26.11.2015 | 18:06
Forsetaframbjóðandi ofsóttur
Einn af þeim sem sækist eftir því að verða frambjóðandi Republikanaflokksins til embættis forseta Bandaríkja Norður-Ameríku er Donald Trump. Hann sætir einelti af hálfu tónlistarmanna, fjölmiðla og ýmissa fleiri. Það er ljótt. Hann er hrakyrtur, hæddur og smáður. Samt er það þannig að eineltið er honum til framdráttar. Vinsældir hans aukast og haldast í hendur við hverja ágjöf sem hann mætir.
Á meðan Donald Trump baðar sig í sviðsljósinu eiga aðrir kandídatar ekki möguleika hjá reppum. Ekki síst þegar hann hampar því að sækja í uppskrift Hitlers og félaga í þýska nasistaflokknum. Til að mynda boðar hann áform um að merkja múslima með stjörnu á sama hátt og nasistar merktu gyðinga, samkynhneigða og fleiri.
Þá leggst vel í marga hugmynd hans um að reisa "Berlínarmúr" á landamærum Mexikó og Bandaríkjanna. Þannig verði Mexíkóum gert illmögulegt að flæða yfir Bandaríkin. Trum veit það (sennilega) sjálfur en ekki almenningur að 14% fleiri flýja frá Bandaríkjunum til Mexíkó en öfugt.
Samskipti Trumps við vinsæla tónlistarmenn eru brösuleg. Hann hóf kosningabaráttu sína með einkennislagi úr smiðju Njáls Unga, "Rockin´ in the Free World". Njáll brást hinn versti við og bannaði notkun hans á laginu. Það kom Trump í opna skjöldu. Hann taldi þá Njál vera góða vini. Þar fyrir utan hafði hann borgað umboðsskrifstofu Njáls pening fyrir lagið. En Njáli var ekki haggað.
Þá var ekki um annað að ræða en taka upp kosningalag úr smiðju REM, "It´s the end of the World As We Know It". Hljómsveitin starfar ekki lengur. En liðsmenn hennar tóku höndum saman og bönnuðu Trump að nota lagið. Þeir létu jafnframt ljót orð falla um Trump. Þetta kom honum í opna skjöldu vegna þess að hann var búinn að borga umboðsskrifstofu REM fyrir notkun á lagiðnu. Þar fyrir utan hvarflaði ekki að honum að hljómsveit sem er hætt fyrir löngu færi að skipta sér af.
Nú voru góð ráð dýr. Söngvari hljómsveitarinnar Aerosmith, Stebbi Tyler, er góðvinur Trumps. Þeir hafa stússað margt saman. Leikið sér í golfi og fl. Trump gerði lag Aerosmith "Dream On" að kosningalagi sínu eftir vandræðaganginn með lög Njáls Unga og REM.
Stebbi hryggbraut vin sinn með því að banna honum að nota lagið. Til að byrja með trúði Trump honum ekki. Hélt áfram að nota lagið. Leikar fóru þannig að Stebbi leitaði til dómstóla og fékk lögbann sett á notkun Trumps á laginu.
Stebbi hefur útskýrt þetta þannig að eitt sé að vera vinur frambjóðandans. Annað að kvitta undir pólitík hans.
Pólitík hans er þó ekki verri en svo að hún speglar viðhorf meirihluta reppa í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Það er ekkert nema gott um það að segja.
Trump hæddist að fötluðum blaðamanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt 27.11.2015 kl. 07:12 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn
- Bítlasynir taka höndum saman
- Örstutt og snaggaralegt leikrit um handrið
- Metnaðarleysi
- Eftirminnilegur jólapakki frá Önnu frænku á Hesteyri
- Páskagaman
- Allir góðir saman!
- Kennaramorð
- Maður með nef
- Ánægjuleg kvikmynd
- Kallinn reddar
- Illvíg ófærð
- Bónusgreiðslur og Bónuskort
- Hvar er mesta atvinnuþátttaka og minnsta?
- Vandræði við að rata
Nýjustu athugasemdir
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Stefán, hún hafði alltaf eitthvað skemmtilegt að segja. Sumt ... jensgud 24.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Meinhrekkjótt líklega blessuð konan. Hvað varðar innhringingar ... Stefán 23.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Sigurður Bjarklind, þetta er - að ég held - gamall vinnuskúr. jensgud 23.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Gott til þess að vita að sú gamla komst í stuð endrum og eins. ... Sigurður Bjarklind 23.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Sigurður I B, góður!!! jensgud 23.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Vantaði eitt i (fái) sigurdurig 23.4.2024
- Anna frænka og hraðsuðuketillinn: Ætli "Blush" fá þarna óvænta samkeppni!!! sigurdurig 23.4.2024
- Bítlasynir taka höndum saman: Wilhelm, vel orðað! jensgud 17.4.2024
- Bítlasynir taka höndum saman: Stefán (# 9), Julian hefur löngum kvartað undan afskiptaleysi ... jensgud 17.4.2024
- Bítlasynir taka höndum saman: Ég get ekki að því gert en ég vorkenni alltaf þessum Bítlasonum... emilssonw 16.4.2024
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 15
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 974
- Frá upphafi: 4074138
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 786
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- sigurjonth
- asthildurcesil
- siggith
- hallarut
- reykur
- rannveigh
- skulablogg
- fiski
- gudruntora
- asgerdurjona
- zeriaph
- jevbmaack
- lehamzdr
- ffreykjavik
- fuf
- stormsker
- xfakureyri
- jonmagnusson
- palmig
- jonaa
- jakobsmagg
- ktomm
- th
- jenfo
- gurrihar
- kiddirokk
- hlynurh
- skessa
- prakkarinn
- maggadora
- skinkuorgel
- agustolafur
- einherji
- heidathord
- atlifannar
- konukind
- gudnim
- 730
- blekpenni
- heida
- annabjo
- vglilja
- sleggjan007
- markusth
- bergruniris
- aevark
- rannthor
- katrinsnaeholm
- birgitta
- jullibrjans
- fararstjorinn
- agny
- ippa
- hugrunj
- aring
- ikjarval
- gujo
- bjorgvinbjorgvinsson
- drhook
- runarsv
- sjos
- doriborg
- haukurn
- gammon
- millarnir
- robbitomm
- korntop
- killjoker
- vantru
- evathor
- partners
- heiddal
- meistarinn
- skrifa
- heidistrand
- iaprag
- semaspeaks
- svei
- jonthorolafsson
- sverrir
- bonham
- bjarnihardar
- sigurgeirorri
- ladyelin
- birnamjoll
- veraknuts
- fia
- plotubudin
- ringarinn
- nonninn
- larahanna
- juliusvalsson
- skari60
- ingvarvalgeirs
- lubbiklettaskald
- kolgrimur
- olinathorv
- hreinsi
- baddinn
- hrolfur
- jenni-1001
- handsprengja
- ahi
- perlaheim
- gudrunmagnea
- ommi
- hemba
- grumpa
- bergthora
- grafarholt
- mummigud
- athena
- sigaxel
- bjolli
- gummiarnar
- kerchner
- rustikus
- hordurj
- thegirl
- birna-dis
- siggivalur
- krizziuz
- fridaeyland
- evabenz
- quackmore
- andres08
- bleikaeldingin
- bardurorn
- snorris
- ver-mordingjar
- nexa
- thorasig
- lindalinnet
- gudni-is
- mordingjautvarpid
- arh
- sinfonian
- raggipalli
- mongoqueen
- lovelikeblood
- holi
- jakobk
- rannveigbj
- stebbifr
- credo
- ylfalind
- herdis
- steinnhaf
- halo
- gullilitli
- 810
- motta
- leifurl
- janus
- ljonid
- kerla
- solir
- nilli
- guru
- steinnbach
- skagstrendingur
- hemmi
- gunnar
- hannamar
- mosi
- geislinn
- hlekkur
- luther
- zumann
- jara
- hector
- malacai
- polly82
- hughrif
- einarlee
- loopman
- sign
- destiny
- gilsneggerz
- thuridurbjorg
- liljabolla
- saethorhelgi
- svatli
- siggiholmar
- folkerfifl
- sigurjonsigurdsson
- eythora
- kiddijoi
- kjartanis
- rosagreta
- gurkan
- killerjoe
- gthg
- gebbo
- laugatun
- tru
- presley
- siggileelewis
- helgamagg
- doddilitli
- kjarrip
- steinibriem
- huldumenn
- jobbisig
- id
- mp3
- blomid
- ketilas08
- lilly
- hjolaferd
- lostintime
- skordalsbrynja
- birtabeib
- karitryggva
- marzibil
- zunzilla
- fjola
- storibjor
- rannug
- glamor
- venus
- eurovision
- skjolid
- einarsigvalda
- minna
- austurlandaegill
- coke
- eyja-vala
- harpao
- ljosmyndarinn
- doriegils
- lordbastard
- neddi
- holmarinn
- vga
- bus
- dolli-dropi
- vefritid
- eirikurgudmundsson
- hallibjarna
- svetlana
- blues
- huxa
- judas
- asdisran
- omarpet
- skattborgari
- himmalingur
- neytendatalsmadur
- salkaforlag
- kje
- laufabraud
- vestskafttenor
- gunnarggg
- esb
- ingvarari
- gunnarpalsson
- hreinn23
- saltogpipar
- hergeirsson
- jea
- arniarna
- psychosurfer
- metal
- hreinsamviska
- godinn
- krissa1
- robertb
- perlaoghvolparnir
- brandurj
- madddy
- tibet
- minkurinn
- hallidori
- liso
- graceperla
- mrsblues
- gummiogragga
- sisvet
- vild
- holar
- presleifur
- helgadora
- xjonsig
- helgananna
- meyjan
- tungirtankar
- visindavaka
- borgarfjardarskotta
- mal214
- vilberg
- brandarar
- einarhardarson
- steffy
- adhdblogg
- litliper
- audunnh
- gotusmidjan
- saemi7
- dorje
- sterlends
- jgfreemaninternational
- aloevera
- lucas
- olibjossi
- bestfyrir
- helgigunnars
- gleymmerei
- leifur
- ace
- diesel
- methusalem
- astroblog
- lynx013
- brell
- kikka
- doddyjones
- sigurjon
- birnast
- gunnarbjorn
- disdis
- valdinn
- ragnar73
- helgatho
- cigar
- parker
- manisvans
- kerubi
- mis
- bmexpress
- drum
- gisgis
- finni
- tbs
- topplistinn
- rognvaldurthor
- pjeturstefans
- gullfoss
- lotta
- thjodarsalin
- freyrholm
- olii
- gattin
- bjornj
- olafiaherborg
- rallysport
- sur
- sigrunzanz
- rafng
- hrannsa
- draumur
- aslaugas
- aeon
- gumson
- glamur
- skinogskurir
- launafolk
- bjarnimax
- westurfari
- bookiceland
- braskarinn
- komediuleikhusid
- elfarlogi
- elismar
- emilhannes
- fingurbjorg
- frida-litlah
- gudjul
- gp
- gusg
- gubo
- vgblogg
- hafthorb
- morgunblogg
- sveinnelh
- rattati
- diva73
- itlajh
- minos
- kliddi
- daliaa
- axelma
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- fun
- jaisland
- jeremia
- johanneliasson
- eyfeld
- johannesthor
- stjornun
- josefsmari
- x-d
- kristjan9
- larusg
- lifsrettur
- lifsyn
- loftslag
- ludvikludviksson
- margretsverris
- mofi
- sumri
- skari
- raffi
- rso
- roslin
- runarf
- jardytan
- sigridursig
- joklamus
- siggifannar
- sigurdurig
- stjornlagathing
- stefanjul
- stommason
- steinki
- svanurg
- spurs
- sveinneh
- tryggvigunnarhansen
- myworld
- valdimarjohannesson
- valmundur
- vest1
- totibald
Athugasemdir
Mikið rosalega myndi Donald Trump smellpassa inn í furðuveruhópinn sem stjórnar íslanska Framsóknarflokknum, svo vitlaus er hann. Hann gæti jafnvel sómað sér sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga.
Stefán (IP-tala skráð) 27.11.2015 kl. 08:39
Stefán, það er rétt hjá þér: Trump er miklu meiri framsóknarmaður en John F. Kennedy.
Jens Guð, 27.11.2015 kl. 18:17
Það er kannski ljótt að segja það, en látbragð Trumps í þessu myndbandi minnti mig á ákveðinn sjónvarpsstjóra hér á skerinu okkar, þegar hann tekur sig til við að herma eftir fólki sem hann er ekki sammála í pólitík.
Gísli Sigurðsson, 8.12.2015 kl. 09:46
Gísli, það er ekkert ljótt að segja það. Þetta er tilfellið.
Jens Guð, 8.12.2015 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.