Íslendingar kunna sig í útlöndum

  Forsætisráðherra Íslands,  Sigurðar Inga Jóhannssonar, og forsætisráðherrafrú Íslands, Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir, mættu glöð og reif í partý hjá Hussein forseta Bandaríkja Norður-Ameríku.  Í fyrirsögn af partýinu segir í málgagni kvótaaðalsins að forsætisráðherrafrúin hafi mætt í buxum.  

  Eðlilega er það stóra fréttin í Mogganum að konan hafi óvænt ekki mætt buxnalaus í partýið.  Mér þykir það hinsvegar vera svo eðlilegt og við hæfi að ég er hættur við að skrifa ósmekklegt blogg um þetta. Ég styð 100% þá djörfu ákvörðun Ingibjargar Elsu að vera ekki að væflast buxnalaus um Hvíta húsið í Washington.  Ekki viljum við að hún fái blöðrubólgu. 

john and yoko


mbl.is Forsætisráðherrafrúin mætti í buxum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Yoko er ekki bara raddlaus,hún er líka rasslaus laughing

Alfreð (IP-tala skráð) 14.5.2016 kl. 19:44

2 Smámynd: Jens Guð

Alfreð,  hún er ekki raddlaus.  Hún getur gólað heilu ósköpin þegar sá gáll er á henni.  Gólið fellur í mýkri jarðveg hjá mörgum öðrum en mér.

https://www.youtube.com/watch?v=tDDsm_xOQCk

Jens Guð, 14.5.2016 kl. 20:16

3 Smámynd: Jens Guð

https://www.youtube.com/watch?v=tDDsm_xOQCk

Jens Guð, 14.5.2016 kl. 20:17

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ja hérna, Jens minn. Stríplararnir skriplandi?

Buxnalaus kona er að sjálfsögðu ekki mjög smekkleg kona, enda var blessuð forsætisráðherrakonan ekki buxnalaus. Eða hvað?

Það rifjaðist nú upp fyrir mér að einmitt um Hvítasunnuna árið 1974, þá heimtaði ég að fá að fermast í buxum en ekki kjól eða pilsi. Strákastelpan ég hef aldrei fallið í hefðarkramið. Ég hef ávalt valdið hneykslun :)

Það þótti mjög flókið og óvenjulegt á þeim tíma, að stelpur vildu fermast í síðbuxum. En í síðbuxum fermdist ég, og skildi eiginlega ekki hvers vegna þetta þurfti að vera eitthvað vandræðalegt og umdeilt mál?

Ég hef alltaf verið óhefðbundin og umdeild strákastelpa, (frekjustráka-kerling) :(

Forsætisráðherrafrúin okkar er vist ekkert skárri en ég? Og þá er það slæmt!

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.5.2016 kl. 21:20

5 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  bestu þakkir ævinlega fyrir þínar skemmtilegu vangaveltur.  Um svipað leyti og þú fermdist í buxum þá var ennþá brottrekstrarsök ef bankastarfskona mætti til vinnu í buxum.  Í heimavistarskóla sem ég var í var stúlkum gert að vera í pilsi eða kjól á sunnudögum.  Ég efast um að það hefði leitt til brottvísunar úr skólanum að vera í buxum.  Það reyndi aldrei á það.    

Jens Guð, 15.5.2016 kl. 08:20

6 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Affkjörvuertume mynd af Óla og Dorrit, rassberum?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.5.2016 kl. 09:30

7 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Heyrðu afakaðu ég er losblindr. Ettaáttavera "akkvöruertumeð".

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 15.5.2016 kl. 09:32

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha... Fyrrverandi forsetafrú, Eldjárn mætti í hagkaupsslopp í Kaupfélagið, þ.e. áður en hún varð forsetafrú og það er ennþá verið að tala um það tongue-out

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2016 kl. 12:40

9 Smámynd: Jens Guð

Vilhjálmur Örn,  þetta er eina myndin af buxnalausum sem ég á.  

Jens Guð, 15.5.2016 kl. 13:23

10 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  ég man að þetta var notað gegn Kristjáni í kosningabaráttunni. Hagkaupssloppar þóttu svo ómerkilegir og ódýrir að það væri fyrir neðan virðingu fína fólksins að láta sjá sig í svoleiðis fátækraflík.  Þegar upp var staðið varð þetta til að afla Kristjáni og frú vinsælda meðal almennings.     

Jens Guð, 15.5.2016 kl. 13:29

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega, við viljum alþýðlegan forseta ekki glanspíu.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2016 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband