Ekki kaupæði en...

verkfæri

  Einn kunningi minn er mjög fjarri því að vera með kaupæði.  Kona hans og krakkar saka hann um að vera nískan.  Það er ekkert keypt nema brýn nauðsyn kalli.  Undantekningin er þegar vinurinn á leið framhjá verkfæraverslunum.  Ég held að hann hafi aldrei farið framhjá verkfæraverslun án þess að kaupa verkfæri. 

  Oftast eru þetta ódýr verkfæri:  Skrúfjárn,  alur,  hamar eða eitthvað álíka.  Það sérkennilega er að hann notar þessi verkfæri ekki.  Ef eitthvað fer aflaga á heimilinu hringir hann í viðgerðarmann.  Í mesta lagi neglir hann nagla til að hengja upp myndir.  En fátt umfram það. 

  Bílskúr hans lítur út eins og lager í verslun:  Bílskúrinn er troðfullur af verkfærum sem eru ennþá í umbúðum:  Borvélar,  stingsagir og ótal smáverkfæri.

  Stundum hitti ég vininn og hann dregur þá ætíð fram eitthvað innpakkað verkfæri sem hann var að kaupa.  Og lýsir fjálglega kostum verkfærisins.  Mér til gamans spyr ég alltaf:  "Ætlarðu að fara að nota þetta?"

  Svarið er ætíð það sama:  "Kannski ekki núna.  En það getur verið gott að eiga þetta."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Ó, hve ég skil hann vel.  Ég er líka svona.  Ég á allan fjandann í geymslunni.  Nefndu það, ég á það.  Allt til að sinna venjulegu viðhaldi á húsnæði, til að gera við pípulagnir, dytta að rafmagni og til múrviðgerða.  En munurinn er sá að ég nota þetta allt saman.  Ég er meira að segja þekkt sem "kellingin með keðjusögina" í hverfinu.

Hjóla-Hrönn, 12.10.2009 kl. 23:34

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

menn (og konur) eru misskrýtnir

Jóna Á. Gísladóttir, 13.10.2009 kl. 00:13

3 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Einhverstaðar stendur:  "Sá sem á mesta dótið þegar hann deyr vinnur"

Ekki er ég viss um að Jens okkar verði í verðlaunasæti í þeirri keppni, hann gæti meira að sega tapað fyrir konu, sem er náttúrulega smánarlegt í svona keppni.

S. Lúther Gestsson, 13.10.2009 kl. 00:23

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Minn bílskúr er fullur af allskonar dóti, það hefur ekki komist bíll inn í skúrinn í 10 ár.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.10.2009 kl. 00:30

5 Smámynd: Jens Guð

  Hjóla-Hrönn,  hvað gerir þú með keðjusög í hverfinu?

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 13:28

6 Smámynd: Jens Guð

  Jóna,  flest fólk er skrítið.  Það er bara mis áberandi.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 13:30

7 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður Lúther,  ég á engin verkfæri - að frátöldum pennum.  Ég á nokkuð góðan lager af pennum.  Aðallega skrautskriftarpennum.  Mér þykir ólíklegt að margar konur eigi jafn gott úrval af pennum.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 13:32

8 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Jens. Pennar eru ekki dót. Færð engin stig fyrir pannasafn.

S. Lúther Gestsson, 13.10.2009 kl. 13:34

9 Smámynd: Jens Guð

  Jóna Kolbrún,  það er sjaldgæft að bílar komist inn í bílskúra.  Skúrarnir eru yfirleitt pakkaðir af öðru dóti.  Svo nennir fólk yfirleitt ekki að opna og loka innkeyrsludyrunum. 

  Ég man ekki eftir neinni manneskju í mínum kunningjahópi sem notar bílskúrinn undir bíl.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 13:35

10 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður Lúther,  skilgreining á verkfæri er sú að það sé áhald sem menn nota við vinnu.  Skrautskriftardótið mitt eru mín vinnuáhöld. 

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 15:00

11 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Það voru bara og aðeins 40 aspir í garðinum þegar við fluttum inn.  Það var niðdimmt inni um miðjan dag.  Svo ég fjárfesti í keðjusög og dundaði mér við að saga þær niður einn veturinn.  Kallinn var fyrst sendur upp í öspina með exi til að höggva niður greinarnar og toppinn.  Svo setti ég í gang og sneið tréð niðri við jörð.  Þegar kallinn var kominn niður, nota bene.  Þetta olli keðjuverkun í hverfinu, það fóru allir af stað að fjarlægja aspirnar úr sínum görðum og planta minni trjám í staðinn. 

Svo var einn stubbur á lóðamörkunum, 1.5 metrar í þvermál og ca 2 metrar á hæð.  Inni í miðju birkilimgerði.  Synir nágrannans báðu um leyfi til að fjarlægja hann og planta birki í staðinn.  Sjálfsagt.  Nema ég sé þá út um gluggann böðlast á trénu með handsög og vissi að þetta myndi taka þá heila viku, svo ég snaraði mér í gúmmístígvél, steðjaði út með kúluna í í loftið (komin 7 mánuði á leið) í náttkjólnum með keðjusögina.  Bað strákana um að stinga framlengingarsnúru í samband og svo tók ég niður tréð á tveimur mínútum.  Lét strákana að vísu sjá um að koma níðþungum stubbnum í burtu.  En þegar verkinu var lokið leit ég upp og þá var kominn heill haugur af krökkum, gónandi á "klikkuðu kellinguna með keðjusögina", kasólétta, í náttkjól og gúmmístígvélum, venjulega sér maður ekki kjaft þegar maður er á ferð um hverfið, ég vissi aldrei hvaðan allir þessir krakkar dúkkuðu upp.

Hjóla-Hrönn, 13.10.2009 kl. 15:30

12 identicon

Channel IconLOL ahhaha mjög fyndid, Hjóla-Hrönn!  Mjög gódur hringur sem thú fórst á hjólinu um daginn tharna í Hvalfirdinum.  Er med hálfgerda hjóladellu líka.  Á tvö reidhjól med "lugged frames"  annad er touring hjól (hjól til langferda fyrir töskur)  hitt er létt sporthjól.

Gjagg (IP-tala skráð) 13.10.2009 kl. 17:44

13 Smámynd: Jens Guð

  Hjóla-Hrönn,  frábær lýsing hjá þér

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 18:47

14 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  ansi eruð þið dugleg að hjóla.  Ég hef ekki sest á hjól í marga áratugi.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 18:49

15 Smámynd: doddý

hæ jens - ég var farin að sakna þín örlítið, mér finnst þessi verkfæra kunningi þinn vera mjög heilbrigður í hugsun. kv d

doddý, 13.10.2009 kl. 20:13

16 Smámynd: Jens Guð

  Doddý,  ég var farinn að sakna þín heilmikið.  Það er ekkert bull á þeim verkfæraglaða.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 20:25

17 Smámynd: Hannes

Ég kannast við fólk sem kaupir ótrúlega hluti og notar þá yfirleit aldrei eða sjaldan. Ég kaupi aldrei verkfæri nema þegar ég þarf á þeim að halda og þá aðeins þau sem ég þarf og hef þau vönduð.

Ég fer nú aldrei á reiðhjól og læt 1500cc hippann duga mér þegar að hjólum kemur enda langþægilegast og ekkert mál að fara í langferð á honum.

Hannes, 13.10.2009 kl. 21:39

18 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  það er ódýrast að fá verkfæri lánuð ef maður þarf á þeim að halda.

Jens Guð, 13.10.2009 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband