set "besta og merkasta" innan gćsalappa vegna ţess ađ pönkbyltingin snérist ekki beinlínis um ţađ besta og merkilegasta. Engu ađ síđur, já, sko... eđa ţannig.
Tónlist Ţeysara hefur elst assgoti vel (nema platan "Ţagađ í hel". Hún var ţöguđ í hel). Ađrar plötur Ţeysara eru í hópi bestu og merkustu platna íslensku rokksögunnar. Háđsádeila Ţeysara á nasisma dansađi á línunni og kom í veg fyrir ađ hljómsveitin fengi ţann hljómgrunn sem henni bar erlendis.
Gítarleikari Ţeysara, Guđlaugur Kristinn Óttarsson, og trommuleikari Ţeysara, Sigtryggur Baldursson, stofnuđu hljómsveitina Kukl og útrás íslenskra rokkara hófst fyrir alvöru:
Á dögunum birtist söngvari Ţeysara, Magnús Guđmundsson, í myndbandinu "Drápa":
23. ágúst sameinast hópurinn aftur og heldur hljómleika í Reykjavík. Meira um ţađ síđar.
Tónlist | Breytt 23.7.2010 kl. 13:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (23)
21.7.2010 | 23:02
Fćreyska álfadrottningin á afmćli
Bandaríski rithöfundurinn Ernest Hemingway á afmćli í dag. Einnig fjöldi tónlistarmanna. ţar á međal Bretinn Norman Cook (Fatboy Slim), bandaríski trommarinn Bill Berry (R.E.M.), breski trommarinn Will Champion (Coldplay), bandaríski djassgítaristinn Kenny Burrell og bandaríski djasspíanistinn Henry "Hank" Jones.
Ţetta liđ fellur allt í skuggann af fćreysku álfadrottningunni Eivöru. Hún er 27 ára í dag. Um verslunarmannahelgina skemmtir hún ásamt fjölda annarra fćreyskra tónlistarmanna á fćreyskri fjölskylduhátíđ á Stokkseyri. Ţađ verđur í fyrsta skipti sem Eivör skemmtir 27 ára á Íslandi. Eftir tvo eđa ţrjá mánuđi kemur út bók um hana. Til hamingju međ afmćliđ, Eivör!
Tónlist | Breytt 22.7.2010 kl. 01:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
19.7.2010 | 21:41
Kúvending hjá Baugssystkinum
Hingađ til hefur Baugsfjölskyldan veriđ afskaplega samheldin og samstíga í málflutningi. Ţađ hefur reynst henni öflugur styrkur ţegar á móti hefur blásiđ. Nú er hinsvegar ţrengt svo ađ Jóni Ásgeiri ađ hann kúvendir í stíl. Hann sakar systur sína um grófa skjalafölsun; ađ hafa án hans vitneskju falsađ nafn hans undir lánasamning vegna láns frá Glitni til eignarhaldsfélaginu 101 Chalet. Ţetta ţýđir ađ vitundarvottar á samningnum eru sömuleiđis ósvífnir glćpamenn.
Kristín, systir Jóns Ásgeirs, segir ţetta vera svívirđilega haugalygi. Ţađ er alvarlegt mál: Ađ lýsa ţví yfir ađ Jón Ásgeir sé ófyrirleitinn lygari.
Ţegar ţessi stađa er komin upp er full ljóst ađ annađ hvort ţeirra systkina er siđblind og forhert glćpamanneskja. Hver er meira í kókinu og hver er meira í diet kókinu?
![]() |
Systkinin ósammála |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Löggćsla | Breytt 20.7.2010 kl. 01:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (30)
19.7.2010 | 13:36
Górillur leika sér í "klukki"
BBC greinir frá ţví ađ rannsókn, sem gerđ var af háskólanum í Portsmouth, hafi leitt í ljós ađ górillur eigi ţađ til ađ bregđa sér í eltingaleik, samskonar ţeim sem krakkar stunduđu fyrir daga tölvuleikja. Ţetta er svokallađur "klukk" leikur. Ein górilla lćđist aftan ađ annarri og slćr létt í hana. Um leiđ hleypur sú górillan sem sló á harđaspretti út í buskann. Hin górillan eltir og reynir ađ "klukka" górilluna sem hóf leikinn. Ţegar ţađ tekst snýst hlutverkiđ viđ. Ţannig getur leikurinn haldiđ áfram um hríđ ţangađ til báđar górillurnar eru orđnar örmagna af ţreytu.
Górillurnar fara ekki í "klukk" ef ţćr halda ađ fólk sjái til. Rannsakendur háskólans í Portsmouth komust ađ ţessu er ţeir skođuđu myndbandsupptökur af górillum. Górillur og fleiri apategundir gera ýmislegt fleira ţegar ţćr halda ađ fólk sjái ekki til ţeirra. Meira um ţađ síđar. Ţangađ til er upplagt ađ sjá í myndbandinu hér fyrir ofan apa skemmta sér viđ ađ hrekkja tígrisdýr.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
18.7.2010 | 02:08
Svona býr íslenski sendiherrann í Fćreyjum
Fćreyingar eru áhugasamir um fallegan arkitektúr og fögur húsakynni. Öfugt viđ Íslendinga sem sćkja mest í ljótan arkitektúr og kunna engan veginn ţađ sem einkennir fćreyska byggingarlist: Ađ byggingar falli vel ađ umhverfinu.
Íslenski sendiherrann í Fćreyjum, Albert Jónsson, býr í afar fallegu húsi í Ţórshöfn. Svo skemmtilega vill til ađ konan hans, Ása Baldvinsdóttir, býr í sama húsi. Ennţá skemmtilegri tilviljun er ađ sonur ţeirra, Baldvin, er hljómborđsleikari Lokbrár.
16.7.2010 | 23:45
Hnefaleikakeppni aldarinnar
Ţađ stendur mikiđ til. Jói sleggja hefur skorađ á sjálfan sig í boxeinvígi aldarinnar. Ţađ hefur aldrei áđur ríkt jafn mikill spenningur fyrir hnefaleikakeppni. Hnefaleikahöllin er ţéttsetin. Ţađ er fyrir löngu síđan uppselt á bardagann.
Bćkur | Breytt 24.9.2010 kl. 20:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (34)
16.7.2010 | 11:21
Sólböđ gegn sykursýki, krabbameini, ţunglyndi, beinţynningu...
Sífellt hlađast upp sannanir fyrir ţví ađ sólböđ eru holl og góđ í flesta stađi. Hreint og klárt lífsnauđsynleg góđri heilsu. Engu ađ síđur stóđst Álfheiđur Ingadóttir ekki mátiđ á dögunum og festi í lög ađ Íslendingum undir 19 ára aldri sé stranglega bannađ ađ fara í sólbađ ađ viđlögđum háum fjársektum, fangelsun og eignarupptöku á sólkremum sem notuđ eru viđ lögbrotiđ.
Nú var sćnsk rannsókn ađ stađfesta ţađ sem margar eldri kannanir hafa bent til: Ađ sólböđ eru mikil og góđ vörn gegn sykursýki. Ţau draga úr líkum á sykursýki um 30%.
http://naturalnews.tv/v.asp?v=234
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1067220/
![]() |
Útlit fyrir gott helgarveđur |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)