Ný mynd af Jesú

  Það hafa ekki margar myndir náðst af Jesú frá Arabíu,  söguhetju Nýja testamentisins.  Sumar af þekktustu myndum af kappanum eru sannanlega falsaðar.  Jafnvel þó aðrir telji manninn á myndunum vera sláandi líkan fyrirmyndinni.  Á föstudaginn langa gerðust þau undur og stórmerki í Bretlandi að nákvæm andlitsmynd af Jesú þessum birtist í tyggjóklessu:

jesú-tyggjó-klessa

  Fyrir óvana er ráð að píra augu þangað til rétt glittir í tyggjóklessuna.  Síðan skal bakka aftur á bak þangað til andlitsfallið í klessunni er farið að líkjast Jesú.   

  Til samanburðar er hér fyrir neðan mynd sem fræðimenn telja gefa betri vísbendingu um útlit Jesú en tyggjóklessan.  Fjölskyldusvipurinn leynir sér ekki.  

jesú-orginal


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé andlitsmyndina í tyggjóinu, en sýnist þetta vera í raun Mickey Rourke í The Wrestler.

Getur verið að hann hafi dottið á tyggjóklessuna?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 12:22

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þetta er Jesú ekki spurning, hver hefur, í gegnum tíðina, verið meira á milli tannanna á fólki en hann blessaður.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2010 kl. 12:43

3 identicon

Jesú er tyggjóklessa...

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 13:09

4 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  hvort sem þarna má greina andlitsdrætti Mickeys eða Jesú er umhugsunarvert hvers vegna andlitið birtist svona greinilega í tyggjóklessu.  Kannski er það rétt hjá þér að Mickey hafi dottið á klessuna.  Eða einhver annar hafi dottið.  Og ekkert endilega á klessuna.

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 15:33

5 Smámynd: Jens Guð

  Axel,  þetta eru góð rök hjá þér.  Ég hef einmitt orðið var við það í bloggheimum að fjöldinn sækir í að japla á Jesú og félögum.

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 15:34

6 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  í þessu tilfelli virðist svo vera.

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 15:35

7 identicon

Hérna er gott dæmi um kikklun

http://www.youtube.com/watch?v=cAIKw22JC7k

Arnar M (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 16:01

8 Smámynd: Ómar Ingi

Sumt fólk á meira bágt en annað fólk Jensi minn.

Ómar Ingi, 9.4.2010 kl. 19:02

9 identicon

Ég datt einu sinni á tyggjóklessu en man ekki eftir að það hafi komið andlit á hana. Er þessi klessa frá Wrigley?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 20:33

10 Smámynd: Jens Guð

  Arnar,  takk fyrir hlekkinn. Penn og Teller eru jarðtengdir.

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 21:30

11 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  svo sannarlega.  Góðu fréttirnar eru að sumir sem eiga bágast hafa ekki hugmynd um það. 

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 21:35

12 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  ég veit ekki hvaða tegund tyggjóklessan er.  Við getum útilokað kennaratyggjó.  Held ég. 

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 21:36

13 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Auðvitað er þetta bara tyggjó. Ég þarf engar myndir af Jesú. Hann gæti mín vegna hafa verið smávaxinn og snimma skölllótur eins og Egill. En allavega ekki eins baldinn. Nema þegar hann velti borðum útrásarvíkinganna í musterinu og rak þá út.

Sumir menn þurfa að styðjast við sjónræna upplifun. Eru etv. "lesblindir" á Jesú að öðru leyti. 

Í lagi mín vegna. 

Sigurbjörn Sveinsson, 9.4.2010 kl. 22:12

14 Smámynd: Jens Guð

  Sigurbjörn,  þetta er ekki "bara" tyggjó.  Þetta er frægasta tyggjóklessa heims.  Hún er á forsíðum stórblaða þvers og kruss um allan heim.  Líka í Kína.  Í einhverri lýsingu á Jesú er hann sagður hafa verið ófríður.  Á neðri ljósmyndinni er hann glettilega líkur Þjóðverja sem ég kannast við.  Sá nýtur kvenhylli.

Jens Guð, 9.4.2010 kl. 23:44

15 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Hættu þessu Jens. Þú ert bara að grínast. Er þessi Þjóðverju frændi þinn?

Sigurbjörn Sveinsson, 10.4.2010 kl. 00:18

16 Smámynd: Jens Guð

  Sigurbjörn,  það má vera að Þjóðverjinn sé frændi minn.  Ég veit ekki til þess.  Hann nýtur kvenhylli.  Þannig að það er samt ekki ósennilegt.

Jens Guð, 10.4.2010 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.