Þorraþræll

  Nú á bóndadag,  fyrsta degi þorramánaðar,  er ástæða til að syngja kvæðið góða eftir Kristján Jónsson fjallaskáld,  Þorraþræl.  Það má finna skrýtinn flutning á þessu kvæði í tónspilaranum mínum hérna efst til vinstri á bloggsíðunni.  Þannig var fyrir 12 árum að yngri sonur minn átti að læra þetta kvæði í grunnskóla.  Honum þótti það tyrfið og leiðinlegt.  Á þeim tíma var hann að hlusta á rapp.  Ég prófaði að auðvelda námið með því að setja hipp-hopp takt undir þuluna.  Svo datt ég niður á skemmtilega bassalínu með.  Þá þótti mér allt í einu gaman að gera þetta dálítið kjánalegt með því að bæta við viðlagi í anda "Gangsta´ Paradise" sem þá var vinsælt og flétta saman við  "Í sól og sumaryl" eftir Gylfa Ægisson.   

  Ég prófaði að hljóðrita þessa útfærslu og senda á rás 2.  Ekki undir mínu nafni heldur Gleðisveitarinnar Alsælu (til að enginn myndi fatta hvað var í gangi).  Lagið fékk góða spilun á rás 2 og ég fékk góð STEF gjöld fyrir.  Færeyskur tónlistarmaður,  Kristian Blak,  heyrði þetta hjá mér og taldi það eiga erindi á plötu.  Við settum saman vest-norræna safnplötu sem heitir "Rock from the Cold Seas" og höfðum þetta lag með. 

  Það fékk góða spilun í færeyska útvarpinu og fór í 6.  sæti grænlenska vinsældalistans.  Í kjölfarið var mér boðið í sögulegar hljómleikaferðir til Grænlands tvö ár í röð.  Þar spilaði dauðapönksveitin Gyllinæð með mér (smellið á lög Gyllinæðar í tónspilaranum.  Sonur minn,  þá 14 ára er á gítar.  Með honum voru í hljómsveitinni trommusnillingurinn Magnús Magnússon (Eiríkssonar) og Gústi söngvari).  Einnig fékk lagið spilun í Skotlandi og mér var boðið að spila á popphátíð í Edinborg.  Þar spilaði einnig sonur söngvarans í Nazareth og náungi sem varð síðar frægur poppari.  Okkur varð öllum vel til vina.  Ég man bara í augnablikinu ekki undir hvaða nafni popparinn spilaði.  Á þeim tíma var sá flottur en leiðinlegur í poppinu síðar.     

  Núna í upphafi þorra auglýsir Kjarnafæði í útvarpinu súrmat með flutningi á Þorraþrælnum sem byggir á hrynjanda lags míns.  Til gamans má geta að á degi íslenskrar tungu sóttist Kastljós sjónvarpsins eftir því að Gleðisveitin Alsæla myndi flytja Þorraþrælinn.  En illa gekk að finna leynifyrirbærið Alsælu.  Leitað var til Erps "Blaz Rocka" og Sesar A. um að finna Alsælu.  Þeir eru vinir mínir og vissu að ég var ekki tilbúinn að afhjúpa fyrirbærið.  Þeir fluttu því Þorraþrælinn í minni útfærslu í Kastljósi.  Daginn eftir flutti Spaugstofan sína útfærslu á Þorraþrælnum mínum.  Síðan hef ég aldrei verið neikvæður í garð Spaugstofunnar.   

Nú er frost á Fróni,
frýs í æðum blóð,
kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Yfir laxalóni
liggur klakaþil,
hlær við hríðarbyl
hamragil.
Mararbára blá
brotnar þung og há
unnarsteinum á,
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni
æðrast skipstjórinn,
harmar hlutinn sinn
hásetinn.

Horfir á heyjaforðann
hryggur búandinn:
,,Minnkar stabbinn minn,
magnast harðindin. -
Nú er hann enn á norðan,
næðir kuldaél,
yfir móa og mel
myrkt sem hel.
Bóndans býli á
björtum þeytir snjá,
hjúin döpur hjá
honum sitja þá.
Hvítleit hringaskorðan
huggar manninn trautt;
Brátt er búrið autt,
búið snautt.

Þögull Þorri heyrir
þetta harmakvein
gefur grið ei nein,
glíkur hörðum stein,
engri skepnu eirir,
alla fjær og nær
kuldaklónum slær
og kalt við hlær:
,,Bóndi minn, þitt bú
betur stunda þú.
Hugarhrelling sú,
er hart þér þjakar nú,
þá mun hverfa, en fleiri
höpp þér falla í skaut.
Senn er sigruð þraut,
ég svíf á braut.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er bara ótrúlega töff:

Ágúst Guðmundsson (IP-tala skráð) 22.1.2010 kl. 23:14

2 Smámynd: Jens Guð

  Ágúst,  takk fyrir það. 

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 23:29

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Rammíslenzkar verður það ekki í tilefni dagsinz, hafðu þökk fyrir félagi.

Steingrímur Helgason, 22.1.2010 kl. 23:38

4 Smámynd: Jens Guð

  Steingrímur,  bestu þakkir sjálfur.  Reyndar var það þannig hjá Kjarnafæði að þar á bæ þótti flutningur minn á Þorraþrælnum ekki nógu þjóðlegur og þorrablótslegur.  Réttilega.  Þess vegna var lagið endurunnið og lagað að réttri stemmningu.  Og vel hefur tekist til.

Jens Guð, 22.1.2010 kl. 23:44

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Snilldar lag hjá þér Jens. Hrátt, pönkað og rokkað eins vel kæstur hákarl.

hilmar jónsson, 23.1.2010 kl. 00:31

6 Smámynd: hilmar  jónsson

P.s. Man þegar ég heyrði þetta fyrst fyrir nokkrum árum. Var með þetta fast í höfðinu í langann tíma.. flott flott.

hilmar jónsson, 23.1.2010 kl. 00:36

7 Smámynd: Jens Guð

  Hilmar,  kærar þakkir fyrir þessa umsögn.  Af minni hálfu átti þetta að vera grín-bull.  Þetta er mjög einföld afgreiðsla.  Bara ódýr skemmtari,  gítar og söngur.  Mig óraði aldrei fyrir að það fengi þessa spilun erlendis sem varð.  Ég fæ ennþá 20 - 30 þúsund kall í STEF gjöld fyrr lagið árlega.  Meðal annars veit ég að það er ennþá spilað í útvarpi í Grænlandi og Sviss.  Á hverju ári fæ ég tölvupóst frá fólki frá útlöndum sem er að leita að þessu lagi á plötu.  Platan "Rock for the Cold Seas" með laginu hefur selst í 20 þúsundum eintaka og ég hefur ratað á margar netsíður ef maður "gúglar" það. 

  Til gamans má geta að þegar ég fór í seinni hljómleikaferð til Grænlands hittum við gengi frá bresku BBC á flugvelli í Kangersuluat.  Það var með plötuna og sagði hana hafa verið kveikju að heimsókn til Grænlands.  Þeim þótti óvænt tilviljun að hitta mig,  útgefanda plötunnar,  þarna.  Það varð hin mesta skemmtun.  Ég fór í bólleik með þul sjónvarpsþáttar um Grænland og Gústi söngvari Gyllinæðar með pródúser BBC.  Þær sendu mér síðar óklippta útgáfu af þættinum sem var sendur út á BBC.  Það var ljóta ruglið.  Síðar lóðsaði ég þær um Reykjavík þar sem þær gerðu annan þátt fyrir BBC.    

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 01:07

8 Smámynd: Jens Guð

hef ratað... átti það að vera.

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 01:08

9 Smámynd: Jens Guð

  Kannski heitir flugvöllurinn Kangerlusuat.

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 01:09

10 Smámynd: hilmar  jónsson

Ódýr skemmtari, gítar söngur, smá hugmyndaflug..Þannig verða oft góðir hlutir til..

hilmar jónsson, 23.1.2010 kl. 01:33

11 Smámynd: Jens Guð

  Ég er alveg sáttur við að þetta lag sé kjánalegt.  Þannig var það unnið.  Það átti aldrei að vera annað en sprell og út í hött.  Vinsældir þess í Grænlandi,  Færeyjum,  Skotlandi og Færeyjum komu algjörlega á óvart.  Þegar færeyska plötuútgáfan Tutl vildi gefa það út hringdi ég í Gylfa Ægis.  Sagði honum frá sprellinu og spurði hvort ég þyrfti eitthvað að díla við hann út af því að brúka bút úr í "Sól og sumaryl".  Hann svaraði:  "Steldu eins og þú vilt úr því lagi.  En mér þætti vænna um ef þú gengur þannig frá því hjá STEF að öllu sé til haga haldið."  Það gerði ég.  Fékk mælt hvað lag Gylfa vóg þungt í flutningi mínum á laginu.

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 02:08

12 identicon

Less is more, eins og sagt er stundum. Ekkert kjánalegt við þetta og sérstaklega ekki textann. Enda sannkallaður tungubrjótur. Man þegar ég heyrði þetta fyrst, fannst þetta flott.

Þorsteinn (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 07:43

13 identicon

Þetta er bara snilld og ég spila þetta ævinlega á þorranum

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 23.1.2010 kl. 08:07

14 Smámynd: Jens Guð

  Þorsteinn,  textinn er eðal.  Enda tókst Kristjáni fjallaskáldi að drekka sig til dauða - að mig minnir - 27 ára.

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 20:20

15 Smámynd: Jens Guð

  Björn,  það er góður siður sem fleiri mættu taka upp.

Jens Guð, 23.1.2010 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband