Slóttugheit Skota

  Fyrir nokkrum árum kusu Skotar um hugsanlegan aðskilnað frá breska heimsveldinu.  Um tíma leit út fyrir að sjálfstæðissinnar myndu fara með sigur af hólmi.  Þegar betur er að gáð þá var sigurinn þeirra þó að niðurstaða kosninganna sýndi annað - í fljótu bragði.  Ég sá strax í gegnum þetta.

  Skotar eru lúmskir.  Þeir hafa þurft á því að halda öldum saman.  Það hefur verið illa farið með þá,  svo sem sjá má í kvikmyndinni Braveheart.  Þeir hafa verið fótum troðnir og fátækir.  Þegar skotið er úr fallbyssum 12 skotum (með litlu s) á hádegi þvers og kruss um Bretland þá hinkra Skotar um klukkutíma og skjóta einu skoti klukkan eitt.

  Þegar Skotar kusu gegn aðskilnaði frá breska heimsveldinu voru þeir í raun að styðja sjálfstæði Skotlands.  Bara á annan og metnaðarfyllri hátt.  Óopinbert markmið Skota er að tilheyra áfram breska heimsveldinu en yfirtaka það.  Leggja það undir yfirráð Skota.  Skoski þjóðarflokkurinn hefur þegar hafið stórsókn í Bretlandi.  Kosningarnar í fyrradag færðu honum 56 þingsæti á breska þinginu.  Hann bætti við sig 50 þingsætum. Flokkurinn er jafnframt búinn að úthýsa öðrum flokkum úr Skotlandi.  Skotland er svo gott sem einsflokks kjördæmi skoska þjóðarflokksins í dag.  Það eru fleiri ísbirnir í Skotlandi en breskir Íhaldsmenn.  Breska Verkamannaflokknum var sömuleiðis sparkað endanlega út úr Skotlandi í kosningunum.

 


mbl.is Vekur upp fjölda spurninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband