Áríðandi upplýsingar um svefn bænda

  Hér fyrir neðan er póstur sem mér barst í gestabókina á blogginu mínu fyrr í dag.  Í stað þess að bregðast við bóninni með því að endurskrifa athugasemdina tel ég heppilegast að birta póstinn í heilu lagi hér.  Þannig kemst erindið best til skila.  Ljósmyndinni hnupplaði ég af bloggsíðu Ómars Inga.  Hún er þar sögð vera tekin af Ólafi Thorissyni. 

Svefn bændanna !!

Jens vegna þess hve lipur penni þú ert vil ég biðja þig að blogga um pistil einn sem birtist í fréttablaðinu í dag 19.4 er á bls 24 eftir Söru Mcmahon. Þar stendur meðal annars. Ég vona að flóðið í Markafljóti hætti fljótt svo að bændurnir þar í kring fái svefnfrið.!!!! Ekki er skilningurinn mikill á því að það eru bændur yndir Eyjafjöllum Þorvaldseyri og nágrenni sem standa verst vegna ofnakomu ösku sem engu eyrir hvorki skepnunum eða gróðri,eyðileggur jarðirnar ræktað land og bithagann. Eins þarf að kenna blaðamönnum að nota vitræn orð sem gilda til sveita um fénað búsmala gripi úthaga og margt fleira. Mér er hreinlega misboðið að lesa pistil sem þennan. Kveðja margrét.

Margrét Sig (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 19. apr. 2010

sprengigos


mbl.is „Verstu morgnar sem ég hef lifað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Í laginu Sítrónu tré segir Maggi Mix hina glæsilegu setningu "Mig stífir endalaust í tittlinginn, en aðeins það sem ég sé er sítrónu tré"

Siggi Lee Lewis, 19.4.2010 kl. 23:32

2 identicon

Íslendingar eiga almennt mjög erfitt med ad setja sig í spor annara eda sjá hlutina frá ödrum sjónarhóli en their standa á sjálfir.  Sjálfstaedis og Framsóknarflokknum hefur tekist ad sundra íslendingum á svo "glaesilegan" hátt ad their eru ekki faerir um ad vinna saman sem heild ad sameiginlegu markmidi.  Íslendingar eiga ekkert sameiginlegt markmid.  KLÍKAN sem hefur hrifsad til sín gaedi thessa lands á ekkert sameiginlegt med saudsvörtum almúganum sem hún hefur raent.

Thess vegna á thessi thjód litla sem enga möguleika á ad standa a eigin fótum.

Fólkid sem býr tharna tharf adstod og thad mikla adstod STRAX!

Myndin er stórkostleg!

Gjagg (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 23:36

3 identicon

Mér finnst Margrét nú bara koma þessu ágætlega frá sér sjálf og þarf ekkert á þér að halda, Jens.

Hún ætti eiginlega bara að gerast bloggönd sjálf og skella sér í sjálfstæða bloggandagerð í stað þess vera alltaf að laumupokast í gestabókunum annarra blogganda.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 19.4.2010 kl. 23:58

4 identicon

... ekki veitir okkur af að fá fleiri kjarnakonur í hóp blogganda!

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 00:00

5 Smámynd: Jens Guð

   Siggi Lee, Maggi Mix er óendanleg uppspretta gullkorna.

Jens Guð, 20.4.2010 kl. 00:01

6 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  Íslendingar eru furðufuglar upp til hópa.

Jens Guð, 20.4.2010 kl. 00:02

7 Smámynd: Jens Guð

   Grefill, þetta er rétr hjá þér.

Jens Guð, 20.4.2010 kl. 00:03

8 Smámynd: Hannes

Það er vonandi að bændum verði bætt það tjón sem þeir verða fyrir útaf þessu gosi enda er landbúnaður nauðsýnlegur hér á landi.

Hannes, 20.4.2010 kl. 00:06

9 Smámynd: Jens Guð

...rétt átti það að vera...

Jens Guð, 20.4.2010 kl. 00:32

10 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  ég veit ekki hvernig tryggingarmál snúa að þessu fólki fyrir austan fjall.  Mín litlu kynni af tryggingafélögum eru þannig að siðblinda sé á sama stigi og hjá Fjórflokknum.  Á sínum tíma var ég með heimilistryggingu hjá fyrirtæki sem hét Skandia eða eitthvað álíka.  Gott ef það heyrði ekki undir eða fór undir Sjóvá.  Þá sprakk hjá mér rör undir baðkeri á efri hæð.  Allt fór í klessu á neðri hæðinni hjá mér.  Þar mætti ég siðblindu og svindli í bak og fyrir.  Síðan hef ég ekki keypt tryggingu umfram lögbundna bifreiðatryggingu. 

Jens Guð, 20.4.2010 kl. 00:40

11 identicon

Grefill !!! Að vera alltaf að laumupokast í gestabókum annara blogganda ! Þetta eru ýkjur og ofsagt hjá þér Grefill. Já kannske ég bara gerist BLOGGÖND,það er vel til fundið hjá þér.

Margrét (IP-tala skráð) 20.4.2010 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.