12.9.2010 | 21:54
Lagalistinn í kvöld
Sunnudagshugvekjan var á dagskrá Nálarinnar fm 101,5 á milli klukkan 19.00 og 21.00 í kvöld. Það er eiginlega að komast hefð á að Sunnudagshugvekjan sé á dagskrá á sunnudögum á þessum tíma. Svo er hún endurflutt á föstudagskvöldum á sama tíma; á milli klukkan 19.00 og 21.00.
Sigvaldi Búi var tæknimaður og meðstjórnandi fyrstu vikurnar. En það er eins og það hitti illa á fyrir hann að mæta á þessum tíma. Að minnsta kosti spurðist ekkert til hans í kvöld. Sem betur fer greip ég með mér á síðustu stundu nokkrar aukaplötur. Til vara. Það kom sér aldeilis vel. Verra er að mig vantar meiri þjálfun á tækniborðið til að allt gangi eins og smurt fyrir sig. Í kvöld varð mér einhvern veginn á að ýta á takka sem slökkti á músíkinni. Það er gaman þegar svoleiðis gerist. En ennþá meira gaman þegar mér tókst að finna út hvað olli vandræðunum.
Þannig var lagalistinn í kvöld:
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083677/
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1085626/
Tónlist | Breytt 13.9.2010 kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.9.2010 | 17:15
Prinsippmaður
Ég var staddur á Hlemmi. Þar var blindfullur gamall maður að staupa sig úr koníaksfleyg. Annar gamall maður mætir á svæðið og þeir heilsast. Þeim nýkomna virðist hálf brugðið við að sjá vin sinn svona blindfullan. Hann spyr:
- Hvað er að sjá þig? Þú hefur verið að hæla þér af því að vera hættur að drekka.
- Ég er hættur að drekka, fullyrti hinn grafalvarlegur og sannfærandi. Einu undantekningarnar eru þegar ég horfi á leiki. Þá fæ ég mér örfáa öllara.
- Já, varstu að horfa á leikinn? Hvernig fór?
- Ég veit það ekki. Mér rann í brjóst í fyrri hálfleik. Leikurinn var búinn þegar ég rumskaði.
Spaugilegt | Breytt 12.9.2010 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.9.2010 | 22:03
Missið ekki af endurflutningi besta útvarpsþáttarins
Á morgun, á milli klukkan 11.00 og 13.00, verður besti útvarpsþátturinn endurfluttur á Nálinni fm 101.5. Fram og til baka og allt í kring með Gunna "Byrds" var frumfluttur í gærkvöldi. Í fyrri hluta þáttarins voru kynnt og spiluð gullkorn með The Byrds, Love og Neil Young með tilheyrandi fróðleiksmolum. Seinni hluti þáttarins var undirlagður umfjöllun um tónlist píanósnillingsins Guðmundar Ingólfssonar. Þar naut Gunni liðsinnis Birnu Þórðardóttur, ekkju og barnsmóður Guðmundar.
Það voru spiluð og fjallað um mörg lög með Guðmundi sem lítið hafa heyrst í útvarpi í bland við þekktari lög kappans. Þetta var virkilega flottur þáttur. Afar skemmtilegur og fróðlegur. Þau Gunni og Birna voru á góðu flug. Kát og hress að vanda. Meðal annars fór fram heimsfrumflutningur á ljóðalestri Birnu við undirleik magnaðs lags Guðmundar, Blús fyrir Birnu. Missið ekki af endurflutningnum. Þeir sem tök hafa á geta heyrt þetta á netinu með því að smella á http://media.vortex.is/nalinfm
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.9.2010 | 02:26
Skúbb! Færeyingar gefa út bók eftir íslensku forsætisráðherrafrúna
Það er aldeilis skemmtileg tilviljun. Núna hafa íslensku forsætisráðherrahjónin verið í opinberri heimsókn í Færeyjum. Á sama tíma er verið að raða í hillur færeyskra bókaverslana splunkunýrri bók glóðvolgri úr prentsmiðjunni. Bókin heitir Elskar - elskar ikki. Hún inniheldur sextán smásögur eftir 8 rithöfunda frá jafn mörgum löndum. Fulltrúi Íslands er Jónína Leosdóttir, eiginkona íslenska forsætisráðherrans, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Bókin er gefin út af Færeyska kennarasambandinu og verður meðal annars notuð við kennslu. Rauði þráðurinn í sögum bókarinnar er kærleikurinn. Nafn bókarinnar er sótt í sögu Jónínu, Elskar meg, elskar meg ikki.
Þingmaðurinn Jenis av Rana var spurður út í viðhorf hans til bókar sem inniheldur sögur eftir samkynhneigða konu, giftri annarri konu. Jenis er þekktur fyrir homo-fælni á háu stig og áhuga fyrir því að samkynhneigð sé lamin úr hommum. Þeim til bjargar frá því að kveljast í vítislogum um eilífð. Jafnframt hefur Jenis orðið uppvís af því að beita þöggun í barnaníði innan trúarsafnaðar sem hann veitir forstöðu.
Svar Jenis av Rana var að í Færeyjum ríki tjáningarfrelsi öllum til handa öðrum en Jenis av Rana.
![]() |
Dýrasta bók í heimi boðin upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt 15.9.2010 kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.9.2010 | 19:03
Færeysk skoðanakönnun um samkynhneigð
Í umræðunni vegna ummæla Jenis av Rana um íslenska forsætisráðherrann hefur borið á því að samasemmerki sé sett á milli færeysku þjóðarinnar og Jenis av Rana. Meðal annars hefur verið vísað til þess að tveir aðrir formenn færeyskra lögþingsflokka hafi sýnt Jenis av Rana samstöðu með því að mæta ekki heldur í kvöldverðarboð sem íslenska forsætisráðherranum var haldið í Kirkjubæ. Þar með hafi einungis 3 af formönnum 6 lögþingsflokkanna snætt kvöldverð með Jóhönnu og maka hennar.
Hér með skal það leiðrétt að fjarvera umræddra 2ja formanna hafði ekkert að gera með afstöðu Jenis av Rana. Formaður Fólkaflokksins var gestgjafi í öðru kvöldverðarboði á sama tíma. Það kvöldverðarboð var haldið fyrir Norrænu ráðherrasamstarfsnefndina. Það var sett á dagskrá löngu áður en tilkynnt var um heimsókn Jóhönnu til Færeyja.
Formaður Sjálfstýrisflokksins hefur upplýst að hann hafi ekki átt heimangengt af persónulegum ástæðum og tekur fram að það hafi ekki neitt að gera með íslenska forsætisráðherrann. Alls ekki.
Nú hefur í nokkra daga staðið yfir skoðanakönnun á netsíðu færeyska dagblaðsins Dimmalætting. Þar er spurt: Eigum við að leyfa samkynhneigðum að ganga í hjónaband?
Þegar þetta er skrifað hafa 16 hundruð atkvæði skilað sér í hús (jafngilda 10 þúsund atkvæðum á Íslandi, miðað við höfðatölu). Þannig eru tölurnar núna:
Já 68%
Nei 27%
Veit ekki 5%
Ef þú vilt fylgjast með hvort staðan breytist er slóðin www.dimma.fo .
![]() |
Ótrúlegir fordómar í Færeyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 11.9.2010 kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (80)
7.9.2010 | 23:09
Jenis av Rana skýtur sig í fótinn - II
Í næstu bloggfærslu hér fyrir neðan geri ég grein fyrir því hvernig Jenis av Rana hefur tapað tiltrú almennings í Færeyjum á málflutningi hans. Færeyingar almennt skammast sín fyrir öfgafullan málstað hans. Það er mikilvægt að halda því til haga. Gott dæmi um viðbrögðin er opið bréf guðfræðingsins Árna Zachariassen til Jóhönnu Sigurðardóttur. Sjá: http://www.arnizachariassen.com/ithinkibelieve/?p=1187
Árni er virtur blaðamaður á dagblaðinu Dimmalætting (færeyska Mogganum). Færeyska áfladrottningin Eivör hefur hingað til ekki verið yfirlýsingaglöð á opinberum vettvangi um pólitík eða trúarmál. Nú er henni nóg boðið. Hún hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu á fésbók sem útleggst: "Ég set sjaldan hér inn yfirlýsingar en Jenis fær mig til að fyllast af skömm fyrir að vera Færeyingur!!!!!!":
Eg skrivi sjálvdan slíkar viðmerkingar inni her, men Jenis far meg at føla skomm yvir at vera føroyingur!!!!!!
![]() |
Danir blása Jenis-málið út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 8.9.2010 kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (58)
7.9.2010 | 19:04
Jenis av Rana skýtur sig í fótinn
Á síðustu 4 árum hefur orðið gríðarleg viðhorfsbreyting í Færeyjum gagnvart samkynhneigðum. Vendipunkturinn var þegar gítarleikari rokksveitarinnar Makrel, Rasmus Rasmussen, varð fyrir fólskulegum barsmíðum nokkurra manna á skemmtistað. Ástæða barsmíðanna var sú ein að Rasmus er samkynhneigður og hafði ekki flúið land, öfugt við aðra samkynhneigða Færeyinga. Daginn eftir sætti Rasmus hótunum um frekari barsmíðar. Þegar fjölskylda Rasmusar óskaði eftir lögregluvernd kom í ljós að færeysk lög heimiluðu ofsóknir gegn samkynhneigðum.
Þetta vakti undrun og hneykslan víða um heim. Ekki síst á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Rannveig Guðmundsdóttir, þáverandi þingkona, tók málið upp á vettvangi Norðurlandaráðs. Geir Haarde, þá forsætisráðherra, Guðrún Ögmundsdóttir, þá þingkona, ég og ýmsir fleiri létu frá sér heyra í færeyskum fjölmiðlum.
Þetta var hörmulegur atburður. En nokkru skipti að Rasmus var vinsæll og virtur rokkari. Hafði spilað með flestum helstu rokksveitum Færeyja. Jafnframt stýrði hann eina alvöru rokkþættinum í færeysku útvarpi, Rokkstovunni. Færeyski tónlistarheimurinn snérist - eins og hann lagði sig - á sveif með Rasmusi. Ég endurtek: Eins og hann lagði sig. Einnig yngri kynslóðin að uppistöðu til. Ef einhver "no name" hommi hefði verið laminn er næsta víst að almenningsálitið í Færeyjum hefði ekki sýnt fórnarlambinu og málstaðnum sama stuðning.
Leikar fóru þannig að lögum í Færeyjum var breytt. Nú er óheimilt að ofsækja samkynhneigða. Jenis av Rana var fremstur í flokki þeirra sem börðust gegn nýju lögunum. Hann taldi áríðandi að hommar væru lamdir þangað til þeir myndu afhommast. Annars brenni þeir í vítislogum til eilífðar. Það er víst alveg hrikalegt helvíti. Jenis flaggaði í hálfa stöng ásamt trúfélögum sínum þegar nýju lögin voru samþykkt. Nú í haust hefur Jenis reynt að vinna fylgi frumvarpi þess efnis að nýju lögin verði afnumin. Nýjustu útspil hans hafa algjörlega komið í veg fyrir að þetta frumvarp hans eigi upp á pallborðið. Hann er búinn að girða rækilega í veg fyrir það. Hann er búinn að skjóta sig í fótinn.
Annað: Síðast þegar ég vissi var Rasmus kominn með kærasta í Færeyjum og sestur að á fámennri norð-austur eyju.
Enn annað: Í sumar hélt Elton John hljómleika í Færeyjum. Jenis brást við hart. Sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að Elton John væri samkynhneigður útsendari Satans. Ummælin vöktu meiri athygli í Danmörku en Færeyjum. Elton John nýtur hlutfallslega hvergi meiri vinsælda en í Færeyjum. Næstum 6 þúsund manns mættu á hljómleika Eltons í Færeyjum. Það jafngildir því að 40 þúsund manns myndu borga sig inn á hljómleika á Íslandi. Það hefur aldrei gerst. Metið hérlendis er þegar 18 þúsund mættu á hljómleika hjá Metallica. Númer 2 eru 12 þúsund sem borguðu sig inn á hljómleika Rammstein.
Hræðsla Jenis av Rana við Elton John og kenningin um að hann sé útsendari Satans varð aðhlátursefni í Færeyjum. Ef Jenis hefði fordæmt á sama hátt einhverja minna vinsæla poppstjörnu hefðu kannski fleiri samsinnt bullinu í honum.
Framkoma Jenis av Rana í garð forsætisráðherra Íslands hefur vakið hörð viðbrögð í Færeyjum. Hver þungavigtarmanneskjan á fætur annarri hefur stigið fram og fordæmt Jenis av Rana. Þar á meðal æðstu ráðamenn Færeyja. Færeyingar bera mikinn og einlægan hlýhug til Íslendinga og finnst Jenis av Rana sýna íslensku þjóðinni skammarlegan dónaskap. Ef Jenis hefði sýnt fulltrúa annarrar þjóðar sömu viðbrögð er alveg klárt að samlandar hans hefðu ekki brugðist eins harkalega við.
Jenis av Rana er í frekar lokuðum trúarsöfnuði. Ekki alls fyrir löngu komst upp að Jenis hafði beitt sér í þöggun á barnaníði innan safnaðarins. Einhverjir í söfnuðinum standa þétt við bakið á Jenis. Almenningur er hinsvegar hættur að taka mark á honum. Og jafnvel farinn að fyrirlíta hann og skoðanir hans. Og skammast sín fyrir kallinn. Sem þeir þurfa ekki að gera. Alls ekki. Færeyingar eru frábærir. Eitt og eitt skemmt epli breytir engu um það. Við Íslendingar getum alveg greint Jenis av Rana frá færeysku þjóðinni. En auðvitað erum við þakklát færeysku þjóðinni fyrir að láta okkur vita að Jenis sé ekki talsmaður hennar.
Myndin hér fyrir neðan er af Rasmusi og borgarstjóra Reykjavíkur, Jóni Gnarr.
![]() |
Gegn vilja Guðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
7.9.2010 | 02:39
Mikilvægt að vita
Randaflugur eru einhver krúttlegustu skordýr sem maður rekst á. Eða öllu heldur eru það randaflugurnar sem rekast á mann. Búkurinn á þeim er eins og þykkur loðinn hnoðri. Vængirnir virðast vera alltof litlir til að bera stóran búkinn. En það vita randaflugur ekki og fljúga á þrjóskunni einni.
Fyrir tveimur dögum flaug stór og pattaraleg randafluga inn um glugga hjá mér. Henni þótti gaman að skoða margt. Hún hafði aldrei séð tölvu áður. Sitthvað fleira þótti henni nýlunda og spennandi.
Ég reyndi að kenna henni á tölvu. En skilningsleysi randaflugunnar var þess eðlis að mér er til efa að hún muni nokkurn tíma ná tökum á tölvum. Að minnsta kosti mun hún aldrei skara fram úr á því sviði.
Aðra og miklu merkilegri uppgötvun gerði ég. Eins og þið vitið þá þykir hundum og köttum gott að vera klappað frá hnakka og aftur á bak. Þetta þykir randaflugunni aftur á móti ekki gott. Jafnvel frekar óþægilegt. En þegar henni er klappað í hina áttina, frá baki og fram á höfuð, þá kemur annað hljóð í strokkinn. Þá jaðrar við að flugan mali eða eiginlega eins og kumri. Þetta er mikilvægt að vita.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.9.2010 | 22:46
Lagalistinn í Sunnudagshugvekjunni
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083677/
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1085626/
Tónlist | Breytt 6.9.2010 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
5.9.2010 | 17:11
Heimsfrumflutningur í Sunnudagshugvekjunni í kvöld
Á slaginu klukkan 19.00 í kvöld hefst Sunnudagshugvekjan á Nálinni 101,5. Það verður nú meira fjörið. Alveg til klukkan 21.00 í það minnsta. Hvað í boði verður er óljóst á þessari stundu. Að mestu. Þó liggur fyrir heimsfrumflutningur í útvarpi á nýju íslensku lagi. Það er spennandi. Einhverjir fastir liðir skjóta upp kollinum að venju. Þar á meðal verða reggí-lag dagsins, pönk-klassíkin og skrýtna lagið. Skrýtna lagið er einkar áhugavert. Eins og reyndar yfirleitt.
Sigvaldi Búi býður væntanlega upp á sérvalda soul-perlu. Í heimspopphluta þáttarins hef ég grun um að við heyrum sungið á spænsku og fleiri áheyrilegum tungumálum. Mig langar til að heyra sungið á grænlensku. Kannski gengur það eftir. Og kannski kem ég líka með sparnaðarráð.
Óskalagið Fox on the Run með Manfred Mann verður spilað fyrir Sigurð I.B. Guðmundsson.
Mörgum þykir þægilegra að hlusta á Nálina á netinu. Ekki síst þeim sem eru staðsettir utan útsendingasvæðis Nálarinnar á stuttbylgju. Til að hlusta á Nálina á netinu þarf aðeins að smella á þessa slóð: http://media.vortex.is/nalinfm
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2010 | 19:06
Myndbönd Gunnars Rúnars
Löggæsla | Breytt 5.9.2010 kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
4.9.2010 | 01:08
Kona elur kálf við brjóst sér
Hindúar og fleiri á Indlandi standa í þeirri trú að beljur séu heilög dýr. Hið rétta er að beljur eru verulega heimsk dýr og fjarri því heilög. En indversk kona hefur tekið upp á því að ala heilagan kálf við brjóst sér. Hér má sjá hana gefa kálfnum á brjóst: http://www.telegraph.co.uk/news/newsvideo/weirdnewsvideo/7972680/Indian-woman-breastfeeds-calf.html
Konan segir guðina vera hina glöðustu með uppátækið.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
3.9.2010 | 10:51
Skúbb! Goðsagnakennd hljómsveit endurreist með nýjum trommara
Við erum að tala um hljómsveit sem var í hópi mest áberandi og umtöluðustu hljómsveita pönkbyltingarinnar á Íslandi á fyrri hluta níunda áratugarins. Því var gert skil í heimildarmyndinni sívinsælu Rokki í Reykjavík. Ári eftir frumsýningu myndarinnar sló hljómsveitin rækilega í gegn með spræka tölvupönklaginu Böring og hélt fræga hljómleika í Stuð-búðinni.
Tónlist | Breytt 5.9.2010 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2010 | 22:10
Missið ekki af endurflutningi besta þáttarins á laugardaginn
Vonandi misstu fáir eða engir í kvöld af besta tónlistarþættinum í útvarpi, þættinum Fram og til baka og allt í kring á Nálinni fm 101,5. Í þættinum í kvöld reitti Gunni "Byrds" af sér í bráðskemmtilegum kynningum fróðleiksmola um hina ýmsu tónlistarmenn og lög. Lagavalið var fjölbreytt að venju: Allt frá Bítlunum og Dylan til Louis Armstrongs og Ellu Fitzgerald. Lögin tengdust þó öll á einhvern hátt - þennan 2ja klukkutíma þátt út í gegn.
Eins og oft áður hristi Gunni fram úr erminni nokkrar sjaldgæfar upptökur með frægu tónlistarfólki. Að þessu sinni voru það heimagerðar upptökur með John og Yoko.
Samkvæmt skoðanakönnun hér ofarlega til vinstri á þessari síðu hefur um helmingur þátttakenda ekki hlustað á Nálina. Því er hætta á að einhverjir þeirra hafi misst af þættinum í kvöld. Mikilvægt er að bæta úr því. Þátturinn er endurfluttur á milli klukkan 11.00 til 13.00 á laugardaginn. Það er gert með því að stilla á 101,5 á fm eða smella á þessa slóð á netinu: http://media.vortex.is/nalinfm
Til að muna þetta er upplagt að láta húðflúra þessar upplýsingar á framhandlegg hægri handar.
Tónlist | Breytt 3.9.2010 kl. 02:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.8.2010 | 19:11
Vondandi verður Álfheiður Ingadóttir sett út
Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld í útlöndum eru að hvetja fólk til að stunda regluleg sólböð þótti Álfheiði Ingadóttur brýnasta verkefni snemmsumars að banna 18 ára Íslendingum og yngri að fara í sólbað. Vonandi verður hún sett úr ráðherrastóli við þær breytingar sem nú er verið að ræða á stjórnarfundi. Það eru kannski ekki miklar líkur á að snöfurlegur og frjálslyndur ráðherra taki við af henni. En þangað til annað kemur í ljós má vona að sá eða sú taki af skarið og aflétti ólögunum áður en beinþynning, þunglyndi, húðsjúkdómar, tannleysi, krabbamein, bakverkir og aðrir slíkir fylgifiskar sólarleysis verða verulegt vandamál.
Svo skemmtilega vill til að um leið og Álfheiður bannaði sólböð þá gáfu stjórnvöld í Íran út tilkynningu um að sólböð væru bönnuð. Konur í Íran sem eru staðnar að því að hafa laumast í sólbað eru kærðar og þeim refsað, samkvæmt lögum um sómasamlegt útlit. Írönsk kona með sólbrúna húð telst vera fleðuleg. Í lögum Álfheiðar Ingadóttur sem banna sólbað er tekið fram að bannið varði sólbað í fegrunarskini.
Ég held að það sé vont að Ragna sé sett út. Gylfi varð að fara. Sennilega hefur verið einhver pæling um að það kæmi illa út að setja hann einan af. Það kæmi öðru vísi út ef Rögnu væri líka fórnað.
Þessi íranska kona braut lög um sómasamlegt útlit. Hún hafði laumst í sólbað. Þvert á lög Álfheiðar Ingadóttur og íranskra stjórnvalda. Löggan lamdi konuna til blóðs.
![]() |
Gylfi og Ragna hætta í stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
29.8.2010 | 21:57
Lagalistinn í Sunnudagshugvekjunni í kvöld
Sunnudagshugvekjan í kvöld á Nálinni fm 101,5 varð öðruvísi en til stóð. Þegar ég mætti í húsakynni Nálarinnar var Sigvaldi Búi fjarri góðu gamni og átti ekki heimangengt. Ég var einungis með minn helming af lögunum sem átti að spila í þættinum. Nú voru góð ráð dýr. Mér til lífs varð að ég var með einhver af lögum úr eldri Sunnudagshugvekjum inni á minnislyklinum mínum. Ég gat því bætt þeim inn í lagalistann sem á vantaði í stað laganna frá Sigvalda Búa.
