Feiti kallinn

Winston-Churchill-014

 

  Löng og gróin hefð er fyrir því að æðstu ráðamenn landa og þjóða séu í góðum holdum.  Það er kostur.  Þeir eiga síður en aðrir hættu á að fjúka.  Norski konungurinn Ólafur Haraldsson var iðulega kallaður "hinn digri" þegar aðdáendur vildu hampa mannkostum hans.  Breska forsætisráðherranum Winston Churchill er lýst sem miklum og stæðilegum af aðdáendum.

  En hvað með leiðtoga Norður-Kóreu,  Kim Jong-Un?  Þar í landi þorir enginn að tala um hann sem feita kallinn.  Íbúar landsins eru grannvaxnir,  eða öllu heldur horaðir.  Holdafar Kims er afbrigðilegt í samanburði.  Þess vegna hefur verið gripið til ýmissa bragða svo að minna beri á hvolpafitunni á guttanum.  Þar á meðal hafa augabrúnir verið helmingaðar.  Það er öflugt trix.  Einnig hefur hárgreiðsla hans,  kústur,  verið hækkuð. 

kim-jong-un langar augabrúnirkim-jong-un stuttar augabrúnir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Ein aðferð til viðbótar nýtur vinsælda í N-Kóreu.  Hún felst í því að gleraugum með hárri umgjörð er troðið á nef kauða og ljósmynd af honum þrengd.

kim-jong-un-gets-new-title  


mbl.is Vill efla kjarnorkuvopnabúr N-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞETTA með gott og mikið holdarfar á ser langa sögu- til Egyftalands og víðar.

 ÞAR ÞÓTTU FEITAR KONUR SEM GÁTU HELST EKKI GENGIÐ FYRIR SPIKI BERA VOTT UM RÍKA EGINMENN- OG ER SVO KANNSKI ENN Í DAG !sealed

Erla Magna Alexandersdóttir, 6.9.2016 kl. 20:11

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Í Póllandi þótti það víst líka merki um velstæð að vera í góðum holdum á síðustu öld, sagði pólsk kona mér fyrir mörgum árum síðan.

Mig minnir að ég hafi heyrt það eða lesið nýlega að Bretastjórnvöld og Bandaríkjastjórnsvöld séu að fara í endurnýjun á kornorkuvopnabirðum. Hvað finnst fólki um það?

"Norður Kórea" hvað?

Ég bara spyr eins og fávís kona með þokuheila, (eða réttara sagt heilaþoku).

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.9.2016 kl. 22:31

3 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna,  mér skilst að víða um heim hafi feitustu konur verið eftirsóttastar.  Þegar rússneskir hermenn flæddu yfir Þýskaland í lok seinni heimsstyrjaldarinnar þá voru feitustu konur í mestri hættu á að vera nauðgað.  

Jens Guð, 7.9.2016 kl. 11:26

4 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  takk fyrir innleggið.

Jens Guð, 7.9.2016 kl. 11:27

5 identicon

Framsóknarlookið

Stefán (IP-tala skráð) 7.9.2016 kl. 15:43

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þannig er tískan í dag.

Jens Guð, 7.9.2016 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.