Furðuleg lög

  Ég fagnaði frjósemishátíðinni - kenndri við frjósemisgyðjuna Easter (Oester) - úti í Munchen í Þýskalandi.  Næstum aldarfjórðungur er síðan ég kom þangað síðast.  Margt hefur breyst.  Á þeim tíma var fátítt að hitta einhvern enskumælandi.  Allt sjónvarpsefni var á þýsku.  Hvergi var hægt að kaupa tímarit, dagblöð eða annað lesefni á ensku.  Í dag tala allir ensku.  Í fjölvarpinu nást enskar sjónvarpsstöðvar.  Í blaðabúðum fást ensk og bandarísk tímarit og dagblöð. 

  Á meðan rigndi í Reykjavík var steikjandi sólskin í Munchen alla daga.  Það var notalegt.  Ég var vel staðsettur mitt í miðbænum,  við hliðina á umferðamiðstöðinni (central station).  Þar inni sem og fyrir utan er ekki þverfótað fyrir veitingastöðum og allrahanda verslunum.  Ég átti ekki erindi inn í eina einustu verslun,  ef frá eru taldir stórmarkaðir og blaðsölustaðir.  

  Fyrsta daginn rölti ég um nágrennið;  reyndi að átta mig á því og kortleggja það.  Að því kom að ég þreyttist á röltinu og hitanum.  Hvergi var sæti að sjá nema við veitingastaði.  Ég tyllti mér á tröppur fyrir utan DHL póstþjónustu.  Lét sólina skína á andlit og handleggi.  Hún býr til D-vítamín á húðinni.  Það kemur af stað kalkupptöku sem þéttir bein og styrkir hár, húð og tennur.  

  Ég var varla fyrr sestur en að mér snaraðist lögreglumaður.  Hann tilkynnti mér að stranglega væri bannað að sitja á gangstéttum.  Ég benti honum á að ég sæti á tröppum en ekki gangstétt.  Hann hélt því fram að tröppurnar væru skilgreindar sem hluti af gangstétt.  Ég stóð upp og spurði hver væri ástæðan fyrir svona banni.  "Af því að þetta eru lög," útskýrði laganna vörður ábúðafullur á svip.

  Þetta olli mér vangaveltum.  Helst dettur mér í hug að lögunum sé beint gegn betlurum,  útigangsmönnum og rónum.  Að minnsta kosti sáust engir slíkir þarna.  Það er sérstakt í miðbæ stórborgar (hálf önnur milljón íbúa).  Reyndar varð einn betlari á vegi mínum.  Hann var fótalaus en á stöðugu vappi.  Rölti um á höndunum.   

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

"Af því að þetta eru lög". Þetta mættum við Íslendingar taka okkur til eftirbreytni. 

Sigurður I B Guðmundsson, 26.4.2019 kl. 10:38

2 identicon

"When in Rome, do as the Romans do".

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 26.4.2019 kl. 14:50

3 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Ég bjó í Muenchen 1983-85. Kannast við þessa lýsingu að fæstir töluðu ensku en nýverið fór vinnufélagi minn í árs námsdvöl í Muenchen án þess að kunna (eða læra) stakt orð í þýsku. En betlarar og útigangsmenn voru nokkuð áberandi þá. Prófaði held ég aldrei að setjast á tröppur, kannski hafa þeir gert útigangsmenn útlæga og óþol gagnvart tröppusetum stafi af því. En þeir hafa þó ekki umturnast algjörlega, voru líka þá gefnir fyrir Ordnung.

Hólmgeir Guðmundsson, 26.4.2019 kl. 16:53

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  nákvæmlega!

Jens Guð, 26.4.2019 kl. 18:04

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Bjarklind,  svooo rétt.

Jens Guð, 26.4.2019 kl. 18:05

6 Smámynd: Jens Guð

Hólmgeir,  sennilega er þetta gangstéttabann frekar nýtilkomið. 

Jens Guð, 26.4.2019 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband