Jólagjöfin í ár

jólagjöfin í ár

  Jólagjöfin í ár þarf ekki að vera dýr.  Þú getur prentað þessa mynd hér að ofan út og límt hana á pappaspjald eða þunna tréplötu.  Best er að nota 3M spreylím.  Síðan er klippt snyrtilega í kringum myndina.  Ég hef grun um að hægt sé að nota bréfaklemmu fyrir snaga.  Ég veit samt ekki alveg hvernig það er gert.  Einnig má líma tvöfalt límband á bakhlið spjaldsins,  til að festa það á vegg.  Svo safnast fjölskyldan og nágrannar saman og keppa í að láta pílurnar svífa í mark.  Góða skemmtun! 

  Til að öllu sé til haga haldið þá kann ég ekki á tölvu og veit ekkert hver er höfundur þessa spjalds.  Gaman væri hinsvegar ef einhver kann deili á því. 

 

 


mbl.is Kaupþing fær greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Föndrarinn Jens

Ómar Ingi, 24.11.2008 kl. 19:57

2 Smámynd: Heidi Strand

Fjárhættuspil eru bannað í Bananalýðveldinu.
Kíktu yfir til mín.

Heidi Strand, 24.11.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei, í raun og veru er fjárhættuspil alls ekki bannað, mikill misskilningur, því öll happdrætti, Lottó, 1x2, spilakassar út um allt o.s.frv. eru auðvitað ekkert annað en fjárhættuspil!

En það sem kallað er spilavíti með rúllettum og pókerborðum m.a.þar sem gjarnan hálfberar kvinnur ganga um beina eins og t.d. í Las Vegas, slík starfsemi er bönnuð.

Magnús Geir Guðmundsson, 25.11.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.