Hversu snjall/snjöll ertu? Spreyttu ţig á skemmtilegri ţraut

a14a15

  Ţađ hefur ekkert veriđ átt viđ myndirnar af ţessu húsi,  hvorki í fótósjopp tölvuforriti eđa á annan hátt.  Ţađ voru ekki heldur notađar neinar linsur eđa filterar á myndavélina til ađ bylgja og brengla myndina.  Húsiđ er svona.  En hvađa tćkni var notuđ sem setur ţessa lögun á húsiđ?  Spreytiđ ykkur.  Leyndarmáliđ verđur upplýst klukkan 11 í kvöld.


Bestu hljómsveitir sögunnar

noelgallagher 

  Ţetta fékk ég sent.  Ég veit ekki hvađan ţetta er tekiđ en hér er listi yfir bestu hljómsveitir sögunnar ađ mati lagahöfundarins og gítarleikarans Noels Gallaghers í bresku hljómsveitinni Oasis.  Hugsanlega er Noel hlutdrćgur ţegar nálgast 7.  sćtiđ.  Engu ađ síđur er listinn ekki út í hött.  Alls ekki.  Ţar fyrir utan ţýđir nafniđ Noel jól og núna eru jólin ađ koma eftir 15 - 16 daga (eftir ţví hvar mađur er staddur).

bítlarnir

1. Beatles

rollingstones

2. Rolling Stones

3. Who

4. Sex Pistols

5. Kinks

6. Jam

7. Oasis

8. Smiths

9. Stone Roses


Plötuumsögn

spegill sálarinnar

 - TitillSpegill sálarinnar - Open Your Eyes

 - FlytjandiHerbert Guđmundsson

 - ÚtgefandiHG hljómplötur

 - Einkunn **** (af 5)

  Yngra fólk ţekkir Hebba fyrst og fremst af laginu sívinsćla  Can´t Walk Away  frá 1985.  Farsćll tónlistarferill hans nćr ţó aftur til upphafs áttunda áratugarins.  Ţá söng hann í vinsćlum rokkhljómsveitum.  Hćst báru Eik og Pelican. 

  Spegill sálarinnar er áttunda sólóplata Hebba.  Upphafslagiđ,  Colours of Dreaming,  byrjar líkt og píanóballađan  Mother  međ John Lennon.  Áđur en fyrsta erindi lýkur er skipt yfir í hrađari og léttari takt.  Ţannig heldur lagiđ áfram ađ skiptast í mishrađa kafla.  Sem minnir á fortíđ Hebba í framsćkna rokkinu (progressive).  Taktskiptingarnar túlka líka ţćr breytingar sem orđiđ hafa í lífi hans á árinu.  Hann hefur sagt skiliđ viđ vímuefni og tóbak og tekiđ kristna trú.

  Í eđlilegu framhaldi af ţessu eru tvö nćstu lög,  Day of Freedom  og  Magic Feeling,  fagnađarsöngvar (gospel) međ tilheyrandi kór félaga úr Gospelkór Fíladelfíu og björtum bakröddum Magnúsar og Jóhanns ásamt Hebba sjálfs.  Falleg lög međ mögnuđum "sing-a-long" viđlögum.

  Hebbi býđur áfram upp á öflugar ballöđur međ grípandi viđlagi og snyrtilega útfćrđum bakröddum en hvílir Gospelkórinn í lögum númer 4 og 5.  Kórinn dúkkar aftur upp í lagi númer 6 og tveimur lögum til viđbótar. 

  Ţađ er góđ ákvörđun ađ nota Gospelkórinn ađeins til spari á ţennan hátt.  Kórinn "stćkkar" lögin sem hann er í og gefur plötunni flottan heildarsvip.  Meiri notkun á kórnum hefđi hinsvegar orđiđ ţrúgandi.

  Besta lag plötunnar,  Open Your Eyes,  er plássfrekt.  Ţađ er flutt í tveimur hlutum sem samtals telja 12 mínútur.  Lagiđ er mergjađ og ţolir hiđ besta ţennan mínútufjölda.  Er líđur á lagiđ fara teygđir gítartónar ađ setja seyđandi blć á og minnir ţá örlítiđ á  Heroes  međ David Bowie.

  Í kjölfar fyrri hluta  Open Your Eyes  stekkur Hebbi í hressilegan rokkgír í nćstu tveimur lögum,  Garden Above  og  God is Real.  Í síđarnefnda laginu kemur gítarsnillingurinn Ţorsteinn Magnússon (Steini í Eik) viđ sögu og rífur kröftuglega í.  Hann spilar einnig í tveimur öđrum lögum.  Jón Elvar Hafsteinsson afgreiđir ađ uppistöđu til annađ gítarspil.  Ţađ gerir hann međ stćl.  Ţetta er töluverđ gítarplata.  Annar hljóđfćraleikur er allur hinn fínasti. 

  Eitt lag er án söngs (instrumental),  His Grace.  Ljúf en ágeng ballađa. 

  Upphaflega ćtlađi Hebbi ađ syngja stóran hluta plötunnar á íslensku.  Eftir ađ hafa mátađ texta á íslensku viđ nokkur lög hvarf hann frá ţví.  Ađeins lokalag plötunnar,  merkt sem aukalag,  er međ texta á íslensku. 

  Öfugt viđ flesta ađra Íslendinga sem semja söngtexta á ensku ţá hljóma textar Hebba vel og eđlilega. 

  Hljómur plötunnar er hreinn og bjartur og heildarsvipurinn sterkur.  Ţetta er besta plata Hebba til ţessa. 


Jóna Ágústa Gísladóttir

sá einhverfi og viđ hin

  Ţegar ég byrjađi ađ blogga í fyrravor vissi ég ekkert hvađ blogg er.  Ég hélt ađ ţetta vćri ágćtur vettvangur til ađ eiga orđastađ viđ ćttingja og vini.  Sem ţađ reyndar er.  En ég sá ekki fyrir ađ ţetta vćri líka vettvangur til ađ lesa sér til skemmtunar bloggfćrslur ókunnugs fólks. 

  Fljótlega uppgötvađi ég ađ gaman var ađ kíkja á bloggfćrslur Ásthildar Cesil,  Jennýar Önnu,  Gurríar Har og margra annarra.  Jafnframt uppgötvađi ég ađ í bloggheimi voru gömul skólasystkini á borđ viđ prakkarann (Jón Steinar),  Krístínu Björgu,  Ippu og gamlir kunnigjar úr rokkbransanum eins og Kiddi Rokk og Jakob Smári.

  Áđur en langt um leiđ tók ég eftir ađ ein af ţeim bloggsíđum sem ég heimsótti daglega var www.jonaa.blog.is.  Jóna skrifar einstaklega góđan og áhugaverđan texta um einhverfan son sinn.  Pennafćrni hennar er ađdáunarverđ.  Frásagnir hennar snerta mann.  Ég held ađ ég muni ţađ rétt ađ bloggsíđa hennar hafi veriđ sú fyrsta af örfáum sem ég hef haft frumkvćđi af ađ óska eftir bloggvináttu.  Ţannig var auđveldara ađ smella á ţađ sem mig langađi ađ lesa á daglegum blogglestrarrúnti.

  Ţađ kom ekki á óvart ţegar upplýst var ađ von vćri á samantekt á úrvali (best of) af bloggi Jónu Á. í bókarformi.  Bókin er komin út og er kćrkomin lesning.  Meiriháttar flott bók,  vel skrifuđ,  einlćg og í ađra röndina bráđskemmtileg.  Í hina röndina jákvćđ og upplýsandi um einhverfu,  sem ég vissi ekki neitt um.  Ţađ er mannbćtandi ađ lesa ţessa bók.  Ţetta er bók sem fólk á ađ kaupa fyrir sig til ađ lesa og einnig til ađ gefa vinum og vandamönnum.  

 


Einn léttur

  Ţennan fékk ég sendan fyrir nokkru.  Ég var búinn ađ gleyma honum ţangađ til ég rakst á fréttina um ađ hrossalćknir, Árni M.  Mathiesen, vćri ađ slá öll met í skođanakönnun bandaríska vefblađsins Huffington Post um versta bankamann heims.  Nćst verstu bankamenn heims komast hvergi međ tćrnar ţar sem Árni hefur hćlana.  Ţađ er eins gott ađ útlendingar komist ekki ađ ţví ađ Árna tókst á tveimur dögum ađ verđa versti dómsmálaráđherra heims á sínum tíma.

  Dag einn var frćgasti bankamađurinn í bílferđ í stóru flottu limmósínunni sinni ţegar ađ hann sá 2 menn viđ veginn bítandi gras. Hann bađ bílstjórann ađ stoppa og steig áhyggjufullur út úr stóru flottu limmósínunni, gekk til annars mannsins og spurđi af hverju ţeir vćru ađ bíta gras?
  Mađurinn svarađi ađ ţađ vćri vegna ţess ađ ţeir ćttu ekki pening til ad kaupa mat og ţví ţyrftu ţeir ađ gera sér gras ađ góđu.
  Bankamađurinn varđ hissa og bauđ manninum ađ koma međ sér heim í stóra glćsihúsiđ.  Hann skuli gefa fátćka manninum nóg ađ borđa.
  Fátćki mađurinn svarađi ađ hann gćti ekki komiđ ţví hann ćtti konu og 2 börn og benti í átt til trés skammt frá ţar sem konan og börnin voru á beit.
  Bankamađurinn sagđi ađ auđvitađ kćmu konan og börnin međ. Bankamađurinn snéri sér svo ađ hinum manninum og bauđ honum einnig med ţví nóg pláss var í stóru flottu limmósínunni.
  Mađurinn ţakkađi fyrir sig en sagđist ţví miđur ekki geta komiđ ţví hann ćtti konu og 6 börn Bankamađurinn bauđ ţeim ađ koma međ líka.
  Ţegar allur hópurinn var kominn upp í stóru flottu limmósínuna og ţau lögđ af stađ í glćsihúsiđ gat annar mannanna ekki á sér setiđ og grátklökkur ţakkađi hann bankamanninum fyrir góđmennskuna:  "Kćri bankamađur,  ţú ert mjög góđur mađur.  Í kvöldbćnum mínum skal ég biđja guđ um ađ blessa ţig á hverjum degi."
  Bankamađurinn svarađi:  "Ţetta er alveg sjálfsagt og allir myndu gera ţađ sama í mínum sporum. Ykkur á eftir ađ líka vel heima hjá mér ţví garđurinn minn er stór og grasiđ alveg 20 cm hátt, fallega grćnt og safaríkt."

----------------------------------------------------------------------------------------

árnimathiesen

  "Sjáiđ ţiđ ekki veisluna,  drengir?" spurđi Árni M.  Mathiesen hćđnislega í rćđupúlti á alţingi ţegar ţingmenn vöktu athygli á ađ viđvörunarbjöllur um yfirvofandi kreppu vćru farnar ađ hringja óţćgilega hátt. 


mbl.is Árni versti bankamađurinn?
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Missiđ ekki af frábćrum útvarpsţćtti á morgun (laugardag)

anna á hesteyri

  Einn alskemmtilegasti ţáttur í íslensku útvarpi er síđdegisţáttur Markúsar Ţórhallssonar og Halldórs Einarssonar á Útvarpi Sögu á laugardögum,   Í vikulokin.  Ţátturinn hefst klukkan 13:00.  Klukkan 14:00 dregur til tíđinda.  Ţá verđur fjallađ um ţjóđsagnapersónuna frábćru og náttúrubarniđ Önnu á Hesteyri.  Ţađ eru yfirgnćfandi líkur á ađ gamli mađurinn sem hér bloggar mćti til leiks og taki ţátt í umfjöllun um ţessa stórkostlegu frćnku.  Pabbi Önnu og afi minn voru brćđur.  Anna er ćvintýri og umfjöllun um hana getur ekki orđiđ annađ en ćvintýralega skemmtileg.

  Fyrir ţá sem eru utan útsendingarsvćđis Útvarps Sögu er um ađ gera ađ hlusta á netinu www.utvarpsaga.is


Einstaklega glćsilegt tilbođ ađeins fyrir lesendur ţessa bloggs!

medanhjartadslaerstor

  Hvernig sem á ţví stendur ţá er lesendum ţessa bloggs bođiđ ađ eignast bókina  Međan hjartađ slćr  á glćsilegu tilbođsverđi.  Almennt verđ er um 5000 krónur (eđa 4980,-).  Blogggestum mínum býđst bókin hinsvegar á ađeins 3200 krónur og sendingarkostnađur er innifalinn.  Undirtitill bókarinnar er  Lífsreynslusaga Vilhjálms Ţórs Vilhjálmssonar hárskera.  Vilhjálmur er betur ţekktur sem Villi Ţór rakari.  Skrásetjari bókarinnar er blađamađurinn Sigurđur Ţór Salvarsson.

  Lífsreynslusaga Vilhjálms Ţórs Vilhjálmssonar er einstök saga manns, sem ţrátt fyrir fleiri áföll á  lífsleiđinni en gengur og gerist býr yfir fádćma lífsgleđi og baráttuţreki.   Stór hluti ţjóđarinnar fylgdist međ baráttu dóttur hans, Ástu Lovísu,  viđ ólćknandi krabbamein en hún vakti landsathygli fyrir baráttu sína viđ sjúkdóminn, en veikindum sínum lýsti hún á bloggsíđu sinni og í viđtölum í sjónvarpi.  Tímaritiđ Ísafold útnefndi hana Íslending ársins 2006. Hún lést síđan 30 maí 2007.

  Ţetta er ekki eina áfalliđ sem duniđ hefur á Villa Ţór.  Í ţessari bók deilir hann međ okkur ćvi sinni sorgum og sigrum og kennir okkur ađ horfa ávallt fram á veginn.

 

UPPLÝSINGAR VARĐANDI PÖNTUN BÓKARINNAR:

Mjög áríđandi er ađ fólk taki fram heiti bókarinnar og tilbođsverđ hennar ţegar pantađ er ţví margar pantanir berast á netfangiđ varđandi ýmsar bćkur og tilbođsverđiđ sem hér er í bođi er einstakt og ţađ  lang lćgsta sem nokkurstađar er í bođi.

Ef ţađ fylgir ekki međ ţá verđa e.t.v. mistök t.d. varđandi verđ bókarinnar.  Pantanir berist međ tölvupósti sent á netfang annaeiriks@simnet.is međ eftirfarandi upplýsingum:

1.       Nafn

2.      Heimilisfang

3.      Kennitala

4.      Pöntun (ţ.e.a.s. bókarheiti og tilbođsverđ)

.

GREIĐSLU FYRIRKOMULAG:Einfaldast fyrir báđa ađila er ađ nýta sér kreditkortaţjónustu og ţá ţarf kortanúmer (16 tölustafir) og gildistími ađ fylgja pöntuninni.Ţeir sem vilja geta einnig fengiđ sendan gíróseđil.Ađ auki er hćgt ađ panta í síma 695-4983 eftir kl 18.00.

Rúnar Júlíusson - Örfá minningarorđ

hr rokk

  Hr.  Rokk er fallinn frá,  mesti eđaltöffari íslensku rokksögunnar en jafnframt mesta ljúfmenniđ.  Ferill hans var einkar farsćll.  Ungur mađur sló hann í gegn sem söngvari og bassaleikari vinsćlustu hljómsveitar landsins,  Hljóma,  á fyrri hluta sjöunda áratugarins.  Í lok áratugarins tók hann ţátt í stofnun fyrstu íslensku "súpergrúppunnar",  Trúbrots.  Ađ nokkrum árum liđnum voru Hljómar endurreistir.  Ţá gafst Guđmundi Rúnari Júlíussyni loks nćđi til ađ semja lög.  Fyrsta lagiđ hans,  Tasko Tustada,  er besta lagiđ á plötunni  Hljómar ´74.  Ţetta lag er sömuleiđis eitt af bestu lögum íslenskrar dćgurlagamúsíkur.

  Á síđari hluta áttunda áratugarins og nćstu ár ţar á eftir var Rúnar mest í léttpoppi.  Hann var orđinn plötuútgefandi og vann međ Hemma Gunn,  Gylfa Ćgissyni og gerđi út hljómsveitina Geimstein,  samnefnda plötufyrirtćkinu.  Áđur gerđi hann nokkrar plötur međ poppsveitinni Đe Lonlí Blú Bojs og sendi frá sér sólóplötu.

  Á níunda áratugnum gerđu ungir pönkarar og nýrokkarar rćkilega uppstokkun á íslenska poppmarkađnum.  Međ Bubba Morthens í fararbroddi gengu nýir tímar í garđ.  Eldri popparar áttu erfitt uppdráttar árum saman og ţađ andađi köldu í ţeirra garđ.  Ţetta snerti Hr.  Rokk lítiđ og hann stofnađi međ Bubba rokksveitina GCD.  Sú hljómsveit naut mikilla vinsćlda.  Einnig söng Rúnar inn á plötu međ nýrokksveitinni Unun. 

  Rúnar starfađi mikiđ međ yngri tónlistarmönnum,  sonum sínum,  hljómsveitinni Fálkum og í fyrra söng hann inn á lag međ ungum rappara.

  Rúnar gerđi engan mannamun.  Hann umgekkst alla á sama hátt.  Alţýđlegur,  jákvćđur,  elskulegur og pínulítiđ eins og kćrulaus.  Hann er einn örfárra í rokkbransanum sem ég hef aldrei heyrt neinn viđhafa um eitt einasta neikvćtt orđ.  Ţvert á móti eru samferđamenn ákafir í ađ hlađa á hann lofi.  Ţađ voru forréttindi og mannbćtandi ađ kynnast ţessum úrvalsdreng.  Viđ deildum sameiginlegum áhuga á reggae-músík áđur en reggae varđ "in".  Viđ vorum báđir miklir ađdáendur Jimmy Cliff.  Og reyndar líka rokkara á borđ viđ Hendrix og Led Zeppelin.

  Ţegar tekin eru lengri blađaviđtöl viđ tónlistarmenn er venjan sú ađ ţeir fái ađ lesa viđtaliđ yfir fyrir birtingu.  Rúnar sá enga ástćđu til ađ yfirfara viđtöl viđ sig fyrir birtingu.  "Ef ég hef sagt eitthvađ klaufalegt ţá verđur ţađ bara ađ standa.  Mađur fer ekkert ađ falsa ţađ eftir á,"  var viđkvćđiđ hjá honum.

  Ég votta ađstandendum Rúnars samúđ mína.


Ćsispennandi prjónabók

prjoniprjon

  Aldeilis flestum ađ óvörum nema höfundunum sjálfum var ađ koma út splunkuný íslensk prjónabók,  Prjóniprjón.  Ţetta er hörkuspennandi bók sem inniheldur 35 óvćntar,  litríkar,  snjallar og skemmtilegar uppskriftir sem henta byrjendum jafnt sem lengra komnum.  Hér er komin jólagjöf handa strákum og körlum á öllum aldri.  Áreiđanlega munu konur á ýmsum aldrei taka bókinni fagnandi líka.

  Prjóniprjón er eftir Halldóru Skarphéđinsdóttur og Ragnheiđi Eiríksdóttur (ekki ţá sem kennd er viđ hljómsveitina Unun).  Prjón/n er í hvers manns kjöltu ţessa dagana.  Enda fátt meira róandi en handleika prjóna.  Sömuleiđis eiga margir notalega samveru yfir prjóni.  Ţar fyrir utan er bráđhollt og örvandi fyrir hugsun og sköpunargleđi ađ finna nýjar leiđir og lausnir í prjónaskap..

Útgáfugleđi Prjóniprjóns verđur í Nálinni, Laugavegi 8, föstudaginn 5. desember kl. 17.30-19. Allir eru velkomnir.  Partýiđ heldur síđan áfram á Café NoCo, Odengatan 47 í Stokkhólmi, daginn eftir,  laugardaginn 6.  desember kl. 10-13.

Um höfundana:

.
Halldóra býr ásamt fjölskyldu sinni í Sveppaskógi norđur af Stokkhólmi í húsi fullu af garni og prjónar af lífi og sál á milli ţess sem hún sinnir vísindastörfum viđ háskólann í Stokkhólmi. Kjörorđ: "Meira prjón - meiri gleđi".

.

Ragnheiđur er hjúkrunarfrćđingur og starfar sem nýsköpunar- og ţróunarstjóri hjá BHM. Hún hefur ýmislegt fleira í pokahorninu og vill beita svipađri hugmyndafrćđi á áhugamálin sín ţrjú; prjón, kynlíf og eldamennsku.  
Kjörorđ: "Prjón, frelsi og hamingja". 
 

.

Bókin er gefin út af höfundunum sjálfum og fćst í hannyrđaversluninni Nálinni, Laugavegi 8.  Einnig er hćgt ađ panta bókina í póstkröfu á prjoniprjon@gmail.com.  


Spaugilegar ţýđingavillur

a3

  Fyrir ólympíuleikana í Kína brugđu Kínverjar á ţađ ráđ ađ merkja á ensku ýmsar verslanir,  matsölustađi og og ađrar ţjónustur.  Ástćđan var hugsanlega sú ađ fáir utan Kína geta lesiđ kínversku ţannig ađ nokkurt vit sé í.  Kínverjar almennt kunna ekki ensku en í Kína eru til ágćt forrit sem ţýđa úr kínversku yfir á ensku.  Vegna vankunnáttu Kínverja í ensku urđu ţeir ađ treysta á ţýđingarforritiđ.  Hér ađ ofan sést ein útkoman.  Ţar stendur á ensku ađ ţýđingin hafi ekki tekist.  Vel og vandlega merkt en blessađir Kínverjarnir halda ađ ţarna standi á ensku upplýsingar um ţjónustu.

a2

  Hér hafa hinsvegar Japanir klúđrađ einhverju.  Drykkurinn virđist heita Gćludýrasviti og mynd af hundi bendir til ţess ađ ţetta sé hundasviti.  Hundar svitna hinsvegar ekki.  Ţađ fylgir sögunni ađ á japönsku heiti drykkurinn Sćtindi Pat(riks).


Ný bráđskemmtileg bók um töframann

töfrumlíkast

  Ţegar ég var unglingur var Baldur Brjánsson töframađur skćr stjarna.  Hann var afar fćr töframađur og útfćrđi mörg töfrabrögđin á gamansaman hátt.  Sýningar hans voru stórfengleg skemmtun.  Nú hefur Gunnar Kr.  Sigurjónsson,  hljómborđsleikari hljómsveitarinnar Prímó,  skráđ ćvintýralegt lífshlaup Baldurs og gefiđ út í bókinni Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns.

  Baldur er ennţá virtasti töframađur Íslands.  Hann hefur stundum veriđ kallađur leyndardómsfyllsti mađur landsins;  bćđi vegna ţess leyndarhjúps sem hvílir yfir áhrifamiklum töfrabrögđum hans og einnig vegna ţess ađ hann hefur lítiđ veriđ fyrir ađ opna sig í fjölmiđlum.  Í bókinni lćtur hann á hinn bóginn allt vađa. 

  Ćvintýrin eru mörg:  Skítafýlusprengur eru sprengdar í Borgarbíói á Akureyri. Rakvélablöđ eru borđuđ međ bestu lyst. Úrum, veskjum og brjóstahaldara er nappađ af blásaklausu fólki. Löggubíl er ekiđ undir áhrifum. Í sjónvarpssal er gerđur uppskurđur međ berum höndum – međ ţeim afleiđingum ađ morđhótun berst Baldri í kjölfariđ. Og hvađ skyldi hafa orđiđ um hvítu dúfuna?

  Fyrir nokkrum dögum skrifađi ég umsögn um bókina  Tabú - Ćvisögu Harđar Torfa.  Smári Valgeirsson varđ mikill örlagavaldur í lífi Harđar er hann birti blađaviđtal viđ Hörđ ţar sem Hörđur upplýsti alţjóđ um ađ hann vćri hommi.

  Svo sérkennilega vill til ađ Smári var ekki síđri áhrifavaldur í lífi Baldurs.

Baldur Brjánsson fćddist ađ Skáldalćk í Svarfađardal. Hann er sonur Brjáns Guđjónssonar frá Svarfađardal og Ragnheiđar Hlífar Júlíusdóttur frá Dalvík. 


Ćđislega flott og frumleg listaverk

a4

  Ţessar ljósmyndir sýna raunveruleg listaverk.  Ţađ hefur ekkert veriđ átt viđ myndirnar í fótósjoppi.  Listaverkiđ á myndinni hér fyrir ofan er búiđ til úr raunverulegu heimilisrusli,  ađallega dósum undan gosdrykkjum og bjór.  En einnig ýmsu öđru.  Ţađ er skuggamyndin sem ruslahrúgan myndar í bakgrunni sem gerir listaverkiđ áhugavert.

a5

  Í fljótu bragđi  virđist kraninn svífa í lausu lofti og dćla endalaust frá sér vatni,  eins og skrúfađ sé frá krana.  Leyndarmál hönnunarinnar er ţađ ađ vatniđ sem bunar úr krananum hylur járnrör sem heldur krananum uppi og sér krananum jafnframt fyrir nćgu vatni. 

a12

  Ţetta er auglýsing sem er útfćrđ í svona glćsilegri ţrívídd.


Jólabćkurnar í ár

annaáhesteyri - bókarkápasá einhverfi og viđ hinhordurtorfa-tabugullastokkur stortöfrumlíkastec-sjálfsćvisaga

  Jólabćkurnar eru farnar ađ streyma í hús sem aldrei fyrr.  Einhverra hluta vegna eru allar nýju bćkurnar sem ég les ţessa dagana frásagnir af daglegu lífi fólks eđa ćvisögur af einhverju tagi.  Ţađ er hiđ besta mál.  Ţetta eru eftirfarandi bćkur:

Ég hef nú sjaldan veriđ algild - Ćvisaga Önnu á Hesteyri.  Skráđ af Rannveigu Ţórhallsdóttur.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/712385/

Sá einhverfi og viđ hin.  Skráđ af Jónu Á.  Gísladóttur,  www.jonaa.blog.is.

Tabú - Ćvisaga Harđar Torfa.  Skráđ af Ćvari Erni Jósepssyni.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/729597/

Gullstokkur gamlingjans.  Ćskuminningar Vilhjálms Hjálmarssonar á Brekku.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/713864/

Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns.  Skráđ af Gunnari Kr.  Sigurjónssyni.

Eric Clapton - Sjálfsćvisaga

  Ţessum bókum mun ég öllum gera ítarleg skil á nćstu dögum.  Ég er ađeins kominn međ eina splunkunýja plötu í hús.  Ţađ er  Spegill sálarinnar  međ  Herberti Guđmundssyni.  Ég er ađ hlusta á hana á fullu og skrifa fljótlega umsögn.

spegill sálarinnar


Leyndarmáliđ upplýst

  Í nćstu fćrslu hér á undan eru ljósmyndir af ţýskum götulistamanni.  Hann svífur í lausu lofti fyrir ofan höfuđ undrandi áhorfenda.  Ađ vísu ţarf hann ađ styđja sig viđ húsbyggingu.  Ţarna eru brögđ í tafli.  Á myndinni hér fyrir neđan sést hvernig ţetta er gert.  Höndin sem styđur viđ vegginn er plathönd.  Hún er skrúfuđ föst í vegginn.  Á hinum enda hennar er útbúnađur,  ólar sem halda manninum ţćgilega uppi.

a9


Magnađ töfrabragđ

götulistamađur1götulistamađur2a8götulistamađur

  Ţessi ţýski götulistamađur virđist hafa yfirstigiđ ţyngdarlögmáliđ.  Hér og ţar birtist hann í ţýskum verslunargötum og svífur rétt fyrir ofan höfuđ undrandi vegfarenda sem nudda á sér augun og trúa vart ţví sem horft er á.  Áttiđ ţiđ ykkur á ţví hvernig götulistamađurinn fer ađ ţessu?  Gaman vćri ađ fá tillögur.  Kauđi beitir brögđum.  Hann hefur ekki sigrađ ţyngdarlögmáliđ í alvörunni.

  Klukkan 11 í kvöld upplýsi ég leyndarmáliđ.


Bókarumsögn

hordurtorfa-tabu

Titill:  Tabú - ćvisaga Harđar Torfa

Skrásetjari:  Ćvar Örn Jósepsson

Útgefandi:  Tindur bókaútgáfa

Einkunn:  **** (af 5)

  1975 var Hörđur Torfa einn virtasti og vinsćlasti skemmtikraftur landsins.  Lög hans hljómuđu daglangt í útvarpi,  hann var eftirsóttur leikari og fyrirsćta,  lék á sviđi og í sjónvarpinu og leikstýrđi leikhúsum ţvers og kruss um landiđ.  Ţá fór allt skyndilega á hvolf.  Hörđur lýsti ţví yfir í blađaviđtali ađ hann vćri hommi.  Ţetta var sprengja.  Fólk varđ agndofa.  Samkynhneigđ var eitthvađ er ekki var talađ um opinberlega.  Ţađ voru óskrifuđ lög ađ samkynhneigđ ćtti ađ vera í felum.

  Karlmenn sem voru óöruggir um kynhneigđ sína tóku upp á ţví ađ ofsćkja Hörđ.  Ofsóknirnar gengu ţađ langt ađ Hörđur flýđi land.

  Í útlegđ kynnti hann sér réttindabaráttu samkynhneigđra erlendis,  snéri aftur til Íslands og stofnađi Samtökin 78.  Hörđur sćttir sig ekki viđ ranglćti.  Víđa í bókinni bregđur fyrir orđinu óréttlćti og lýsingu á ţví ađ Herđi hafi sárnađ og hann reiđst.  Eftir lestur bókarinnar er rökrétt og eđlilegt ađ sjá Hörđ standa fyrir vikulegum mótmćlafundi á Austurvelli eđa berjast fyrir endurupptöku á brottvísunarmáli Pauls Ramses.  Á ţessi mál er ekki minnst í bókinni.  En ţar sem rétti er hallađ má reikna međ ađ Hörđur láti til sín taka.

  Í bókinni leiđir Hörđur lesandann inn í skrautlegan heim homma á Íslandi fyrir daga Samtakanna 78.  Viđ ţann lestur rekur mađur upp stór og útstćđ augu ađ hćtti Ástţórs Magnússonar.  Ţetta hefur veriđ hiđ litríkasta samfélag.  Af bókinni má skiljast ađ ţetta sé veröld sem var.  Enda fáir ađ velta fyrir sér kynhneigđ fólks í dag.   

  Ţađ er dapurlegt ađ lesa um ţađ mótlćti sem Hörđur hefur ţurft ađ takast á viđ og náđi hámarki eftir blađaviđtaliđ.  Án ţess ađ draga neitt undan er Hörđur ţó ekki ađ velta sér um of upp úr erfiđleikunum.  Hann horfir líka á broslegu hliđarnar.  Viđ lesturinn hefur lesandinn ekki fyrr dćst yfir óréttlćti heimsins en hann skellir upp úr viđ atvik eins og ţegar Herđi var sýnt morđtilrćđi.  Blóđiđ fossađi úr skurđi niđur eftir bringunni en Hörđur hugsađi bara um ósvífni mannsins ađ skemma skyrtuna.  Nýja og dýra skyrtu.  Eđa ţegar Hörđur fór í margra daga eins manns verkfall á fjölmennum vinnustađ.  Eđa er Hörđur flýđi á harđahlaupum frá stúlku sem vildi trúlofast honum.  Eđa ţegar Reynir Oddsson kvikmyndagerđamađur fékk alltaf í bakiđ ef verklegar framkvćmdir stóđu fyrir dyrum.  Eđa er Hörđur var vaktađur af lögreglunni og fćrđi lögreglumönnunum liti og litablokk til ađ létta ţeim tilveruna.  Ţannig mćtti áfram telja.

  Bókin er lipurlega skrifuđ.  Ţađ er vel til fundiđ ađ enda hvern kafla á kvćđi viđ hćfi.  Ţađ undirstrikar ađ bókin fjallar um ljóđskáld.  

  Bókin á erindi til allra og ćtti ađ vera notuđ viđ kennslu í skólum.  Ţessa bók á líka ađ ţýđa og gefa út erlendis.  Til ađ mynda í Fćreyjum. 

  Saga Harđar segir mikiđ um íslenskt samfélag.  Sem músíkdellukarl hef ég sérstaklega gaman af ađ lesa um tónlistarmanninn Hörđ Torfa.  Ţar koma fram ýmsir fróđleiksmolar á borđ viđ ţann ađ fyrsta plata Harđar var fyrsta platan sem var hljóđrituđ í steríó á Íslandi.  Áhugasamir um leiklist finna sömuleiđis margan forvitnilegan fróđleikinn fyrir sig í bókinni.    

  Ţegar ég fór á kynningu á bókinni í Iđnó fékk ég símtal frá útlöndum sem ég varđ ađ afgreiđa.  Til ađ trufla samkomuna ekki fćrđi ég mig út í bíl.  Ađ símtalinu loknu hélt ég áfram ađ glugga í bókina.  Og gleymdi mér viđ lesturinn.  Las bókina til enda.  Hrökk ţá upp viđ ađ mér var orđiđ hrollkalt í bílnum.  Kynningardagskráin í Iđnó var áreiđanlega löngu um garđ gengin.  Ţannig ađ ég keyrđi bara heim og hóf ađ lesa bókina í annađ sinn.  Ţetta segir sitthvađ um hversu áhugaverđ lesning bókin er.

  Ţegar ég hef veriđ ađ glugga frekar í bókina sakna ég nafnskrár aftast í henni.  Ţađ er svo ţćgilegt ađ finna aftur međ ađstođ nafnskrár eitthvađ sem gaman er ađ lesa betur.  Einnig sakna ég ţess ađ í bókinni sé ekki heildarlisti yfir plötur Harđar međ tilheyrandi upplýsingum (upptalningu á lögum,  útgáfuár og ţess háttar).  Á tölvuöld er svo sem hćgt ađ finna eitthvađ af ţessum upplýsingum á www.hordurtorfa.com.   


Hvađ er ást?

britney&madonnaGissurarsonOddsson  

 Spurningin “Hvađ er ást?” var lögđ fyrir hóp fjögurra til átta ára barna. Svörin koma skemmtilega á óvart: 



'Ţegar amma mín fékk liđagigtina gat hún ekki
beygt sig niđur til ađ lakka táneglurnar lengur.
Svo ađ afi minn gerđi ţađ alltaf fyrir hana jafnvel
eftir ađ hendurnar hans fengu liđagigt líka. Ţađ er ást.'
Rebe
kka 8 ára




'Ţegar einhver elskar ţig, segja ţeir nafniđ ţitt öđruvísi. Ţú bara veist ađ nafniđ ţitt er öruggt í munninum á ţeim.' 
Vilhjálmur
4 ára




'Ást er ţegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra
og ţau fara út og lykta af hvort öđru.'
Karl
5 ára



'Ást er ţegar ţú ferđ út ađ borđa međ einhverjum og hann gefur ţér frönskurnar
sínar án ţess ađ láta ţig gefa sér nokkuđ af ţínum eigin.' 
Kristín
6 ára



Ást er ţađ sem lćtur ţig brosa ţegar ţú ert ţreytt.'
Terri
4 ára



'Ást er ţegar mamma gerir kaffi handa pabba og hún tekur sopa áđur en hún gefur honum ţađ til ađ vera viss um ađ bragđiđ sé í lagi.'
Daníel
7 ára




'Ást er ţegar ţiđ kyssist öllum stundum. Síđan ţegar ţiđ eruđ ţreytt á ađ kyssast viljiđ ţiđ enn vera saman og tala meira. Mamma mín og pabbi eru ţannig. Ţađ er ógeđslegt ţegar ţau kyssast'

Emil
8 ára




'Ást er ţađ sem er međ ţér í stofunni á jólunum ef ţú stoppar ađ taka upp gjafirnar og hlustar.'  
Robert
7 ára
(Vá! Djúpt)


'Ef ţú vilt lćra ađ elska meira skaltu byrja á vini sem ţú hatar,'
Nikulás
6 ára
(viđ ţurfum nokkrar milljónir af Nikkum á ţessa jörđ)
 



'Ást er ţegar ţú segir strák ađ ţér finnist skyrtan hans falleg,
og ţá gengur hann í henni alla daga.'
Norma
7 ára  




'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall mađur sem eru
enn vinir jafnvel eftir ađ ţau kynnast hvort öđru svo vel.'
Tommi
6 ára


'Ţegar ég var međ píanótónleikana mína, var ég á sviđi og ég var hrćdd.
Ég leit á allt fólkiđ sem horfđi á mig og sá pabba minn veifa og brosa. Hann var sá eini sem gerđi ţađ. Ég var ekki hrćdd lengur' 
Sigga 8 ára




'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Ţú sérđ engan annan kyssa mig góđa nótt á kvöldin.'  

Klara 6 ára



'Ást er ţegar mamma gefur pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elín - 5 ára




'Ást er ţegar mamma sér pabba illa lyktandi og sveittan
og segir enn ađ hann sé myndarlegri en Bubbi Morthens.'  
Kristinn 7 ára



'Ást er ţegar hvolpurinn ţinn sleikir ţig í framan
eftir ađ ţú skildir hann eftir einan allan daginn.'
María – 4 ára
 



'Ég veit ađ stóra systir mín elskar mig vegna ţess hún gefur mér
öll gömlu fötin sín og verđur ađ fara í búđina og kaupa ný.'
Lára – 4 ára



'Ţegar ţú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niđur
og litlar stjörnur koma út úr ţér.' (ţvílík sýn)
Karen – 7 ára



'Ţú ćttir ekki ađ segja “Ég elska ţig” nema ţú meinir ţađ.
En ef ţú meinar ţađ áttu ađ segja ţađ oft.  Fólk gleymir.'
Jóhanna – 8 ára



Og ađ lokum:

4 ára gamall drengur átti gamlan herramann ađ nágranna sem hafđi nýlega misst konuna sína.
Ţegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garđ herramannsins, klifrađi upp í kjöltu hans og sat ţar.
Ţegar móđir drengsins spurđi hann hvađ hann hafđi sagt viđ gamla manninn svarađi drengurinn: “Ekkert. Ég bara hjálpađi honum ađ gráta”


Bráđfyndin hönnun

uppfinning 17uppfinning 18

  Ţessar ljósmyndir var ég ađ fá sendar og hló mikiđ af skemmtilegum húmor hönnuđanna.  Ég er viss um ađ hann kemur ykkur líka í gott skap.

uppfinning 5uppfinning 11


Afmćlisveisla Frćbbblanna í kvöld - öllum bođiđ!

frćbbblarnir

  Hljómsveitin sísprćka Frćbbblarnir fagnar ţrítugsafmćli sínu međ stćl á Grand Rokk í kvöld,  fimmtudaginn 27.  nóvember.  Frćbbblarnir eru lífseigasta pönkhljómsveit landsins og var ein allra fyrsta íslenska pönkhljómsveitin.  Á ţrjátíu ára ferli hefur hljómsveitin sent frá sér 87 lög á plötu og efni á nćstu plötu er ađ mestu tilbúiđ.  Hún hefur vinnutitilinn "Puttinn". 

  Lög af "Puttanum" verđa á dagskrá Frćbbblanna í kvöld í bland viđ gömlu góđu "standardana" af fyrstu plötum Frćbbblanna.  Hljómleikarnir hefjast klukkan 22:00.  Ţađ er frítt inn og bjórinn verđur á eldgamla genginu.  Sem er vel viđ hćfi ţví Frćbbblarnir lögđu sitt af mörkum í baráttunni fyrir ţví ađ bjór vćri leyfđur á Íslandi.

www.fraebbblarnir.com


Frábćrlega fyndnar ljósmyndir

hundur1

   Nú ţegar hundur er í mörgum vegna bankahrunsins er viđ hćfi ađ ná fram brosi međ ađstođ ţessara bráđskemmtilegu hundamynda.

hundur2

 Ţađ ţurfti ekki mikiđ til ađ lađa fram bros hjá ţessum.  Ţađ dugđi ađ upplýsa hann um ţađ sem satt er:  Ađ í Fćreyjum eru menn sagđir vera hundasjúkir ef ţeir eru međ ţađ sem viđ köllum ţynnku eđa timburmenn.

hundur3

   Litli hundurinn er snöggur ađ víkja sér undan árás stóra hundsins.  En er samt međvitađur um ađ sá stóri sé ólađur og komist ekki langt.  Ţess vegna heldur sá litli "kúlinu" međ ţví ađ fćra sig ekki lengra en ţarf.

hundur5

   Kötturinn ćtlađi bara ađ kitla hvutta til ađ ná fram brosi hjá honum.  Hvutti heldur hinsvegar ađ ţetta sé smekklaus árás á sig og jafnvel upphaf á einelti.

hundur4

   Ţessi er hundfúll yfir ađ vera skilinn eftir einn tjóđrađur viđ sandpott.  Frekar en gera ekkert í málinu gerir hann bara eitthvađ.


Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.