Fćrsluflokkur: Ljóđ
1.3.2012 | 01:55
Spennandi fćreyskir hljómleikar í kvöld (Ţórsdag) og nćstu daga
Fyrir nokkrum árum naut fćreyski tónlistarmađurinn Högni Restrup vinsćlda hérlendis. Lag hans, Besame Mucho, var oft og tíđum spilađ í útvarpinu. Fyrst og fremst rás 2. Ţađ var á jómfrúarplötu Högna. Nýveriđ sendi kappinn frá sér ţriđju plötuna, Samröđur viđ framtíđina. Dúndur góđa plötu, eins og fyrri plötur hans tvćr. Danska poppblađiđ Gaffa hefur stađfest ţađ. Janus í Bloodgroup vann plötuna međ Högna.
Í tilefni af nýju plötunni heldur Högni, ásamt hljómsveit sinni, ţrenna hljómleika á Íslandi. Fyrstu hljómleikarnir eru á Grćna hattinum á Akureyri í kvöld (Ţórsdag, 1. mars). Ţeir hefjast klukkan 9 (síđdegis).
Nćstu hljómleikar verđa á Gauki á Stöng í Reykjavík annađ kvöld (Freyjudag, 2. mars). Ţeir hefjast klukkan 11 (síđdegis).
Lokahljómleikarnir verđa á Kex Hostel í Reykjavík á laugardaginn (3ja mars). Ţeir hefjast klukkan 9 (síđdegis).
Annar frábćr fćreyskur tónlistarmađur, Guđríđ Hansdóttir, verđur međ í för. Guđríđ hefur sömuleiđis sent frá sér ţrjár plötur. Sú nýjasta, Bayond The Grey, var á lista Morgunblađsins yfir bestu plötur ársins 2011. Gott er ađ vita ađ nafniđ Guđríđ er framboriđ Gúrí.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 02:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2012 | 22:06
Jón Ţorleifsson VII - Hrellir nýjan ráđherra
Jón Ţorleifsson, verkamađur og rithöfundur, tók upp á ţví á gamals aldri ađ setja saman vísur. Iđulega voru ţađ kveđjur til samferđamanna. Oftar kaldar en hlýjar kveđjur. Jón gćtti ţess vandlega ađ kveđjurnar kćmust til skila. Ţađ gerđi hann međ ţví ađ ganga heim til viđkomandi og afhenda honum nýútkomna bók eftir sig međ vísunni. Jón gekk flestra sinna ferđa innan Reykjavíkur. Jafnvel mjög langar leiđir.
Verkalýđsforingjar voru lágt skrifađir hjá Jóni - svo vćgt sé til orđa tekiđ. Hann hafđi í raun megnustu óbeit á ţeim. Taldi ţá vera upp til hópa glćpamenn, mútuţega, lygara, svikara og ađ auki hina verstu menn.
Ţannig orti Jón um Eđvarđ Sigurđsson, verkalýđsforingja og alţingismann:
Eđvarđ, ţú ert óţverri,
iđinn lygaslefberi,
mannorđsspjallameistari,
magnađ eiturkvikindi.
Jón talađi ekki rósamál. Hann sagđi hlutina eins og ţeir komu honum fyrir sjónir. En hann átti til milda og sérkennilega takta í ţeirri uppreisn sem hann var stöđugt í gegn mönnum og málefnum.
Međal ţeirra sem Jón fyrirleit var Magnús Kjartansson, ritstjóri Ţjóđviljans. Ţegar Magnús var settur í embćtti iđnađarmálaráđherra var Jón snöggur ađ panta viđtal hjá ráđherranum. Honum var úthlutađ viđtali fljótlega upp úr hádegi. Jón mćtti stundvíslega og var vísađ til skrifstofu ráđherrans. Magnús tók vel á móti Jóni, bauđ honum sćti og spurđi hvađ hćgt vćri ađ gera fyrir hann.
Jón fékk sér sćti og sagđi: "Ţađ er fullreynt ađ ţú hvorki vilt né getur neitt fyrir mig gert."
Er Jón sagđi frá ţessu síđar sagđist hann hafa lagt sig í líma viđ ađ vera afar kurteis í ţetta skiptiđ. Hann dauđlangađi ađ lesa Magnúsi pistilinn en hélt aftur af sér.
Magnús spurđi hvert erindiđ vćri. Jón sagđi ţađ ekki vera neitt. Hann ćtli bara ađ sitja ţarna. Hann hafi fullan rétt á ţví eins og hver annar Íslendingur. Magnús spurđi hvort hann eigi ađ kalla eftir kaffi handa honum. Nei, Jón sagđist ekki vera kominn til ađ sníkja kaffi eđa annađ. Ţvert á móti sagđi hann Magnúsi ađ láta veru sína ekki trufla hann frá störfum. "Sinntu ţínum störfum. Láttu mig ekki trufla ţig. Ég ćtla bara ađ sitja hérna á međan."
Magnús fór ađ blađa í möppum og reyndi ađ leiđa Jón hjá sér. Jón sat beint fyrir framan hann og horfđi stíft á hann. Tvisvar eđa ţrisvar reyndi Magnús ađ hefja spjall viđ Jón. Jón endurtók ţá fyrri setningar. "Sinntu ţínum störfum. Láttu mig ekki trufla ţig."
Jón sagđi Magnús hafa orđiđ lítiđ úr verki. Hann hafi gjóađ til sín augum af og til og orđiđ taugaveiklađri og aumari međ hverjum klukkutíma sem leiđ. Ađ lokum tilkynnti Magnús ađ vinnudegi sínum vćri lokiđ. Jón stóđ ţá upp, opnađi dyrnar og kvaddi hátt og kurteislega til ađ ađrir heyrđu.
Rúsínan í pylsuendanum, ađ sögn Jóns, var er hann gekk framhjá konunni í afgreisđlunni. Hann kvaddi hana í leiđinni. Hún leit á úr sitt og varđ ađ orđi: "Ţiđ hafiđ greinilega haft um margt ađ spjalla."
---------------------------------------
Fyrri frásagnir af Jóni Ţorleifssyni:
Afmćlishóf Dagsbrúnar
Ljóđ | Breytt 27.2.2012 kl. 18:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
24.2.2012 | 13:46
Hljómleikaumsögn
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
2.2.2012 | 21:38
Virkilega spennandi plata - og gott málefni
Í nćstu viku kemur út í Evrópu merkileg og spennandi plata. Mjög svo spennandi. Hún kom út í Norđur-Ameríku (samt ekki í Grćnlandi) í síđustu viku og hefur vakiđ rokna mikla athygli og líflegar umrćđur. Málstađurinn er ađ auki afskaplega góđur. Platan heitir Chimes of Freedom. Ţađ er mannréttindahreyfingin Amnesty International sem gefur plötuna út. Hún inniheldur 75 krákur (cover songs) á sönglögum Bobs Dylans (plús 1 lag í flutningi Dylans sjálfs). Sönglög sem flestir ţekkja.
Flytjendur eru allt frá táningsaldri (Miley Cyrus, 19 ára) til aldargamals (Pete Seeger, 120 ára).
Hér er heildarlistinn yfir lögin (ég hefđi ekki byrjađ á ađ pikka listann inn ef ég hefđi áttađ mig á hvađ ţađ tók langan tíma. Ég fann hann ekki til ađ copy/paste):
Ljóđ | Breytt 6.2.2012 kl. 00:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
1.2.2012 | 15:04
Gaman ađ rifja upp
Söngvarinn og söngvahöfundurinn Ţórđur Bogason var áberandi í íslensku tónlistarlífi á níunda og tíunda áratug síđustu aldar. Eđa reyndar fyrr ţví ađ hann var rótari hjá hljómsveitum Péturs heitins Kristjánssonar á áttunda áratugnum, hvort sem ţćr hétu Paradís eđa Póker eđa Pícassó eđa eitthvađ annađ. Svo stofnađi Ţórđur ţungarokkshljómsveitina Ţrek, sem naut töluverđra vinsćlda en sendi aldrei frá sér lag á plötu.
Á einhverjum tímapunkti breyttist Ţrek í hljómsveitina Ţrym. Eflaust var ţađ í kjölfar einhverra mannabreytinga í hljómsveitinni. Ţrymur sendi frá sér lagiđ Tunglskin. Ţađ getur ađ heyra í myndbandinu hér fyrir ofan. Ţađ kom út á safnplötu sem ég man ekki hvađ heitir. Á henni voru einnig lög međ Grafík, Tappa tíkarrassi og Sverri Stormsker.
Auk söngvarans Ţórđar voru í Ţrymi ţeir Halldór Erlendsson gítarleikari, Ţórđur Guđmundsson bassaleikari, Kjartan Valdimarsson hljómborđsleikari og Pétur Einarsson trommari.
Ţekktasta hljómsveit Ţórđar Bogasonar er sennilega Foringjarnir. Ţeir komu laginu Komdu í partý á vinsćldalista. Myndbandiđ viđ ţađ var spilađ grimmt í sjónvarpinu. Af öđrum hljómsveitum sem Ţórđur hefur sungiđ í má nefna Skytturnar, Warning, Rickshow, DBD, Rokkhljómsveit Íslands og Mazza.
Hér fyrir neđan er skemmtilegt jólalag sem Ţórđur samdi og söng međ hljómsveitinni F (kannski ekki alveg rétti árstíminn fyrir ţetta lag. En samt gaman ađ rifja upp):
Hljómsveitirnar Kiss og Foringjarnir spiluđu eitthvađ saman. Foringjarnir voru áberandi miklu betri hljómsveit. Hér eru söngvarar ţessara hljómsveita, Paul Stanley og Ţórđur Bogason, ađ fara yfir málin:
Ljóđ | Breytt 2.2.2012 kl. 03:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2012 | 01:25
Ćđislega flottir hljómleikar í Norrćna húsinu. Eivör međ hljómleika í Langholtskirkju í kvöld
Fćreyska djasshljómsveitin Yggdrasil hélt frábćra hljómleika í Norrćna húsinu í gćrkvöld. Međ í för voru íslenski saxafónleikarinn Eyjólfur Ţorleifsson og grćnlenski trommudansarinn og leikarinn Miké Thomsen. Báđir fóru á meiriháttar kostum og áttu stjörnuleik. Yggdrasil er mjög góđ hljómsveit sem ég hef fylgst međ í ţrjá áratugi. Eyjólfur og Miké ljáđu djassi Yggdrasils nýja vídd. Miké er magnađur leikari; túlkađi á áhfrifaríkan hátt hesta, fugla, Indíana o.fl. Trommudans hans smellpassađi einkar vel viđ tónlist Yggdrasils.
Í kvöld er Eivör međ hljómleika í Langholtskirkju. Eivör er ţar ein međ kassagítarinn sinn. Ţannig er hún flottust.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
16.1.2012 | 00:59
Finnska fyrir byrjendur
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 01:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
9.1.2012 | 20:07
Íslensk tónlist í Finnlandi
Ég er svo afskaplega heppinn - eđa óheppinn - ađ hafa engan áhuga á búđarrápi. Hvorki hérlendis né erlendis. Ég lít ekki svo mikiđ sem í búđarglugga. Einu verslanir sem ég fer í á utanlandsferđum eru matvörubúđir (til ađ kaupa nauđsynjavörur). Ef ég dett um bókabúđ ţá skima ég lauslega eftir músík- og myndlistabókum. Eftir ađ internetiđ kom til sögunnar ţykir mér hentugra ađ "tékka" á og kaupa bćkur á ţeim vettvangi. Bćkur eru óţćgilega ţungar ađ dröslast međ á ferđalögum.
Svo eru ţađ plötubúđir. Í útlöndum leita ég ţćr uppi. Ég fer vandlega yfir allt úrvaliđ í plötubúđunum. Ađ vísu skokka ég léttilega framhjá rekkum sem merktir eru "Disco" eđa "R&B" eđa "Eazy Listening" og eitthvađ svoleiđis. Ţeim mun betur skođa ég rokkiđ, djass, blús, reggí, folk, classic, hip-hop og svo framvegis.
Almennt eru plötubúđir ekki eins spennandi í dag og áđur. Úrvaliđ er mun einsleitara. Sjaldgćfar plötur, plötur međ lítt ţekktum flytjendum og plötur úr jađargeiranum eru á hrađri útleiđ úr plötubúđum. Sala á ţeim hefur fćrst yfir á internetiđ. Eftir standa í búđunum plötur međ Bítlunum, Rolling Stones, Dylan, The Clash, Abba, Madonnu og Bruce Springsteen. Og öđrum álíka ţekktum. Engu ađ síđur bćtast alltaf í utanlandsferđum 20 - 30 plötur í plötubunkann minn. Plötur sem ég hef ekki fundiđ í íslenskum plötubúđum.
Eitt er alltaf jafn gaman: Ţađ er ađ sjá hvađa íslenskar plötur leynast í plöturekkunum. Reyndar er ţađ nokkuđ fyrirsjáanlegt. Hvarvetna er hćgt ađ ganga ađ plötum Bjarkar, Sigur Rósar, Jónsa og Sykurmolanna. En alltaf kemur eitthvađ á óvart. Núna um jólin uppgötvađi ég ađ geisladiskurinn međ Svanfríđi, What´s Hidden There?, er til sölu í finnskum plötubúđum.
Svanfríđur var rokkuđ hippahljómsveit Péturs heitins Kristjánssonar. Hún sendi frá sér ţessa einu plötu 1972. Ég á ekki diskinn og veit ekki hver gaf hann út hérlendis. Í finnskum plötubúđum er hann útgefinn af ţýsku plötufyrirtćki.
Ekki alveg eins óvćnt og ađ rekast á plötuna međ Svanfríđi í finnskum plötubúđum ţá er ţar einnig ađ finna plötur međ Sólstöfum. Sú yndislega hljómsveit er ţokkalega vel kynnt í alţjóđlegu ţungarokksdeildinni. Hefur spilađ á mörgum stórum rokkhátíđum víđa um heim og túrađ ţvers og kruss um Evrópu. Finnar eru töluvert í ţungarokkinu. Frćgastar eru ţćr sem eru svo sem ekkert svo mjög ţungar, svo sem HIM (hafa náđ gullplötusölu í Bandaríkjunum og víđar), Lordi (sigrađi í Júrivisjón) og Nightwish (selja yfir milljón eintök af stökum plötum).
Til gamans má rifja upp ţegar ég skrapp til Póllands 2009. Ţar komst ég ađ ţví ađ íslenska hljómsveitin frábćra I Adapt var í hávegum. Plata međ henni stillt upp áberandi í öllum plötubúđum og heilmikiđ skrifađ um hana í ţarlendum músíkblöđum. Ţađ var eins og I Adapt vćri eitt heitasta nafniđ í Póllandi.
Ég sá ađ útgefandinn var pólskt fyrirtćki. Ţar stóđ hnífurinn í kúnni. Ţegar ég sagđi strákunum í I Adapt frá ţessum var ţeim brugđiđ. Ţarna var um sjórćningjaútgáfu ađ rćđa. Síđast ţegar ég vissi voru málaferli í gangi. Ţađ hvarflađi ekki ađ pólsku glćpamönnunum ađ fámennur hópur íslenskra ferđamanna í Póllandi tćki eftir ţví ađ ţar vćri veriđ ađ selja ólöglega útgáfu af plötu međ I Adapt. Og sú var nćstum raunin. Enginn annar hefur nefnt ţetta viđ strákana í I Adapt.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
7.1.2012 | 02:14
Fjölţjóđahljómleikar á Rosenberg
Í kvöld verđa glettilega áhugaverđir fjölţjóđlegir hljómleikar í Café Rosenberg á Klapparstíg. Ţar koma fram fćreysku systurnar í The Dam Sisters. Ţćr eru ţekktustu og vinsćlustu bakraddasöngkonur Fćreyja. Svo örfá dćmi séu nefnd ţá hafa ţćr sungiđ bakraddir á plötum listamanna á borđ viđ Pétur Pólson (Clickhaze), Knút Háberg Eysturstein og Benjamín. En systurnar syngja og spila sömuleiđis sína eigin frumsömdu tónlist. Ţađ gera ţćr í kvöld međ stćl.
Norska söngkonan Josefin Winther tređur einnig upp. Hér fyrir neđan má hlera myndband međ henni.
Ađ auki kemur fram hljómsveitin Cynic Guru. Hún var stofnuđ af gítarleikaranum Roland Hartwell í Los Angeles fyrir tveimur áratugum. Ég er ekki klár á ţví hverjir eru í hljómsveitinni í dag. Hef grun um ađ á bassa sé Richard Korn. Gott ef gítarleikarinn Franz Gunnarsson (Enzimi, Esja) er ekki međ í för. Ţá er spurning hver trommar.
Hljómleikarnir hefjast klukkan 22.00.
Hér má heyra í Dortheu Höjgaard Dam: http://www.myspace.com/peturpolson/music/songs/koma-performed-by-dorthea-h-jgaard-dam-59894867
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 02:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
5.1.2012 | 21:39
Íslensk plata ein besta safnplatan 2011
Breski blađamađurinn og rithöfundurinn Mick Mercer er gúrú og gođsögn í heimi goth, pönks og nýbylgju. Hann var um hríđ hirđljósmyndari Blondie. Hann gaf út fyrsta breska pönkblađiđ, Panache (1976 - 1992). Hann var blađamađur og ritsjóri vinsćlasta pönkblađsins, ZigZag (1978 - 1986). ZigZag var einskonar biblía og leiđarvísir fyrir okkur áhugasöm/sama um pönk á ţessum árum. Ég lét tölublöđin liggja frammi í pönkplötubúđinni minni, Stuđ-búđinni. Ţar voru ţau uppspretta ótal nýrra uppgötvana, samrćđna og vangavelta um pönkiđ.
Á níunda áratugnum var Mick Mercer blađamađur hjá öđru stćrsta breska poppblađinu, Melody Maker. Á tíunda áratugnum gaf hann sjálfur út pönkblöđ. Ţekktast ţeirra var Siren. Síđasta aldafjórđung hefur hann sent frá sér fjölda bóka um goth og tekiđ saman fjölda goth safnplatna. Hann heldur úti netsíđunni www.mickmercer.com.
Víkur ţá sögu ađ íslensku hljómsveitinni Q4U. Hún átti vinsćldum ađ fagna á níunda áratugnum. Og á enn í dag harđsnúinn hóp ađdáenda. Sá hópur hefur óvćnt fariđ mjög svo stćkkandi síđustu misseri og teygst út um allan heim. Um ţađ má lesa međ ţví ađ smella á ţennan hlekk: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1191210/
Í uppgjöri Micks Mercers fyrir áriđ 2011 er safnplatan Q4U Best of á lista yfir bestu safnplöturnar:
1. VARIOUS ARTISTS Another Gift From Goth (Strobelight Essentials)
2. THE DANSE SOCIETY Demos Vol. 1 (Dark Entries )
3. Q4U Best Of (Wave Records)
Ţetta er listi sem tekiđ er mark á. Hann er enn ein skrautfjöđrin í hatt Q4U og stimplar hljómsveitina ţegar í stađ í flokk međ stóru nöfnunum í alţjóđlegu naum-bylgjunni (minimal wave). Hrifning Micks Mercers á safnplötu Q4U mun klárlega leiđa til ţess ađ hljómsveitinni verđi gerđ skil í nćstu goth bók kappans. Jafnframt er nćsta víst ađ hann mun sćkja fast ađ fá lag međ Q4U á nćstu safnplötu sína. Sigurganga Q4U er rétt ađ hefjast. Eđa eins og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og formađur Sjálfstćđisflokksins, Bjarni Ben, orđa ţađ: "You Ain´t See Nothing Yet!" Nćst eru ţađ fálkaorđur og stórriddarakrossar.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)