Fćrsluflokkur: Tónlist
5.2.2018 | 00:04
Önnur plata fyrrverandi borgarstjóra
Ţađ er skammt stórra högga á milli. Haustiđ 2016 spratt fram á völl nýr en fullskapađur tónlistarmađur á sjötugsaldri. Ţar var kominn heimilislćknirinn, fjallgöngugarpurinn, umhverfisverndarkappinn og besti borgarstjóri Reykjavíkur, Ólafur F. Magnússon, međ hljómplötuna "Ég elska lífiđ". Bćttust ţá viđ á hann titlarnir lagahöfundur, ljóđskáld og söngvari.
Í lok liđins árs hristi Ólafur fram úr erminni ađra plötu. Sú heitir "Vinátta" eftir opnulaginu. Ljóđiđ er heilrćđisvísa; eins og fleiri á plötunni. Önnur yrkisefni eru m.a. Tyrkjarániđ sem svo er kallađ (Viđ Rćningjatanga) og ţjóđhátíđarljóđ Vestmannaeyja 1932 (Heimaey). Höfundur ţess síđarnefnda er Magnús Jónsson, langafi Ólafs. Ađrir textar eru eftir ÓLaf. Hann er sömuleiđis höfundur allra laga. Međhöfundur tveggja er Vilhjálmur Guđjónsson. Sá snillingur sér jafnframt um útsetningar og hljóđfćraleik. Í tveimur lögum í samvinnu viđ Gunnar Ţórđarson. Gunni afgreiđir einn útsetningu og kassagítarplokk í laginu "Viđ Rćningjatanga".
"Vinátta" er jafnbetri/heilsteyptari plata en "Ég elska lífiđ". Er "Ég elska lífiđ" ţó ljómandi góđ. Ţar syngur Ólafur ađeins helming laga. Á nýju plötunni syngur hann öll lög nema eitt. Í lokalaginu, "Lítiđ vögguljóđ", syngur Guđlaug Dröfn Ólafsdóttur á móti honum. Hún hefur afar fagra, hljómţýđa og agađa söngrödd sem fellur einstaklega vel ađ söngrödd Ólafs. Hann er prýđilegur dćgurlagasöngvari. Syngur af einlćgni og innlifun međ notalegri söngrödd.
Lög hans eru söngrćn, snotur og hlýleg. Ljóđin eru haganlega ort og innihaldsrík međ stuđlum og höfuđstöfum. Standa keik hvort heldur sem er án eđa međ tónlistinni.
Tónlistin ber ţess merki ađ Ólafur lifir og hrćrist í klassískri tónlist. Útsetningar eru hátíđlegar, lágstemmdar og sálmakenndar. Eitt lagiđ heitir meira ađ segja "Skírnarsálmur". Annađ er barokk (Ţú landiđ kćra vernda vilt). Hiđ ţriđja er nettur vals (Ísafold). Ţannig má áfram telja.
Eitt lag sker sig frá öđrum hvađ varđar útsetningu, flutning og áferđ. Ţađ er "Bláhvíti fáninn". Ţar syngur óperusöngvarinn Elmar Gilbertsson um gamla íslenska fánann. Hann er rosalega góđur og ţróttmikill söngvari. Ţenur sig kröftuglega. Kannski ţekktastur fyrir hlutverk Dađa í óperunni um Ragnheiđi Brynjólfsdóttur. "Bláhvíti fáninn" er sterkur og hástemmdur ćttjarđaróđur sem leysir "Öxar viđ ána" af međ glćsibrag.
Ég óska Ólafi til hamingju međ virkilega góđa plötu, "Vináttu". Hún fćst í verslun 12 Tóna á Skólavörđustíg.
Tónlist | Breytt 6.2.2018 kl. 04:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2018 | 00:04
Íslandsvinur hannar neyđarhjálpardróna
Á fyrri hluta aldarinnar var breski olympíuskylmingameistarinn og rokksöngvarinn Bruce Dickinson međ annan fótinn á Íslandi. Hann var flugmađur hjá Iceland Express og söng - og syngur enn - međ ţungarokkshljómsveitinni Iron Maiden.
Heimsathygli vakti um áriđ ţegar Iron Maiden var ađalnúmer á Hróarskeldurokkhátíđinni í Danmörku. Ađdáendur Iron Maiden frá Ameríku og víđar tóku framhaldsflug frá Keflavík. Andlitiđ datt af ţeim viđ flugtak ţegar flugmađurinn kynnti sig í hátalarakerfi: Bruce Dickinson.
Brúsi er um margt ólíkur rokkstjörnuímyndinni. Hann hefur aldrei notađ vímuefni. Ţess í stađ lćrđi hann sagnfrćđi; hefur skrifađ sagnfrćđibćkur. Söngtextar hans bera merki áhuga hans á sögunni. A sviđi er hann engu ađ síđur rokkstjarnan sem gefur allt í botn. Hann segist vera rosalega ofvirkur. Sú er ástćđan fyrir ţví ađ hann sniđgengur vímuefni - vitandi ađ annađ hvort er í ökkla eđa eyra. Aldrei neitt ţar á milli.
Ađ undanförnu hefur Brúsi unniđ ađ hönnun neyđarhjálpardróna; flygildis sem getur boriđ hjálpargögn til fólks á hamfarasvćđum ţar sem öđrum leiđum verđur illa viđ komiđ. Uppskrift hans gengur út á ađ koma hjálpargögnum til 50 manns á einu bretti. Ţar á međal vatni, mat og sjúkravörum.
Útgangspunkturinn og sérstađa í hönnun Brúsa er ađ flygildiđ sé kolefnafrítt. Jafnframt svo ódýrt í innkaupum og ódýrt í rekstri ađ hjálparsveitum muni ekki um ađ bćta ţví í búnađ sinn.
Brúsi er 60 ára og hefur selt yfir 100 milljónir platna.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
16.1.2018 | 04:03
Oasis-brćđur
Dagblöđin í Manchester á Englandi skrifa um sína frćgustu syni, Oasis-brćđur, Liam og Noel Gallgher, á hverjum einasta degi. Líka önnur bresk dagblöđ. Ađ vísu er ég ekki alveg međ ţađ á hreinu hvort ađ alltaf sé á landsvísu ađ rćđa vegna ţess ađ sum bresk dagblöđ eru međ sér-Manchester útgáfur. En Oasis-brćđur eru yfirlýsingaglađir og gott fréttaefni. Einkum Liam. Tísta (twitter) daglega. Gefa Dóna Trump ekkert eftir.
Gítarleikarinn Noel Gallagher gerir út á Oasis-lög á hljómleikum. Liam tístir ađ ţađ sé sama hvađ Noel rembist á hljómleikum ţá muni hann, Liam, alltaf vera tíu sinnum betri söngvari. Sem reyndar er allt ađ ţví rétt.
Ţrátt fyrir stöđugar pillur á milli brćđranna vakti athygli ađ Liam sendi Noel hlýjar jólakveđjur. Sem sá endurgalt ekki.
Noel lýsti ţví yfir um jólin ađ um leiđ og Brexit taki gildi (útganga úr Evrópusambandinu) ţá flytji hann frá Manchester til Írlands. Brexit muni - ađ hans sögn - kosta enska tónlistarmenn meiriháttar vandamál og einangrun. Vegabréfavandrćđi, atvinnuleyfavandrćđi og ţess háttar.
Ţetta var boriđ undir Liam. Hann svarađi ţví til ađ bróđir sinn sé heimskur ađ taka mark á landamćrum. Landamćri séu uppfinning djöfulsins.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2018 | 00:07
Bestu plötur ársins 2017
Ţegar ég fer til útlanda ţá kúpla ég mig algjörlega frá Íslandi. Tek hvorki međ mér tölvu né síma. Ţađ er góđ hvíld í ţví. Staddur í Manchester á Englandi yfir jól og áramót veit ég ekkert hvernig íslenskir fjölmiđlar afgreiddu uppgjör á bestu plötum ársins 2017.
Ég fylgdist grannt međ uppgjöri bresku dagblađanna. Hér fyrir neđan er niđurstađa götublađsins the Sun. Ég er einna sáttastur viđ ţeirra uppgjör. Í fremri sviga er stađa sömu plötu hjá the Independet. Ţađ setti plötu Loyle Carner "Yesterday´s Gone" í 1. sćtiđ. Sú plata átti ekki upp á pallborđiđ hjá öđrum fjölmiđlum. Í seinni sviga er stađa sömu plötu hjá the Gardian.
Á árum áđur voru áramótauppgjör fjölmiđla mun samstilltari en nú. Ţađ er einhver losarabragur á ţessu öllu. Kannski vegna ţess ađ aldursbil plötugagnrýnenda er breiđara en á síđustu öld. Kannski vegna ţess ađ músíkstílum fjölgar stöđugt. Kannski vegna ţess ađ músíkmötun kemur úr fleiri áttum en áđur međ tilkomu netsins og fjölgun útvarps- og sjónvarpsstöđva.
1 (2)(4) LORDE - Melodrama (einnig í 1. sćti hjá tónlistarblađinu NME)
2 (-)(-) LIAM GALLAGHER - As You Were
3 (-)(14) THE HORRORS - V
4 (-)(-) ROBERT PLANT - Carry Fire
5 (-)(-) MARGO PRICE - All American Made
6 (17)(-) QUEENS OF THE STONE AGE - Vilains
7 (-)(-) U2 - Songs of Experience
8 (21)(-) LANA DEL REY - Lust for Life
9 (-)(16) FATHER JOHN MISTY - Pure Comedy (gaurinn úr Fleet Foxes)
10 (-)(2) KENDRICK LAMAR - Damn
11 (-)(6) LCD SOUNDSYSTEM - American Dream
12 (28)(7) THE WAR ON DRUGS - A Deeper Understanding
13 (13)(18) STORMZY - Gong Sign & Prayer
14 (-)(36) RHIANNON GIDDENS - Freedom Highway
15 (-)(-) GORILLAZ - Humanz
16 (-)(-) FOO FIGHTERS - Concrete & Gold
17 ((-)(-) BECK - Colors
18 (-)(-) ED SHEERAN - Divide
19 (-)(12) WOLF ALICE - Visions of Life
20 (-)(-) THE FLAMING LIPS - Oczy Mlody
21 (4)(5) PERFUME GENIUS - No Shape
22 (14)(1) ST VINCENT - Masseduction
23 (-)(-) ELBOW - Little Fiction
24 (12)(-) KING KRULE - The Oaz
25 (-)(-) BJÖRK - Utopia
Plata Bjarkar kom út "of seint" á árinu (í nóvemberlok). Plötugagnrýnendur voru flestir ađ skila inn sínum lista ţegar hún kom út - og áttu ţar međ eftir ađ hlusta á hana. Ţumalputtareglan er sú ađ plata ţurfi ađ koma út í síđasta lagi í fyrri hluta október til ađ komast inn í áramótauppgjör.
VERSTU PLÖTUR ÁRSINS
Tímaritiđ Entertainment Weekly valdi verstu plöturnar. Auđvelt er ađ vera sammála niđurstöđunni:
1. CHRIS BROWN - Heartbreak on a Full Moon
2. KID ROCK - Sweat Southern Sugar
3. THE CHAINSMOKERS - Memories...Do Not Open
Annađ úr annarri átt: Í sjónvarpsţćttinum Útsvari var tiltekiđ lag sagt vera eftir the Hollies. Hiđ rétta er ađ lagiđ er eftir Albert Hammond.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
8.1.2018 | 08:55
Íslendingar mćttu taka sér Manchester til fyrirmyndar
Nýkominn heim frá Manchester bloggađi ég á ţessum vettvangi um blómlegt tónlistarlíf ţar í borg. Um ţađ má lesa hér fyrir neđan. Heimamenn gera sér grein fyrir ţessu. Og gera sér mat úr ţví. Veggir stigagangs gistiheimilis er hýsti mig eru skreyttir stórum ljósmyndum af heimsţekktum poppstjörnum frá Manchester.
Ég álpađist inn í plötubúđ, Fopp. Ég hef víđar séđ plötubúđir undir ţessu nafni. Nema ađ ţarna í miđborg Manchester blasa viđ á miđju gólfi tveir veglegir plöturekkar. Ţeir eru pakkađir af plötum međ Manchester-tónlist. Einungis Manchester-tónlist. Viđ hliđ rekkanna eru jafnframt staflar af bókum um Manchester-poppara, sem og stórar veggmyndir af ţeim.
Ţetta er til fyrirmyndar. Ég hef löngum gagnrýnt sinnuleysi Íslendinga gagnvart heimsfrćgđ íslenskra tónlistarmanna. Ef vel vćri ađ verki stađiđ vćri flugstöđin í Sandgerđi undirlögđ risastórum veggmyndum af Björk, Sigur Rós, Of Monsters and Men, Kaleo, Emilíönu Torríni, Hilmari Erni Hilmarssyni og svo framvegis. Götur og torg vćru jafnframt kennd viđ ţessar sömu poppstjörnur. Framsóknarflokkurinn hefur viđrađ hugmynd um ađ reisa styttu af Björk fyrir utan Hörpu. Gott innlegg í umrćđuna - ţó ég setji spurnarmerki viđ styttur bćjarins (sem enginn nennir ađ horfa á).
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2018 | 09:50
Frćgir í Manchester
Fyrr á ţessari öld vandi ég mig á ađ fagna jólum og áramótum í útlöndum. Einhver verđur ađ gera ţađ. Ţetta hentar mér vel. Einkum ađ taka frí frá snjó og frosti. Líka ađ komast ađ ţví hvernig útlendingar fagna vetrarsólstöđum og nýju ári. Ađ ţessu sinni varđ Manchester á Englandi fyrir valinu. Notaleg borg. Hlýtt alla daga á ţessum árstíma. Smá rigning á nćstum ţví hverjum degi. Samt ekki svo ađ ţurft hafi ađ spenna upp regnhlíf.
Ég veit ekkert um boltaleiki. Öfugt viđ Manchesterbúa. Ég komst ekki hjá ţví ađ heyra í útvarpinu ţeirra eitthvađ um velgengi í boltabrölti. Hitt veit ég ađ Manchester er stórveldi á heimsmćlikvarđa í tónlist. Eiga ţađ sameiginlegt međ Íslendingum. Okkar 340 ţúsund manna ţjóđ státar af ótrúlega mörgum heimsfrćgum tónlistarnöfnum. Hćst bera Björk, Sigur Rós, Of Monsters and Men og Kaleo. Fleiri Íslendingar hafa náđ góđri stöđu á heimsmarkađi - en á afmarkađri markađi og teljast ţví ekki beinlínis heimsfrćgir. Sólstafir hafa tröllriđiđ vinsćldalistum í Finnlandi og Ţýskalandi. Skálmöld er ţekkt í evrópsku ţungarokkssenunni. Jóhann Jóhannsson er ţekktur í kvikmyndatónlist. Líka Hilmar Örn Hilmarsson og fleiri. Til viđbótar eru međ ágćta stöđu á í tilteknum löndum nöfn eins og Emilíana Torrini, FM Belfast, Múm, Steed lord...
Ánćgjulegur árangur íslenskra tónlistarmanna á heimsmarkađi hefur vakiđ undrun heimspressunnar. Hefur sömuleiđis skilađ drjúgum skerf í ábatasaman ferđamannaiđnađ hérlendis. Takk fyrir ţađ. Hátt í 600 ţúsund milljónir á síđasta ári.
Til samanburđar hefur Manchester mun sterkari stöđu í tónlist. Líka ţó ađ miđađ sé viđ höfđatölu. Íbúar Manchester eru rösklega 540 ţúsund. 59% fleiri en Íslendingar. Heimsfrćg tónlistarnöfn Manchester eru um margir tugir. Ţar af mörg af ţeim stćrstu. Í fljótu bragđi man ég eftir ţessum Manchester-guttum:
Tónlist | Breytt 9.1.2018 kl. 16:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
20.12.2017 | 16:53
Hátíđ ljóss og friđar
Heims um ból halda menn jól;
heiđingjar, kristnir og Tjallar.
Uppi í stól stendur í kjól
stuttklipptur prestur og trallar.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2017 | 17:20
Hlý og notaleg plata
- Titill: White Lotus
- Flytjandi: Hilmar Garđarsson
- Höfundur laga og texta: Hilmar Garđarsson
- Einkunn: ****
Ađ ţví er ég best veit er "White Lotus" önnur plata Hilmars Garđarssonr. Hún er lágstemmdari og fábrotnari en "Pleased to Leave You" sem kom út 2004. Núna er kassagítar eina hljóđfćriđ. Ýmist lipurlega plokkađur eđa nett "strömmađur". Engir stćlar. Allt eins og beint af kúnni. Ţađ er líkast ţví ađ mađur sé staddur á ljúfum tónleikum heima í stofu hjá Hilmari. Söngröddin er dökk og ţćgileg; afslöppuđ, vögguvísuleg (í jákvćđustu merkingu) og ţíđ.
Viđ fyrstu spilanir runnu lögin dálítiđ saman. Öll hćg og vinaleg; söngur og undirleikur í svipuđum gír. Ég hugsađi: "Gott vćri ađ lauma lágvćru orgeli undir eitt lag og snyrtilegum munnhörpuleik undir annađ". Viđ frekari hlustun féll ég frá ţessari hugleiđingu. Eftir ţví sem ég kynntist lögunum betur og sérkennum ţeirra ţá vil ég hafa ţau eins og ţau eru. Platan er heilsteypt eins og hún er; alúđleg og ljúf. Sterkasta lagiđ er hiđ gullfallega "Miss You". Fast á hćla ţess er lokalagiđ, "Nótt".
Tónlist | Breytt 20.12.2017 kl. 08:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
11.12.2017 | 05:29
Hvenćr er íslensk tónlist íslensk?
Nýafstađinn dagur íslenskrar tónlistar setti margan góđan manninn í bobba. Allir vildu Lilju kveđiđ hafa. Vandamáliđ er ađ ţađ hefur ekki veriđ skilgreint svo öllum líki hvenćr íslensk tónlist er íslensk.
Frekar lítill ágreiningur er um ađ tónlist samin af Íslendingi og flutt af Íslendingi sé íslensk. Og ţó. Sumir hafna ţví ađ hún sé íslensk ef söngtexti er á öđru tungumáli en íslensku. Gott og vel. Hvers lensk er hún ţá? Ensk ef textinn er á ensku, segja sumir. Eđa fer ţađ eftir framburđi söngvarans? Er "Lifun" međ Trúbroti bandarísk plata? Eđa kanadísk?
Samkvćmt ţessu eru plötur Bjarkar, Kaleo og Of Monsters and Men ekki íslenskar. Ein plata Sigur Rósar er sungin á bullmáli. Hún er ekki íslensk. Ţađ er ekki hćgt ađ stađsetja ţjóđerni hennar.
Ţegar Eivör flutti til Íslands ţá stofnađi hún hljómsveit, Krákuna, međ íslenskum hljóđfćraleikurum. Íslenska plötufyrirtćkiđ 12 Tónar gaf út plötu međ henni. Hún seldist fyrst og fremst á Íslandi. Enda spilađi hljómsveitin ađallega á Íslandi. Textarnir eru á fćreysku. Ţar međ er ţetta fćreysk tónlist en ekki íslensk. Eđa hvađ?
12 Tónar gáfu út ađra plötu međ Eivöru. Ţar eru gömul rammíslensk lög sungin á íslensku. Líka lög sungin á fćreysku, ensku og sćnsku. Platan hlaut dönsku tónlistarverđlaunin sem besta danska vísnaplatan ţađ áriđ. Ţetta er snúiđ.
Lengi tíđkađist ađ íslenskar hljómsveitir sungu íslenska texta viđ erlend lög. Er ţađ íslensk tónlist? Íslenskari tónlist en ţegar Íslendingur syngur íslenskt lag međ frumsömdum texta á ensku?
Hvernig er ţetta í öđrum greinum? Gunnar Gunnarsson skrifađi sínar bćkur á dönsku. Eru ţćr ekki íslenskar bókmenntir? William Heinesen skrifađi sínar bćkur á dönsku. Samt eru ţćr skilgreindar sem perlur fćreyskra bókmennta.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 05:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
8.12.2017 | 08:37
Styttur af Björk
Hérlendis vantar fleiri styttur af körlum. Undan ţví hefur veriđ kvartađ áratugum saman. Einnig hefur veriđ brugđist vel viđ ţví af og til. Enda enginn skortur á uppástungum. Kröfur eru hávćrar um styttu af Gvendi Jaka (helst tvćr til ađ túlka tungur tvćr), steraboltanum Jóni Páli, Hemma Gunn og svo framvegis.
"Styttur bćjarins sem enginn nennir ađ horfa á," söng Spilverk ţjóđanna á sínum tíma.
Nú er komiđ annađ hljóđ í strokkinn. Í menningar- og ferđamálaráđi Reykjavíkur er komin fram tillaga um styttu af konu. Einkum er sjónum beint ađ styttu af Björk. Hugmyndin er frumleg og djörf. En ekki alveg út í hött.
Enginn Íslendingur hefur boriđ hróđur Íslands víđar og betur en Björk. Án hennar vćri ferđamannaiđnađurinn ekki stćrsta tekjulind Íslands. Spurning hvernig henni sjálfri lýst á uppátćkiđ. Upplagt er ađ reisa eina styttu af henni viđ Hörpu. Ađra viđ Leifsstöđ. Í leiđinni má breyta nafni flugstöđvarinnar. Ađ kenna hana viđ Leif the Lucky (Lukku-Láka) er hallćrislegt. Í Liverpool er flugstöđin kennd viđ John Lennon. Í Varsjá er flugstöđin kennd viđ Chopin. Flustöđin í Sandgerđi ćtti ađ vera kennd viđ Björk.
![]() |
Vill reisa styttu af Björk viđ Hörpu |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)