Þannig var lagalistinn í þættinum í kvöld:
1 Kynningarlagið: The Clash: Time is Tight
2 Týr frá Færeyjum: The Wild Rover
3 Backbeat: Long Tall Sally
4 Gram Parsons: Big Mouth Blues
5 Óskalag fyrir Sigurð I. B. Guðmundsson: Mannfred Mann: Ha! Ha! Said the Clown
6 Pönk-klassíkin: Generation X: Gimme Some Truth
7 Reggí-lag þáttarins: Apache Indian: Boom Shak-A Lak
8 Skrýtna lagið: Stan Freberg: Banana Boat
9 Kolrassa krókríðandi: Spáðu í mig
10 Ticky Tock frá Þýskalandi: Auf Der Flucht Vor Staub und Drek
11 GCD: Hótel Borg
12 Clickhaze frá Færeyjum: Daylight
13 Mannakorn: Komdu í partý
14 Kolt frá Póllandi: Nochny Express
15 Georgie Satallites: Hippy Hippy Shake
16 Nazareth: Razamanaz
17 Joan Baez: The Night They Drow Old Dixie Down
18 Uriah Heep: Eazy Livin´
19 Bítlarnir: Helter Skelter
20 Bítlarnir: Revolution # 9
21 Afkynningarlagið: The Clash: Time is Tight
Sunnudagshugvekjan er endurflutt á föstudagskvöldum á milli klukkan 7 og 9. Hún er send út á netinu á slóðinni http://media.vortex.is/nalinfm
Lagalista eldri þátta má sjá hér:
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083677/
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1085626/
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1087525/
Tónlist | Breytt 1.9.2010 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.8.2010 | 23:35
Aumingja Siggi, sem þorði ekki heim, grætur
Sigurður Einarsson, fyrrverandi hæstráðandi hjá Kaupþingi, grætur sáran undan því í viðtali hjá Ólafi Stephensen í Fréttablaðinu að hafa verið settur á bekk með hættulegum glæpamönnum í kjölfar þess að þráast við að mæta til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara. Sigurður telur sig ekki eiga heima í hópi hættulegra glæpamanna. Hann er nefnilega hættulaus glæpamaður. Að mestu. Ef hann sleppur ekki í tölvur og banka. Fyrsti hættulausi glæpamaðurinn - sá eini sinnar tegundar- hér á landi á.
Löggæsla | Breytt 29.8.2010 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
27.8.2010 | 22:13
Ganga flestir um naktir heima hjá sér?
Þetta er ekki beinlínis könnun heldur spurning sem kviknaði þegar ég hlustaði á útvarpsþátt. Ljómandi skemmtilegan og áhugaverðan útvarpsþátt um heilsu og eitthvað svoleiðis. Það var verið að ræða við konu. Fróða konu um heilsu, fegurð og neglur. Hún var eitthvað að tala um það þegar fólk fer úr hlýju húsi út í nístandi vetrarhörkur. Ég tók ekki almennilega eftir en held að hún hafi talið það hafa vond áhrif á neglur eða húð eða eitthvað. Nema í miðri þessari frásögn tók hún þannig til orða: "Yfirleitt hefur fólk 22ja gráðu hita inni hjá sér. Flestir vilja geta stríplast heima hjá sér."
Mér er kunnugt um að John & Yoko gengu iðulega um nakin heima hjá sér. Sömuleiðis hafa fréttir birst af vandræðagangi starfsmanna og foreldra Britney Spears við að koma henni í brækur heima við. Reyndar ku vera ennþá meira vandamál að fá hana til að þrífa sig. Hún forðast bað og sturtu svo vikum og mánuðum skiptir. En það er annað mál. Þrátt fyrir þessi dæmi hafði ég ekki hugmynd um að FLESTIR gangi um naktir heima hjá sér. Ég hélt að það væru bara frægu og skrýtnu poppstjörnurnar í útlöndum.
Nú hefur Yoko, næstum áttræð, lýst því yfir að hún ætli að halda upp á sjötugs afmæli Johns á Íslandi 9. október. Nakin?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
27.8.2010 | 11:25
Lygafrétt um mat
![]() |
Fiskur er megrunarfæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
25.8.2010 | 19:49
Er biskup með mynd af barnaníðingi uppi á vegg hjá sér?
Þegar ég var krakki og unglingur skreytti ég vegg í herberginu mínu með stórum myndum af uppáhalds rokkstjörnunum mínum. Núna hafa þær myndir vikið fyrir myndum af börnum mínum og afastelpunni. Þetta er algengur siður: Að fólk hafi uppi á vegg hjá sér myndir af því fólki sem þeim er hjartfólgnast.
Hvaða mynd ætli skipi stærstan sess hjá Karli Sigurbjörnssyni þessa dagana? Getur verið að það sé risastór mynd af manni sem er umtalaðastur fyrir nauðganatilraunir gegn fjölda kvenna og barnaníð? Getur verið að Karl sé með í veskinu sínu mynd af Steingrími Njálssyni?
![]() |
Boða rannsóknarnefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)