Eivör #1 á Íslandi og í Færeyjum aðra vikuna í röð

  Aðra vikuna í röð situr upphafslag plötunnar stórkostlegu,  Larva,  með Eivöru í 1.  sæti vinsældalista rásar 2.  Lagið,  Undo Your Mind,  er að sögn Eivarar samið og útsett undir áhrifum frá James Bond kvikmyndum.  Pabbi hennar,  Páll Jacobsen,  er mikill aðdáandi James Bond-myndanna.

  Aðra vikuna í röð á Eivör einnig topplagið í Færeyjum,  Vöka.   Þessa dagana er Eivör í Kanada að æfa fyrir hlutverk sem Marilyn Monroe í óperu eða söngleik Gavins Bryars  Everybody Can See I Love You  (sjá síðustu færslu).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes

ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzz.

Hannes, 6.6.2010 kl. 00:37

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þú tjaldar ekki til einnar nætur í garðinum hennar Eivarar. Hún er ekki hrædd við Vesturíslenska Stelki og Tjalda?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 7.6.2010 kl. 05:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband