Kynning á bókinni um Önnu á Hesteyri á morgun (sunnudag) í Reykjavík

annaáhesteyri - bókarkápa

   Á morgun verður viðburðarík dagskrá í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti á morgun,  sunnudaginn 23.  nóvember,  frá klukkan 13:00 til 16:00.  Þar ber hæst kynning austfirska bókmenntafræðingsins Rannveigar Þórhallsdóttur á bókinni frábæru "Ég hef nú sjaldan verið algild - Ævisaga Önnu á Hesteyri".  Þetta er eina kynningin á þessari bráðskemmtilegu bók á suðurhluta landsins.  Því er mikilvægt að missa ekki af þessum viðburði.   

  Um 30 aðrar konur kynna einnig sínar bækur.  Þar á meðal eru Álfrún Gunnlaugsdóttir, Auður Jónsdóttir, Erla Bolladóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigrún Eldjárn, Guðrún Helgadóttir, Þórunn Valdimarsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Halla Gunnarsdóttir, Bryndís Schram, Iðunn Steinsdóttir, Eyrún Ýr Tryggvadóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Sigurlína Davíðsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir.

  Sitthvað verður um að vera,  svo sem upplestur úr bókunum,  sýning á myndum úr bókunum,  ljósmyndasýning Bjarna Sigurjónssonar verður opnuð,  einnig málverkasýning Halldóru Helgadóttur og boðið upp á góðgæti af ýmsu tagi. 

  Á bókasafninu verður upplestur fyrir börn,  ásamt sýningu á bókunum sem hlutu Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, 2007 og 2008.  Það verður þess vegna hægt að ná úrvals fjölskylduskemmtun út úr þessum pakka.

  Þá er bara að reyna að vakna óvenju snemma til að missa ekki af neinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hvílíkur kvennafans!

ÉG myndi nú vakna hvenær sem er sólarhringsins Jens minn fyrir samvistir sem þessar!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 00:43

2 Smámynd: Ómar Ingi

Bara fyndið

Ómar Ingi, 23.11.2008 kl. 01:00

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Anna á Hesteyri er mun merkilegri en milljón Britney spírur, enda þótt sú síðarnefnda hafi sýnt heimsbyggðinni á sér píkuna.

Þorsteinn Briem, 23.11.2008 kl. 03:53

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Alltaf er maður að missa af einhverju skemmtilegu. 

Ía Jóhannsdóttir, 23.11.2008 kl. 10:27

5 Smámynd: Rannveig H

Ég missti ekki af þessu og skemmti mér vel,svo er ég búin að á bókina líka.

Rannveig H, 23.11.2008 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.