Frjálslyndir í meirihluta

  Samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fallinn á Ísafirði.  Þar er listi Frjálslyndra og óháðra ásamt fleirum (Samfylkingu og Vinstri grænum) kominn með yfirhöndina.  Það er allt komið á blússandi siglingu og mikillar uppstokkunnar að vænta þvers og kruss um landið.  Fjórflokkurinn á víða undir högg að sækja sem slíkur.  Þetta er spennandi. 

.


mbl.is L-listinn stærstur á Akureyri samkvæmt könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benjamín Plaggenborg

Svolítið biturt niðurlag í fréttinni líka. En já, það hriktir í stoðum íslenskra stjórnmála, sem er mjög gott. Nú er bara að bíða eftir að næsti fjórflokkur verði til, svo við getum glaðst yfir því þegar hann fellur líka.

Benjamín Plaggenborg, 20.5.2010 kl. 22:09

2 Smámynd: Jens Guð

  Benjamín,  það verður ekki neinn næsti samspillingar fjórflokkur.  Vonandi.

Jens Guð, 20.5.2010 kl. 22:33

3 identicon

Fjórflokkar eru náttúrulegir alveg eins og spenarnir á kýrunum ... eða var það kýrnum ... eða kúunum ... kúnum?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 22:40

4 Smámynd: Hamarinn

Það er nú samfylkingarþurs sem er bæjarstjóraefni listans á Ísafirði, ekki frjálslyndur.

Hamarinn, 20.5.2010 kl. 22:48

5 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  segjum bara beljunum.

Jens Guð, 20.5.2010 kl. 23:02

6 Smámynd: Jens Guð

  Hamarinn,  ég þekki ekki nógu vel til þarna fyrir vestan.  Get því ekki gert ágreining við þig um þetta.

Jens Guð, 20.5.2010 kl. 23:03

7 identicon

afhverju vísar þú í frétt um  Akureyri og talar um Ísafjörð?

GHH (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 23:11

8 identicon

L- listinn á Ak varð til sem fíluframboð í framsókn, það er ekkert frjálslynt eða óháð við það

´GHH (IP-tala skráð) 20.5.2010 kl. 23:15

9 Smámynd: Hamarinn

Sigurður Pétursson samfylkingarmaður er eiginmaður ekki minni kerlu en Ólínu Þorvarðardóttur. Sigurður var í 1 sæti 2006, þá var fulltrúi frjálslyndra á listanum Magnús Reynir Guðmundsson, hver tók við af honum veit ég ekki. En samfylkingarþursinn er bæjarstjóraefnið.

Það má einnig minna á , að fyrir síðustu kosningar var talið öruggt samkvæmt öllum skoðanakönnunum, að meirihlutinn myndi falla, en það gerðist ekki. Spurningin er. Hvað gerist nú eftir hrunið.

Hamarinn, 20.5.2010 kl. 23:16

10 Smámynd: Jens Guð

  GHH,  ferskir vindar blása um land allt.  Krafan er breytingar.  Uppstokkun.  Jafnt á Akureyri sem Ísafirði sem Reykjavík sem...

Jens Guð, 21.5.2010 kl. 00:52

11 Smámynd: Jens Guð

  Hamarinn,  ég veit í raun lítið sem ekkert um hvað er í gangi á Ísafirði.  En það veit á gott ef einhver uppstokkun verður á hvern veg sem hún verður.

Jens Guð, 21.5.2010 kl. 00:53

12 Smámynd: Jens Guð

 GHH (#8),  ég veit ekkert um L-listann á Akureyri.  Hinsvegar veit aðeins á gott ef einhver uppstokkun er.  Hvar sem er.

Jens Guð, 21.5.2010 kl. 01:26

13 Smámynd: Benjamín Plaggenborg

Jens, ég vísa í Hugleik Dagsson:

Kannski í upphafi hafa þeir einhverjar hugsjónir um bættan þjóðarhag, en það breytist undantekningarlaust. Pólitík er ótemja sem bugar knapann. Að lokum er það kerfið sem stjórnar manninum, ekki öfugt eins og ætlunin var.

Hann mælir lög, enda er ekki að ástæðulausu að stjórnmálamenn alls staðar í heiminum séu bendlaðir við ósannsögli og undirförli.

Benjamín Plaggenborg, 21.5.2010 kl. 13:50

14 Smámynd: Jens Guð

  Benjamín,  vald spillir.  Mikið vald spillir mikið.  Langvarandi vald spillir langvarandi.  Þess vegna er brýnt að brjóta upp samspillingu fjórflokksins.  Hinsvegar eru - sem betur fer - innan um heiðarlegir hugsjónarmenn.  Bæði hérlendis og erlendis.  Til að mynda Nelson Mandela.

Jens Guð, 21.5.2010 kl. 14:22

15 identicon

Sveskjugrautur med rjóma

Gjagg (IP-tala skráð) 21.5.2010 kl. 16:58

16 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  það er veisla!

Jens Guð, 21.5.2010 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband