Á misjöfnu þrífast börnin best

 

  Mörgum myndi bregða í brún ef þeir vissu hvernig hreinlætismálum er háttað í eldhúsi sumra veitingahúsa.  Kona er vann sem unglingur á pizza-stað er bólusett gegn pizzum til frambúðar.  Lúkur pizza-gerðarfólks voru ekki alltaf hreinar í upphafi vinnudags.  En urðu hægt og bítandi tandurhreinar eftir að hafa hnoðað nokkur pizza-deig.  Það þótti sport að þeyta deiginu með snúningi hátt á loft þannig að í smástund festist það við óhreint loft eldhússins.

  Breski sjónvarpskokkurinn Ramsey Gordon hefur sýnt okkur inn í eldhús margra bandarískra veitingastaða.  Þar er iðulega pottur brotinn hvað varðar hreinlæti.  Á einum stað var kjúklingaréttur afgreiddur á tréprjóni.  Viðskiptavinir nöguðu kjötið af prjónunum.  Þeir voru notaðir aftur handa næstu viðskiptavinum.  Jafnvel með kjötleifum frá fyrri viðskiptavinum.  

  Konu sem vann á Hressingarskálanum á síðustu öld var brugðið er hún uppgötvaði að þeyttur rjómi var margnýttur.  Með tertusneið og heitu súkkulaði fylgdi skál með þeyttum rjóma. Fæstir átu allan rjómann.  Leifarnar voru seldar næsta kúnna.  Vandræðalegt atvik kom upp þegar kúnni drap í sígarettustubbi í rjómanum.  Hann gerði það svo snyrtilega að það sást ekki.  Næsti kúnni hrökk í kút er hann mokaði sígarettustubbi út á tertusneiðina sína.  

  Fyrir nokkru las ég í bandarísku dagblaði viðtal við starfsfólk veitingastaða.  Umræðan snérist um þjórfé.  Fleiri en einn upplýsti að nískum fastakúnnum væri refsað með því að skyrpa í matinn þeirra.

  Eftir tilkomu internetsins hafa ófá myndbönd birst af starfsmönnum veitingastaða hreykja sér sóðaskap.  Meðal annars með því að troða frönskum kartöflum upp í nefið á sér áður en þær eru bornar fram handa kúnnanum.  

  Stóra skeiðarmálið á Akureyri skilur eftir eina áleitna spurningu.  Sleikt skeið er ekki stóra málið.  Það er að segja ef hún var snyrtilega sleikt.  Þá er hún næstum því hrein.  Spurningin snýr að fullyrðingu eiganda veitingastaðarins um að diskar með sósu slettri á þá úr sleiktri skeið hafi aldrei farið út úr eldhúsinu.

  Staðurinn var undirmannaður.  Fjögurra manna starfslið sat uppi með vinnu átta manna.  Það er dáldið skrítið að undir þeim kringumstæðum hafi vinna verið lögð í að útbúa fjölda veisludiska sem aldrei fóru út úr eldhúsinu. 

  Til varnar einu og öðru í veitingum á matsölustöðum er ráð að skola þeim niður með góðu hvítvíni.  Ennþá betra er að taka eitt eða tvö vodka-skot með.  Eða þrjú.  Þau eru sótthreinsandi.  Og gera máltíðina skemmtilega þegar upp er staðið.  

    


mbl.is Yfirmaður kokksins sem sleikti skeiðina miður sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Héðan í frá borða ég heima hjá mér og sleiki mínar eigin skeiðar 

Marta Gunnarsdóttir, 7.5.2015 kl. 22:15

2 Smámynd: Jens Guð

Marta,  það er alltaf skemmtileg stemmning að snæða á matsölustað.  Reikna má með að sóðarnir í eldhúsinu séu í minnihluta. 

Jens Guð, 7.5.2015 kl. 22:50

3 identicon

Fólk sem er að fara með vörur inn á veitingahús hefur sagt mér margar ljótar sögur og að ekki séu alltaf eldhúsin snyrtilegust á flottustu veitingahúsunum. Kennitöluflakk hjá eigendum veitingahúsa hér á landi hefur verið mjög áberandi á undanförnum árum, sem segir manni auðvitað fyrst og fremst að það er mikið af óábyrgum aðiæum í veitingahúsarekstri hér á landi. Svo eru auðvitað til veitingahús sem eru til fyrirmyndar í alla staði, s.s. Þrír Frakkar, Veitingahúsið Hornið og Askur svo einhverjir slíkir séu nefndir.

Stefán (IP-tala skráð) 8.5.2015 kl. 08:14

4 identicon

Nefnið eitt veitingahús sem hefur bara tvisvar skipt um kennitölu ?   Þessi atvinnugrein er einhverra hluta vegna mesti kennitöluflakkari landsins .

Segir það okkur eitthvað um hreinlæti í eldhúsinu ?   Hvers vegna eru eldhús veitingajúsa ekki opin fyrir viðskiptavinum ?

JR (IP-tala skráð) 8.5.2015 kl. 12:40

5 identicon

Einhver skinkubrúnn Egill Einarsson er sagður vera kennitöluflakkari í veitingabransanum, ásamt margdæmdum félögum ...

Stefán (IP-tala skráð) 8.5.2015 kl. 15:14

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  einhvertíma heyrði ég því haldið fram að kennitöluflakkið hafi verið fundið upp í veitingahúsabransanum.

Jens Guð, 10.5.2015 kl. 11:10

7 Smámynd: Jens Guð

JR,  eldri veitingahús hafa sennilega mörg hver verið rekin á ýmsum kennitölum.  

Í Grillmarkaðinum er kokkað í opnu eldhúsi fyrir framan gestina.  Það er til fyrirmyndar.  Og gaman að fylgjast með eldamennskunni að auki.  Frábær staður.  

Jens Guð, 10.5.2015 kl. 11:19

8 identicon

Nú verð ég að verja meistaraveitingastað frænda okkar, þau bentu á að tæknimaðurinn hefði sagt þeim frá skeiðinni sleiktu þá hefði verið hætt við að senda matinn fram, og ég hef unnið i allmörgum eldhúsum veitingahúsa og alltaf verið hreinlæti i fyrirrúmi en eins og heima hjá manni getur öllum orðið á , sleikt skeið eða ekki, það þarf meira til aðs toppa mig af hehehe og i dag eru pizzugerðamenn með einnota hanskafoot-in-mouth

sæunn guðm (IP-tala skráð) 12.5.2015 kl. 09:35

9 Smámynd: Jens Guð

Sæunn,  hvaða frændi okkar rekur þennan veitingastað?

Jens Guð, 12.5.2015 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband