Ólafur F. á fljúgandi siglingu

ólafurF

  Magnað frumsamið kvæði Ólafs F.  Magnússonar,  fyrrverandi borgarstjóra,  um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,  núverandi borgarstjóra,  hefur heldur betur slegið í gegn.  Kvæðið flutti Ólafur F.  á borgarstjórnarfundi Reykjavíkur í fyrradag og lesa má það hér á bloggi mínu fyrir neðan:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1007820/

  Nú hefur verið verið stofnuð á Fésbók síða Ólafi F.  til heiðurs.  Kíkið á hana og skráið ykkur.  Slóðin er:   http://www.facebook.com/group.php?gid=259477901537&v=info#/group.php?v=wall&gid=259477901537


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nú mega mútuþegar fara að vara sig.

Sigurður Þórðarson, 21.1.2010 kl. 16:20

2 Smámynd: 365

Þetta er ekki fjúgjandi sigling, heldur bara bilun.  Hann rekur óðfluga í strand með þessu áframhaldi.

365, 21.1.2010 kl. 16:31

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Verið prúð, atist ekki með fatlað fólk.

Hrólfur Þ Hraundal, 21.1.2010 kl. 17:32

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hann er ekki hátt skrifaður í mínum huga þessi Ólafur.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.1.2010 kl. 17:37

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Fólk er svo samdauna spillingunni að því finnst bilun að setja sig upp á móti henni.

Sigurður Þórðarson, 21.1.2010 kl. 18:00

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála Siggi. Það er eins og sumir telji það árás á þjóðarstoltið að leggjast gegn spillingunni.

Spillingin í borgarstjórninni er í beinni útsendingu flesta daga ársins. Og eini maðurinn sem andmælir er talinn geðbilaður.

Árni Gunnarsson, 21.1.2010 kl. 18:12

7 identicon

Ólafur F er sjálfur að ,,sigla" í spillingunni í islenskri pólitík !

Ólafur F segist vera nátturuverndarsinni og talar þá um eitthvað sem  honum finnst vera eitthvað merkilegt !

Ólafur F hefur sjálfur tekið þátt í að eyðileggja fjörur og lífríki í kringum höfðuðborgina.  Hann var einu sinni Borgarstjóri og gat sem slíkur beitt sér gegn þessari eyðileggingu !  Hann velur að standa með þeim öflum sem vilja þessa eyðileggingu !

Hefur Ólafur F fengið peninga frá Björgun  ?

JR (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 19:31

8 identicon

Ekki ætla ég mér þá dul að skera úr um hver er klikkaður. Hitt veit ég að því fer allfjarri að „kvæðið“ geti kallast „magnað“. Til þess eru braglýti alltof mörg. Þar er að finna ofstuðlun á amk. tveimur stöðum, stuðlar skakkt settir og svo hið klunnalegasta nauðrím. Ætli maður að nota vísu til að undan henni svíði verður hún að vera rétt gerð og hnyttin. Til dæmis um svoleiðis mætti setja þessa vísu eftir hann pápa gamla:

Engum manni ertu líkur, undirmiginn.

Þú ert eins og þorskur siginn,

þjófskur, svikull, heimskur, lyginn.

Tobbi (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 19:45

9 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður,  heldur betur.

Jens Guð, 21.1.2010 kl. 20:57

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

JR. Um að gera að láta ekki bugast. Enda þótt öllum sé ljóst að Ólafur er umhverfissinni af heilum hug þá ekur hann bíl og endurnýtir kannski ekki klósettpappír.

Ertu nokkuð í hópnum sem skilur ekki orðið "umhverfisvernd" og kallar okkur sem stöndum gegn áníðslu landsins "hina svokölluðu umhverfissinna"?

Eða: "Auðvitað erum við öll náttúruverndarsinnar. Þetta er bara spurningin um að fórna minni hagsmunum fyrir meiri"?

Árni Gunnarsson, 21.1.2010 kl. 21:31

11 Smámynd: Jens Guð

  365,  ekki vantar meðbyrinn.  Það sópast að Ólafi nú fólk sem aldrei fyrr og segir spillingunni stríð á hendur.

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 01:35

12 Smámynd: Jens Guð

  Hrólfur,  mér þykir full gróft hjá þér að tala um Hönnu Birnu sem fatlaða.  Ég held að henni sé sjálfrátt.

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 13:09

13 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  hann hækkar bratt í hugum margra núna allra síðustu dagana.  Mörgum þykir nóg um samspillingu fjórflokksins og tími til kominn að hún sé afhjúpuð.

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 17:04

14 identicon

,,Þetta er bara spurningin um að fórna minni hagsmunum fyrir meiri"?

 Hvað átt þú við Árni við með þessum orðum ?

Ertu líka á launum hjá Björgun ?

JR (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 23:07

15 Smámynd: Jens Guð

  Siggi (#5),  það er umhugsunarvert þegar tilvísun í spillingu og óheiðarleika er kölluð geðbilun.

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 23:40

16 Smámynd: Ómar Ingi

Ég bara vil ítreka það að þessi vera á mikið bágt og á ekkert erindi á meðal fólks , hann hefur itrekað sýnt það á hinum ýmsu stöðum og munu myndir og video af honum birtast ef hann fer ekki að slappa af.

Ómar Ingi, 23.1.2010 kl. 22:23

17 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  ég hlakka til að sjá þær myndir og myndbönd.  Hann myndast vel.  Nú streymir fólk á lista á Fésbók honum til stuðnings.  Hann fær glæsilega kosningu í vor.  Mér þykir líklegt að ég verði með á framboðslista hans og flýt sennilega með honum inn í borgarstjórn.

Jens Guð, 24.1.2010 kl. 00:10

18 Smámynd: Jens Guð

  Árni,  þetta er merkilegt.  Og umhugsunarvert.

Jens Guð, 24.1.2010 kl. 00:12

19 Smámynd: Jens Guð

  JR,  Ólafur F.  er ekki til sölu.  Það eiga sumir erfitt með að skilja.

Jens Guð, 24.1.2010 kl. 00:14

20 Smámynd: Jens Guð

  Tobbi,  það er ekki á allra færi að yrkja eins og Skagfirðingar.  Kvæðið hans Ólafs F.  er tækifærisvísa.  Ort með hraði skömmu fyrir borgarstjórnarfundinn þegar skáldagyðjan kom óvænt yfir borgarstjórann fyrrverandi.

Jens Guð, 24.1.2010 kl. 00:16

21 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ruddaskapur Ólafs Fr hefur ekkert með Hönnu Birnu að gera -

hann svívirti virðingu borgarstjóraembættisins sem og borgarstjórn alla með því að draga inn í salinn þær afurðir sem finnast í haughúsi huga hans.

Það sem verra er - Dagur B. og aðrir í minnihlutanum tóku undir með þögninni. Segir það ekki eitthvað um andlegt atgerfi þeirra sem og siðferðisvitund?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 28.1.2010 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.