Ótrúlega merkileg spá Nostradamusar

  Afríka

  "Það hefur verið stritað á Íslandi í þúsund ár.  Það er ekki fyrr en stritið er skynsamlega skipulagt sem það fer að skila ávöxtun.  Þessa skipulagningu og hagræðingu annast forstjóranir, framkvæmdastjóranir og fjármagnseigendurnir. Þeir eru dráttarklárar atvinnulífsins.  Með harðnandi samkeppni um fjármagnið verða mistök einstakra forstjóra fljótar leiðrétt, ólíkt því sem áður var. Við eigum að samgleðjast forstjórunum, framkvæmdastjórunum og fjármagnseigendunum í stað þess að öfunda þá."

Hannes Nostradamus Hólmsteinn Gissurarson 2004  


mbl.is Hryðjuverkalög gegn Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

og er þá partýið rétt að hefjast... eða var það síðasta 23. ágúst eða þetta í gær hjá  B-kóngi... sér hann fyrir sér endalokin '?'

Fríða Eyland, 9.10.2008 kl. 16:08

2 Smámynd: Róbert Tómasson

Góður punktur Jens. Það fer sjálfsagt lítið fyrir karltuskuni honum Hannesi þessa daganna og þau orð sem hann hefur í gegnum tíðina í lofræðum um Íslenska fjármálasnilli látið falla og í dag vildi sjálfsagt aldrei hafa sagt, gætu fyllt bók og það góða við það að þar þyrfti hann ekki að stela einu einasta orði.

Róbert Tómasson, 9.10.2008 kl. 16:20

3 Smámynd: Fríða Eyland

Spámaðurinn er í bankastjórn og er örugglaga núna að gefa FME ráðgjöf...upp fyrir olnboga

Fríða Eyland, 9.10.2008 kl. 16:32

4 Smámynd: Ómar Ingi

Shiiiiiii

Ómar Ingi, 9.10.2008 kl. 19:21

5 identicon

Sveiattan

Á nú að fara að blanda Nostradamusi inní málin? Er móðursýkin ekki nóg fyrir? held að bloggarar þurfi að fara að kíkja í eigin barm yfir rjúkandi kaffibollunum á kjaftakerlinga og kalla samkomunni. Hafið þið ekkert lært af mannkynssögunni? Til hve margra dauðsfalla hefur óábyrgt hjal, svipað og þessi og hinn ætti að fara og blablabla, algerleg órökstutt, án nokkurrar umhugsunar um lögin í landinu, hversu margir hafa í gegnum tíðina verið brenndir á báli, hengdir, drekkt, barðir í spað, látnir hverfa, af því réttlætið var svo mikið og rjúkandi yfir kaffinu? Sveiattan. Ætlar mannkynið aldrei að læra af reynslunni? Kveðja. NínaS 

Nína S (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 20:48

6 identicon

Við erum að tala um landráð!

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband