Færeysk pönkhljómsveit heiðrar íslenska forsætisráðherrann og biðst fyrirgefningar

200Johanna_sigurdardottir

  Flottasta pönkhljómsveit heims er færeyska tríóið 200.  Það nýtur mikilla vinsælda á Íslandi og er vinsælasta rokkhljómsveitin í Færeyjum.  200 er nú að spila á Iceland Airwaves í annað sinn.  Að þessu sinni í Sjoppunni klukkan 17.00 á morgun og á Amsterdam kl. 01.20 aðfaranótt sunnudags.  Áður spilaði 200 á Iceland Airwaves 2005.  Einnig var 200 með nokkra hljómleika í Reykjavík árið 2002.  Siggi Pönk (Forgarður helvítis,  DYS) sagði í tímaritinu Undirtónum á sínum tíma að menn hefðu ekki heyrt almennilegt pönkrökk fyrr en þeir hefðu heyrt í 200.

  Í tilefni af hljómleikum 200 á Iceland Airwaves nú hefur pönksveitin 200 sent frá sér yfirlýsingu.  Í yfirlýsingunni er harmað að íslenski forsætisráðherrann,  Jóhanna Sigurðardóttir,  og eiginkona hennar hafi mætt kuldalegu viðmóti færeysks stjórnmálamanns í opinberri heimsókn til Færeyja á dögunum.  Pönksveitin 200 biður íslenska forsætisráðherrann fyrirgefningar (umbering) á þessu fyrir hönd fólks,  lands og þjóðar.

  Pönksveitin 200 hefur beðið færeyska sendiherrann á Íslandi um að koma boðum á framfæri við íslenska forsætisráðherrann þess efnis að þau hjónin séu boðin hjartanlega velkomin á hljómleika 200 á laugardag.  Jafnframt er þeim velkomið að snæða matarbita með liðsmönnum 200 hvenær sem henta þykir á meðan á helgardvöl hljómsveitarinnar stendur á Íslandi. 

  Til viðbótar býður pönksveitin 200 íslenska forsætisráðherranum að þiggja Riddarakross hljómsveitarinnar.  Áður hafa Magni Laksáfoss, Hergeir Staksberg (í hljómsveitinni Makrel), Anna Kirstin Thomsen, Felix van den Berg (svissneskur útvarpsmaður) og Jóannes Patursson verið sæmd Riddarakrossi 200.  Afskaplega sparlega er farið með úthlutun Riddarakross 200,  eins og sést á því að einungis 5 manneskjur hafa verið heiðraðar á þennan hátt á 14 ára ferli pönksveitarinnar. 

  Hér má lesa yfirlýsingu 200 í heild:    http://www.facebook.com/?tid=1469337855228&sk=messages#!/note.php?note_id=132942526758360&id=66148235829

orða 200


mbl.is Ráðherrar funda um skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Matthíasson

Mæli eindregið með þessari frábæru sveit sem spilar líka á Amsterdam kl. 1:20 aðfaranótt sunnudags. Sá þá spila á Grand Rokk 2005 og fullyrði að 200 sé ein besta erlenda sveit sem hingað hefur komið árum saman.

Árni Matthíasson , 15.10.2010 kl. 17:25

2 identicon

Eru seldir miðar við dyrnar, þannig að maður gæti bara mætt og séð þá, eða þarf einhvern Airwaves passa og læti? Kann svo lítið inná þetta en elska þetta band, það væri snilld að sjá þá live.

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 17:45

3 Smámynd: Jens Guð

  Árni,  takk fyrir þetta.  Ég var snöggur að bæta Amsterdam í færsluna.

Jens Guð, 16.10.2010 kl. 18:39

4 Smámynd: Jens Guð

  Gunnar Hrafn,  þú kemst áreiðanlega inn á blaðamannapassanum þínum.  Það er tvöfalt skemmtilegra að sjá og heyra 200 á hljómleikum en hlusta á þeirra annars frábæru plötur.

Jens Guð, 16.10.2010 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.